Tíminn - 14.08.1987, Blaðsíða 20

Tíminn - 14.08.1987, Blaðsíða 20
Sjá nánar á um leikina á bls. 12. Víðismenn brutu blaö í sögu bikarkeppninnar á íslandi í gærkvöldi er liðið komst í fyrsta skipti í úrslit keppninnar. Víðir vann frækinn sigur á Valsmönnum suður í Garði. Víðir mætir Fram í úrslitaleiknum. Fram sigraði Þór á Laugardalsvelli í gær 3-1 og var sigur þeirra sanngjarn. 1987 1/. MAK8 Tíiniim m Kópavogur samþykkti hæstu kunnu gjaldskrá leigubíla ■ ■ m H ■“i wgmm Leigubílamál Kópavogsbæjar eru nú að taka á sig nýja mynd og ýmislegt bendir til þess að samning- urinn við Bæjarleiðir sé langt frá því að vera hagstæður. Þegar samningurinn er skoðaður og bor- inn saman við venjulega gjaldskrá kemur í ljós að hér er um yfirborg- un að ræða. Hefur Traðarstæði Bæjarleiða í Kópavogi hlotið fá- dæma vinsældir bílstjóranna. Það er nú með „feitustu" stæðum í bænum og talað er í hálfum hljóð- um um uppgrip. Þá hefur það hcyrst að starfs- menn bæjarins séu margir hverjir afar óánægðir með breytingar bæjarstjórnar og kemur sú óánægja fram í óhagkvæmri notkun leigu- bílanna. Rétt er að taka það fram að í fréttinni í Tímanum í gær olli það einhverjum misskilningi að tekið var dæmi af heimilishjálpinni. Til að forðast þann misskilning hefði e.t.v. verið réttara að taka dæmi af heimahjúkrun eða ferðum yfir- fóstranna, þar sem þar hefur bíla- notkun, og greiðslur fyrir hana, verið mun ntciri en í sambandi við heimilishjálpinu. Raunar eru það einungis stjórnendur heimilishj álp- arinnar sem hafa heimild til leigu- bílanotkunar, en starfsstúlkurnar fá strætómiða. Óbreytt stendur sú staðreynd að bæjarstarfsmenn hafa samið af sér gagnvart Bæjarleiðum, viljandi eða óviljandi. Erfitt er að ímynda sér að nokkur hafi verið svo illa að sér að hafa getað gert þetta óvilj- andi, svo klaufalegur er samning- urinn. Taldi heimildarmaður Tím- ans að flestir þeir sem nota verða þessa leið til að komast á milli í starfi sínu, væru á móti fram- kvæmdinni. Þannig er staðið að pöntun leigu- bíla að bílstjórunum blöskrar sjálf- um og þykir nóg unt. Mestu upp- grip eru að morgni til og spara mætti verulegan pening á því að panta einn bíl sameiginlega eða hreinlega að fara eftir ntæli. Hag- stæðara hefði verið fyrir Kópavog að gera engan samning við leigu- bíla. Sem dæmi um sóun bæjarfélags- ins þá ber það oft við að einn og sami bíllinn fari 4-5 túra á klukku- stund. Það stafar af því að leikur er gerður að því að biðja bílstjór- ann að hinkra við í nokkrar mínút- ur og hefja svo nýjan túr að bragði. Þar sem samningurinn hljóðar upp á að greiða beri 200 krónur fyrir innanbæjarskutl, fást út úr þessu av0.,, r—.1’ V-óó ................................. - Samningurinn við Bæjarleiðir og sýnishorn af rcikningi sem leigubílstjórar framvísa til bæjarins. tveir innanbæjartúrar, eða samtals 400 krónur. Þetta er strangt til tekið samkvæmt samningnum. Þar er kveðið á um að innanbæjarskutl eigi að kosta 400 kr. ef skutlið er fram og til baka. í þessu ákvæði felast tvenn startgjöld. Samkvæmt mæli hefði túrinn aðeins orðið um 250-300, ef bflfinn hefði verið látinn bíða og halda áfram án þess að hefja nýjan túr á heimleiðinni. Þá er og athyglisvert að ef farið er út fyrir bæjarntörkin á skutiið að kosta 300 kr. en 600 kr. ef það er fram og til baka. Samkvæmt upp- lýsingum hjá einum heimildar- manna Tíntans er meðal reikningur bílstjóra eftir góða viku um og yfir 10.000 kr. og efaðist hann um að milljónin sparaðist eins og Kristján Guðmundsson talaði um í gær. Taldi heimildarmaður Tímans þvert á móti að „óhætt væri að bæta einni til tveimur milljónum við fjárhagsáætlun vegna þessarar vitleysu. Þetta er þeytingur á allt of mörgum bílum og óráðsía." í lokaorðum samningsins er haft orð á því að mikilvæg’t sé að vel takist til, þar sem svokallaðir Greiðabílar geti sinnt akstri þess- um ef Bæjarleiðir ekki standi sig í starfi þessu. KB ÍHS! Fulltrúar námsmanna í stjórn LÍN: Alvöru framfærsla verði grundvöllur Fulltrúar námsmanna í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna hafa bor- ið fram tillögu um að á næsta skólaári verði gerð könnun meðal íslenskra námsmanna hérlendis og erlendis á raunverulegum fram- færslukostnaði. Niðurstöðurnar verði notaðar ásamt öðrum opinber- um upplýsingum til að ákveða raun- verulega fjárþörf námsmanna fyrir skólaárið 1988-1989. Ætlast er til að könnunin verði sambærileg fyrri slíkum könnunum og samhliða henni verði haldið áfram að safna og vinna úr þeim opinberu upplýsingum sem fáanleg- ar eru um framfærslukostnað námsmanna í öllum námslöndum. Einnig er lagt til að sérstök nefnd verði skipuð af stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna og í henni eigi sæti einn fulltrúi tilnefndur af náms- mannahreyfingunum og annar til- nefndur af fulltrúum ríkisstjórnar- innar í stjórn LlN til að annast umsjón með verkefninu. Sambærileg könnun hefur ekki verið gerð síðan 1973, þrátt fyrir að í lögum LÍN sé kveðið á um að eitt af hluverkum stjórnar sjóðsins sé að annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á opinberri aðstoð. ABS Bjórdrykkjumenn: Gleymið ekki bjórnum! Það er fátt grátlegra fyrir ís- lcnska bjórunnendur en að gleyma bjórnuni sínum á leið inn í ísland hið bjórlausa. Þó hafa allra hörðustu bjórþambarar gengið í gegnum flugstöð Leifs Eiríkssonar á Kcflavíkurflugvelli á leið til landsins og skilið eftir bjórkassann sinn, scm þeir þó hafa borgað. Það er því ekki að ástæðulausu að menn eru áminntir um að glcyma ekki bjórnum sínum í algleyminu við að bíða eftir töskunum slnum. Það cr nefni- lega svo í dag að bjórinn er borgaður við kassa í fríhafnar- vcrsluninni á efri hæð flugstöðv- urinnar, en aflientur gegn kassa- kvittun við hlið töskurennibanda á neöri hæð hússins. Tímam.vnd Pjelur Níels Árni Lund Níels Árni í land- búnaðinn Níels Árni Lund, ritstjóri Tím- ans er kominn í launalaust leyfi frá Tímanum fram til næstu ára- móta. Að ósk Jóns Helgasonar hefur hann verið ráðinn til land- búnaðarráðuneytisins til að sinna þar kynningarstörfum ásamt því að vera ráðherra til aðstoðar í ýmsum verkefnum. Tíminn óskar Níelsi góðs gengis á nýjum vinnu- stað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.