Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 70

Fréttablaðið - 19.12.2008, Page 70
46 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Áður fyrr fannst mér Bandaríkja- menn hafa rétt fyrir sér í öllu. Þeir máttu stjórna öllu því hinir voru allir vitleysingar! Það var þá. Áður en þeir kusu „snillinginn“ í annað kjörtímabil. En hann situr nú sem fastast í djobbinu! En það má deila um hvort þeir kusu hann! Og hvað gerir fólkið? Hreyfir sig ekki, það ætti auðvitað að sparka beint í kúlurnar á þess- um mongó! Það ætti að senda skila- boð! Um að það sé heimskulegt að vera með stríði og pyntingum og öllu því! Hár- rétt! Ég ætla ekki að yfirheyra þig Palli. Trúðu mér, ég veit hversu pínlegt það getur verið að tala um kynlíf við pabba sinn. En það þarf ekkert að vera það. Segðu bara til ef þér fer að finnast þetta neyðarlegt. Ef mér fer að finnast? Háreysti hf. GISP Sagði ég eitthvað vitlaust? Jóna! Elskan, vaknaðu. Hmmm? Ég svæfði krakk- ana. Er það? Og ég er viss um að það var ástæða fyrir því að þú vaktir mig. Heldur betur. Þú liggur á fjarstýringunni. Fröken Sigríður, viltu rétt aðeins koma hingað inn. Shit! GISP GISP AGA Gasol® Afgreiðsla ÍSAGA, Breiðhöfða 11, er opin virka daga frá kl. 8 til 17. Þú s ér ð in ni ha ld ið ! IS A -3 4 2 .3 – ÍD E A g rafísk h ö n n u n Alla daga frá kl. 10 til 22 Heimsend ingarþjónu sta fyrir jólinM undu að panta! Þú færð allar nánari upplýsingar um AGA Gasol hylkin, þrýstiminnkara, slöngur og sérlausnir hjá umboðsmönnum okkar og í þjónustuveri ÍSAGA í síma 577 3000. Árið 1983 kom út hjá Æskunni hið merkilega rit Poppbókin – í fyrsta sæti. Þessa bók, en í henni fer höfundurinn Jens Guð yfir sögu íslenskrar popptónlistar og tjáir lesendum álit sitt á helstu plötum og listamönnum á opinskáan hátt, las ég upp til agna sem fróðleiksfúst tónlistaráhugabarn. Ég bar ómælda virðingu fyrir skoðunum Jens og gerði þær að vissu leyti að mínum eigin. Ástæða þess var einföld; Poppbókin var eina bókin um íslenska tónlist sem völ var á, og ég var ungur, áhrifagjarn og vitlaus. Ekki veit ég hversu vel eða illa téð Poppbók seldist á sínum tíma. Hitt veit ég að sumarbústaða- nefndir hinna ýmsu starfsmanna- félaga virðast hafa krækt í afgangsupplagið á góðu verði því enn þann dag í dag er illmögulegt að stíga inn í sumarbústað á landinu án þess að brautryðjendaverk Jens Guð blasi við í bókahillu ásamt epískum bókmenntum á borð við Rósumál – líf og störf Rósu Ingólfsdóttur og Hin fjögur fræknu og kappaksturinn. Í sumarbústaðaferðum síðustu ára hef ég reglulega endurnýjað kynnin við Poppbók- ina og alltaf rennur það betur upp fyrir mér hversu mjög þessi bók hefur mótað viðhorf mitt til íslenskrar tónlistar. Þrátt fyrir að hafa lesið allar bækur sem síðar hafa verið gefnar út um sama efni og viðað að mér ýmsum fróðleik á ég enn þá erfitt með að hrista af mér þá tilfinningu að Árni Daníel Júlíusson, fyrrverandi hljómborðs- leikari Q4U og Snillinganna (sem fær undarlega veglegan sess í Poppbókinni hans Jens), sé einn af helstu þungavigtar- mönnunum í íslenskum tónlistarheimi. Svona getur fákeppnin haft afdrifarík áhrif á skoðanir ungs og áhrifagjarns fólks. Poppbókin – enn í fyrsta sæti NOKKUR ORÐ Kjartan Guðmundsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.