Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 8

Fréttablaðið - 21.12.2008, Page 8
 21. desember 2008 SUNNUDAGUR Verið velkomin í Nettó Mjódd - Salavegi - Hverafold Akureyri - Höfn - Grindavík ww.netto.is Góðir harðir pakkar! GILDIR 21. DESEMBER w w w .m ar kh on nu n. is TRIXIN Í TAKKASKÓNUM 1.799 kr HEYR HIMNASMIÐUR 1.798 kr MAMMA MIA! 2.599 kr ÍS L E N S K A S IA .I S U T I 44 21 0 11 .2 00 8 Skíðapakkar 20% afsláttur Skíðadeildin er í Glæsibæ HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 MENNTUN „Íslenska er mjög fallegt tungumál,“ segir Veronica Piazza, sautján ára ítalskur skiptinemi, sem nýlega fékk 10 í einkunn í íslenskuprófi fyrir erlenda nema í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Meðaleinkunn Veronicu úr jóla- prófunum er 9,14 og er árangur hennar enn glæsilegri sé litið til þess að hún kunni ekki stakt orð í íslensku þegar hún kom til lands- ins fyrir tæpum fjórum mánuðum á vegum AFS-samtakanna. Fyrstu vikurnar talaði íslensk fósturfjölskylda Veronicu bæði íslensku og ensku við hana en svo var tekin ákvörðun um að á heimil- inu yrði bara töluð íslenska. Það hefur hjálpað henni mikið við að ná tungumálinu. Hún segir íslensku vera allt öðruvísi en ítölsku og enn skilji hún ekki allt sem við hana er sagt. Veronica kemur frá smábæ skammt frá Mílanó á Ítalíu. Hún segist hafa valið að koma til Íslands þar sem henni hafi þótt landið svo framandi. „Á Ítalíu er lítið talað um Ísland en margir spurðu mig af hverju ég færi ekki til Bandaríkj- anna. Ég hef hins vegar alltaf haft áhuga á að kynnast Íslandi, land- inu og menningunni,“ segir Veron- ica. „Ítalir hafa þá hugmynd um íbúa Norðurlandanna að þeir séu svo kaldir í viðmóti. Að þeir tali ekkert og ég var svolítið hrædd um þetta þar sem ég er ekkert ofsalega opin í samskiptum. Ég held þó að ég hafi lært að til að kynnast fólki sé mikilvægt að taka fyrsta skrefið. Ég reyni því að kynnast fólki og þannig hef ég lært margt þessa mánuði sem ég hef búið á Íslandi,“ segir Veronica. Henni finnst Íslendingar þó svo- lítið skrítnir. „Fyrst eru þeir feimn- ir en svo þegar maður kynnist þeim þá eru þeir svo hlýir og ynd- islegir. Í fyrstu var ég svolítið átta- villt þar sem á Ítalíu er venjan að faðma fólk og kyssa, jafnvel þótt þú þekkir það ekki. Ég komst þó fljótt að því að þannig eru Íslend- ingar ekki,“ segir Veronica og hlær. „Mér líður vel á Íslandi. Ég bjóst ekki við að Íslendingar væru svona yndislegt fólk og ég er mjög ánægð hérna hjá íslensku fjölskyldunni minni. Svo hef ég eignast fullt af góðum vinum,“ segir Veronica sem ráðgerir að dvelja á Íslandi fram í júní á næsta ári. olav@frettabladid.is Ítalskur skiptinemi með 9,14 í einkunn Veronica Piazza, ítalskur skiptinemi, fékk tíu í einkunn í íslenskuprófi fyrir erlenda nema í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hún segir að Ítalir telji Norð- urlandabúa kalda í viðmóti en að Íslendingar séu feimnir, hlýir og yndislegir. Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Veronica Piazza ásamt íslenskri vinkonu sinni, Elísu Birtu Ingólfsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LÖGGÆSLUMÁL Rúmlega þrjátíu nemendur voru nýverið brautskráðir úr Lögregluskóla ríkisins. Þar af voru sjö konur. Arnar Guðmundsson skólastjóri sagði þetta ár einstakt í 40 ára sögu lögreglumenntunar á Íslandi því 45 nemendur hefðu verið brautskráðir frá skólanum í apríl og að viðbættum þeim 32 sem nú væri verið að brautskrá yrðu samtals 77 nemendur brautskráðir á árinu. Arnar sagði að fimmtán nemendur væru nú um það bil að ljúka námi á fyrstu önn grunnnáms og búið væri að velja 31 nemanda til að hefja nám á fyrstu önn í janúarbyrjun 2009. Hann sagði að mikið álag hefði verið á alla starfsmenn skólans á þessari haustönn og þakkaði þeim sérstaklega fyrir áhuga og dugnað. Varðandi starfsemi framhaldsdeildar Lögregluskóla ríkisins nefndi Arnar sérstaklega námskeið um akstur með forgangi. Skólinn mun leiða sérstakt átak á því sviði. Á næstu misserum er gert ráð fyrir að þjálfa 300 til 350 lögreglumenn í forgangsakstri. Í ræðu sinni minnti Arnar nemendur á að lögreglu- starfið væri erfitt, lögreglumenn þyrftu að búa yfir hugrekki og ráðkænsku; hafa stjórn á sér og vera heiðarlegir. - jss NÝIR LÖGREGLUMENN Skólastjóri Lögregluskólans sagði við brautskráningu að það væru góðir eðliskostir lögreglumanna að vera prúðmenni. Lögregluskóli ríkisins brautskráði nýverið 32 nemendur: Tugir nýrra lögreglumanna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.