Tíminn - 18.10.1988, Blaðsíða 1
Haukur hreppti gullið
í lOOmetrahlaupiá
leikumfatlaðraíSeoul
• Íþróttasíður 10-12
Fiskeldisbændur segja
atvinnutryggingasjóð
ekki með á nótunum
• Baksiða
Hefur boðað frjálslyndi og framfarír í sjö tugi ára
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1988 - 238. TBL. 72. ÁRG.
Halldór Ásgrtmsson sjávarútvegsráöherra (viðtali við Tímann: Hvar enda hótanir?
Illa upplýst auðvald
dottið í hvalafriðun
Þýska fjölþjóðafyrirtækið Tengelmann
hefur látið undan þrýstingi Grænfriðunga
um að hætta að kaupa fiskafurðir frá
„hvalamorðingjunum“ Islendingum. Auð-
hringurinn Tengelmann hefur því ráðist í
hvalafriðun að áeggjan Grænfriðunga.
Sjávarútvegsráðherra sagði í samtali
við Tímann í gær að hann grunaði að
fyrirtækið hefði villandi upplýsingar undir
höndum. Hefur ráðherra sent forráðam-
önnum fyrirtækisins skeyti, þar sem boð-
ist er til að senda þeim upplýsingar um
vísindaveiðar okkar. Beðið er eftir svari
frá Tengeimann.
Halldór Ásgrímsson segir að okkur beri
að gera það sem okkur finnst vera rétt í
máli þessu en viðbrögð okkar eigi ekki að
mótast af þrýstingi einstakra aðila sem
breytist dag frá degi. • Blaðsíða 5
Grænfriðungar einbeita sér nú á þurru í baráttunni við „hvalamorðingjana"
Vararafstöð
Borgarspítal-
ans fór ekki í
gang þegar
rafmagns-
laust varð um
mestallt land-
ið á sunnu-
dag:
Héldu lífi í sjúkling-
um með handafli
Vararafstöð Borgarspítalans í Reykjavík fór ekki í
gang á sunnudag, er rafmagnslaust varð um mestallt
land. Hlaust af þessu „almennt óhagræði“ eins og þeir
kusu að kalla það á Borgarspítalanum.
Ákveðin vandamál komu þó upp og m.a. þurfti að
handdæla súrefni í sjúkling, sem var í öndunarvél, þar
sem rafmagn var ekki til staðar.
Tæki sem veita læknum upplýsingar um líðan sjúk-
linga á gjörgæsludeild þurfa einnig rafmagn og er
rafhiöður voru tómar slokknaði á tækjunum.
Það ber þó að taka fram að læknar eru þjálfaðir til að
mæta slíku neyðarástandi og fórst það vel úr hendi.
• Blaðsíða 3