Réttur


Réttur - 01.04.1982, Page 49

Réttur - 01.04.1982, Page 49
100 ár: Georgi Dimitroff Georgi Dimitroff var einhver víðsýnasti, stórbrotnasti og djarfasti leiðtogi sósialism- ans á þessari öld og lét í stórfenglegri stjómlist sinni mannkyni öllu eftir sígildan arf, sem ei mun firnast, ef mannkynið lifír þá hættustund af, sem það nú er í. Dimitroff var fæddur 18. júní 1882. Gerðist félagi í prentarafélaginu í Búlgaríu árið 1900. Stofnaði Kommúnistaflokk Búlgaríu 1919. Vakti heimsathygli, er hann vann andlega sigurinn á valdakerfi nasismans í Leipzig 1933. Varð foringi Alþjóðasambands Kommúnista 1935 og raddi samfylkingarstefnunni braut. 1946 verður hann aðalritari búlgarska Kommúnistaflokksins og forsætisráðherra. Lést 2. júlí 1949.1 Það er fyrst og fremst tvennt í arfi Dimitroffs, sem alþýða heims þarf að tileinka sér og læra af fordæmi hans.: í réttarhöldunum í Leipzig 1933 sýndi hann, — svo allur heimurinn sá, — með dirfsku sinni frammi fyrir böðlum Hitlers yfirburði anda og hugsjónar sósialismans yfir blóðþyrstu ríkisvaldi hamstola auð- mannastéttar — og sigraði. Hann varð fyrirmynd hetjunnar í baráttunni við fas- ismann og í yfirheyrslu fangans Dimitr- offs með böðulssverðið yfir höfði sér birtist mannleg reisn í sinni rismestu mynd, er hann tætir sundur þvætting ráðherrans Görings, ofbeldismannsins, er ofmetnaðist í skjóli valds síns en varð sér til skammar frammi fyrir gervöllum heimi. — Veröldin þyrfti í dag að sjá það sjónarspil endurtekið: Endurborinn Dimitroffs líka yfirheyra vægðarlaust valdsmanninn Ronald Reagan, sem stend- ur reiðubúinn að tendra tortímingarbál mannkyns, — eins og Göring stjórnaði íkveikjunni í ríkisþinghúsinu forðum, — og tæta sundur blekkingar og hótanir þessa hrokafulla lítilmennis svo allur heimur megi sjá hvílík vitfirring það er að eiga örlög mannkyns undir valdahroka slíks manns. En í öðru lagi mótaði Dimitroff þá viðfeðmu samfylkingar- og þjóðfylkingar- hugmynd í baráttunni við ógn fasismans, sem hótaði tortímingu allrar menningar og frelsis, — þá hugmynd, sem að síðustu sigraði — þrátt fyrir allt.2 Þar með sýndi hann sig að vera eigi aðeins það andans stórmenni, sem heimurinn þekkti frá Leipzig, heldur og sá stjórnsnillingur, er lagði drögin að einingu þeirra óskildu afla, er yfirbuguðu nasismann að lokum. — Það eru slík andans stórmenni á sviði stjórnlistarinnar, sem mannkynið þarfn- ast í dag, þegar það veltur á lífi eða dauða mannkyns að alþýða allra landa, fylking- 113

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.