Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn . Föstudagur 15. september 1989 Árið 1987 var metveiði minka og refa; samanlagt felld 8.200 dýr: 32 milljónir til að drepa minka og ref i Árið 1987 var metár í veiði minka og refa. Þá voru drepnir flestir minkar frá upphafi og til að finna samsvarandi fjölda felldra melrakka þarf að fara aftur til ársins 1962. Veiðiskýrsl- ur fyrir árið í fyrra og þetta ár, liggja ekki fyrir, en að sögn Páls Hersteinssonar veiðistjóra virðist veiðin vera svipuð árið 1988 og hún var árinu áður. Heildarkostnaður við eyðingu minka og refa árið 1987 reyndist rúmar 32 milljónir, framreiknaður á verðlag ársins 1988. Á árinu 1987 fundust 314 tófu- greni á öllu landinu. 514 fullorðin grendýr veiddust auk 1.288 yrðlinga, og þar fyrir utan voru skotin 435 hlaupadýr, þ.e. tófur sem ekki höfðu fasta búsetu við greni á þeim fíma sem þær voru skotnar. Samanlagt voru skotnar 949 fuiiorðnar tófur árið 1987 og með hvolpum 2.237 dýr. Minkaveiðimenn felldu á árinu 1987 rúmlega 6.000 minka og það er mesta veiði frá því að eyðing minka hófst hér á landi. Alls voru því rúmlega 8.200 refir og minkar felldir á vegum veiðistjóraembættisins á árinu 1987. Veiðistjóri hefur nýlega lokið við gerð skýrslu um kostnað við refa- og minkaveiðar, sem send var til fjár- málaráðuneytisins. Þar kemur fram að kostnaður við refaveiðar hefur verið mjög svipaður allt frá því þær hófust 1958, eða á bilinu 15-20 milljónir reiknað á verðlagi ársins 1988. Kostnaður hefur lítið breyst milli ára þrátt fyrir talsvert miklar sveifur í veiðum. Sé hins vegar litið á kostnað við hvert unnið dýr kemur í ljós að hann er lægstur þegar mest er veitt af ref. Tilkostnaður eykst hlutfallslega við hvert veitt dýr, eftir því sem þeim fækkar. Skýringin á þessu er sú að grenjaskyttur eyða miklu af tíma sínum í að leita að grenjum og við það er tilfallandi fastur kostnaður, tímakaup, akstur og fleira, sem ekki breytist á milli ára. Sé litið á kostnað við minkaveiðar er svipað uppi á teningnum. Kostn- aður við hvern unninn mink hefur frá upphafi farið minnkandi. Það gerist vegna þess að minkastofninn fer stækkandi og fleiri dýr veiðast á hverju svæði, þó að kostnaður við leit á viðkomandi svæði sé sá sami. Skýrslur minkaveiðimanna yfir þetta ár hafa ekki borist, en að sögn Páls bendir allt til þess að stofninn hafi orðið fyrir verulegum skakka- föllum við got í vor. Þar er um að kenna slæmu tíðarfari og því hve frost fór seint úr jörðu. Þetta kemur þó ekki að fullu í ljós fyrr en að skýrslur hafa komið frá öllum veiði- mönnum, en það verður ekki fyrr en á næsta ári. Páll sagði það vera tilfinningu sína eftir að hafa talað við veiðimenn víðs vegar af landinu, að minkastofninn hefði minnkað verulega á s.l. vori. „Það hefur sennilega drepist eitthvað seinni part vetrar og í vor vegna kulda. í einhverjum tilfellum getur verið að sú fækkun sem að menn verða varir við í ár stafi af dugnaði veiðimann- anna, en fyrst og fremst stafar hún af tíðarfarinu." - ÁG Skákþing íslands: Fjórðaumferð tefld í kvöld Þriðja umferð í landsliðsflokki á skákþingi íslands fór fram í gærkvöldi. Eftir fyrstu tvær um- ferðirnar voru þeir Jón L. Árna- son og Karl Þorsteins efstir og jafnir með tvo vinninga. Úrslit í annarri umferð urðu þau að Jón L. Árnason vann Ágúst Karlsson, Karl Þorsteins vann Þröst Þórhallsson, Jón G. Viðarsson vann Guðmund Gísla- son og Þröstur Árnason vann Rúnar Sigurpálsson. Jafntefli varð í skák Hannesar Hlífars Stefánssonar og Sigurðar Daða Sigfússonar og í skák þeirra Tóm- asar Björgvinssonar og Björgvins Jónssonar. I gærkvöldi áttust við í þriðju umferð Ágúst Karlsson og Rúnar Sigurpálsson, Þröstur Árnason og Guðmundur Gíslason, Karl Þorsteins og Jón L. Árnason, Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson, Björgvin Jónsson og Sigurður Daði Sigfús- son, og Jón Garðar Viðarsson og Tómas Björnsson. Fjórða umferð verður tefld í kvöld og hefst hún klukkan 18.00 í húsakynnum Útsýnar í Mjódd. - ABÓ Erró opnar myndlistarsýningu á Kjarvalsstöðum laugardaginn 16. september. Á sýningunni eru 110 verk sem listamaðurinn hefur mál- að á síðustu fjórum árum. Sýningin er í boði Listasafns Reykjavíkur. Erró hefur ekki haldið sýningu hér á landi í fjögur ár. Erró er án efa þekktasti núlif- andi myndlistarmaður íslendinga. Hans er getið í flestum bókum sem fjalla um alþjóðlega samtímalist og verk hans prýða söfn um allan heim. Erró hefur verið búsettur í París í meira en þrjátíu ár. Hann er fæddur í Ólafsvík en ólst upp að Kirkjubæjarklaustri. Eftir að hafa stundað nám í Handíða- og mynd- listarskólanum í Reykjavík hélt Erró í frekara nám til Oslóar, Flórens og víðar. Erró tileinkaði sér snemma myndgerð poplistar- innar sem hann hefur kunnað að þróa á einkar persónulegan hátt og þannig markað sér afgerandi sér- stöðu í listasögunni. Erró hélt síðast sýningu á íslandi árið 1985. Á sýningunni á Kjarvals- stöðum eru sýnd 110 verk sem öll eru máluð á síðustu 4 árum. Mál- verkin eru mörg hver einfaldari að gerð en ýmis eldri verk Errós. Bakgrunnurinn er ekki eins hlað- inn og oft áður. Blaðamaður Tím- ans spurði Erró hverju þetta sætti. „Ætli ég sé ekki bara að verða latur. Maður breytist alltaf eitthv- að sem betur fer og ég vona að sú breyting sé ekki til hins verra.“ Erró getur tæplega talist latur listamaður því eftir hann liggja gífurlega margar myndir. Hann er mjög fljótur að vinna og er jafnan með fimm my ndir í vinnslu í einu. Sýning Errós stendur til 1. okt- óber. - EÓ Álver við Eyjafjörð líklegur valkostur Jón Sigurðsson viðskipta- og iðn- aðarráðherra hyggst leggja fyrir Al- þingi í vetur tillögur þess efnis að mörkuð verði heilsteypt stefna um virkjunarröð og iðnaðaráform fram yfír aldamót. Þá telur iðnaðarráð- herra að Fljótsdalsvirkjun og álver við Eyjafjörð geti orðið að veruleika á næstu 5-10 árum ef samstaða náist um slíka stefnumótun. Þetta er með- al þeirra atriða sem komu fram á fundi sem iðnaðarráðuneytið og Iðn- þróunarfélag Eyjafjarðar efndu til á Akureyri á miðvikudagskvöldið. Iðnaðarráðherra hefur látið hefja endurskoðun á þeim umhverfisat- hugunum sem gerðar voru í Eyja- firði fyrir nokkrum árum þegar um- ræður um álver stóðu sem hæst. í ræðu sem ráðherrann hélt á fyrr- nefndum fundi kom fram að Eyjafj- örður væri eina svæðið fyrir utan Suðvesturhornið sem hefði nægilega stóran vinnumarkað til að starfrækja eins viðamikinn iðnrekstur og álver er. Jón Sigurðsson sagði meðal annars: „Auðvitað horfa menn á byggða- þróunaráhrifin af slíkri fjárfestingu. En ég held að svarið sé að taka stærra skref. Þetta er augljóslega það hagstæðasta sem við getum gert. Við höfum Blöndu, hún er ekki fullnýtt og hún hefur orðið okkur býsna dýr í framkvæmd. Til þess að ná jafnvægi í æskilegri þróun byggð- ar í landinu þurfum við að hugsa stærra, ákveða meira og þora að gera það sem þarf til þess að gefa von um betri framtíð, meiri atvinnu, betri kjör á svæði eins og við Eyja- fjörð.“ Sama kvöld stóð Alþýðubanda- lagið fyrir almennum stjórnmála- fundi þar kom fram í máli forsæt- isráðherra og menntamálaráðherra að þær hugmyndir sem Jón Sigurðs- son hefur viðrað varðandi álver í Eyjafirði væru alfarið hans eigin þar sem mál þetta hafi ekki verð rætt í ríkisstjórninni. SSH Fyrsta skreiðarsendingin til Ítalíu komin í höfn: Sendingunni vel tekið Fyrsta skreiðarsendingin frá íslenskum framleiðend- um er komin á markað á Ítalíu og hefur henni verið vel tekið af kaupendum og engin gæðavandamál komið upp. Að sögn Ragnars Sig- urjónssonar sölustjóra skreiðardeildar Sambandsins hefur skreiðarsalan farið eðlilega af stað miðað við fyrri ár. Skreiðarframleiðslan er ívið meiri nú en undanfarin ár, og sömu sögu er að segja af framleiðslu Norð- manna, sem einnig selja skreið á Ítalíumarkað. Ragnar sagði að markaðurinn hefði tekið vel við því sem þegar væri komið á staðinn og engin gæðavandamál komið fram, sem lofaði góðu. Aðal sölutími skreiðar stendur frá september og fram í miðjan desem- ber. Verðið sem ákveðið var er þokkalegt að sögn Ragnars. Um er að ræða nokkra lækkun í dollurum talið, miðað við síðasta ár, en í krónum talið hefur orðið hækkun til framleiðenda, vegna gengisbreyt- inga. Skreiðin er flokkuð í ákveðna stærðar- og verðflokka. Flokkurinn „SAGA IG“, þ.e. stærsta skreiðin í Sögu flokknum gefur um 830 króna nettóskilaverð fyrir hvert kíló til framleiðenda. Þegar kaupendur skreiðarinnar fá hana í hendur er hún látin liggja í vökva í 3 til 4 daga áður en hún er seld til neytandans. Á S-Ítalíu er hún bleytt upp í vatni, en á N-ftalíu er lút blandað saman við vatnið, sem skreiðin er bleytt upp í. Þegar þess- ari meðhöndlun er lokið, er skreiðin orðin svipuð og siginn fiskur, eins og við þekkjum hann. Hlutur íslands á Ítalíumarkaði hefur verið á bilinu 15 til 30% undanfarin ár, á móti Noregi. í fyrra var hlutur íslands um 20 til 25%. Neyslan hefur verið að dragast sam- an frá 1976, en þá var hún um 6000 tonn, en var í fyrra um 3300 tonn. íslendingar framleiða stærri skreið en Norðmenn, og fer sú skreið einkum á S-Ítalíu en skreið Norð- manna fer á N-Ítalíu. Skreiðarverkun á Nígeríu liggur niðri, enda markaðurinn mjög erfið- ur vegna verðsins. Gengisfellingar þar í landi og það verð sem þeir geta greitt duga íslenskum framleiðend- um engan veginn og ekki útlit fyrir að sú staða batni á næstu árum. -ABÓ Til starfa á ný eftir eldsvoðann í dag verður Gúmmívinnustofan að Réttarhálsi í Reykjavík formlega opnuð að nýju. Sem kunnugt er gjöreyðilagðist húsnæði vinnustof- unnar í miklum eldsvoða 4. janúar síðastliðinn og er talið að endur-; byggingin hafi kostað um 200 millj- ónir króna. f tilefni af opnuninni gefst almenn- ingi kostur á að skoða húsnæðið, kynnast starfseminni og þiggja kaffi og veitingar. Viðar Halldórsson framkvæmdastjóri Gúmmívinnu- stofunnar sagði við Tímann að hann vonaðist til þess að fyrirtækið endur- heimti gamla viðskiptavini. Tækja- kosturinn væri allur nýr og ætti það að stuðla að betri þjónustu. SSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.