Morgunblaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.04.2006, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 2006 C 3 Sexfaldir Evrópumeistarar ACMilan eru taldir sigurstrang- legri fyrir leikinn gegn Frakklands- meisturum Lyon. Mílanóliðið tapaði fyrir Lecce á laugardaginn og spurn- ing er hvort liðsmenn AC Milan nái að rífa sig upp en AC Milan tapaði í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir Liverpool í fyrra. ,,Ég er ekki í nokkrum vafa um að mínir menn nái að rífa sig upp og spili allt annan leik en þeir gerðu á móti Lecce,“ segir Ancelotti, þjálfari AC Milan. Hann hvíldi Andriy Shevcheko, Filippo Inzaghi og Kaká í leiknum við Lecce. Lyon, sem á Frakklandsmeistara- titilinn vísan og hefur sýnt afar skemmtileg tilþrif í Meistaradeild- inni í ár með blússandi sóknarknatt- spyrnu, getur teflt fram Brasilíu- manninum Juninho að nýju en hann tók út leikbann í fyrri leiknum en hann hefur verið driffjöðurin í miðju- spili liðsins. Lyon hefur aldrei tekist að komast í undanúrslit Meistara- deildarinnar en liðið státar af góðum árangri á útivelli. Liðið hefur ekki tapað útileik í 13 mánuði í frönsku deildinni og tapaði síðast útileik í Meistaradeildinni fyrir Manchester United á Old Trafford í nóvember 2004. ,,Við verðum að hafa trú á okkur sjálfum. Okkur hefur alltaf tekist að skora á útivelli í Meistaradeildinni á þessu tímabili og vonandi verður engin breyting þar á,“ segir Gerard Houllier, þjálfari Lyon, sem leikur án Portúgals Tiago en hann tekur út leikbann. Líkleg byrjunarlið: AC Milan: Dida - Jaap Stam, Alessandro Nesta, Kakha Kaladze, Serginho - Gennaro Gattuso, Andrea Pirlo, Clarence Seedorf, Kaka - Andriy Shevchenko, Filippo Inzaghi. Lyon: Gregory Coupet - Francois Clerc, Cris, Claudio Cacapa, Eric Abidal - Benoit Pedretti, Juninho, Mahamadou Diarra, Florent Mal- ouda - Sylvain Wiltord, Fred. Dómari: Terje Hauge (Noregi). Villareal hefur tapað einum heimaleik í 17 leikjum Möguleikar Villareal á að slá Inter út verða að teljast góðir enda hefur heimavöllur liðsins reynst liðinu afar dýmætur. Í 17 Meistaradeildarleikj- um hefur liðið aðeins tapað einu sinni á heimavelli og hefur haldið marki sínu hreinu í 13 leikjum en Villareal dugar að vinna 1:0, til að slá Inter út. Roberto Mancini, þjálfari Inter, hvíldi flesta lykilmenn sína í leiknum gegn Messina á laugardagskvöld sem Inter vann 3:0 en aðeins leik- maður úr byrjunarliðinu í fyrri leikn- um á móti Villareal var í liðinu. ,,Við vitum að leikurinn gegn Villareal verður mjög erfiður. Við ætlum ekki að leggjast í vörn og halda fengnum hlut heldur stefnum við að sigri,“ sagði Roberto Mancini, þjálfari Inter, í gær. Mílanóliðin verða að sækja MÍLANÓLIÐIN Inter og AC Milan verða bæði í eldlínunni í Meist- aradeildinni í knattspyrnu í kvöld en þá fara fram fyrri tveir leikirnir í 8 liða úrslitum keppn- innar og er um síðari viðureignir liðanna að ræða. AC Milan tekur á móti Lyon en liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leikn- um og Inter sækir Villareal heim en Inter hafði betur, 2:1, í Mílanó í síðustu viku. Reuters Glaðbeittir framherjar AC Milan, Andriy Shevchenko, til hægri, og Filippo Inzaghi. Skyldu þeir hafa ástæðu til þess að gleðjast að leikslok- um á San Síró í kvöld? att- ndi eft- r, u tek- su. sum- á til em tel- nds- eiki ppn- ð að em t að um- ag, Þetta var skemmti-leg vika og ég lék mun betur en ég átti von á. Ég var að leika vel á Players meistaramótinu en náði ekki að sýna það með góðu skori en markvissar æfingar að undanförnu skil- uðu sér úti á vellinum að þessu sinni,“ sagði Mickelson en hann lauk lokahringnum með því að fá tvo erni á síðustu sex holun- um. Mickelson er því mjög líklegur til afreka á Mastersmótinu sem hefst næsta fimmtudag á Augusta, fyrsta stórmót ársins, en Mickelson sigraði á því móti árið 2004 og var það í fyrsta sinn sem hann sigrar á stór- móti. Mickelson fékk tæplega 70 millj. kr. fyrir sigurinn á BellSouth meist- aramótinu og er hann einn af átta kylfingum sem hafa sigrað oftar en einu sinni á þessu móti. Þetta er fyrsti sigur hans á PGA- mótaröðinni á þessu ári en það hefur eng- inn kylfingur náð að sigra á PGA-móti og fylgja því eftir með sigri á stórmóti frá því að Skotinn Sandy Lyle sigraði á Mast- ersmótinu árið 1988, en Lyle hafði sigrað á PGA-móti viku áður. „Ég hef miðað undirbúning minn við Mastersmótið enda er það mót sem skiptir miklu máli fyrir mig,“ sagði Mickelson. Tiger Woods hefur titil að verja á Mastersmótinu en hann tók sér frí um helgina á PGA- mótaröðinni samkvæmt venju fyrir Mastersmótið. Morgunblaðið/Sverrir Pálma Frey Sigurgeirssyni KR-ingi en Ivey var drjúgur í stigaskorun. r VIEIRA SMÍERA! Þú getur verið með þó að Patrick verði ekki með! Spilaðu á Lengjunni og þú gætir unnið. MEISTARADEILDIN 4.- 5. APRÍL 1 X 2 Upphæð Stuðull Vinningur kr. kr. 1.000 23.49 23.490 Þetta er bara eitt dæmi um hvernig þú gætir margfaldað peningana þína á Lengjunni. 04.04 04.04 05.04 05.04 MEISTARADEILDIN er á Lengjunni. Fylltu út se›il á lengjan.is e›a á næsta sölusta› og hleyptu enn meiri spennu í leikina. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Milan – Lyon 1.60 2.95 3.50 Villarreal – Inter 2.25 2.60 2.40 Juventus – Arsenal 1.60 2.95 3.50 Barcelona – Benfica 1.20 3.85 6.40 Mickelson í sérflokki PHIL Mickelson sendi ákveðin skilaboð til keppinauta sinna á PGA- mótaröðinni í golfi í gær er hann sigraði með 13 högga mun á BellSouth meistaramótinu í golfi en bandaríski kylfingurinn lék lokahringinn á 65 höggum. Mickelson jafnaði PGA-met með því að leika hringina fjóra á samtals 28 höggum undir pari en John Houston hefur einnig leikið á 28 höggum undir pari. Mickelson lék á 260 höggum en Spánverjinn Jose Maria Olazabal varð annar á 273 höggum og Zach Johnson deildi því sæti með Spánverjanum. Phil Mickelson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.