Tíminn - 08.07.1994, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.07.1994, Blaðsíða 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veí>urstofu kl. 16.30 í gær) • Subvesturmib: Austan kaldi. Þokuloft og sums stabar súld. • Suburland, Faxaflói og Faxaflóamib: Hæg breytileg eba austlæg átt. Víbast skýjab og á stöku stab síbdegisskúrir. • Breibafjörbur, Vestfirbir, Breibafjarbar- og Vestfjarbamib: Hæg breytileg en síban norbaustlæg átt. Víbast léttskýjab en pokuloft á mib- unum. • Strandir og Norburland vestra, Norburland eystra, Norbvest- urmib og Norbausturmib: Hæg breytileg eba norbaustlæg átt, þoku- loft á miounum og vib ströndina. Víba léttskýjab í innsveitum, einkum síbdegis. • Austurland ab Clettingi, Austfirbir, Austur- og Austfjarbamib: Hæg breytileg átt og léttskyjab inn til landsins en annars subaustan gola og þokufoft. • Subausturland og Subausturmib: Austan og subaustan gola í kvöld og nótt en kaldi þegar líbur á daginn. Skýjab og þokuloft. Menn veröa aö skoöa hug sinn og meta hvert þeir vilja fara þegar nœstu samningar nálgast, segir Gylfi Arnbjörnsson: Ekkert framhald þjóðarsáttar án launaleiöréttingarinnar „Hvernig sem Fribrik Shop- husson og Vinnuveitenda- sambandib vilja snúa sér í þessum málum þá liggur fyrir niöurstaba í mati Hag- stofunnar um rúmlega 3% mun á 1. fjórðungi þessa árs. Krafa okkar um leiö- réttingu byggist á grund- vallarforsendu sem mótuö hefur verib í launastefnu undanfarinna ára — aö ekki sé um verulegan mis- mun í þróun launa aö ræöa — sem ekki hefur staöist. Þótt þessi forsenda sé ekki niöurskrifuö í samninginn þá byggir hún á trausti í sam- skiptum aöila. Þess vegna leitum viö eftir leiöréttingu frá okkar viösemjendum. Og telji menn ástæöu til aö nálgast þessa launastefnu í næstu samningum, þá þarf aö reyna aö koma þeim inn á þaö spor. En þaö gera menn ekki meö svona yfirlýsingum — hvorki eins og þeim sem komiö hafa frá Þórarni V. Þórarinssyni né ráöherrum í ríkisstjórninni." Þetta sagöi Gylfi Arnbjörns- son, hagfræðingur ASÍ, þegar Tíminn spurði um væntan- leg viöbrögð Alþýöusam- bandsins eftir að fram- kvæmdastjóri VSÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, hefur vísað kröfum ASÍ um launaleiö- réttingu á bug. Þar sem ekkert sé í kjara- samningunum sem gefi færi á aö bregðast viö meö ein- hverjum aðgerðum segir Gylfi aö þaö kunni að vera rétt hjá Þórarni, aö taka verði á þessu viö næstu kjarasamn- inga (lausir um áramót). „En viö teljum að til þess aö geta nálgast næstu kjara- samninga í þeim anda sem menn hafa verið aö vinna eftir hingað til þá þurfi að hreinsa þarna til. Þannig aö menn veröi nú aö setjast niður og skoöa sinn hug og síöan meta hvert þeir vilji fara þegar þeir nálgast næstu samninga. Krafa okkar liggur fyrir og viö teljum hana mjög réttmæta og eölilega í ljósi grundvallarforsendna launastefnunnar. Náist ekki samstaða um þetta þá verður auðvitað aö meta í framhald- inu hvaöa áhrif þaö hefur á samskipti samningsaöila. En fallist menn ekki á þetta þá virðast þeir líka á því að fara inn í næstu samninga í ein- hverjum öörum anda og þá veröur bara svo að vera," seg- ir Gylfi. Laxarnir í Ráöhúspollinum voru ekki jafn gœfir í gœr og fyrradag en þeir vöktu engu aö síöur athygli erlendra feröamanna þar sem þeir lágu í skugga undir vesturveggnum. Tímamynd ps Eldislaxar í Ráð- húspollinum láta klappa sér Laxarnir í pollinum norban viö Ráöhúsiö eru svo gæfir aö tíbindum þykir sæta. Þeir hafa jafnvel komib upp á yfir- boröiö og leyft gestum og gangandi ab klappa sér. Þetta hljómar ótrúlega, en Tíminn fregnaöi af slíkri uppá- komu á miðvikudag. Hvort mik- iö sólskin og þar af leiðandi hátt hitastig vatnsins í tjörninni skiptir þar máli, skal ósagt látið, en laxamir voru a.m.k. styggari í sólarleysinu í gær. Aö sögn húsvaröa í Ráðhúsinu hefur þaö valdið nokkrum vandræðum hve laxarnir eru gæfir. Þeir gáfu hins vegar þá skýringu að fiskarnir hefðu áður verið í sýningarkerum í Hús- dýragarðinum og þess vegna gæfir og vanir nálægð manna. ■ Krafan sé fram komin og fulltrúar ASÍ hafi gert grein fyrir henni á fundi með VSÍ. Þeir hafi óskaö eftir aö beöið yröi frekari staöfestingar, m.a. frá Hagstofunni og sú staðfesting liggi nú fyrir. „Menn geta ekki bariö hausnum við steininn og túlkaö það svo aö þótt þar sé um ríflega 3ja prósenta mun aö ræöa — sem samsvarar tvöföldum launahækkunum undanfarinna þriggja ára — þá sé munurinn eiginlega bara 0%. En svo mikið hlaup getur ekki veriö í málinu, aö þaö muni tvennum kjara- samningum," segir Gylfi Arnbjörnsson. '' '' Æ&jSm £mx . ! , j £ iííhíwt'1 ' ■ 'tvWI Bogi og Örvar rœöa um veröiö á „míníatúrum" í flugvélum Flugleiöa viö Svanhildi sem vinnur í söludeild félagsins. Tímamynd CS Bogi og Örvar máta breyttan Arnarhól Þeir sem leib áttu um Arnarhól- inn seinni partinn í gær tóku eftir óvenju mörgu prúbbúnu fólki sem þar var saman komiö. Tveir stungu þó í stúf og þegar betur var að gáð voru þar komnir rónarnir landsfrægu, Bogi og Örvar, en þeir haf ekki látiö sjá sig á hólnum frá því Ingólfur fór í „klössun" og umhverfið allt tekið í gegn. Prúðbúna fólkið hins veg- ar var starfsfók söluskrifstofa ferðaskrifstofanna sem hittist jafnan einu sinni á ári á óvænt- um stað með óvæntum uppá- komum. Bogi og Örvar höfðu frétt af þeim gleðskap og létu sig ekki vanta. ■ Forsætisráðherrar Norburlanda funda Forsætisrábherrar Norburland- anna undir stjórn Davíbs Odds- sonar hittust í nágrenni vib Nyslott í Finnlandi í gær. A dagskrá fundarins voru meðal annars Evrópumál og hugsanleg- ar breytingar á norrænu samstarfi vegna væntanlegrar aðildar Finn- lands, Svíþjóðar og Noregs að Evr- ópusambandinu. Þá var fjallab um norrænt samstarf við Eystra- saltsríkin, Sankti- Pétursborgar- svæðið og Barentssvæðið, en samstarf við þessi svæði fer stöð- ugt vaxandi. T.a.m. hafa norræn- ar upplýsingaskrifstofur verið starfræktar í Eystrasaltsríkjunum þremur í nokkur ár. í för með forsætisráðherra er eig- inkona hans frú Ástríður Thorar- ensen, Ólafur Davíðsson ráðu- neytisstjóri, Snjólaug Ólafsdóttir skrifstofustjóri, Eyjólfur Sveins- son, aðstoðarmaður forsætisráð- herra, og Albert Jónsson deildar- stjóri. ■ BEINN SIMI AFGREIÐSLU TÍMANS ER 631•631

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.