Réttur


Réttur - 01.08.1981, Page 19

Réttur - 01.08.1981, Page 19
Roque Dalton: Um höfuðverki Það er fallegt að vera kommúnisti þóttþað va/di okkur oft höfuðverkjum. Vandinn er, að höfuðverkir kommúnista ku vera sögulegir, það er að segja þeir lceknast ekki með aspiríni heldur aðeins með Paradís ájörðu. Þannig er það. Þegar við fáum höfuðverk í kapítalismanum erum við hálshöggvin. íbyltingarbaráttunni er höfuðið tímasprengja. Við uppbyggingu sósíalismans gerum við áætlanir um höfuðverki sem draga þó ekki úr þeim, öðru nær. Kommúnisminn er, meðal annars, aspiríntafla á stærð við sólina. (Roque Dalton fæddist í E1 Salvador árið 1935. Hann lagði stund á lögfræði, þjóðfé- lagsfræði og mannfræði, og gerðist snemma virkur í samtökum vinstri sinna í E1 Salva- dor. Hvað eftir annað var hann fangelsaður, og 1960 var hann dæmdur til dauða, en dómnum var ekki fullnægt vegna þess að einræðisherra var steypt af stóli 4 dögum áður en aftakan átti að fara fram. Einu sinni slapp hann úr fangelsi vegna þess að það hrundi í jarðskjálfta. Roque Dalton dvaldist árum saman í útlegð í ýmsum löndum, en lengst á Kúbu. Þaðan fór hann til E1 Salva- dor árið 1974 sem liðsmaður skæruliðahreyf- ingarinnar ERP. 10. maí 1975 var hann drep- inn. Þar voru að verki öfgasinnaðir félagar, sem höfðu klofið sig út úr ERP. Roque Dalton gaf út fjölmargar ljóðabækur, auk ritgerðasafna um bókmenntir og stjórnmál. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi. 131

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.