Tíminn - 19.11.1994, Page 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Laugardagur 19. nóvember 1994
Stakkholti 4
Inngangurfrá
Brautarholti
219. tölublaö 1994
Aöeins mœldust 570
þúsund tonn af hrygn-
ingarloönu. Hafró:
Sáralítið
af loönu
í nýafstö&num haustleiöangri
skipa Hafrannsóknarstofnunar
mældust aðeins um 570 þúsund
tonn af hrygningarloönu, sem
er miklu minna en búist var
við. Nánast hvergi fundust
veiðanlegar torfur og fullorðna
loðnan var óvenju rýr. Þá
fannst engin loöna í Græn-
landssundi og Norðurdjúpi.
Fiskifræðingar telja því aö enn
sé óvissa um raunverulega
stærö veiðistofnsins.
Þetta eru helstu niöurstöður úr
árlegum haustleiðangri skipa Haf-
rannsóknastofnunar sem lauk
fyrir skömmu. Þar kemur m.a.
fram að ástand sjávar var gott á
Norður- og Austurmiðum. Loðn-
an hélt sig hinsvegar um og utan
við landgrunnskantinn frá Hala
og austur fyrir Langanes. Mest var
um misþéttar dreiflóðningar og
svipar ástandinu mjög til þess
sem verið hefur að haustlagi síð-
ustu ár.
Hinsvegar virtist vera mikið af
ársgamalli smáloðnu og staðfestu
haustmælingarnar niðurstööur
mælinga sem gerðar voru á þess-
um hluta stofnsins í ágúst sl.
Sérfræðingar Hafró telja að litl-
ar líkur séu á því að meira sé af
fullorðinni loðnu í landgrunns-
kantinum. En miðað við reynslu
undanfarinna ára var farið yfir
sennilegasta útbreiöslusvæði
veiðistofnsins. ■
Meö gamla sjálfblekungnum varö Sniglaveislan til...
Tímamynd GS
Ab loknum vinnudegi sínum w'ð stjórn eins af Sony-fyrirtœkjunum í Bandaríkjunum hverfur Ólafur jóhann Ólafsson á vit rithöfundarstarfa heima
fyrir. Hann segist hafa þörf fyrir oð stunda þab starf. Ólafur sest nibur meb gamlan Parker gullpenna sem hann fékk ab launum fyrir góba rit-
gerb í Menntaskólanum í Reykjavík vib stúdentsprófib þaban. Sá penni er orbinn slitinn og líf hans framlengt af vibgerbarmönnum ce ofan í æ.
Þribja skáldsaga Ólafs jóhanns kom út hjá Vöku-Helgafelli í gœr. Hún heitir Sniglaveislan og þar koma vib sögu léttari persónur en Pétur í Fyr-
irgefningu syndanna. Ólafur jóhann segir ab slegib sé á léttari strengi íþessari bók en fyrri bókum.Ólafur jóhann var á ferbinni á íslandi undir
lok vikunnar og Tíminn tók hann tali. - SJá bls. 2
Útgeröir Blika og Hegraness telja öll afskipti Norömanna af veiöum fyrir Hágangsmáliö ólögleg:
Munu þrýsta á um skaða-
bótamál við Norðmenn
Inn og ut um
gluggann
Bragi Guðbrandsson tók í gær til
starfa sem aðstoðarmaður nýja fé-
lagsmálaráðherrans, Rannveigar
Guðmundsdóttur, að því er félags-
málaráðuneytið hefur tilkynnt. Áð-
ur en Rannveig fór á þing var hún
aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðar-
dóttur fyrrverandi félagsmálaráð-
herra en lét af því starfi er hún fór á
þing 1991. Þá gerðist Bragi aðstoð-
armaður Jóhönnu en hætti þegar
Guðmundur Árni Stefánsson tók
við embætti félagsmálaráðherra í
júní á þessu ári. Nú er Bragi kom-
inn aftur í aðstoðarmannsstólinn
og spyrja nú sumir hvort það sé fyr-
irboöi þess að hann verði félags-
málaráðherra áður en yfir lýkur. ■
Umhverfisráöherra hefur úrskurö-
að að ekki sé þörf á að kanna frek-
ar umhverfisáhrif lagningar Hval-
fjaröarganga eða tengivega aö
þeim og staðfest nýtt aðalskipulag
fyrir svæðið í framhaldi af því.
Eftir úrskurð ráðherra eru dóm-
stólar eina leiöin fyrir þá sem vilja
koma í veg fyrir lagningu gang-
Einar Svansson, útgeröarstjóri
Skagfirðings hf., telur að allar
aðgerðir Norðmanna fyrir
töku Hágangs II. séu ólöglegar,
ef dómur sem féll í málinu á
miövikudag verður staðfestur
fyrir yfirrétti. Hann segir að
þrýst verði á um að skaöabóta-
málum vegna klippinga
norsku strandgæslunnar á tog-
víra Hegraness og Blika frá
Dalvík verði flýtt.
anna. Ólafur Sigurgeirsson, bóndi
á Þaravöllum, er einn þeirra sem
stóðu að kærunni til ráöherra.
Hann segir að íbúar sveitarinnar
eigi eftir að hittast og ræða hvert
næsta skref þeirra verði í málinu.
„Það er auðvitað við ofurefli að
etja þar sem kerfið er. Það versta er
aö enginn virðist bera ábyrgð
Samkvæmt dómi undirréttar í
Tromsö í Hágangsmálinu hafði
norska strandgæslan ekki heim-
ild til að skera á togvíra skipa
sem voru að meintum ólögleg-
um veiðum í Barentshafi. Dóm-
urinn frá því á miðvikudag bygg-
ir á eldri reglugerðinni um rétt
Norðmanna til fiskveiöistjórn-
unar í Barentshafi, en ný reglu-
gerð var sett eftir að Hágangur II.
var færður til hafnar. íslenskir
heldur er málinu velt frá einum
aðila til annars. Við gefumst samt
ekki upp svona auðveldlega. enda
held ég að enginn íbúi hérna í
hreppnum sé samþykkur þessari
framkvæmd. Við höldum enn í
vonina um að mannlegur neisti
leynist einhvers staðar í kerfinu,"
segir Ólafur. ■
úthafsútgerðarmenn velta því
nú fyrir sér hvort þessi dómur,
verði hann staöfestur fyrir yfir-
rétti í Noregi, þýði í raun ekki að
allar hindranir á veiðum íslend-
inga fyrir töku Hágangs II. séu
ólöglegar og þar með skaöabóta-
skylda fyrir hendi.
„Ef klippingarnar byggjast
ekki á lögum sýnist mér að öll af-
skipti norsku gæslunnar af okkar
skipum, sem hamlað hafa veið-
um, séu líka ólögleg. Hvort sem
það eru klippingar eða eithvað
annað," segir Einar Sveinsson.
Hann segir að í ljósi þessa væri
hægt að byggja skaðabótamál á
öllum slíkum aðgerðum hvort
sem það væri klipping eða heft-
ing á veiðum þegar menn hafi
verið reknir af ákveðnum svæð-
um.
„Ef þetta er sú niðurstaða sem
verður fyrir endalegum dómi í
Noregi eru Norðmenn í mög
vondum málum," segir Einar.
Útgerð Skagfirðings hefur vídeó-
tökur af klippingum norsku
strandgæslunnar á Hegranesinu
frá því í vor og hann fullyrðir að
hafi gæslan ekki haft lagaheim-
ild til að klippa togvíra aftan úr
Hágangi II. séu skaðabótamál
Skagfirðings og útgerðar Blika
frá Dalvík unnin.
Útgerðir togaranna tveggja
kærðu norsku standgæsluna eftir
að hún klippti á togvíra þeirra í
vor. Lögfræðingar eru að undir-
búa málssókn á hendur Norð-
mönnum. Búið er að taka sjó-
próf af áhöfnum Blika og Hegra-
nessins og Siglingamálastofnun
hefur óskað eftir sjóprófum í
Noregi. Það er hins vegar ekki
búist við aö strandgæslan mæti í
sjópróf þar sem henni er það
ekki skylt, því aðgerðirnar séu
túlkaðar sem hernaðaraðgerðir.
„Það skiptir bara engu máli,"
segir Einar Svansson. „Ef norskir
dómstólar komast að þeirri nið-
urstöðu að þeir hafi ekki haft
lagastoð erum við með mörg
mál þarna unnin. Það er alveg
ljóst að við munum þrýsta á um
, að okkar málum verið hraöað í
gegnum norska dómskerfiö.'^ ■
Umhverfísrábherra gefur vegtengingu ab Hvalfjarbargöngum grœnt Ijós:
Ólafur gefst seint upp