Tíminn - 17.08.1983, Blaðsíða 6
f / /
VEHMJR GERD NY UTGAFA AF
„HVERIUM KLUKKAN GLYMUR"?
■ Það er altalað í Hollywood
þessa dagana, að bráðlega
verði gerð ný mynd eftir sögu
Ernst Hemingways, sem hlaut
nafnið „Hverjum klukkan
glymur“ í íslenskri þýðingu, en
fræg mynd var gerð eftir henni
árið 1943 með Ingrid Bergman
og Gary Cooper í aðalhlut-
vcrkum. Þessi orðrómur hefur
þó ekki fengist staðfestur og
svarar vxntanlegur framleið-
andi, Sandy Howard, aðspurð-
ur um sannleiksgildi þessa
orðróms: - Hef ekkert um
málið að segja.
Það, sem þykir frcttnæmast
við þessa myndargerð, ef af
verður, er það að Sophia Loren
er sögð hafa látið tilleiðast að
taka að sér hlutverk í mynd-
inni. F.kki er það þó hlutverk
Ingrid Bergman í frumútgáf-
unni, sem hún kæmi til með
að fara með, heldur hlutverk
sígaunakonunnar Pilar, sem er
engin snoppufríð yngismær.
Þykir sumum, sem Sophia
hafi gerst heldur lítillát, þegar
hún féllst á að taka hlutverkið
að sér, en kunnugir halda því
fram, að hún sé komin á það
stig, að hún vilji allt til vinna
að komast aftur í fréttir fyrir
annað en skattamál sín og
hjónabandsvandræði, en þau
mál hafa aðallega haldið nafni
hennar á lofti að undanförnu.
Þar að auki á hún að hafa
komið sér út úr húsi hjá ýmsum
kvikmyndaframleiðendum
með kenjum og skyndilegum
óútskýrðum fjarvistum.
En nú er vonandi að hún fari
aftur að ná sér á strik og víst er
um það, að þó að hún sé orðin
48 ára, er hún enn fögur og
fönguleg kona.
■ Ingrid Bergman er mörg-
um ógleymanleg í hlutverki
Maríu í „Hverjum klukkan
glymur“
■ Hin upprunalega Pilar var
ekki sérlega smáfríð, Hér er
hún að spá í lófa Gary Coopers
og er auðséð, að þar sér hún
eitthvað ógnvænlegt.
■ Sophia Loren er sögð ætla
að taka að sér hlutverk Pilars í
nýrri útgáfu af myndinni.
ERTONYCURT-
ISENNÁBKXLS-
BUXUNUM?
■ Undanfarin ár liafa verið Hann sýnir a.m.k. þann lífs- lífsreyndari enjafnvelárafjöld-
Tony Curtis erfið og satt best vilja að vera nú rétt einu sinni inn segir til um. Hann er þrí-
að segja leit helst út fyrir það á liúinn að krækja sér í þá cinu giftur, en öll hafa hjónaböndin
tímabili, að hann væri endan- réttu. endað með ósköpum. Samt
lcga búinn að vera. Eitthvað Núverandi vinstúlka Tonys hefur hann gefið í skyn, að
virðist hann nú vera að heitir Andria Sevio og er að- hann sé reiðubúinn nú til að
hressast, þó að lítið sé um eins tvítug að aldri. Tony sjálf- gera fjórðu tilraunina og hafí
atvinnutilboð. ur er orðinn 58 ára og margfalt Andria orðið fyrir valinu. Þess
vegna þóttust vinir hans vissir
um, þegar þau skutu upp koll-
inum í Nice fyrr í sumar, að nú
væri stóra stundin upp runnin.
En nú voru farnar að renna
tvær grímur á Tony. - Ekkert
brúðkaup í bili, sagði hann. - í
þetta skipti ætla ég í brúð-
kaupsferðina fyrir brúökaupið,
bætti hann við og rauk með
sinni heittelskuðu til Cannes,
þar sem þau tóku lystisnckkju
á leigu. Þar er meiningin að
kynnast ögn betur og gá hvort
þau þola hvort annað í þeim
þrengslum og einangrun, sem
þau verða að búa við um borð.
Ef þau standast prófíð, má vel
vera að brúðkaupsklukkurnar
hringi með haustinu.
Ekki er þess getið, að And-
ria hafí verið spurð álits á gangi
mála.
■ Tony og Andria á leið um
borð.
viðtal dagsins
„ÞURFUM 50 ÞÚSUND
Á ÞESSA SÝNINGU”
segir Bjarni Þór Jónsson, framkvæmdastjóri
Idnsýningar ’83
■ „Ég er mjög bjartsýnn á að
sýningin gangi vel og að hún
verði vel sótt, miðað við hve
undirbúningur hefur gengið
vel“, sagði Bjarni Þór Jórisson
framkvæmdastjóri Iðnsýningar
’83 sem opnar nú á föstudag og
lýkur 4. september.
„Flest fyrirtækin eru komin
vel af stað með uppsetningu bása
sinna,“ sagði Bjarni. Aðspurður
sagði hann að um 120 fyrirtæki
væru á sýningunni.
„Undirbúningur að sýning-
unni hófst um síðustu áramót og
nú er þetta loks að skríða saman.
Við þurfum 50 þúsund gesti á
sýninguna til að endar nái saman
og ég trúi ekki öððru en að svo
verði," sagði Bjarni.
„Við skiptum fyrirtækjunum
niður eftir deildum, þetta er
bransaskipt eins og það er
kallað. Þ.e. matur, drykkur og
sælgæti er saman. Fataframleið-
endur mcð sameiginlegt svæði
■ Bjarni Þór Jónsson,
framkvæmdastjóri Iðnsýningar ’83.
Tímamynd: Ari