Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 11
Laugardagur 9. júní 1990 HELGIN 19 leiti fyrr eða síðar hælis í Guayaquil því þar er gott að felast eða sleppa burt með bananaskipum eða vögnum sem ganga yfir landamærin til Perú eða Kplumbíu. Gðnzalez gerði hafharyfirvöldum viðvart og leitað var í hveiju skipi sem yfirgaf borgina. Hermenn voru á verði við landamærin og leituðu í vögnum. Þrátt fyrir það var Gonzalez engu nær morðingjanum eftir hálft ár en í upphafi. Þótt hann hefði fengið lista yfir strokufanga ffá Quito virtist enginn þeirra haldinn þess konar glæpaáráttu sem hér var um að ræða. —Morðinginn er mjög truflaður á geði, fullyrti sálfræðingur. —Hann er samt slægur, greindur og jafnvel rök- fastur að sumu leyti. Fjöldamorðingj- ar eru yfirleitt ósköp venjulegir útlits og eiga það sameiginlegt að hafa sætt ofbeldi eða verið yfirgefhir snemma á ævinni. Reiðin tekur völdin og ger- ir þessa menn að grimmum skepnum sem hugsa um það eitt að tortíma. Þeir njóta þess að myrða og nautnin eykst með hveiju morði. Þeir sækjast einkum eftir vamarlausum fómar- lömbum, bömum, konum og gamal- mennum. I sambandi við þijú morðanna höfðu fundist sams konar sælgætis- bréf á vettvangi, glært bréf utan af bijóstsykri. í öll skiptin höfðu þó veður og vindar leikið bréfin þannig að þau vom gagnslaus sem sönnunar- gögn. Loks finnst fingrafar Það var svo í júní 1988, eftir að lim- lest Iík hinnar 12 ára Gloríu Andino fannst við jaðar fenjaskógarins, að einmitt slíkt sælgætisbréf reyndist hafa úrslitaþýðingu við leitina að morðingjanum. Telpunni hafði verið nauðgað og hún nánast rist sundur með 12 djúpum skurðum eftir sveðju. Andlitið hafði verið barið í kássu og óþekkjanlegt en hnefi henn- ar var krepptur utan um sælgætisbréf. Það var þegar sent til rannsóknar og loks fannst fingrafar. Tæknimaðurinn hringdi til að segja Gonzalez fréttimar og bætti við að sælgætið væri að líkindum framleitt í Kólumbíu en selt í fjölmörgum versl- unum i Guayaquil. Gonzalez mataði tölvukerfi Iögreglunnar á fingrafar- en hann náðist hafði hinn blíðmálgi Daníel Camargo Bar- bosa á samviskunni líf 72 telpna á aldrinum 7 til 12 ára. Sælgætis- bréf og fbrvitni ungs lögreglu- manns felldi hann. inu og fékk um hæl útprentun á fingrafari sem komu heim og saman, ekki bara frá Bogota í Kólumbiu, heldur líka ffá Barranquilla, borg á norðurströnd Kólumbíu. Gonzalez kallaði þegar til sín þá sem unnið höfðu með honum að mál- inu og sýndi þeim útprentunina. Nafh hins gmnaða var Daníel Camargo Barbosa og hann var 53 ára kólumb- iskur borgari. Hann hafði verið hand- tekinn í Bogota vegna fíkniefhamála og setið inni í Barranquilla fyrir nauðgun og morð níu ára telpu. Síðla árs 1986 strauk hann úr fangelsinu á eynni Gorgona og hvarf gersamlega. —Jæja, félagar, sagði Gonzalez. —Svo virðist sem við höfum loks haft eitthvað upp úr krafsinu. Maður- inn er geðbilaður með óralanga saka- skrá. Við höfum nafh hans og nú er að finna hann og það sem fyrst. Eins og oft gerist þegar fyrir liggja brot af vísbendingum sem enginn botnar í, tóku þau nú að raðast sam- an. Segja má að heppni hafi ráðið því, svo og að menn voru á réttum stað á réttum tíma. Það ásamt góðu minni ungs lögreglumanns á bifhjóli varð til þess að bamamorðinginn í Ecuador náðist loks. Meðan Gonzalez var að skoða fingraforin, vildi svo tii að Juan Ro- sales, sem var nýkominn til starfa í bifhjóladeild lögreglunnar í Guayaquil, var á ferð eftir malarvegi sem lá að fenjasvæðinu í útjaðri borgarinnar. Þá sá hann mann skjót- ast út úr þykkninu með svartan plast- poka í hönd. Rosale' vissi enn ekki um það sem gerst hafði á lögreglu- stöðinni og ákvað óháð því öllu að ræða við manninn. Þetta var mein- leysislegasti náungi sem kvaðst heita Daníel og svaraði spumingum Rosal- es með bros á vör. —Fyrst hélt ég að hann væri úti- gangsmaður sem héldi til í fenjunum, sagði Rosales síðar. —Þama leita margir hælis án þess að þeir séu Áður en yfir lauk náði þessi smávaxni, meinleysislegi maður að lokka til sín 72 litlar telpur, nauðga þeim og myrða síðan með sveðju. hann úr fangelsinu og komst yfir landamæri Ecuador. Daníel Barbosa hafði stundað iðju sína á svæði allt frá Quito til Guayaquil og komið við í mörgum þorpum og bæjum. Öðm hveiju vann hann sér fyrir smávegis peningum með því að tína banana. Þannig hafði hann lært að beita sveðjunni sem raunar er notuð til margra verka á þessum slóðum og er ekki óalgengt að menn gangi alltaf með hana á sér. Það er ekki ólöglegt. Um tíma tókst Daníel að leynast í Guayaquil þar sem hann seldi penna og blýanta á markaðnum. Hann hélt líka áfram að gabba með sér telpur á afvikna staði. —Það var vandalaust að finna þær, sagði hann blátt áffam. —Ég þurfti bara að bjóða þeim penna eða sæl- gæti. Stundum lofaði ég þeim ókeyp- is ferð í strætó eða hádegismat. Það vom ótal leiðir til að lokka þær ffá markaðnum þar sem mæður þeirra seldu ávexti eða grænmeti. A 14 mánuðum fóm þannig 55 telp- ur út úr borginni með smávaxna, sak- leysislega manninum en komu aldrei aftur. Þegar Daníel var spurður um morð- vopnið kvaðst hann hafa fleygt sveðjunni í fenið þegar hann heyrði í lögreglubifhjólinu. Fyrr um daginn hafði hann gabbað Guadalupe Herr- era með sér af markaðstorginu með þvi að lofa henni að láta taka af sér skyndimynd. Hann sagði henni að hann ætti dóttur á svipuðum aldri og þau skyldu öll borða saman. Hann hafði farið með hana út að fenja- svæðinu og þau síðan gengið nokk- um spöl inn milli tijánna. Þar réðst hann á telpuna, nauðgaði henni og risti hana síðan sundur með sveðj- unni. Aðspurður hvers vegna hann kysi böm sem fómarlömb, yppti hann öxl- um og svaraði: —Ég vildi bara hrein- ar meyjar. Þegar ég reyndi að hafa mök við þær, æptu þær eins og böm og það æsti mig verulega. Næstu daga vísaði Daniel lögregl- unni á sex lík telpna í fenjunum. All- ar höfðu þær orðið fómarlömb sveðj- unnar. Aðeins 16 ára fangelsi Þar með vom þó ekki öll kurl kom- in til grafar á blóðugum ferli Daníels Barbosa. Við réttarhöldin sem fram fóm í Guayaquil í september 1989, játaði þessi mjúkmáli óþokki að hann hefði einnig nauðgað og myrt 16 telpur í fimm öðmm bæjum. Hann lýsti þeim tilvikum nákvæmlega fyrir áheyrendum. Svo fór að Daníel Barbosa var ekki dæmdur i nema 16 ára fangelsi fyrir ódæði sin, en það er hámarksrefsing í Ecuador. Einn lögffæðinganna sagði að í svona tilviki væm lögin hrein svívirða. Menn mættu myrða 100 böm eða 1.000 án þess að fá þyngri dóm. Þetta væri varla meira en högg á handarbakið. I Ecuador vinnur kerfið varla á sni- gilshraða og því er ólíklegt að búið verði að breyta neinu þegar Daníel verður aftur ftjáls maður. Á meðan geta sumir íbúar verið rólegir af að vita hann undir lás og slá. Hins vegar lifa foreldrar 72 bama við martröðina til æviloka. Loretta Paico var 12 ára, bráð- þroska telpa sem morðinginn gabbaði burt af markaðstorginu. Hún sást aldrei framar, lífs eða liðín. unni og stakk upp á að maðurinn kæmi með mér á stöðina. Mánuðum saman höfðu birst mynd- ir af týndum telpum í blöðunum og í hvert sinn sem einhver þeirra fannst myrt birtust myndir af henni í sjón- varpinu ásamt ákalli til almennings um að hjálpa eftir megni við leitina að morðingjanum. Nokkmm kvöldum áður en Rosales hitti Daníel hafði hann séð mynd af níu ára telpu í sjónvarpinu. Hún hét Guadalupe Herrera og allir lögreglu- —Ég hefði átt að yfirgefa hana, sagði hann. —Ég var bara svo yfir mig ástfanginn að ég bað hana að fara út og færa mér hreinar meyjar. í staðinn lofaði ég að kvænast henni. Myrti 72 telpur Ótal sinnum gabbaði vinkona Daní- els ungar telpur inn til hans, þar sem hann gaf þeim fíknilyf og misþyrmdi þeim kynferðislega. Hann bjó þá í út- jaðri Bogota og starfaði sem viðgerð- armaður. Nokkrar telpnanna sögðu frá atburðunum og Daníel og stúlkan voru handtekin og fangelsuð. 1969 voru þau látin laus fyrir góða hegðan og skildu síðan að skiptum. Fimm ár- um síðar var Daníel handtekinn í Barranquilla fyrir að nauðga og myrða níu ára telpu. 1986 strauk menn höfðu fengið myndimar í hendur. Um leið og Rosales dró myndina upp úr buxnavasanum fann hann á sér að hann stóð augliti til auglitis við bamamorðingjann. Myndin var af Guadalupe Herrera. Á stöðinni tók Gonzalez sjálfur að sér að yfirheyra Daníel Barbosa. I fyrsu neitaði smávaxni náunginn að vita nokkuð um morðin. Hann ók sér vandræðalega í stólnum og dökk augun skutust til og frá eins og í hræddu dýri. Skyndilega virtist hann finna hjá sér hvöt til að létta af sér byrðinni. Næstu fimm klukkustundimar játaði hann á sig ódæði sem áttu sér enga hliðstæðu í sögunni. Brjálæðingurinn sem nauðgaði, kyrkti og skar sundur fómarlömb sín, talaði næstum í blíðutóni. Hann sagði að sem bam hefði hann stöðugt verið auðmýktur af ráðríkri móður sem klæddi hann í telpuföt svo hann lenti ekki í vand- ræðum með hinum strákunum á göt- um Bogota þar sem þau hefðu átt heima. —Strákamir gerðu grín að mér og ég hataði mömmu fyrir að gera mig að fífli, sagði hann. —Til að hefna mín kyrkti ég köttinn hennar og strauk svo að heiman. Nítján ára kvæntist Daníel og eign- aðist tvö böm en yfirgaf konu sína þegar hann uppgötvaði að hún hélt ffamhjá með besta vini hans. Daníel sagðist hafa orðið fyrir skelfilegustu lífsreynslu sinni nokkrum ámm síðar þegar hann uppgötvaði að unnusta hans var ekki hrein mey. glæpamenn. Hann bað manninn að sýna sér innihald pokans sem reynd- ust óhreinar, bláar gallabuxur. í ein- um vasanum var mynd af ungri telpu. Klæddur í telpuföt —Ég spurði hver ætti þær, sagði Rosales. —Daníel sagðist hafa sótt föt dóttur sinnar til skólasystur henn- ar og væri á heimleið. Hann var ósköp sakleysislegur en mér fannst ég samt kannast við myndina af telp- SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.