Tíminn - 24.08.1996, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.08.1996, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 24. ágúst 1996 Ritstjóri á ferö og flugi: Dagur-Tíminn í næstu viku Stefán Jón Hafstein hefur ekki komist til rakara lengi og telur sig heppinn a& eiga feröaþolin jakkaföt til ab vera sæmilega til fara á rabbfund- um víöa um land. Síðustu 10 dagar hafa veriö strembnir; þessi vika sem nú er aö líöa byrjaöi á ísafiröi, síöan tók viö Selfoss, þá Höfn, Egils- staöir og loks Vestmannaeyj- ar. „Og gleymdu ekki aö í vik- unni á undan tókum viö Noröurland" segir ritstjóri nýja blaösins sem hann hefur veriö aö kynna á fundunum. Hvers vegna allir þessir fund- ir um blað sem enginn hefur séð? „Jú, okkur fannst nauð- synlegt aö kosta þessu til, bæði í dýrmætum tíma og pening- um til þess aö ná jarðsambandi fyrir blaðið áöur en þaö færi í pressuna. Viö vildum heyra hvaö fólk væri að hugsa um blöðin, og hvaða væntingar það hefði til nýja blaðsins. Þessir fundir hafa reynst mun gagnlegri en ég bjóst við — frómt frá sagt. Auðvitað er ekki fjölmenni á fögrum sumar- kvöldum úti um land, en 20, 30 og upp í 40 til 50 manns sem allir taka þátt í fjörugum umræðum er meira nóg fyrir líflega kvöldstund!" Dagur-Tíminn kemur út á fimmtudag í næstu viku. Með- fram fundaherferðinni hefur Stefán Jón unnið að skipulagn- igu og öllu því sem þarf til að koma nýja blaðinu af stað. „Og margii aðrir starfsmenn beggja blaða mér við hlið. Það er ærið margt sem þarf að hugsa fyrir þegar tvö blöð renna saman í eitt nýtt — ekki síst þegar rit- stjórnir veröa á tveimur stöð- um og margir blaðamenn í hlutastarfi víða um land." Dag- ur-Tíminn veröur prentaður samtímis á Akureyri og Reykj- vík. Heimilsfesta nýja blaðsins verður á Akureyri. Það verður í raun framleitt þar og efniö síð- an sent á ljósleiðara suður í ísa- foldaprentsmiðju. Síðla kvölds verður svo blaöinu dreift frá báðum stöðum til að berast landsmönum snemma morg- uns. „Þetta er fyrsti fjölmiðill- inn á landsvísu sem ekki býr í höfuðstöðvum í Reykjavík. Ak- ureyri er hér meö komast á kortið sem heimabær fjölmið- ils fyrir alla landsmenn. Nýja blaðið kemur fyrst út á höfuð- daginn, afmælisdegi Akureyr- arbæjar. Ég vona að Akureyr- ingar finni til sín enda mega þeir það — leggja sjálfir mikið til blaðsins. En svo er um fleiri staði. Okkar menn verða þar í beinu sambandi viö ritstjórn- ina í Dagsprenti. Okkur mun berast efni reglulega frá austri, vestri, noröri og alla leið frá Vestmannaeyjum. Fólk mun strax sjá og finna að blaðið er ekki skrifaö á einum sjónar- hóli. Þess vegna erum við svo djörf að kalla okkur landsbygð- arfjölmiðil. En við vini mína vestan Elliðaáa vil ég segja að við verðum ekki síður blað höf- uðborgarbúa, því hér verður öflug ritstjórnardeild að störf- um við fréttaöflun og þjóð- málaskrif. Dagur-Tíminn verð- ur fullburða blað á landsvísu með víða skírskotun út á annes og inn í dali jafnt sem breiðgöt- ur Breiðholts og stíga Þingholt- anna. Stefán lón Hafstein. stórblöö á íslenskan mœlikvaröa, Moggann ogDV. „Ég sagði nú einhvers staðar að ég liti ekki svo á að ég væri að skrifa í samkeppni við einn né neinn. Eigendur blaðsins reka það í viðskiptasamkeppni við aðra fjölmiðla. Ritstjórinn stýrir sínu blaði á eigin for- sendum. Viö erum meö skýra nálgun og teljum að blað eins og það sem við hugsum okkur eigi tilveru milli morgunrisans og síðdegisjöfursins. Þessi tvö dagblöð endurspegla einfald- lega ekki allt sem er. Það leggst vel í mig að vera með minna blað en Styrmir, Matthías og Jónas. Þeirra blöð eru virðing- arverð, þau fylgja þekktri línu og ég veit að við getum markað okkur sérstöðu. Hvort hún verður eftirsóknarverð fyrir nógu margt fólk til að blaðið beri sig verður einfaldlega að koma í ljós. Við trúum því. Við skrifum ekki í skugga Moggans. Þó hann sé stór þá eru sólskins- blettir á milli og þar munum við athafna okkur." Hvaö meö þá hœttu sem gaml- ir iesendur Tímas og Dags þykj- ast sjá, aö þeir giati gömium gildum í blaði sem hefhr breyttar áherslur? „Ýmislegt í nýja blaðinu verður kunnuglegt. Gamlir húsgangar halda sér. Það sem helst veldur áhyggju nyrðra er að fréttir af norðurlandi muni víkja fyrir, ja helst sunnlensk- um áhrifum. Þótt við bætum við efni víða að þarf það ekki að þýða að Norðlendingar verði afskiptir með sína heimabyggð. Við munum þjóna þeim áfram. Svo er ekki að neita að margir þeirra eru ansi miklir heims- menn í hugsun eins og saga Akureyrar og Þingeyjasýslna sýnir. í þessum byggðum hafa menn ekki heykst á því að taka menningarlega forystu hingað til. Varðandi lesendur Tímans er málið einfaldara. Tíminn hefur verið blað á landsvísu. En nú hættir hann að vera í pólitísku sambandi við Framsóknar- flokkinn." En hvers vegna cetti þessi til- raun til aö stofha þriðja aflið í blaöaheiminum aö takast nú, lesendur Tímans og Dags tnuna tímana tvenna? „Ég sagði við sjálfan mig þeg- ar mér var boðið þetta verkefni að nú væri síðasta útkall í ís- lenska blaðaheiminu á þessari öld. Það eru engin sérstök rök fyrir því að þessi tilraun takist nema þau sem við höfum fyrir augunum: Dagur og Tíminn standa undir sér með núver- andi rekstri. Ef við sameinum kraftana og bætum við hug- myndum, atgervi og áhuga þá trúum við því að kaupendur þessara tveggja blaða muni þakka fyrir enn stærra og efnis- meira blað. Við erum ekki með neina óraunhæfa drauma um stórauknar auglýsingatekjur eða þúsundir nýrra áskrifenda. Síöur en svo. Þessi rök eru góð og gild, en það sem knýr mig áfram er frekar sjötta skilning- arvitið. Ég hefði ekki sagt þetta fyrir tveimur árum, en núna finn ég á mér að það er lag. Og mér til mikillar gleði hafa fund- irnir um landið staðfest í huga mér þessa tilfinningu. Fólk er bjartsýnt, áhugasamt, það er að rísa upp. Var það ekki Dylan sem sagði „the times they are a changin'!" Tímarnir eru breytt- ir, sá dagur runnin upp að ekk- ert er ómögulegt. Blaðið okkar á að veita þessari tilfinningu farveg. Takist okkur það mun- um viö sjá nýjan dag, nýja tíma í íslenskum fjölmiðla- heimi." ■ VB/STU Þ/)Ð S/66A,/9£> Þ//Ð BR 20O/>ÓSUA/D KXÓ/V/9 MUA/UR 4 /AUAÍUM //B/ÍSU- GÆSIOIÆKN/) /DRB/F- ÖV// 06 ÞBTTSV// ? A7/K/Ð V//D/ BG T//7F/) A7/SMUA///ZA/j/ö/JN. Þ/7D VÆR/ /ÖO ÞÚSUA/D - UMÞ7F/R/) BA/BG T/BF A/ÓN/J / Sagt var... Meb þeim hætti komst þjó&in á velferbarþjóbfélagsstatusinn „í leiðindamáli þessu kemur einnig fram landlægur undirlægjuháttur og minnimáttarkennd íslendinga gagn- vart útlendingum og sú landlæga hugsun, ab skjótfengnir peningar séu upphaf og endir alls. Þessi árátta virbist lítib lagast meb aukinni lífsr- eysnlu þjóbarinnar." Úr leibara DV. Þar fordæmir lei&arahöf- undur, Jónas Kristjánsson, lokun Al- mannagjár vegna kvikmyndatöku er- lendra abila sem „gáfu" fé til þingvalla- nefndar. „... mistökin voru tvenn í um- ræddu máli, annars vegar ab velttur var einkaabgangur ab gjánni, og hins vegar ab tekib var óbeint gjald fyrir." Hver á þá ab vinna gömlu og illa borgubu störfin? „Vib eigum ab sameinast um ab fjölga störfum í nýjum atvinnugrein- um sem greitt geta gób laun. Aukinn jöfnubur í nútíma samfélagi næst ab- eins meb bættum afkomumöguleik- um þeirra sem standa höllum fæti en ekki skertri afkomu hinna er betur mega sín." Skrifar Gunnlaugur M. Sigmundsson, alþingismabur, í Kjallargrein DV um vaxandi ójöfnub í þjóbfélaginu."Þab sem skilur ab sjónarmib mín og ann- arra jafnabarsinnabra stjórnmála- manna er ab flestir vilja þeir auka jöfn- ub meb aukinni skattheimtu en ég legg áherslu á ab auka möguleika þeirra efnaminni til ab bæta eigin afkomu." Nútímamaburinn skilur ekki vib sig besta vininn, þ.e. einka- bílinn „Þab var samdóma álit lögreglu í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirbi og Umferbarrábs ab ekki væri merkj- anlegur munur á umferbarþunga á þessum degi þar sem mælst var til þess ab menn hvíldu blikkbeljur sínar heima vib hús." Baksíbufrétt DV í fyrradag á hvíldar- degi bílsins. Náttúrulega „Líf án náttúru er ekkert líf og ekki einu sinni mögulegt." Úr grein Sigurjóns Benediktssonar, tannlæknis og stubningsmanns Hús- gulls í Mogganum. Þar gagnrýnir hann opinberar stofnanir og lög um mat á umhverfisáhrifum en þau eru ab hans sögn notub til ab koma í veg fyrir ab áhugahópar meb abstob Landgræbsl- unar geti grætt upp „Manngerba eybi- mörk" á Hólasandi. Cömul hefb ab mótmæla og vera meb þvergirbingshátt þeg- ar samningar vib útlönd eru annars vegar „Þab yrbi sorglegt ab þurfa ab horfa uppá íslenska ríkib á sakamannabekk, eina ferbina enn vegna brota á al- þjóbasamþykktum sem vib erum ab- ilar." Skrifabi Sveinbjörn Gubmundsson, verkamabur í Pallborb Alþýbublabsins. Þar gagnrýnir hann kynþáttafordóma landans og framkomu vertsins á Óbali gagnvart þeldökku fólki og minnir á ab þab er skylda stjórnvalda ab tryggja öllum full mannréttindi. Heimilislæknadeilan hefur valdib tog- streitu víba eins og vib er ab búast enda um erfitt mál ab ræba. í fréttum hefur verib talsvert fjallab um áhrif deilunnar á sjúklinga og heilbrigbis- kerfib í víbu samhengi, en í pottinum voru menn á talsvert öbrum nótum í gær. Þar voru menn ab velta fyrir sér áhrifum deilunnar á fjölskyldulíf og samskipti manna í fjölskyldubobum. Mebal dæma sem menn tiltóku var dæmib af Vilhjálmi Ara Arasyni heim- ilislækni sem nýlega hefur verib mikib í fréttum vegna sýklarannsóknar sinnar og greinar sem hann fékk birta í ein- hverju vitasta læknablabi heims. Vil- hjálmur er í stjórn heimilislæknafélags- ins en hann er jafnframt bróbir Stein- gríms Ara Arasonar abstobarmanns Fribriks Sophussonar og stendur vib hlib rábherrans í baráttunni gegn bróbur sínum og hans kollegum. Þab var talib víst ab þeir bræbur ræddu lítib um þessi mál í matarbobum þessa dagana ... • ... og í pottinum voru menn ab ræba ; flóbin í Kína. Vestlendingur sem var kominn í pottinn sagbi ab nú ætlubu Borgnesingar ab bæta gráu ofan á svart og auka á flóbin meb því ab fara ab flytja út vatn til Kína. Var hann þar ab vísa til hugmynda sem verib hafa á sveimi í bænum ab í fara út í vatnsút- flutning ... -Hvemig leggst í nýja ritstjór- ann að fara í samkeppni við tvö

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.