Tíminn - 22.11.1994, Blaðsíða 9
Þri&judagur 22. nóvember 1994
9
ÍÞI RÓTTIR • KRISTJÁN GRÍMSSON • ÍÞRÓTTIR
Sœvar Jónsson og Atli
Eövaldsson um ár-
angur íslands:
Langt í
frá asætt-
anlegur
„Ég tel árangur íslands
langt í frá ásættanlegan í
Evrópukeppninni. Mér
finnst að viö ættum að vera
komnir með einn sigur eða
a.m.k. tvö jafntefli. And-
stæðingarnir eru allir nokk-
uð sterkir en það er engin
breyting frá undanförnum
árum. Þannig að það er eng-
in afsökun fyrir árangrinum
í dag.
Það er því ekki ásættanlegt
að vera með núll stig og
markatöluna 0-7. Þær breyt-
ingar sem ég vil sjá eru
öðruvísi vörn. Ég vil bara fá
að sjá varnarmenn í liðinu,
svo einfalt er það. Það hlýt-
ur að þurfa að horfa meira
til þeirra liða sem ekki eru
að fá mörg mörk á sig í
deildinni en það finnst mér
ekki hafa verið gert til þessa.
Ég gæti nefnt í því sam-
bandi Ólaf Adolfsson,"
sagði Sævar Jónsson, fyrr-
verandi landsliðsmaður
sem býst viö að ísland eigi
eftir að fá 7-10 stig úr leikj-
unum sem eftir eru.
Vörnin vandamál
„Árangurinn er alls ekki
góður miðað við það sem
búist var við af liðinu. Ég
held að þessi staða hafi aldr-
ei komið upp að við höfum
ekki fengið stig og ekki
skorað mark í fyrstu þremur
leikjunum. í þeim leikjum
sem ég hef séö, gegn Svíum
og Sviss, hefur okkur vantað
áræði og það vantar menn
sem taka af skarið og eru í
forystuhluverkinu. Við lát-
um ganga alltof mikið yfir
okkur og erum alltof oft í
hlutverki músarinnar. Það
hlýtur að vera umhugsunar-
efni að fá 3-4 færi í útileikj-
unum og skora ekki úr
þeim. Við spilum með
fimm manna vörn á móti
Sviss en þrátt fyrir það kom-
ast þeir upp hornin og ná
að gefa fyrir en halfsentarn-
ir ná að bjarga í horn. Ef þú
nærö ekki að loka vörninni
með fimm mönnum þá eru
mönnum flestar bjargir
bannaðar," sagði Atli Eð-
valdsson.
VINNIN LAUGA <9 GSTÖLUR RDAGINN 19.11.1994
a®# 2)(33) (23)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 . 5 af 5 0 4.445.453
O 4 af 5 c PIÚS 89.819
3. 4af 5 105 7.378
4. 3a(5 3.851 469
Heildarvinningsupphæð: 7.475.357
m i BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
/ / /
Arangur Islands í undankeppni EM hefur valdiö vonbrigöum, en Asgeir Elíasson landsliös-
þjálfari œtlar ekki aö gefast upp:
Ekki að velta fyrir
mér að segja upp
— ánœgöur meö 10 stig úr leikjunum 5 sem eftir eru
Ásgeir Elíasson, landsliösþjálfari í knattspyrnu, segist vera svekktastur yfir
því oð hafa ekki unniö Svíana.
Staða íslenska A-landsliðsins í
knattspyrnu í undankeppni EM
er ekki góð. Liðið er neðst í sínum
riðli með ekkert stig eftir þrjá leiki
og hefur heldur ekki komist á
blaö hvað markaskorun varðar.
Það er því ljóst að möguleikarnir
á að komast áfram í úrslitakeppn-
ina í Englandi eftir tvö ár eru
hverfandi. ísland á fimm leiki eft-
ir og segir Ásgeir Elíasson lands-
liðsþjálfari að hann vonist til þess
að ná 10 stigum af þeim 15 sem í
boði eru.
Stundum óraunhæf-
ar kröfur
„Kröfurnar, sem gerðar eru til
landsliðsins, eru stundum óraun-
hæfar hvað árangurinn varðar.
En það er kannski ekki annað
hægt í rauninni. Við verðum
náttúrlega að stefna á að reyna að
bæta okkur, þó svo það sé eðlilega
erfitt fyrir okkur, enda lítil þjóð
sem hefur lítið úrtak miðað við
stórar þjóðir, þar sem eru meiri
líkur á að fáist góðir leikmenn.
Það náðist ágætur árangur í und-
ankeppni HM, þó svo þar hafi
vantað 2-3 stig upp á að komast
áfram og við settum okkur þau
markmið að reyna að bæta þann
árangur. Nú, en auðvitað verður
þaö erfiðara úr þessu og í raun
óraunhæft að búast við því."
Ásgeir segir að þeir, sem fylgist
vel með knattspyrnunni, geri sér
fyllilega grein fyrir að það verður
alltaf erfitt að bæta árangurinn
verulega. „Mín skoöun er sú að
við getum dottið inn á árabil þar
sem við séum með óvenju sterkt
lið fyrir svona lítið land. En þess á
milli verðum við alltaf á svipuðu
róli og í dag."
Hefði veriö ánægbur
meb 3 stig eftir
fyrstu þrjá leikina
„Auðvitað vissi maður að það
væri auðvelt að hafa núll stig eftir
fyrstu þrjá leikina. Það, sem mað-
ur vildi, var að vinna leikinn
hérna heima við Svíana og það
voru mestu vonbrigðin að tapa
þeim leik. Ég hef sagt það að til aö
bæta okkur þá þurfum við að
vinna heimaleikina og ég hefbi
verið mjög ánægður með að vera
meb þrjú stig eftir þessa leiki. í
útileikjunum var ljóst að það væri
mjög auövelt að tapa, að vísu
vantaði ekkert mikið upp á að við
næðum að klóra í jafntefli við
Sviss. Leikurinn við Tyrki var svo
kapítuli útaf fyrir sig."
Aubvitab áhyggjur af
aö hafa ekki skorað
„Sókn og vörn er alltaf sam-
hangandi, en mestu vonbrigðin
voru ab skora ekki gegn Svíunum.
í hinum tveim leikjunum þurfti
ekki endilega að búast við því að
við skoruðum. En auðvitaö hefur
maður áhyggjur af því að skora
ekki, sérstaklega í leiknum gegn
Svíunum. Hvort breytingar verða
í framlínunni kemur í ljós, en ég
fylgist á næstunni vel með þeim
atvinnumönnum sem við eigum
og flestir þeirra eru reyndar sókn-
armenn."
Ánægður meö 10 stig
„Væntingar mínar í leikjunum
fimm, sem við eigum eftir, eru
áfram að vinna leikina heima.
Það er kannski ekki raunhæft að
vinna þá alla, en við ættum að
geta klóraö í tvo leiki og þá jafnt-
efli í þeim þriðja. Markmibið hjá
okkur er samt að vinna heima-
leikina og ná að minnsta kosti
einu stigi í útileikjunum. Fengj-
um við 10 stig af 15 mögulegum,
þegar upp væri staðið, yrði ég
ánægður, þó svo það sé ekki jafn-
gott og í síðustu keppni."
Ekki ab velta upp-
sögn fyrir mér
„Mér finnst ekkert óeðlilegt að
menn velti því fyrir sér að ég segi
af mér, enda eru skoðanir á þessu
einsog öðru í fótboltanum. Ég er
vissulega sá sem vel liðið og
stjórna því, og eðlilega er þá vib
mig að sakast en ekki leikmenn-
ina, þó þeir geti átt sína misjöfnu
daga. Ég sjálfur er reyndar ekkert
farinn að velta uppsögn fyrir mér
og á meban þeir, sém ráða mig,
eru tiltölulega sáttir þá þykir mér
ekki vera ástæba til þess. Ég er því
ekkert á því að gefast upp, enn-
þá,"
Asgeir svaraði þeirri spurningu
hvað þyrfti til að hann færi ab
hugsa um að segja af sér á þá leið
að það færi mikið eftir því hvern-
ig leikirnir væru og myndu þró-
ast. „Við eigum Svíana úti í næsta
leik og það verður náttúrlega erf-
iður leikur, en það verður að
skoðast þegar þar að kemur,"
sagði Ásgeir að lokum. ■
Leikir sem
ísland á eftir
íslendingar eiga eftir að
leika fimm leiki í undan-
keppni EM og fara þeir allir
fram á næsta ári. Þeir eru:
Svíþjóð-Ísland 01.06 1995
Ísland-Ungverjal. 11.06 1995
Ísland-Sviss 16.08 1995
Ísland-Tyrkland 11.10 1995
Ungverjal.-ísland 11.11 1995
Alþjóölegt mót í badminton:
„Meiri feluleik hef
ég ekki sé6 í íslensk-
um fótbolta"
— segir Atli Eövaldsson um útsendingar frá landsleikjunum
„Knattspyrnusambandið þarf ab
sjá tii þess að landsleikjunum sé
sjónvarpað beint hingab, því það
er liður í uppbyggingu fótboltans
og gerir hann vinsælan. Eh þab
var ekki gert og ég verb að segja
þaö að meiri feluleik hef ég ekki
séð í íslenskum fótbolta eða
íþróttum. Þab hlýtur að vera
skylda KSÍ í samvinnu við Sjón-
varpið að sýna þessa leiki, en þeir
hafa hreinlega falið tvo leiki á
móti Tyrkjum og Svisslending-
um. Ef það er rétt ab það kosti að-
eins rúma miljón og það sé talan
sem komi í veg fyrir að lands-
menn fái ab sjá svo vinsælt efni,
þá held ég ab miðab við þennan
risastóra samning, sem KSÍ hefur
gert, þá væri mjög auðvelt að
finna styrktarabila til að kaupa
þennan leik og sýna hann. Ég veit
ekki hvað þessir menn eru hugsa.
Þetta er algjört klúður og sam-
skiptaleysi milli KSÍ og Sjónvarps-
■ins. Ef það er ekki hægt að borga
miljón fyrir það sem 80-90%
þjóðarinnar horfa á, hvenær á þá
að borga miljón?" segir Atli Eb-
valdsson um hversu lítið sem ekk-
ert hefur verið sýnt frá útileikjum
íslands í EM. ■
Atli Ebvaldsson.
Islenskir sigrar
Alþjóðlegt mót í badminton fór
fram í TBR-húsinu um síðustu
helgi. Meðal keppenda voru tveir
landsliðsmenn frá Hollandi en
þeir höfðu ekki erindi sem erfiði í
íslensku keppendurná. Broddi
Kristjánsson sigraði í einliðaleik
karla en hann vann Hollending-
inn Joris van Soerland 15-9 og 15-
11. Hjá konunum sigrabi Elsa Ni-
elsen Vigdísi Ásgeirsdóttur 2-11,
11-6 og 11-5. Broddi og Árni Þór
Hallgrímsson unnu í tvíliðaleik
karla og Birna Petersen og Guðrún
Júlíusdóttir unnu í tvíliöaleik
kvenna.
1 O OG 11
S | A EINNIG IÞROTTIR A BLS