Tíminn - 08.10.1988, Blaðsíða 2
2- Tírhiriri
Laugardagur 8. október 1588
Laufdal miðar byggingarhraðann á Hótel íslandi við þykkt peningaveskisins hverju sinni, en gistirýmisþörf er þegar fullnæqt:
Rekstur borgar seint
byggingarkostnaðinn
Ólafur Laufdal, eigandi Hótel íslands, segist ekki vera í neinum kröggum
þótt hann sé að byggja stórt í Ármúlanum, en þar eiga að verða 120 herbergi
þegar hótelið sjálft verður fullbúið. Hann tekur nú einn og einn áfanga í
gagnið í einu og miðar hraðann einungis við hvað er til af peningum hverju
sinni. Ólafur segist gera sér grein fyrir því að eins og stendur anni önnur hótel
allri gistirýmisþörf á þessu svæði. Auk þess geri hann sér grein fyrir því að
alls ekki borgi sig að byggja hótel fyrír venjulegt lánsfé vegna mikilla vaxta
umfram verðbólgu. Hann ætlar ekki að opna fyrr en í fyrsta lagi sumarið
1990 þótt það geti dottið í hann að opna eitt og eitt herbergi strax á næsta
árí. Hann stefnir nú aðeins að því að Ijúka við frágang hússins að utan fyrir
áramót og opna kannski einn og einn sal eða veitingastað í húsinu með
hækkandi sól.
Steinþór Júlíusson, hótelstjóri á
Flughóteli í Keflavík, segir að hótel-
rekstur standi ekki undir byggingar-
kostnaði hótelanna nema ef litið er
til lengri tíma. Er þá talað um nálægt
fimmtán ára borgunartíma á bygg-
ingarkostnaði. Þess vegna var tekin
sú ákvörðun á Flughóteli að rekstr-
araðilinn er annar en eigandi bygg-
ingarinnar. Sá sem rekur hótelið
leigir það til lengri tíma og þannig
nær hann að gera eðlilegar áætlanir
um kostnað og aðra rekstrarþætti.
Þeir þurfa því ekki að glíma við
neinn fjármögnunarvanda að sögn
Steinþórs, enda gangi reksturinn
mjög vel. Þeirra sérstaða er fólgin í
því að fá mikið af erlendum flug-
áhöfnum sem oft gista ekki nema
eina til tvær nætur í einu. Einnig er
þegar nokkuð um að fólk á leið úr
landinu gisti síðustu nóttina í Kefla-
vík og íslendingar eru þegar farnir
að kunna að nota þessa þjónustu,
sem jafnframt felst í því að bílinn má
geyma í bílageymslukjallaranum
meðan ferðast er erlendis.
Guðbjörn Guðjónsson, á Holiday
Inn, sagði að sambönd sín beint í
gegnum hótelkeðjuna hafi skilað sér
að jafnaði um 40% allra gesta og því
sé staða hans betri en annarra nýrra
hótela. Samtsé það svo að erfitt hafi
verið að greiða upp byggingarskuldir
vegna þess að lán séu til of skamms
tíma miðað við þær tekjur sem
reikna má með í rekstrinum. Rekst-
urinn gangi vel eins og hjá fleirum
en nú séu hótelin reyndar að tæmast
fyrir veturinn.
Undir þetta hefur Helgi Þór
Jónsson, á Hótel Örk í Hveragerði,
tekið. Segir hann að víðast erlendis
þar sem hann þekki til séu veitt lán
til 30-40 ára í hótelbyggingar, enda
eru þær hátt skrifaðar sem örugg
fyrirtæki í rekstri. Hann hefur að
undaförnu verið að skapa sér sér-
stöðu með því að markaðssetja hót-
elið sem heilsuhótel og er ætlunin að
'WfVi
Hótel ísland í byggingu. Laufdal segist ætla að taka sér tíma.
það sjái þeim fyrir nægum gestum
yfir allt árið til að tryggja lágmarks-
tekjur.
Að sögn þessara hótelstjóra hefur
ferðamannastraumurinn greinilega
ekki orðið eins mikill og spáð var
fyrir fáeinum árum. Greinilegur
samdráttur sé orðinn í greininni og
hótelrými sé því nægilega mikið á
sumrin og flest hótel standi verulega
mikið ónýtt á veturna. Undir þetta
hefur jafnvel sá tekið sem líklega er
að byggja eitt af stærri hótelum
landsins í Ármúlanum. KB
Fimm fluttir
á slysadeild
Þrjú umferðarslys urðu í Hafnar-
firði í gær og þurfti að kalla til
aðstoðar tækjabíl slökkviliðsins til
að ná farþega og ökumanni út úr
einum bílnum.
Fyrsta umferðarslysið varð klukk-
an 8.53 á horni Reykjavíkurvegar og
Hjallabrautar. Þar lentu saman tveir
bíla og valt annar þeirra. Einn
maður var fluttur á sjúkrahús. Ann-
að umferðarslys varð á milli létts
bifhjóls og bifreiðar á horni Suður-
brautar og Þúfubarðs klukkan 12.37.
Ökumaður bifhjólsins var fluttur á
sjúkrahús marinn og hruflaður.
Þriðja og alvarlegasta umferðarslys-
ið í Hafnarfirðinum í gær varð
skömmu fyrir þrjú, á gatnamótum
Reykjavíkurvegar og Hverfisgötu.
Þar lentu saman tvær bifreiðar og
þurfti að kalla til tækjabíl til að ná
fólkinu úr bifreiðunum. Flytja þurfti
ökumenn beggja bifreiðanna og
farþega annarrar á sjúkrahús, tals-
vert slasaða. -ABÓ
Lygi borin á forsætisráðherra:
Afsökunarbeiðni
í DV í gær var haft eftir Ara
Skúlasyni, hagfræðingi ASÍ, að það
væri lygi hjá forsætisráðherra að
Alþýðusamband fslands hafi beðið
um breytingar á grundvelli láns-
kjaravísitölunnar. Nú hefur Ari beð-
ið forsætisráðherra afsökunar á því
sem haft var eftir honum, enda hafi
þetta ekki verið hans orð. Er Ari nú
meiri maður eftir í huga ráðherrans.
„Það má geta þess að Ari Skúla-
son, hagfræðingur ASl, hringdi til
mín í gærkvöldi og baðst afsökunar
á því sem haft er eftir honum í DV
í gær. Hann sagðist reyndar aldrei
hafa haft þau orð, sem þar eru
notuð, heldur hafi hann sagt að hann
hafi ekki fundið samþykkt hjá ASÍ í
þessa veru,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra. „Það
kann að vera rétt og ég hef reyndar
rætt þetta við formenn hinna stjórn-
arflokkanna og þeir kannast báðir
við að í afstöðnum stjórnarmyndun-
arviðræðum, hafi sá skilnigur minn
verið fullkomlega eðlilegur að þetta
hafi verið samkvæmt vilja verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þetta er sá skilning-
ur sem ég hafði 1983 og hef enn á
afstöðu hennar.
Ég met það við Ara að hann
hringdi til mín og bað mig velvirðing-
ar á þessu. Það má líka gjarnan
koma fram að hann er meiri maður
eftir í mínum huga,“ sagði Steing- ,
rímur. KB
/
dij^par
Harðar fréttir,
loðnutöiur 09 skákmót
Lftir enduríeknar yflriýsingar
Páls Magnússonar fréttastjóra á
Stöd 2 á sínuni tíma um að þeir
ætluðu ekki að vera með neinar
leiðinda loðnutölur i sínum frétta-
tímum heldur ástunda harða frétta-
niennsku kom það nokkuð á óvart
í vikunni að fyrsta frétt þeirra i
einum fréttatímanum var um það
að viðræðum um síldarsölu til Sov-
ét hafi verið frestað um hokkra
daga. Slíkt geríst næstum áricga.
Nú bíða menn einnig spenntir eftir
að sjá hvemig hin harða frétta-
mennska mun líta út þegar borg-
armál verða á dagskrá fréttastof-
unnar. Ástæða þessa spennings er
sú að Davíð Oddsson hefur nú fært
Stöð 2 a.m.k. 7 milljónir af skattfé
Reykvíkinga til. þess að styrkja
Heimsbikarinótið sem nú stendur
yfir. Fyrst voru það 4,5 milljónir í
beinan styrk til mótshaldsins og í
vikunni var samþykt að veita 2,5
milljónir til viðbótar gegn því að
Stöð 2 gerði 7-9 minútna kvikmynd
um mótið. Borgarleikhúsið er lán-
að endurgjaldslaust og ekki er Ijóst
hver stendur straum af þeim fram-
kvæmdum sem þar hafa faríð fram.
Óneitanlega verður fróðlegt að
fylgjast með hversu hart verður
tekið á borgarstjóranum í frétta-
flutningi á næstunni.
Stór og Ifitil tippi
á síðum Þjóðviljans
Nýtt Helgarblað Pjóðviljans
slær upp lieldur betur fróðlegu
máli í gær. Á forsíðu er mynd af
kynlífsfræðingnum eina og sanna,
Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur og vís-
að til stórmerkilegrar greinar henn-
ar í blaðinu um ættir tippa, lengdir
þeirra og stærðir.
Tippafræðingurinn Jóna Ingi-
björg kemst að þeirrí athyglisverðu
niðurstöðu að ekki sé hægt að
lengja millimetratippi með strekkj-
urum eða lyfjum. Smátipparar geti
veríð ánægðir með sitt því að lítil
tippi gagnist kynþyrstum konum
yfirleitt betur en svokallaður rísa-
reður. Orðrétt segir kynfræðarinn:
„Meira máli skiptir að vera góður
elskhugi en hafa stórí tippi. Til eru
karlmenn sem halda að þeir séu
sjálfkrafu æðislegir elskhugar bara
út af tippastærðinni. Þeir eru enn
ekki búnir að uppgötva að stærsta
kynfæríð er ekki á miili fótanna
heldur á milli cyrnanna.*'
Fyrr má nú rota en dauðrota.
Dropateljari hefur heyrt að milli
cvrnanna á karlniönnum sé cinhver
heiladinguii til einhvers aUt annars
en að gagnast konum. Lfldega
verðurmaðurað draga fram heilsu-
fræðibókina á nýjan leik og fletta
upp á blaðsíðu 82 og lesa sér á
nýjan leik til um fræðin.
Mottoið samkvæmt Jónu Ingi-
björgu er: Fram þjáð hausatippi í
þúsund löndum!
Atvinnulaus frjálshyggja
Nú hafa nokkrir aðstoðarmcnn
ráðherra orðið atvinnulausir eftir
fall ríkisstjórnar Þorsteins Pálsson-
ar. Er það svo sem ekki í frásögur
færandi því þekkt er orðið að fall
er af stalli háum hátt. Þeir sem
ekki hafa fengið vinnu annars stað-
ar ennþá eiga þó nokkra hluti
sameiginlega og einn þeirra er virk
þátttaka þeirra í Heimdalh'. Annað
sem þessir þrir aðstoðarmenn eiga
sameiginlegt er glóandi vissan um
að lausn þessa heims sé fólgin í því
að allir taki trúna á litt hefta
frjálshyggju markaðslögmála. Þeir
eru Guðrún Zoéga, sem aðstoðaði
Fríðrik Sophusson, Hreinn
Loftsson, sem aðstoðaði Matthías
Á., og Guðmundur Magnússon,
sem aðstoðaði Birgi Isleif. Sá síð-
astnefndi hefur auk þess orðið fyrir
því áfalli að fréttabréf
menntamálaráðuneytisins sem
hann ritstýrði hefur verið innkallað
af nýja menntamálaráðherranum,
m.a. vegna sérstæðra skoðana
hans, eftir því sem dropateljari
hefur fregnað. Sem betur fer fyrir
frjálshyggjuna eru enn til atvinnu-
leysisbætur!
TAL STAL SENUNNI
/ ■ . .
/Fjórða umferð Heimsbikarmóts
Stöðvar 2 var tefld í gærkvöldi. Sjö
skákum var lokið þegar Tíminn fór
í prentun. Nokkuð var um óvænt
: úrslit. Mesta athygli vakti að Garry'
Kasparov, heimsmeistari, skyldi
þurfa að sætta sig við jafntefli í skák
sinni við Zoltan Ribli. Aðrir sem
gerðu jafntefli voru: Jan Timman og
Gyula Sax, John Nunn og Artur
Júsúpov, Viktor Kortsnoj og Ulf
Andersson, Andrei Sokolov og La-
jos Portisch.
Mikla hrifningu vöktu taktar hins
gamla refs, Mikhail Tals þegar hann
sigraði Jonathan Speelman. Beljav-
sky sigraði Ehlvest og tryggði sér þar
með efsta sætið eftir fjórðu umferð,
með þrjá vinninga. -ES