Tíminn - 10.09.1987, Page 3
Fimmtudagur 10. september 1987
Tíminn 3
Tíminn náði taii af Steingrími
Hermannssyni, utanríkisráðherra
í Ottawa í gær, en þangað voru
komnir fulltrúar viðskiptaráðu-
neytis Bandaríkjanna til viðræðna
um hvalveiðimálið. Þarsem stjórn-
in hafði ekki sent ráðherra til
viðræðna við Steingrím neitaði
hann að taka þátt í þeim með þeim
afleiðingum að fulltrúi viðskipta-
ráðuneytisins sneri heim frá Ott-
awa síðdegis.
Steingrímur sagði: „Það kom nú
í ljós að þeir sendu á þennan fund
dr. Calio, sem ersá maður, sem við
höfum barist mest við. Hann er frá
viðskiptaráðuneytinu. Svo ég fór
ekki á fundinn, en sendi Yngva
Yngvason, sendiherra, Helga Ag-
ústsson og Kjartan Júlíusson og lét
bera þau boð að okkar ósk hefði
verið um fund á ráðherrastigi. Ég
hefði komið til að ræða um miklu
alvarlegri mál í raun og veru heldur
en hvalamálið. Ég hefði komið til
að ræða viðskipti þjóðanna. Hvala-
málið væri nánast orðið aukaatriði.
Ég lét skila að ég væri kominn til
að ræða um samskipti þjóðanna á
breiðum grundvelli og ég hefði
engan áhuga á því að ræða unt
fjölda hvala eða önnur fram-
kvæmdaatriði í því.“
Fulltrúum Bandaríkjastjórnar
mun hafa brugðið dálítið við þessi
skilaboð. Jafnframt lét Steingrím-
ur fulltrúa sína segja frá því hver
var niðurstaða skoðanakönnunar
Félagsvísindadeildar Háskólans
um Völlinn, þar sem þeir sem lýsa
sig andvíga veru varnarliðs hér
hafa ekki verið fleiri síðan 1976.
Einnig var skýrt frá því að utanrík-
isráðherra hefði frestað fundi um
framkvæmdirá Vellinum. Þaðværi
því ljóst að allt benti til þess að
málarekstur Bandaríkjamanna í
hvalamálinu leiddi til versnandi
samskipta þjóðanna. Dr. Calio
byrjaði þá að þvæla um það, að
Bandaríkjastjórn vildi losna við að
kæra okkur ef við gerðum einhverj-
ar breytingar á því sem við hefðum
ákveðið. Tillögur dr. Calio um
breytingar eru þess eðlis að utan-
ríkisráðherra hefur engan áhuga á
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra mætti á fund utanríkis-
málanefndar til að gera grcin fyrir
stöðu mála í hvalveiðimálinu. Eyj-
ólfur Konráð Jónsson, formaður
hennar, var passasamur í yfirlýs-
ingum um málið, en Hjörlcifur
Guttormsson, alþingismaður kvað
sýnilcgt að Bandaríkjamenn ætl-
uðu sér að meðhöndla íslendinga
eins og eitthvcrt bananalýðveidi.
Kjartan Jóhanns-
son, alþingismaður:
Óþolandi
afskipti
Kjartan Jóhannsson, alþingis-
maður Alþýöutlokksins í utanrík-
ismálancfnd, sagði eftir fund
nefndarinnar í gær að honum fynd-
ist þetta óþolandi afskipti af nýt-
ingu íslendinga á náttúruauðlind-
um við landið.
Tímamynd: Pjetur
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra:
Kjartan Jóhannsson.
Hann tók í sama streng og aðrir
fundarmenn og harmaði hvernig
Bandaríkjantenn tækju á málinu.
Hann var einnig sammála öðrum
nefndarntönnum utanríkismála-
nefndar að málið hefði tekið aðra
og mun alvarlegri stefnu. Það sner-
ist alls ekki lengur um fáeina
veidda hvali, heldur væri það orð-
ið stórpólitískt. -SOL
„Ég hef nú svo sem ekki fregnað
neitt nýtt af fundinum í Ottawa, cn
ég átti alltaf von á að viðskipta-
ráðuneytið væri áfram nteð málið.
Hitt er svo annað að það var ætlan
okkar að rætt yrði um það ástand
sem er að skapast milli þjóðanna
vegna þessa máls og það er að
sjálfsögðu á ábyrgðarsviði banda-
ríska utanríkisráðuneytisins.
Þeim er auðvitað í sjálfsvald sett
hvernig þeir skipa viðræðunefnd
sína. Við höfum ekkert um það að
segja, en mér hcfur fundist og
finnst enn, að Bandaríkjamenn líti
málið ekki þeim alvarlegu augum,
í utanríkispólitísku samhengi, sem
maður hefði vænst,“ sagði Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
í samtali við Tímann.
Halldór sagðist einnig vonast til
að fundurinn myndi hafa einhverja
þýðingu, en hann væri ekki bjart-
sýnn á lausn málsins í Ottawa.
-SÓL
Ekki bjart'
sýnn á lausn
þeim. Hins vegar mun hann víkja
þeim hcim til Halldórs Ásgríms-
sonar, sjávarútvegsráðherra til
skoðunar. Utanríkisráðherra sagð-
ist í gær ekki vilja skýra frá því í
hverju breytingartillögurnar væru
fólgnar. „Ég er sannfærður um að
Halldór samþykkir aldrei neitt af
þcssum tillögum," sagði utanríkis-
ráðherra.
Dr. Calio er fulltrúi Bandaríkj-
anna í AlÞjóða hvalveiðiráðinu,
en mun ekki vera félagsbundinn
grænfriðungur. Hann hefur sýni-
lega sótt af mikilli hörku að fá að
fara til Ottawa til fundar við Stcin-
grím. Árangrinum af þeirri ferð
þessa áhugamanns um friðun hvala
er best lýst með því, að unt hádcgið
var ákveðið að dr. Calio sneri aftur
til Washington, enda Ijóst að
Steingrími datt ekki í hug að tala
við hann. Heintildir Tímans herma
að utanríkisráðuneytið í Washing-
ton viti ekki lengur sitt rjúkandi
ráð í þessu rnáli, og hafi orðið
undir í viðureigninni við viðskipta-
ráðuneytið um það, hvort ráðu-
neytið ætti að senda ntenn til
Ottawa. Er sýnilegt að Bandaríkja-
stjórn vcrður að súpa seiðið af því
að kunna ekki skil á utanríkisráðu-
neyti og viðskiptaráðuneyti.
Hjörleifur Guttormsson
alþingismaður:
Hrein
móðgun
„Ég tel að þetta sé hrein móðgun
við íslendinga, sem birtist í því að
bandaríski utanrfkisráðherrann
skuli ekki mæta til þessa fundar.
Eftir því hafði verið mjög hart
gengið, en síðan er brugðist við
með þessunt hætti" sajiði Hjörleifur
Guttormsson, alþingismaður Al-
þýðubandalagsins, sem á sæti í
utanríkismálanefnd Alþingis um
viðræður fslendinga og Banda-
ríkjamanna í Ottawa um hvalamál-
ið.
„Þessu hljóta íslensk stjórnvöld
að mótmæla og með óbeinum hætti
hefur utanríkisráðherra okkar,
Steingrímur Hermannsson, gert
það með því að fara ekki til
fundarins sem nú stendur yfir í
Kanada. Við í utanríkismálanefnd
höfum fundað stíft og rætt stöðuna
sem þarna er komin og ég greini að
sjálfsögðu ekki efnislega frá því
sem þar gcrist. En mér sýnist þetta
ntál nú þannig statt ntilli ríkjanna
tveggja að það snýst engan veginn
lengur um hvalveiðar, heldur unt
almenn samskipti tveggja sjálf-
stæðra ríkja og þar hefur verið
komið mjög gróflega fram gagn-
vart okkur Islendingum" sagði
Hjörleifur einnig.
Við höfum fengið ntjög alvarleg
skilaboð frá Bandaríkjastjórn í
gegnum þessa ákvörðun þeirra um
skipan nefndarinnar. Það hefur
kannski skýrt stöðu málsins" sagði
Hjörleifur að lokum.
-SÖL