Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 15

Tíminn - 16.07.1987, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 16. júlí 1987 Tíminn 15 lllllllllllllllllllllllllll MINNING : J-- J', Skarphéðinn Guðbrandsson frá Ólafsvík Fæddur 30. september 1906. Dáinn 12. júlí 1987. í dag verður jarðsettur frá Foss- vogskirkju einn af elstu borgurum Ólafsvíkurkaupstaðar Skarphéðinn Guðbrandsson. Við fráfall hans er horfinn af sjónarsviði merkur samferðarmaður, sem sett hefur svip sinn á Ólafsvík og markað djúp spor í félags- og framfarasögu byggðarlagsins, enda átt þar heima nær alla sína ævidaga, eða í 81 ár, en um síðustu áramót fluttist hann með eftirlifandi konu sinni að Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík. Þar átti hann aðeins skamma viðdvöl. Hann andaðist á Landspítalanum 12. júlí sl. eftir erfiða sjúkdómslegu. Ég og fjölskylda mín áttum því láni að fagna að eiga vináttu Skarp- héðins í áratugi. Hann var eftir- minnilegur maður, strangheiðarleg- ur, nákvæmur, hafði sérstæða frá- sagnargáfu og vakti athygli fyrir fágaða framkomu, bæði við störf sín og á hátíða- og gleðifundum. Skarphéðinn var alla ævi eftirsótt- ur til starfa. Hann var hamhleypa við hvaða vinnu sem var, sérstaklega verklaginn, lagði áherslu á vönduð vinnubrögð og hafði mikil og góð áhrif á vinnustað og var vinsæll með afbrigðum. Ævi Skarphéðins Guðbrandsson- ar var viðburðarík. Hann lifði og tók virkan þátt í harðri lífsbaráttu þjóð- arinnar á tímaskeiði erfiðleika og fátæktar til velmegunar nútímans. Skarphéðinn fæddist í Ólafsvík. Foreldrar hans voru Guðbrandur Sigurðsson frá Klettakoti í Fróð- árhreppi og Jóhanna Valentínus- dóttir frá Kóngsbakka í Helgafells- sveit. Þau voru mannkostafólk. Guðbrandur frá Kóngsbakka í Helgafellssveit. Þau voru mann- kostafólk. Guðbrandur var hrepp- stjóri og sparisjóðsstjóri í Ólafsvík, Jóhanna sérstæð fyrir lífskraft sinn. Börn þeirra voru sex. - Torfhildur húsfrú í Keflavík ernúein eftirálífi. Systkin í „Bifröst", en svo hét heimili þeirra í Ólafsvík, sem síðar varð heimili Skarphéðins og hans fjöl- skyldu, voru samhent og héldu ávallt nánum fjölskyldutengslum. Skarphéðinn hóf sjómennsku að- eins 13 ára gamall, og varð það hlutskipti hans nær óslitið í 30 ár, ýmist á opnum bátum eða línubát- um, m.a. frá ísafirði og Vestmanna- eyjum. Tíu vertíðir var hann á togurum, m.a. á Snorra Goða, Kára Sölmundarsyni og Skallagrími, - þá var hann með Víglundi Jónssyni útgerðarmanni í Ólafsvík. Skarp- héðinn var eftirsóttur sjómaður, hraustur og verklaginn. Árið 1955 urðu þáttaskil á starfi hans. Hann fékk þá réttindi sem fiskimatsmaður á saltfisk og skreið og vann samfellt sem slíkur í Ólafs- vík í 20 ár. Baldur bróðir hans var einnig í þessu starfi. Voru þeir bræður samhentir og nutu mikils trausts fyrir vandvirkni og áreiðan- leika í starfi. Á þessu tímabili var Ólafsvík orðin meðal stærstu ver- stöðva landsins í framleiðslu sjávar- afurða, ekki síst saltfisk og skreið. Reyndi mikið á starf fiskimats- manna, en þeir voru fáir á þessum árum. Eftir að Skarphéðinn hætti mats- störfum stundaði hann almenna vinnu til ársloka 1986, að hann ákvað sjálfur verklok. Meðal þeirra verka sem þeir bræð- ur Skarphéðinn og Baldur eru rómaðir fyrir eru smíðar. Þeir voru báðir eftirsóttir bæði til nýsmíða og viðhalds húsa, - samstarf þeirra á þessu sviði var með miklum ágætum, vandvirkni og dugnaður svo af bar. Hinn 12. desember 1936 varð mesti gæfudagur í lífi Skarphéðins. Þá gekk hann í hjónaband með eftirlifandi eiginkonu sini, Laufeyju Þórðardóttur frá Borgarholti í Miklaholtshreppi, mikilli mann- kostakonu. Sambúð þeirra hefur ávallt verið traust og þau samhent um allt. Heimili þeirra að „Bifröst“ bar vitni myndarskap þeirra hjóna, gestrisni og hlýhug. Þau eignuðust fjögur börn. Eitt þeirra, Guðbrandur, dó fárra mán- aða. Þau sem lifa föður sinn eru: Guðrún gift Gylfa Guðmundssyni, búa í Reykjavík, Vilberg, fráskilinn, búsettur í Noregi, og Hreiðar giftur Svölu Thomsen, búa í Reykjavík. Skarphéðinn var vakinn og sof- andi fyrir hag barna sinna og barna- barna. Hann lagði sig fram um að tryggja framtíð þeirra meðan þrek leyfði. Eftirminnilegur maður er fallinn frá, maður sem setti svip sinn á daglegt líf í litlu sjávarþorpi. Ævi hans hefur verið viðburðarík og litauðug. Sérkenni hans voru atorka, vinnusemi, heiðarleiki, vandvirkni. Minning hans mun lifa. Ég og mitt fólk mun minnast Skarphéðins Guðbrandssonar með virðingu, hlýhug og þakklæti fyrir trausta og eftirminnilega vináttu. Við flytjum Laufeyju og börnum innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þeim minninguna. Alexander Stefánsson. Ósmekkleg kveðja Hr. ritstjóri Tímans Mér barst í hendur hjálagt bréf fyrir nokkrum dögum. Þetta bréf. ber yfirskriftina „Hamingjubréf". Bréfið er nafnlaust og ódagsett það er sent á nafn mannsins míns, sem lést á afmælisdaginn sinn þ. 9. apríl s.l. Ég skil ekki hvernig nokkur getur fengið af sér að senda svona bréf. Það er ekki hægt að endur- senda nafnlaust bréf! Ég vil alvarlega benda þeim á, sem halda að þeir geti bjargað eigin skinni, með því að senda svona bréf, að athuga vel hver viðtakandi er, það er ekki nóg, að senda 20 bréf á eitthvað nafn, sem sendandi þekkir ekkert til. Það gæti sært fleiri en mig, því vil ég biðja yður að birta þetta í blaði yðar, til aðvörunar þeim, sem hafa svona bréf undir höndum. Með vinsemd og þökk Bjarney Ólafsdóttir Engjavegi 24 400 ísafirði Fer bréfið hér á eftir: Hamingjubréf: Þetta brér er sent til þín svo að þú fáir happ og hamingju Upprunalega bréfið var skrifað í New England. Bréfið hefur farið umhverfis jörðina að minnsta kosti 10 sinnum. Hamingjan er þér send. Innan fjögurra daga eftir að þú hefur fengið bréfið, kemur happið til þín. Þetta er ekkert spaug. Happið kemur til þín líkt og bréf í pósti. Sendu afrit til fólks, sem þú heldur að þarfnist happs og ham- ingju. Sendu enga peninga, þar sem hamingjan er ekki mæld í aurum. Geymdu ekki bréfið. Sendu það áfram innan 96 tíma. Einn Vap-liðsforingi fékk 70.000 dollara. Jan Elliot fékk 40.000 doll- ara, en tapaði þeim aftur, vegna þess að hann sleit keðjuna. Sendu 20 afrit af bréfinu. Sjáðu hvað gerist innan fjögurra daga. Keðjan byrjaði í Venezuela, og upprunalega bréfið var skrifað af Saulanton Dur Pof, trúboða í S-Ameríku. Þú skalt senda 20 afrit til ættingja og vina. Eftir nokkra daga gerist eitthvað óvænt. Það er alveg öruggt, jafnvel þótt þú trúir ekki á hið yfirnáttúrlega. Christian Dior fékk hamingjubréf árið 1953. Hann bað ritara sinn að gera 20 afrit af því og senda fyrir sig. Nokkrum dögum seinna vann hann 2 milljónir í happdrætti. Arlo Dallit, skrifstofumaður fékk bréf, en gleymdi að senda það áfram innan 96 tíma. Hann missti vinnuna. Seinna fann hann bréfið aftur og sendi það áfram. Nokkrum dögum seinna fékk hann betra starf. P.s. Sendu ekki peninga. Láttu þér ekki detta það í hug. Bréfið vinnur raunverulega. Ath. Bréfið er raunverulega vélritað og fjölritað. Viðskiptafræðingar Fræðslustörf, stjórnun og umsjón starfsþjálfunar, skipulagsstörf o.þ.h. við Samvinnuskólann á Bifröst eru laustil umsóknar. Viðskiptafræðimennt- un eða önnur sambærileg menntun og reynsla áskilin. Mjög góð launakjör, mikil tengsl við atvinnul ífið, atvinnumöguleikar fyrir maka og fjölskylduíbúð á Bifröst fylgja starfi. Umsókn sendist skólastjóra Samvinnuskólans á Bifröst og hann veitir upplýsingar í síma 93-50001. Samvinnuskólinn arymann Diesel Vestur-þýskar gæða dieselvélar, loftkældar, sparneytnar, hljóðlátar. Fyrirliggjandi til afgreiðslu strax. 5hö.á3000sn/mín. 5hö. á3000sn/mín. 5hö.á3000sn/mín. Ohö. á3000sn/mín. Beranlegar rafstöðvar 5 kw. á 3000 sn/mín. 3 fasa og 1 fasa 220 volt. 3,5 kv. á 3000 sn/mín. 1 fasa 220 volt. í versluninni eru veittar allar upplýsingar um verð og greiðslukjör icL SöiuiirOatLaDiLoir ^ Vesturgötu 16. Símar: 14680/13280 VINNUMÁLASAMBAND SAMVINNUFÉLAGANNA úr Ármúla 3 að Suðurlandsbraut 32,2. hæð. Símanúmerið er óbreytt VINNUMÁLASAMBAND SAMVINNUFÉLAGANNA Vinna erlendis Hjá okkur getur þú tengið bók, sem er full af upplýsingum um störf um allan heim, til lengri eða skemmri tíma. Um er að ræða stööur í: Málmiðnaði, olíuiðnaði, kennslu, útivinnu, sjómennsku, hótel og veitingastörfum, au-pair, ferðaleiðsögn, ávaxtatínslu í Frakklandi og U.S.A. snyrtistörfum, fyrirsætustörfum, vinnu á búgörðum og bænda- býlum eða á skemmtiferðaskipum o.m.fl. Bókinni fylgja umsóknareyðublöð. Þetta er bók sem þú þarfnast ef þú hugar að vinnu erlendis, þú færð upplýsingar um störf, íbúðakost, vinnutíma o.fl. þar að auki heimilisföng c.a. 1000 staða og vinnumiðlana. Þú kaupir þessa bók fyrir kr. 98.- sænskar, innifalið burðargjald og 10 daga skilaréttur. Pantaðu í dag. Skrifaðu til CENTRALHUS Box 48,142 00 Stockholm Ordretelefon: 08-744 1050 P.S. Við ráðum ekki í störf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.