Fréttablaðið - 23.12.2008, Blaðsíða 28
23. DESEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Skatan var á leið í pottinn hjá
Vigni Hlöðverssyni og Mike Viney,
kokkum á Grand hóteli, enda eiga
þeir von á um 300 manns í mat
í hádeginu í dag. Mike smakk-
aði þennan kæsta eðalrétt fyrst í
fyrra og kunni alls ekki að meta
hann en Vignir er kampakátur.
„Við höfum verið með skötu-
veislu í mörg ár á Þorláksmessu
hér á Grand hóteli. Það hefur
verið geysivinsælt og við erum
með fullbókað,“ segir Vignir, sem
er yfirmatreiðslumaður á staðn-
um.
Mike er breskur og kynnt-
ist ekki skötu fyrr en á síðasta
ári. „Ég var ekki hrifinn,“ segir
hann með áherslu en kveðst samt
ætla að standa sína plikt í eld-
húsinu, jafnvel þótt hann tárist
yfir lyktinni. Skyldu þeir félagar
verka skötuna sjálfir? „Nei, við
kaupum hana af góðum mönnum
sem kunna til verka. Hluti henn-
ar kemur að vestan,“ segir Vign-
ir, sem býður upp á þrjár gerðir,
lítið kæsta, miðlungs og svokall-
aðan Vestfirðing sem er sú sterk-
asta. „Við erum líka með saltfisk
og nætursaltaðan fyrir viðkvæma
og berum fram rófur, kartöflur,
rúgbrauð, hangiflot, hamsa og
hnoðmör. Þetta á að henta öllum
og sumir koma bara til að vera
með en ekki vegna aðdáunar sinn-
ar á skötu.“
En telur Vignir ekki vont að
fylla hótelið af svona vondri
lykt rétt fyrir jólin? „Nei, lykt-
in er fljót að fara. Það er ágæt
loftræsting í húsinu og við erum
með skötuna á afmörkuðu svæði.
Svo er lítill umgangur hér eftir
veisluna og fram undir kvöld
en þá koma erlendir gestir sem
munu dvelja hér yfir jólahátíð-
ina.“ - gun
Ragnheiður Steindórsdóttir
leikkona heldur fast í hefðir
æsku sinnar á Þorláksmessu.
„Sem barn, og reyndar langt fram
á fullorðinsár, fórum við fjölskyld-
an alltaf á aðalæfingu jólasýning-
ar Þjóðleikhússins á Þorláksmessu,
en foreldrar mínir unnu báðir í
Iðnó, þar sem ekki voru jólafrum-
sýningar,“ segir Ragnheiður um
Þorláksmessusiði bernskuáranna.
„Úr leikhúsinu fórum við ávallt í
skötuveislu hjá Ninna föðurbróð-
ur mínum og Gullu, konu hans. Það
var dýrðlegur fjölskyldufagnaður
með vestfirskri, verulega kæstri
skötu, þannig að maður gat rétt al-
mennilega dregið andann, hnoð mör
og staupi af brennivíni. Síðan
var farið heim að skreyta,“ segir
Ragnheiður sem rekur föðurætt
sína vestur í Hnífsdal. „Eiginmað-
ur minn gaf þeim Gullu og Ninna
kassa með glerloki, en í honum var
hamar sem hlaut nafnið Fnykvari;
til öryggis ef maður væri við dauð-
ans dyr úr skötu fnyk. Fnykvara
fylgdi svohljóðandi vísa:
Þó að skatan skilning teppi
skynfæranna minna,
þessu boði því ei sleppi,
Þorláks, Gullu og Ninna.
Ragnheiði finnst Þorláksmessa
sviplaus án skötu, en undanfarin ár
hefur skötuveislan færst yfir í hús
foreldra hennar, leikarahjónanna
Steindórs Hjörleifssonar og Mar-
grétar Ólafsdóttur.
„Mér þykir skata vera herra-
manns matur og alltaf gaman að
tárast yfir henni. Dóttir mín og
eiginmaður fá sér kæsta pítsu á
meðan við sonurinn förum í skötu,
en mér þykir vænt um að smekkur-
inn haldist áfram meðal afkomenda
minna,“ segir Ragnheiður, sem á
annan dag í jólum mun stíga á fjalir
Þjóðleikhússins í Sumarljósi eftir
Jón Kalman Stefánsson.
„Nú verð ég sjálf að leika á að-
alæfingu á Þorláksmessu. Það er
sterk hefð hjá leikhúsfólki að mæta
og mörgum sem finnst ekki vera
jól nema farið sé í leikhúsið. Á eftir
förum við í skötuveisluna og aðeins
í bæinn til að upplifa andrúmið, en
drífum okkur svo heim að klára, því
eins og amma mín sagði: „Hún er
drjúg innansleikjan“,“ segir Ragn-
heiður sem ávallt skreytir heimili
sitt á Þorláksmessukvöld. „Krakk-
arnir harðneita að skreyta fyrr en
á Þorláksmessu, eins og tíðkaðist
áður meðal þjóðarinnar. Við erum
enn í þeim takti og ljúkum öðrum
undirbúningi fram eftir, en helst
vil ég geta sofið út á aðfangadag
og eiga bara eftir að skipta á rúm-
unum og viðra vel. Það skiptir svo
miklu að fá ferskt loft í sængurföt-
in á jólanótt.“ - þlg
Hún er drjúg innansleikjan
Ragnheiður Steindórsdóttir hóf jólaundirbúninginn snemma í ár; sendi jólakortin í tíma og smám saman hafa jólagjafirnar skilað
sér heim á borð þar sem hún lýkur við að pakka þeim í litríkan jólapappír, ásamt því að skreyta húsið hátt og lágt á Þorláksmessu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ólíkar skoðanir á skötunni
Þeir Vignir og Mike
á Grand hóteli ætla
að bera fram þrenns
konar skötu fyrir
gesti sína í dag. Mike
kann ekki að meta
fnykinn.
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
6. janúar
8. janúar