Tíminn - 17.10.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 17.10.1987, Blaðsíða 9
Laugardagur 17. október 1987 Tíminn 9 fiskmörkuðum, jafnvel af sínum eigin skipum, eða leggja upp laupana ella. M.ö.o.: Það er stefnt að nýj- um framleiðsluháttum og nýju búsetumynstri, eins konar bylt- ingu í anda nýkapítalismans. Það er einfaldlega svo komið að ráðandi öfl í þjóðfélaginu, hvort heldur það eru þeir sem telja sig málsvara launamanna, - margir hverjir - eða forsvarsmenn at- vinnulífsins, eru að gefast upp á félagshyggju. Þessi uppgjöf er auðvitað átakanlegust þegar hún heltekur félagshyggjufólkið sjálft, en þess gerast nú æ fleiri dæmi. Útlendingar í bröggum Það er einnig til marks um þann virðingarskort sem fram- leiðslustörfin verða nú að þola samfara uppsveiflu markaðs- hyggjunnar og nýkapítalismans, að atvinnurekendur gera kröfu til þess að fá að flytja inn erlent vinnuafl og kasa það í bröggum og bráðabirgðaskýlum hér og þar um landið í stað þess að vinna að því að gera framleiðslu- og verksmiðjustörf að sæmandi atvinnu fyrir íslenskt verkafólk með manneskjulegri vinnutil- högun og hóflegum vinnutíma sem hæfir erfiðri álagsvinnu. Atvinnulífið ætti að hafa þeim mun meiri möguleika til að búa vel að verkafólki og greiða því gott kaup, þegar því er sífellt spáð að líkamleg vinna hljóti að dragast saman vegna framfara í tæknibúnaði og sjálfvirkni. Erf- iðismennirnir verða þá ekki lengur fjölmenn stétt, heldur fámennishópur sem auðvelt yrði að gera vel við. Það er löngu tímabært að stjórnmálamenn, forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og at- vinnurekendur geri sér grein fyrir til hvers það muni leiða, ef fólkið flýr framleiðslustörfin, og þá ekki síður að átta sig á hvers vegna unga fólkið fráfælist þessi störf - sem það gerir. Efnahagsráðstafanir Meðal atburða þeirrar viku sem nú er að líða ber hæst þá yfirlýsingu sem ríkisstjórnin sendi frá sér varðandi ráðstafan- ir í efnahagsmálum. Ýmsir láta eins og þessar ráðstafanir komi á óvart. Slík afstaða á sér auðvit- að engin rök, því að hver sá sem fylgst hefur með þróun efna- hagsmála síðustu mánaða þurfti ekki að fara í grafgötur um að ríkisstjórninni var nauðsyn að gera ráðstafanir til þess að sporna við þenslunni og verð- bólguhættunni. Auk þess hefur ekki skort hvatningu og jafnvel upphrópanir varðandi opinberar efnahagsaðgerðir og er naumast ástæða til annars en fagna því í sjálfu sér að ríkisstjórnin hefur ekki dregið að taka til hendinni í þessu efni. Breyttar forsendur í meginatriðum eru fýrirhugaðar efnahagsráðstafanir eðlilegar og réttmætar miðað við aðstæður. Það getur m.a. ekki talist óeðli- legt þótt ríkisstjórnin hafi kom- ist að þeirri niðurstöðu að breyta fjárlagastefnunni á þann veg að leggja fram hallalaust fjárlaga- frumvarp í stað þess að eyða fjárlagahallanum í áföngum á þremur árum eins og áður hafði verið ákveðið. Þensluástandið, sem vaxið hefur með hverri viku síðan stjórnarmyndunarviðræð- ur fóru fram fyrir alvöru í júní- mánuði síðastliðnum, hefur breytt ýmsum forsendum þeirrar stefnu að afgreiða fjárlög með halla. Það var því rétt metið að ákveða stefnubreytingu að þessu leyti, þ.e. að draga úr ríkissjóðs- hallanum örar og fyrr en áður hafði verið um rætt. Endurskoðun tekj uöflunarstefnu Hinu er ekki að leyna að fjárlagastefnan þarf þar fyrir ekki að vera rétt í öðrum grein- um. Fjáröflunarkerfi ríkissjóðs er meira og minna í molum. Það er brýnt að taka tekjuöflunar- stefnu ríkisins til endurskoðunar og stefna að frambúðarlausn í skattamálum, bæði hvað varðar álagningu og skattstofna og skattaeftirlit. Hvernig breyta skuli tekjuöflunarkerfinu til frambúðar hefur þó ekki verið rætt að neinu gagni í hópi stuðn- ingsliðs ríkisstjórnarinnar, enda hafa þingflokkarnir ekki meira en svo tekið til starfa og alls ekki samræmt sjónarmið sín í þeim efnum. Þótt nú hafi verið ákveðið að auka nokkuð skattatekjur og aðrar ríkissjóðstekjur sem lið í því að eyða ríkissjóðshallanum, þá er hvorki nógu langt gengið í þeim efnum, né með neinum frambúðaraðferðum. Hallann á ríkissjóði á einnig að jafna að stórum hluta með lækkun ríkis- útgjalda til opinberra fram- kvæmda langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Opinber fjárfesting Þessi lækkun framkvæmdaút- gjalda hjá ríkissjóði hlýtur að vera mjög umdeilanleg, því að ekki verður séð t.d. að fjárfest- ing hins opinbera eigi neinn þátt í þeirri fjárfestingar- og fram- kvæmdaþenslu sem nú er í land- inu nema síður sé. Fram- kvæmdagleðin og fjárfestinga- kapphlaupið einkennir fyrst og fremst athafnasviðið utan ríkis- geirans. Þenslan stafar af því að atvinnurekendur og innflytjend- ur hafa notfært sér aukna kaup- getu og frelsi í lánsfjármálum til hins ýtrasta. Ríkisframkvæmdir hafa á hinn bóginn alltaf verið að drag- ast saman og í ýmsum tilfellum svo, að ekki getur talist eðlilegt. Það eru margs konar fram- kvæmdir á vegum hins opinbera sem óviðunandi er að séu sífellt látnar sitja á hakanum í stað þess að ætla þeim aukið rúm í þeirri uppbyggingu sem þjóðin verður að standa að. Þar kemur margt til greina, m.a. hafnar- gerð og úrbætur á flugvöllum. Það á langt í land að hafnargerð sé komin í viðunandi horf, svo að verkefnin á því sviði eru ótæmandi. Flugvallagerð er allt- of víða mjög ófullkomin og ekki í neinu samræmi við mikilvægi flugsamgangna hér á landi. Hagsmunir landsbyggðar Hafnamál og flugvallagerð skipta landsbyggðina fyrst og fremst miklu, auk vegafram- kvæmda, og aðhaldssemi í hafna- og flugvallaframkvæmd- um kemur því harðast við fólkið á landsbyggðinni. Alþingi hefur markað þá stefnu með lögum og viljayfirlýsingum að þessi mál hafi forgang á sviði fram- kvæmda, en verði ekki kæfð í stjórnlausu fjárfestingakapp- hlaupi í gróðaskyni. Þess verður að gæta, að þótt nauðsynlegt sé að draga úr framkvæmdagleði og offjárfestingu, þá má sú við- leitni ekki enda í þeim öfgum að samdrátturinn verði mestur í opinberum framkvæmdum sem ekki valda þenslunni. Sam- neyslustefnunni á ekki að fórna, þótt leitast sé við að hafa hemií á fjárfestingu og framkvæmdum í þjóðarbúskapnum í heild. Sumt af því sem sjá má í þessu fjárlagafrumvarpi er líkara geð- þóttaákvörðunum en að um þær hafi orðið eiginlegt samkomulag í ríkisstjórninni, hvað þá að þingflokkarnir hafi sagt sitt álit. Þetta fjárlagafrumvarp verður því umdeilt, þegar það kemur til meðferðar þingsins og fjárveit- inganefndar, ekki vegna megin- markmiðsins heldur umdeilan- legra aðferða við að ná mark- miðinu. Nauðsyn samráðsstefnu Þrátt fyrir þessar athugasemd- ir sem m.a. varða þann mun sem verður að gera á fjárfestingar- kapphlaupi þeirra sem vilja græða á ástandinu eins og það er og nauðsynlegum framkvæmd- um á sviði félagslegra framfara og samneyslu, þá er ljóst að efnahagsaðgerðir voru nauðsyn- legar, og því verður að treysta að þær leiði að lokum til þess sem að er stefnt að draga úr þenslu og verðbólguhættu. A.m.k. er fráleitt að dæma þess- ar aðgerðir í heild fyrirfram sem óhæfar, enda engin skilyrði til þess að kveða upp slíka dóma. Hins vegar er nauðsynlegt, eins og Tíminn hefur sí og æ bent á að undanförnu, að nú er tíma- bært að endurvekja samráðs- stefnuna frá því febrúar 1986. Ríkisstjórninni og aðilum vinnu- markaðarins ber pólitísk skylda til að hafa samráð um framhald efnahagsstefnunnar og kjara- málastefnunnar, sem auðvitað eru samofin mál. „Umgjörðin“ engin gaddavírsgirðing Víst er það rétt sem segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að stefnumörkun hennar nú í efna- hagsmálum setur efnahagslífinu og aðilum vinnumarkaðarins „almenna starfsumgjörð“ eins og það er orðað. En það losar hvorki ríkisstjórnina né aðila vinnumarkaðarins undan þeirri skyldu að hafa formleg samráð um þróun mála. Árangur efna- hagsaðgerða af hálfu hins opin- bera er í reynd undir því kominn hvernig þjóðin bregst við þeim, m.a. hvernig forystumenn frjálsra hagsmunasamtaka taka þeim. Auðvitað eiga hagsmuna- samtökin sinn rétt til að sveigja þessa „umgjörð" eitthvað til, hún er engin gaddavírsgirðing sem slegið er kringum kjaramál- in og efnahagslífið einu sinni fyrir allt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.