Morgunblaðið - 08.06.2006, Side 22

Morgunblaðið - 08.06.2006, Side 22
Daglegtlíf Háir hælar finnst mörgumkonum nauðsynlegir tilað líta vel og rétt út. Hælarnir geta þó haft vondar afleiðingar fyrir fæturna og á vef Mayo-sjúkrastofnunarinnar í Bandaríkjunum kemur m.a. fram að háir hælar koma næst á eftir aldri sem orsök fótameina hjá konum og þar eru jafnframt nokkur ráð til þeirra kvenna sem finnst þær ekki vera rétt klæddar nema hælarnir séu háir. Með aldrinum breytast fæturnir á þann hátt að þeir breikka og fletjast út. Þegar gengið er á háum hælum, 5 sm eða meira, rennur fóturinn fram í skónum og færir þar með þyngd- arpunktinn og ruglar þyngdarhlutföll líkamans. Það getur valdið alls kyns vandamálum sem annars mætti forð- ast. Hér á eftir fara nokkur ráð til þeirra sem eru að hugleiða skókaup.  Veljið hæð hæla af skynsemi. Þeir eiga ekki að vera hærri en 4 sm og hællinn á að vera breiður. Mjór hæll veitir lítinn stuðning.  Veljið rétta skóstærð. Þar sem fæturnir lengjast og breikka með aldrinum er skynsamlegt að láta mæla þá reglulega þó að ekki þurfi að gera það í hvert sinn sem nýir skór eru keyptir.  Ekki treysta eingöngu á að skóstærðin sé rétt. Þegar skórnir eru mátaðir er rétt að standa upp og ganga um og meta þannig hvort þeir passa. Skóstærðir eru mismunandi eftir framleiðanda og gerð.  Berið saman breidd fótarins og breiddina á skónum með því að leggja skóinn við hlið fótarins þegar staðið er jafnfætis. Forðist skó sem eru mjórri en fóturinn, sama hversu flott- ir þeir eru.  Mátið báða skóna. Miklu máli skiptir að báðir séu þægileg- ir. Ef annar fótur er stærri en hinn er rétt að velja stærð sem er passleg fyrir þann stærri.  Kaupið skó seinnihluta dags eða að kvöldi. Fæt- urnir bólgna yfir daginn. Skór sem passar að morgni getur þess vegna verið of lítill að kvöldi.  Ekki kaupa skó með það í huga að þeir lagi sig að fætinum. Skór eiga að vera þægilegir þegar þeir eru mát- aðir.  Takið eftir því úr hvaða efni skórnir eru og af hvaða gerð. Veljið efni sem anda og eru sveigjanleg, t.d. leður- og nælon-netskó. Forðist skó sem eru með sauma yfir tærnar eða ristina, þeir geta valdið núningi sem á endanum getur valdið fótasári. Það er ekki endilega nauðsynlegt að leggja alveg af háu fínu hælana, en rétt er að spara þá og nota frekar við allra hátíðlegustu tækifæri.  HEILSA | Hvernig skal velja réttu skóna? Morgunblaðið/Golli Hæstu hælana ætti að spara til hátíðabrigða, en velja frekar hæla af skynsamlegri hæð til daglegs brúks. sia@mbl.is júní Háir hælar – sárir fætur Sú hugmynd hefur komið upp íSvíþjóð að leggja niðurheimanám grunnskólabarna. Það er sænski Vinstriflokkurinn sem leggur þetta til og segir að ella geti félagsleg staða barna haft áhrif á skólastarfið þar sem ekki geti allir foreldrar sinnt heima- námi með börnum sínum. Í Svenska Dagbladet kemur fram að afnám heimanáms þurfi ekki að þýða lengri skóladag, heldur eigi frekar að fjölga kennurum og þjappa kennslunni meira. Tillagan hefur ekki hlotið hljóm- grunn meðal kennara og ekki held- ur pólitískra andstæðinga. For- maður sænska Kennarasambandsins, Eva-Lis Preisz, segir að stjórnmálamenn eigi ekki að stýra skólastarfi. Hún lýsir frekar eftir aukinni áherslu á kennaramenntun. Morgunblaðið/ÞÖK  MENNTUN Á að leggja niður heima- nám grunn- skólabarna?  Fæturnir eru grunnstoð mann- kyns. Ætla má að hver maður gangi nokkur þúsund kílómetra um ævina. Látið ekki tískuvitund- ina hafa áhrif á getuna til að standa, sitja eða ganga sárs- aukalaust. Gerið ráðstafanir í tíma til að forðast síðari tíma vandamál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.