Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.2006, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.2006, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 7. janúar 2006 ! Mikið hefur verið skrifað um skáldskap á síðum Lesbók- arinnar að undanförnu. Og þessi pistill fjallar einnig um skáldskap en þó einkum um bækur af ýmsum tegundum, bæði litlar og stórar, fallegar og ljótar. Ég gerði mörgum þann óleik núna fyrir jólin að fá fjölda nýrra íslenskra skáldsagna lánaðar á bókasafni. Það var því erfiðara en oft áður að velja handa mér jólagjöf. Ég lét margar þessara bóka ókláraðar frá mér en lauk við nokkrar. Tvær standa klárlega upp úr. Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson og Sól- skinshestur eftir Steinunni Sigurðar- dóttur. Þetta eru bækur sem er gott að eiga. Bækur sem fjalla um hluti sem skipta máli og breyta því hvernig okkur líður og hvernig við hugsum. Ég er löngu hætt að safna bókum bara til þess eins að safna þeim. Núna vil ég helst aðeins eiga bækur sem hafa opnað mér nýja sýn og mér finnst gott að geta leitað í aftur og aftur. Sem betur fer eru margar bækur þannig gerðar. En ekki allar. Fyrir hver jól hefst leit að nýjum ís- lenskum ritsnillingi. Útgefendur, gagn- rýnendur og fjölmiðlamenn keppast við að kynna okkur bækur sem við megum ekki láta framhjá okkur fara. Fyrir hver jól koma út margar bækur sem við hreinlega verðum að lesa. Og við lesum. Í desember telst það dyggð að taka bóklestur fram yfir sjónvarpsgláp og skemmtanir af ýmsu tagi. Aðra mánuði ársins telst það einmanaleg og undarleg iðja. Staðreyndin er sú að fyrir hver jól er íslenskum skáldverkum hampað og hossað. Yfirleitt er um ágætar bækur að ræða en í fáum tilvikum meist- araverk. Enda væri það hreinlega með ólíkindum ef út kæmi fleiri en eitt meistaraverk eftir íslenska höfunda í sama mánuðinum. Þá værum við örugg- lega í góðum málum og íslenskt þjóð- félag andstæða þess sem það er í raun: gagnrýnið og meðvitað um eigin tak- markanir. Bækur sem fjalla um tilvist og vanda- mál fullorðins fólks hér á Íslandi fá mikla athygli. Aðrar bækur falla al- gjörlega í skuggann, hvort sem um er að ræða þýðingar á erlendum skáld- verkum, fræðirit eða barnabækur. Þess- ar bækur eru (ólíkt mörgum skáldverk- um sem okkur er talin trú um að við verðum að eignast) ekki einnota. Þær eru lesnar aftur og aftur. Þær eiga það jafnvel til að gera gat á heimsmynd okkar og hleypa inn fersku lofti, fá okk- ur til að skilja sjálf okkur og aðra að- eins betur. Þegar ég settist niður til að skrifa þennan pistil ætlaði ég að skrifa um hvað ég hefði lesið frábærar barnabæk- ur núna í jólafríinu. Tvær bækur sem vöktu mikla athygli þegar þær komu út og fengu töluverða umfjöllun en ótrú- lega litla umræðu. Þetta eru þó bækur sem eiga það sannarlega skilið að talað sé um þær. Þetta eru bækurnar Öðru- vísi dagar og Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur. Ég las þessar bækur með dóttur minni núna um jólin og óhætt er að segja að þær hafi vakið okkur báðar til umhugsunar. Það var auðvitað hálfundarlegt að kúra undir sæng á dimmum desemberdegi og ræða við sex ára gamla dóttur sína um fanga- búðir gyðinga og ástandið í Palestínu. En börn vita að stríð eru hluti af þeim heimi sem þau búa í og þau vita að stríð er ekki leikur. Stríð er alvöru mál og börn hafa gott ímyndunarafl. Þess vegna er nauðsynlegt að tala um stríð, líka við börn. Ég get fullyrt að bækur Guðrúnar hafa breytt því hvernig dóttir mín hugsar um heiminn og hvernig ég hugsa um íslenskar barnabækur. Guð- rún Helgadóttir hefur lag á því að skrifa um erfiða hluti fyrir börn. Hún þorir að fjalla um óþægilega og flókna hluti á íslensku, um það sem raunveru- lega skiptir máli. Það væri aðeins ósk- andi að fleiri þyrðu að gera það. Öðruvísi bækur Eftir Sigrúnu Sigurðardóttur sigruns@verslo.is Þ etta er eins og að sparka í liggj- andi mann, heyrði ég unga konu muldra í vikunni þar sem hún sat á kaffihúsi og varð fyrir óvæntri árás af hendi Morg- unblaðsins. Konan nuddaði þrútin augu og gretti sig á meðan hún fletti ófögnuðinum, sérriti um „heilsu“ sem hafði legið í leyni í miðju blaðsins. Lyktin af flug- eldunum lá enn í loftinu þegar hún og aðrir í hennar stöðu, það er að segja fólk sem eftir þriggja daga sukk í mat og drykk fílaði sig helst eins og skilgetið afkvæmi Keith Richards og Homer Simpson, neyddist til að horfa upp á geislandi konur í leikfimisbolum með slétta maga dansa á litríkum blaðsíðunum, síðu eftir síðu. Og ekki dugði að skipta yfir í Fréttablaðið þennan dag, þar var önnur útgáfa af hryllings- myndinni. Áramót eru tími þar sem litið er um öxl og fram á veg, eðlilega fylgir því ákveðin sjálf- skoðun, og fjölmiðlar höfða til þessa ástands með því að birta leiðbeinandi efni af ýmsu tagi. Gildir þá engu hvernig fólk er stemmt, það skal fá að vita að nú sé kominn tími til að bæta sig. Þessi betrunarkúltúr er síður en svo bundinn við áramót, boðskapur hans hljómar allt árið og virðist verða sífellt háværari. Í Bandaríkj- unum er svo komið að flest dagblöð eru með sérstaka metsölulista fyrir sjálfshjálparbækur svo að þær ýti ekki öllum öðrum bókum út af metlistum yfir bækur almenns efnis. Und- anfarið hefur umræða þar í landi um þessa bókmenntagrein þó verið á heldur gagnrýnum nótum og er meðal annars staldrað við þá mót- sögn að aukinn lestur á sjálfshjálparbókum skuli að því er virðist leiða af sér aukna eft- irspurn eftir fleiri sjálfshjálparbókum. Gera þær þá ekkert gagn? Síðustu mánuði hafa bækur sem lýsa efasemdum yfir sjálfshjálp- aræðinu vakið nokkra athygli í Bandaríkjunum (meðal þeirra eru: Self-Help inc.: The Make- over Culture in American Life, SHAM: How the Self-Help Movement Made America Help- less og One Nation Under Therapy: How the Helping Culture is Eroding Self-Reliance) og í kjölfarið hefur verið bent á að leitin að ham- ingjunni kynni ef til vill að verða farsælli ef hún beindist aðeins meira út á við en inn á við. Í nýrri bók Happiness: A History færir Darrin M. McMahon, prófessor í sagnfræði við Flórídaháskóla, rök fyrir því að á Vestur- löndum eigi hugmyndin um persónulega ham- ingju rætur að rekja til hugmyndafræðilegra sviptinga á 18. öld. Með tilkomu upplýsing- arinnar hafi fólki loks „leyfst“ að gera eigin hamingju í jarðlífinu að markmiði í stað þess að láta sér nægja vonina um eilífa sælu á himnum. Engu að síður, segir McMahon, virðist ham- ingja fólks ekki endilega meiri nú en áður þrátt fyrir aukna meðvitund um hana – að ekki sé minnst á almenna velmegun – og bendir hann á að hamingjustuðlar, sem mældir hafa verið frá árinu 1950, hafi ekkert breyst frá upphafi mæl- inga. McMahon spyr hvort of miklar vanga- veltur um eigin hamingju geti snúist upp í and- hverfu sína og bendir þar á orð heimspekingsins Johns Stuart Mill: „Spyrðu sjálfan þig að því hvort þú sért hamingjusamur og þá hættirðu að vera það.“ Niðurstaða Mill varð sú að hamingjan fáist ekki nema með því að beina huganum að öðru en eigin hamingju, svo sem hugðarefnum sínum, því að bæta heiminn, eða að hamingju annarra. Timothy Wilson, sálfræðiprófessor við Virginíuháskóla, er á sömu nótum í áramótapistli sínum í New York Times. Þar hvetur hann landa sína – und- ir yfirskrift orða Bob Dylan, „Dońt Think Twice it́s Alright“ – til að slaka á naflaskoð- uninni og kröfunum um að allir eigi að vera svo frábærir og hamingjusamir. Bent er á að þess- ar kröfur séu ekki endilega einstaklingum í hag heldur þeim sem hafa hagsmuni af þessum risastóra og sívaxandi hamingjubransa, sem gengur ekki síst út á að gera fólki grein fyrir því hvað það skortir til að ná þessu takmarki takmarkanna. Að sjálfsögðu er hið besta mál að vilja bæta sig og taka upp betri siði, en von- andi er líka í lagi að finnast í lagi að vera bara eins og maður er, jafnvel þótt það sé meira Keith Richards en sléttur magi í leikfimisbol á köflum. Hamingja Fjölmiðlar Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is ’Í Bandaríkjunum er svo komið að flest dagblöð erumeð sérstaka metsölulista fyrir sjálfshjálparbækur svo að þær ýti ekki öllum öðrum bókum út af metlistum yfir bækur almenns efnis.‘ I Enn er í raun og veru ekki vitað með vissuhvað gekk á í sænsku akademíunni í októ- bermánuði árið 1955 þegar ákvörðun var tek- in um að veita Halldóri Laxness Nóbels- verðlaunin. Leynd var létt af skjölum aka- demíunnar síðastliðinn mánudag. Blaðamaður Morgunblaðsins hafði sent formlega beiðni til aðalritara akademíunn- ar um að fá að skoða skjölin en hefur enn ekki fengið nein svör. Skjalavörður akademí- unnar sendi blaðamanninum reyndar tölvu- póst daginn eftir að skjölin voru opinberuð og sagðist hafa verið í fríi. Hún sagðist þar ekki enn hafa fengið svar við því frá aðalritaranum hvort blaðamaður fengi leyfi til að skoða skjölin. Fréttamaður Ríkisútvarpsins fékk sömu svör og var reyndar tjáð að skjölin væru ekki opin öðrum en starfandi fræði- mönnum. Starfsmaður akademíunnar reyndi síðan að koma í veg fyrir að fréttamaðurinn gæti haft viðtal við sænska fræðimanninn Lars Lönnroth sem var sá eini sem fékk að skoða skjölin í akademíunni á mánudaginn. Miðað við þessi vinnubrögð akademíunnar mætti ætla að skjöl hennar geymdu mjög safaríkar sögur. II Halldór Guðmundsson virðist hafa veriðsá eini hérlendis sem tókst að fá skjölin send frá akademíunni á mánudeginum. Hann mun reyndar hafa beitt samböndum sínum við akademíuna til þess að mýkja hinn harð- svíraða skjalavörð. Eins og fram kemur í grein Halldórs hér á næstu síðu geyma skjöl- in ýmsan fróðleik um ákvörðun akademíunn- ar haustið 1955 en samt er enn ýmislegt á huldu. Það liggur til dæmis ljóst fyrir að þriggja manna undirnefnd akademíunnar, svokölluð Nóbelsnefnd, lagði til 23. sept- ember þetta ár að Gunnar Gunnarsson og Halldór Guðmundsson fengju verðlaunin saman. Ekkert í þeim gögnum sem Halldór hefur undir höndum bendir hins vegar til þess að sú tillaga hafi einu sinni verið rædd. Líklega liggur skjalavörðurinn enn á ein- hverjum gögnum um það hvaða afstöðu aka- demían hefur tekið til þessarar tillögu. Get- gátur hafa verið um að framámenn í íslenskum bókmenntum hafi sent skeyti til akademíunnar þar sem varað var við því að Gunnar fengi verðlaunin. Menn hafa gert því skóna að það kunni að hafa haft áhrif á nið- urstöðu akademíunnar. Samkvæmt svörum sem Halldór Guðmundsson fékk frá skjala- verðinum á mánudaginn – líklega hefur Hall- dór truflað hann í fríinu – er ekkert slíkt skeyti varðveitt hjá akademíunni. Slíkt skeyti kann hins vegar að hafa verið sent ein- hverjum meðlima akademíunnar persónulega. III Í grein sinni í Lesbók í dag setur Hall-dór fram tilgátu um skeytamálið. Hún gæti hugsanlega staðist. Eftir sem áður vit- um við enn ekki með vissu hvað fór fram í sænsku akademíunni þessa haustdaga 1955. Neðanmáls Um leið og (vef)Mogginn afhjúpar heimóttarskap sinn þegar hannflytur okkur fréttir af því að íslenskar plötur hafi náð inn á listayfir bestu plötur ársins í einhverjum krummaskuðaritum sem við heyrum annars aldrei minnst á eins og Winston-Salem Journal þar sem Takk náði á lista og í Des Moines Register þar sem Fisherman’s Woman Emilíönu Torrini komst á lista er alveg ljóst að listar eru málið svona í árslok. Í upphafi skal gerð játning. Ég er listamaður. Ég elska svona lista. Bestu, verstu og allt það. Hver er besta plata ársins 1966? Hvert er besta lag Dylan? Já eða hundrað bestu lög Dylan ef út í það er farið? Við Rjómverjar höfum sent frá okkur árslista okkar og hefur hann hlotið ágætar viðtökur. Sitt sýnist auðvitað hverjum og oft erfitt að láta svona hópval segja einhverja sögu. Þess vegna skal sérstaklega mælt með því að nördar skoði einstaklingslista hvers og eins. Listar hafa ekki enn birst í Fréttablaðinu, DV eða Mogganum en í dag birta skríbentar Blaðsins lista og vakti sérstaka athygli mína að enginn af þessum blaðamönnum setti Takk með Sigur Rós á lista sinn yfir fimm bestu plötur ársins. Fréttnæmt það! Dr. Gunni fer mikinn á heimasíðu sinni og birtir lista yfir hvorar um sig 25 bestu plötur ársins íslenskar og erlendar. Eins er Árni herra Sýrður Rjómi með árlegan lista sinna á síðunni sinni og er byrjaður að telja niður frá 30 í átt að toppnum. Af útlenskum miðlum eru flestir búnir að senda frá sér sinn dóm. Q hið breska valdi X&Y bestu plötu ársins, Rolling Stone valdi Late Reg- istration með Kanye West á meðan Pitchfork og heil hersing annarra indímiðla valdi Illinois plötu Sufjan Stevens. Uppáhaldslisti minn, fyrir utan minn lista auðvitað, er listi Coke- machineglow.com en þar situr frumraun Wolf Parade er nefnist Apolo- gies to the Queen Mary á toppnum. Á þessum lista er bæði áhugavert efni sem ég hef aldrei heyrt um og er skemmtilega ritað um og svo plöt- ur sem ég tek heilshugar undir að eigi heima á lista sem þessum. Rús- ínan í pylsuendanum er svo að hægt er að ná í fjölda af vefútvarps- þáttum (podcasts) þar sem fjallað er um viðkomandi plötur. Hreint alveg frábært! Björgvin Ingi Ólafsson Rjóminn www.rjominn.is Listamaður Morgunblaðið/Ásdís Háðfugl. Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.