Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. ágúst 1996
Góðir íslendingar!
Stjórnarskrá okkar mælir svo fyr-
ir ab fyrsti starfsdagur forseta ís-
lands sé í ágústbyrjun á hverju
nýju kjörtímabili. Sú dagsetning
kann að nokkru að hafa stjórnast af
hagkvæmni, en hún er einnig tákn-
ræn þjóðminning. Fyrstu vikuna í
ágúst árið 1874 hösluðu íslendingar
sér völl í samfélagi þjóðanna með
hátíöinni miklu á Þingvöllum. Þess
var minnst að þúsund ár voru frá
upphafi landnáms og þjóbin eignað-
ist þá sína fyrstu stjórnarskrá. í
henni var ekki einungis viöurkennd
sérstaða íslands heldur einnig lagð-
ur grunnur ab þeim leikreglum lýð-
ræðis og mannréttinda sem við höf-
um síðan talið kjarnann í samfélagi
okkar. Þaö er mikilvæg skylda for-
seta íslands að stuðla að því að ekki
rofni þau bönd sem tengja okkur
vib ávinninga fyrri alda. Mikilvæg-
asta skyldan er þó trúnaður forseta
við þjóðina sjálfa, óskir hennar og
vonir á hverri tíð.
í ferð okkar hjónanna um landib í
aðdraganda forsetakjörsins höfum
við sannfærst um þá djúpu virðingu
sem þjóbin ber fyrir störfum forseta
lýbveldisins. Hornsteinn þeirrar far-
sældar sem forsetar íslands hafa not-
ið er hlýr og góbur hugur í garð for-
setaembættisins. Fáir þjóðhöfðingjar
eiga þess kost að ræða við þorra
landa sinna og kynnast hugarþeli
þeirra. Þetta er á færi forseta íslands,
og það er einlæg von mín að það
samband sem tekist hefur milli okk-
ar og alþýöu manna til sjávar og
sveita verði ekki sundur slitib.
Þegar lýðveldi var stofnað á Þing-
völlum og forseti íslands kjörinn
fyrsta sinni var vib fátt að styðjast
um mótun embættisins, starfshætti
forsetans og framgöngu alla. Á rúm-
lega hálfri öld hafa forsetarnir fjórir,
hver á sinn hátt, treyst það sam-
band forseta og þjóðar sem hlýtur
að vera líftaug sérhvers sem hlotnast
þessi trúnaður. Forsetar lýðveldisins
hafa ávallt borib gæfu til að laga
embættið og starfssvið þess að
breyttum kröfum sinnar samtíðar.
Svo mun vonandi verða um alla
framtíð.
Það er meb lotningu og þakkar-
hug sem þjóbin minnist Sveins
Björnssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar og
Kristjáns Eldjárns á þessari hátíðar-
stundu. Hver með sínum hætti mót-
uðu þeir embættið og meitluðu.
Á undanförnum sextán árum hef-
ur Vigdís Finnbogadóttir bætt nýj-
um þáttum í starfsvef forsetans.
Hún hefur verið brautryðjandi í al-
þjóðastarfi embættisins um leið og
hún hefur ræktað trú okkar á land-
ib, menningu okkar og þjóðtungu.
Hlýhugur hennar og hvatning til
dáða og framfara munu geymast
okkur í minni. íslendingar allir færa
henni einlægar þakkir og óska
henni heilla.
Við eigum í sögu okkar örlaga-
rík tímabil þar sem úrslitum
réð hvort menn báru gæfu til
þess að setja sér sameiginleg mark-
mið eða létu hver um sig stjórnast af
stundarhagsmunum. Sigurður Nor-
dal lét svo um mælt að Sturlungar
hefðu gengið fram en horft aftur.
Þeir hafi átt gnótt glæsilegra minn-
inga, „en hvorki vonir um betri
framtíð, sem gætu hitað þeim til
dáða, né raunhæft takmark og
ásetning, sem skerpti vit og vilja til
einbeittra athafna".
Frumkvöblar sjálfstæðisbarátt-
unnar á miðri síöustu öld miðluöu á
hinn bóginn heimssýn þeirrar tíðar
til annarra íslendinga. Verk þeirra
vísuðu á framtíðarveg og í fortíðina
sóttu þeir hvatningu til dába. Mitt í
fátækt og réttleysi nýlendunnar setti
Jón forseti sjálfstæðisbaráttunni
markmið í stjórnmálum, viöskiptum
og verklegum efnum, og studdi
kröfur landsmanna sögulegum rök-
um. Fjölnismenn fundu svo að sínu
leyti orðin sem voru samboðin sjálf-
stæðri þjóð.
námshugurinn sem einkenndi þau
er merkilegt rannsóknarefni. Það er
vel við hæfi að minnast landafund-
anna með myndarlegum hætti
kringum aldamótin. í svari mínu við
heillaóskum forseta Bandaríkjanna
mun ég vekja sérstaka athygli á þús-
und ára afmæli landafundanna og
hvetja til samstarfs um að minnast
landkönnuðanna og ræða áhrif
landnemahugarfarsins í sögu og
menningu íslands og Bandaríkjanna
og einnig Kanada.
Hollt er og að minnast þess að þar
vestra eigum við ab vinum fjölda
fólks sem rekur ættir til hinna síðari
landnema, sem þangað fóru í lok
síðustu aldar. Vestur- íslendingar
halda nú um helgina sinn íslend-
ingadag í Gimli. Ég sendi þeim hlýja
kveðju mína og þjóðarinnar og
vænti góðs samstarfs við þá um
ræktun arfsins sem við eigum öll
saman.
Um leib vil ég bjóba hjartanlega
velkomna hina nýjustu landnema
íslands, það fólk frá stríðshrjáðum
lendum Balkanskagans sem hefur
ákvebið að leita hagsældar og ham-
ingju hér meðal okkar og er nú sest
að á æskuslóðum mínum á ísafirði.
Við eigum mikib undir því að
milli okkar og annarra þjóða
liggi gagnvegir. Á undanförn-
um árum og áratugum höfum við ís-
lendingar treyst tengsl okkar við
þjóðir annarsstaðar í Evrópu innan
vébanda margskonar samtaka og
stofnana, svo sem Noröurlandaráðs
og Evrópuráðs, Fríverslunarsamtaka
Evrópu og Evrópska efnahagssvæðis-
ins, Norður-Atlantshafsbandalagsins
og Samtaka um öryggi og samvinnu.
Evrópusamvinnan er okkur vissu-
lega mikilvæg og mun enn þróast og
vaxa á komandi árum.
Fjöldi smárra ríkja hefur á þessum
áratug bæst í hið evrópska samfélag.
Margar þessara þjóða sækjast nú eft-
ir náinni samvinnu við Islendinga.
Þær leita fyrirmynda í daglegri önn
sjálfstæðs þjóöríkis sem býr við full
mannréttindi og almenna velferð.
Vitneskjan um einstæða reynslu
okkar er þessum þjóðum ofarlega í
huga þegar þær feta sig áfram á
braut lýbræðis og mannréttinda. Við
höfum á röskri hálfri öld sannað
réttmæti þess ab tiltölulega fámenn
samfélög njóti sjálfstæðis. Þess
vegna mun framlag okkar íslend-
inga til framtíðar Evrópu verða mik-
ils metið.
Hjá Sameinuðu þjóðunum og
annars staðar þar sem íslend-
ingar mæta til leiks á al-
þjóðavettvangi þarf rödd lýbræðis
og mannréttinda að hljóma hátt og
snjallt. Einstæðir sögulegir atburðir,
svo sem kristnitakan og sjálfstæðis-
barátta sem eingöngu var háð með
orðsins brandi, leggja okkur á herðar
þá skyldu að miðla öðrum af reynslu
okkar og friðarhefö. Saga íslendinga
er sönnun þess að hægt er að ná
sáttum um grundvöll samfélagsins
og hljóta sjálfstæbi og full lýðrétt-
indi án þeirra mannfórna sem mót-
að hafa örlög margra þjóða.
Ég hef nú unnið drengskaparheit
að stjórnarskrá lýðveldisins. Með
einlægri virðingu fyrir ákvæðum
hennar tekst ég á hendur það trún-
aðarstarf sem framar öðrum er tákn
um sjálfstæði íslendinga. En ekki
verður allt skráb í lögbækur. Ab
rækja starf forseta íslands er fyrst og
fremst þjónusta við þjóðina. Ein-
ungis dómgreind, lífsreynsla og lif-
andi tengsl við fólkið í landinu geta
vísað forseta rétta leið í starfi. Við
þessi kaflaskipti í lífi mínu minnist
ég allra þeirra sem mig hafa mótað,
einkum móður minnar og föður,
ömmu minnar og afa fyrir vestan
sem veittu mér í æsku það veganesti
sem ég tel mest um vert.
Ég bið ykkur öll að minnast áa
okkar og ættjarðar.
Megi blessun Guðs og gjöful nátt-
úra færa íslendingum gæfu um alla
framtíð.
■
Mikilvægasta skyldan er
trúnaöur viö þjóöina
Athyglivert er að það var ungt
fólk sem stób í framvarðar-
sveit sjálfstæöisbaráttunnar.
Og enn hljótum vib að setja traust
okkar á unga fólkið. Við hin eigum
einnig skyldur okkar við það. Sú
kynslóð kvenna og karla sem nú er
að útskrifast úr skólum er hin fyrsta
á íslandi sem hefur heiminn allan
að vinnusvæði. Hana skortir hvorki
þjóðernisvitund, virðingu fyrir ís-
lenskri menningu né ást á náttúru
landsins, en hún er einnig raunsæ
og kröfuhörð. Þá vaknar sú spurning
hvort okkur tekst að sigra í hinni al-
þjóðlegu samkeppni um unga fólkið
á íslandi. Mun það kjósa að búa
meb okkur hér í útsænum eða afla
sér viöurværis
annarstaðar? Svar-
ið ræbst af því
hvernig okkur,
sem stöndum fyrir
ráðum, tekst að
opna hug okkar og setja þjóðinni
hæfileg markmið.
Aldamótin eru kjörið tækifæri til
þess að sameinast um þjóbarásetn-
ing sem skerpt getur vit okkar og
vilja til einbeittra verka. Þab ætti að
vera verkefni einstaklinga, samtaka
og fyrirtækja ab velja íslendingum
ný og heillandi viðfangsefni á kom-
andi öld.
Meðal þess sem til álita kemur er
að nýta sérstöbu íslands við vemd-
un umhverfis og afla viðurkenning-
ar á því að hreint land, óspillt lífríki
og haldbær náttúrugæði séu okkar
aöalsmerki. Við hljótum einnig að
fjalia um andlegar auðlindir okkar,
um hinn forna arf en ekki síður hin-
ar lifandi listir, og um þá menntun
og menningu sem eflir og agar nýjar
kynslóir. Gleymum því heldur eWci
þegar vib hyggjum að framtíðarverk-
um, að heilbrigðir lífshættir, holl-
usta, og tryggb við fjölskyldu og vini
em traustir innviðir í sérhverju sam-
félagi.
Það er einlægur ásetningur minn
sem forseti lýðveldisins að tengja
saman krafta og hugvit allra þeirra
sem móta vilja sýn þjóðarinnar til
nýrrar aldar og ræða þau markmið
sem geta sameinað hana til góðra
verka.
Þab hefur kostað landsmenn
miklar fómir á þessum áratug að ráð
bót á ýmsum meinsemdum í efna-
hagslífi og atvinnuskipan. Segja má
að nokkurt jafnvægi hafi nábst.
Heimilin em þó ærið mörg skuldsett
meira en góðu hófi gegnir, og ýmsir
samfélagshópar bera skarðari hlut
frá borði en réttlætiskennd okkar
þolir. Mörgum finnst að nú hljóti ab
vera kominn tími til þess að upp-
skera laun erfiðisins. Þetta er eðlileg
hugsun og ber vott um vaxandi
framfarahug í landinu. Sé rétt á
haldið eigum við þess allan kost að
búa við traust lífskjör, góða velferð-
arþjónustu og eðlilegt jafnræbi
manna í milli. Til þess þurfum við
að tileinka okkur skipulegri vinnu-
brögð en okkur hafa verið töm. Til
þess þurfum við að nýta þau færi
sem okkur skapast á nýrri öld.
Á næstu misserum er brýnt að
mynda þjóðarvilja og trausta sam-
stöðu um að lífskjör allra íslendinga
jafnist á við þab sem best gerist með
nágrannaþjóðum okkar. Án slíks ár-
angurs gæti ungt fólk glatað trú
sinni á Island sem framtíðarheim-
kynni.
Við eigum að vera bjartsýn
þegar við hugum að mögu-
leikum okkar sem þjóðar í
náinni framtíð. Þróun heimsmála,
vísinda og tækni er okkur á margan
hátt hagfelld. Við blasir ný veröld
sem einkennist fremur af opnum
samskiptum en af lokuðum valda-
kerfum. Hæfni og hugvit skipta
meira máli en stærð og styrkleiki.
Hinn smái getur haft til að bera
snerpu og knáleik sem oft dugar
ekki síður en afl risans við að hag-
nýta tækni nútímans.
Við íslendingar eigum því ein-
stæba möguleika. Við erum alstaöar
boðin velkomin til samstarfs við ný-
frjálsar þjóðir og þróunarríki. Eng-
inn þarf að ótt-
ast okkur vegna
stærðar eba
hugsanlegs yfir-
gangs. Einangr-
un vegna fjar-
lægbar og samgönguhindrana er að
mestu úr sögunni og tækifæri bíða í
öllum heimshlutum.
X
rið 2000 fögnum við ekki að-
eins áfanga í tímatali mann-
kyns. Við munum einnig
efna til hátíðar í minningu þess að
þúsund ár verða liðin frá því að viö
kristni var tekið á þingi. Þá var
ákveðiö á Þingvöllum ab hafa ein
lög og einn sið og slíta ekki sundur
friðinn. Sú sáttargjörð vísaði fram á
veginn en ekki aftur til horfins tíma
og hverfandi hugmyndaheims.
Kristnitakan er dýrmætt sögulegt
fordæmi um það hvernig hægt er að
leiða til lykta hin erfiðustu úrlausn-
arefni á friðsaman hátt.
Aldamótaárið minnumst við þess
einnig að þúsund ár eru liðin frá
landafundum íslenskra sæfara í
Vesturheimi. Siglingaafrek forfeðra
okkar eru sögulegt þrekvirki. Land-
Innsetningarrœöa Ólafs Ragnars Grímssonar
í embœtti forseta íslands 1. ágúst 1996
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands.