Tíminn - 05.09.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.09.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 5. september 1987 Kjötiðnaðarmenn almennt starfsfólk Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmenn eða menn vana kjötskurði. Einnig starfsfólk til almennra starfa í kjötiðnaðarstöð. .Góð vinnuaðstaða og mötuneyti á staðnum. Nánari upplýsingar hjá verkstjóra í síma 686366 (28) RÝMINGARSALA Nýirvörubílahjólbarðar. Mikil verðlækkun. 900x20 nælon frá kr. 8.500,- 1000x20 nælon frá kr. 10.500, - 1100x20 nælon frá kr. 11.500, - 1200x20 nælon frá kr. 12.500, - 1000x20 radial frá kr. 12.600,- 1100x20 radial frá kr. 14.500,- 1200x20 radial frá kr. 16.600,- Gerið kjarakaup. Sendum um allt land. BARÐINN HF., Skútuvogi 2 - Reykjavik. Simi 30501 og 84844. Tilboð óskast í að reisa og fullgera íbúðar- og aðstöðuhús fyrir Veiðimálastofnun ríkisins á Hól- um í Hjaltadal. Húsið er tveggja hæða, flatarmál alls 290 m?. Innifalið í verkinu er allt er þarf til að skila byggingunni tilbúinni til notkunar, þar með talin lögun lóðar. Verkinu sé lokið eigi síðar en 1. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík, og hjá Fjölhönnun, Sauðárkróki, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 22. sept. 1987 kl. 11.30. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Sendlastörf Óskum eftir að ráða unglinga eða hresst fólk til sendlastarfa. Aðallega er um ferðir í miðbænum að ræða. í einu starfinu þarf viðkomandi að hafa bifreið til umráða. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra er veitir upplýsingar. SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉIAG A STARFSMANNAHALD i 1 W 1 || i; i "§ JL ■ •■! liJ -A i 1 - waÞ'- J Stjórn Norrænu iðnþróunarstofnunarinnar. Tímamynd: BREIN íslandsverkefni Norrænu iðnþróunarstofnunarinnar: Efling hátækni í frystiiðnaðinum Stjórn Norrænu iðnþróunarstofn- unarinnar kynnti tí blaðamannafundi í fyrradag sérstakt íslenskt verkefni, sem stofnunin hyggst vinna að. Verkefni þetta felst í því að reyna að þróa nýja framleiðslutækni og nýtt framleiðsluskipulag í frystihús- unum. Norræna iðnþróunarstofnunin er afsprengi Gyilenhammarnefndar- innar svoncfndu sem vann að því á árunum 1984 - 1985 að móta tilíögur og hugmyndir um eflingu norræns samstarfs á sviði verslunar, iðnaðar, flutninga, tæknivæðingar og menntunar. En Erlendur Einarsson fyrrverandi forstjóri SÍS var íslenski fulltrúinn í þeirri nefnd. Gyllenhammarncfndin ákvað að koma Norrænu iðnþróunarstofnun- inni til að hrinda tiílögum nefndar- innar í framkvæmd. Aöilar að iðn- þróunarstofnuninni eru fyrirtæki á Norðurlöndum ásamt hinum nor- rænu samtökum launþegahreyfing- anna á Norðurlöndum. Öllum fyrir- tækjurn á Norðurlöndum var boðin þátttaka, en fram til þessa hefur aðeins eitt íslenskt fyrirtæki, Sam- band íslenskra samvinnufélaga, tek- ið þátt og var raunar stofnaðili. var haldinn í Helsingfors í júní 1986. Þrátt fyrir að störf stofnunar- innar beinist einkum að samnorræn- um verkefnum þá var að tillögu Erlends Einarssonar ákveðið að stofriunin tæki fyrir eitt íslenskt verkefni, sem hefði það markmið að skila sem bestum árangri fyrir ís- lenska þjóðarbúið. Niðurstaðan varð sú að vinna að því að koma á umbótum í rekstri frystihúsanna með nýrri framleiðslu- tækni og framleiðsluskipulagi, þar sem frystiiðnaðurinn hefði að sumu leyti orðið útundan í tæknibylting- unni. Afleiðingarnar hafa orðið þær að æ erfiðara er að manna frystihúsin og einnig að launakjör og starfsum- hverfi í frystihúsum hafa ekki sam- ræmst kröfum tímans. Forkönnun á stöðu hraðfrysti- iðnaðarins hér á landi hefur þegar verið unnin af tveimur sérfræðing- um, öðrum frá Volvo fyrirtækinu og hinum frá Vinnurannsóknarstofnun- inni í Osló, í samstarfi við Sjávaraf- urðadeild Sambandsins. Að sögn Erlends Einarssonar er næsta skrefið að bjóða fleiri íslcnsk- um og erlendum aðilum þátttöku í þessu verkefni. Á stjórnarfundi iðnþróunarstofn- unarinnar, þeim fyrsta sem haldinn er á íslandi , var einnig fjallað um ýmis fleiri verkefni, sem Gyllenham- marnefndin hafði velt upp í lokatil- lögum sínum. Má þar ncfna Upplýs- ingatæknistofnun Norðurlanda, sem kemur til með að hafa það hlutverk að efla menntun í upplýsingatækni og stöðu Norðurlanda á því sviði almennt, en Ijóst er að upplýsinga- tæknin er eitt megin hreyfiaflið í hátækniþróuninni. Þá var rætt uni samræmingu hluta- félagalöggjafar á Norðurlöndum, en fyrir liggur að vegna ósamræntis slíkra laga milli htndanna eru ýmsir þröskuldar á vegi frekara samstarfs milli fyrirtækja á Norðurlöndum. Stjórnin tók einnig til umfjöllunar fullorðinsfræðslu í atvinnurekstri. stofnun Norræns háskóla, Scanlink, sem felur í sér bættar samgöngur milli Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs, og loks voru samskipti Norðurlanda og Evrópubandalags- ins tekin til umfjöllunar. Núverandi stjórn Norrænu iðn- þróunarstofnunarinnar skipa þeir Ulf Sundquist bankastjóri í Helsing- fors, sem er jafnframt formaður, Erlendur Einarsson fyrrverandi for- stjóri SÍS, Per Hedwall forstjóri frá Vesterás í Svíþjóð, Sune Ahlén fulltrúi Norrænu samtaka launþega- hreyfinganna á Norðurlöndum, Henrik Baasch framkvæmdastjóri Kaupmannahöfn, Kaare Moe for- stjóri Osló. Þá á Norræna ráðherra- nefndin áheyrnarfulltrúa í stjórninni og er það nú Fridtjov Clement. Dagleg stjórnun stofnunarinnar er í höndum Lars Buer, en aðsetur henn- ar er í Osló. ÞÆÓ Leikár LA hefst á Lokaæfingunni Sjötugasta og fyrsta leikár Leik- félags Akureyrar hófst formlega í gær með fyrsta samlestri á Lokaæf- ingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Að vísu má segja að leikfélagið hafi þjófstartað með uppfærslu á Af- mælisveislu handa Eyrarrós, þann 29.ágúst á afmæli Akureyrarbæjar. Sex verkefni eru á dagskránni í vetur. Lokaæfing, Er það einleik- ið?, Halló Einar Áskell. Piltur og stúlka, Horft af brúnni og loka- verkefni sem ekki er búið að á- kveða ennþá. Lokaæfing gerist í kjarnorku- byrgi í kjallara í Reykjavík og eins og nefnið ber með sér, er þetta lokaæfing húseigendanna vegna yfirvofandi kjarnorkustyrjaldar eða kjarnorkuslyss. Leikstjóri Lokaæfingar er Pétur Einarsson, Gylfi Gíslason gerir leikmynd og Ingvar Björnsson hannar lýsingu. Leikendur eru Theódór Júlíusson, Sunna Borg og Erla Rut Harðar- dóttir. Frumsýning er áætluð í lok október. Lokaæfing er þó ekki fyrsta verkefni sem sýnt er hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur, því að í síðari hluta september sýnir Þráinn Karlsson leikritið Er það einleik- ið?, eftir Böðvar Guðmundsson, í leikstjórn Pórhildar Þorleifsdóttur. Þráinn sýndi verkið bæði í Reykja- vík og á Akureyri í fyrra og hefur nú tekið það upp aftur. Auk sýn- inga á Akureyri mun hann ferðast með það um Norðurland. N.k. mánudag hefjast æfingar á barnaleikritinu Halló Einar Áskell. eftir Gunnhildi Bergström. Leikgerð þessi er samsett úr sögun- um Sveiattan Einar Áskell, Einar Áskell Mangi og Victor og Góða nótt Einar Áskell. Auk þess eru söngvar fléttaðir inn í sýninguna. Þýðandi er Sigrún Árnadóttir og Þórarinn Eldjárn þýddi söngtext- ann. Leikstjóri er Soffía Jak- obsdóttir, Þráinn Karlsson gerði leikmynd og Ingvar Björnsson ann- ast lýsingu. Leikendureru Arnfríð- ur Ingimundardóttir, Skúli Gauta- son og Marinó Þorsteinsson. Halló Einar Áskell verður frumsýnt í byrjun október og verður ferðast með sýninguna á milli skóla og dagvistunarstofnana á Norður- landi. Piltur og stúlka, eftir Jón Thór- oddsen, í leikgerð Emils Thór- oddsen, kemur næst og er fyrsta sýning áætluð á annan í jólum. Leikstjóri er Borgar Garðarson. Horft af brúnni, eftir Arthúr Miller, í leikstjórn Teódórs Júl- íussonar, verður tekið fyrir eftir áramót og er frumsýning áætluð um miðjan febrúar. Síðasta vcrkefni vetrarins er ekki frágengið enn og var Pétur Einarsson ófáanlegur til að tjá sig nokkuð um það verkefni, utan það að það yrði af stærri gerðinni. Þess má að lokum geta að innan tíðar verður sala áskriftarkorta hafin og vildi leikhússtjórinn hvetja fólk til að fá sér kort. hvort sem þau giltu á fruntsýningu eða aðrar sýningar. HÍA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.