Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gísli Gíslasonfæddist á Haugi í Gaulverjabæj- arhreppi 30. nóv. 1916. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 23. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Gísli Brynjólfsson þjóð- hagasmiður og bóndi ættaður frá Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi og Kristín Jóns- dóttur húsfreyja frá Austur- Meðalholtum í Gaulverjabæj- arhreppi. Systkinin frá Haugi voru 12 talsins en þau eru nú öll látin. Þau voru: Jón, f. 1899, d. 1953, Guðmundur Óskar, f. 1901, d. 1981, Brynjólfur, f. 1903, d. 1983, Garðar, f. 1906, d. 1994, Kristín, f. 1908, d. 1983, Ívar, f. 1910, d. 1987, Steindór, f. 1912, d. 1971, Sigurður, f. 1913, d. 1983, Haraldur, f. 1915, d. 1984, Ragn- heiður, f. 1918, d. 2002, og Eiður, f. 1922, d. 1981. Gísli kvæntist 3. júní 1944 eft- irlifandi eiginkonu sinni Ingi- björgu Jónínu Níelsdóttur ættaðri úr Húnaþingi, f. 23. feb. 1918. For- eldrar hennar voru Halldóra Ív- arsdóttir og Níels Sveinsson sem síðast bjuggu í Þingeyrarseli und- ir Víðidalsfjalli. Börn Gísla og Ingibjargar eru fimm, barnabörn- Kristín, c) Anna Jóna, og á hún tvær dætur. 5) Ingibjörg Sólrún, f. 31.12. 1954, gift Hjörleifi Svein- björnssyni og eiga þau tvo syni: a) Sveinbjörn, b) Hrafnkell. Gísli ólst upp á Haugi en fór 14 ára gamall til sjós sem hjálp- arkokkur hjá Brynjólfi bróður sín- um á togaranum Júpiter. Hann stundaði ýmis sveitastörf þar til hann flutti til Reykjavíkur 1939 og hóf störf sem sölumaður hjá Belgjagerðinni þar sem hann starfaði í rúm tuttugu ár. Hann gerðist sölumaður hjá Heildversl- un Kristjáns Þorvaldssonar árið 1964 og starfaði þar fram á átt- ræðisaldur. Hann var fulltrúi í trúnaðarráði Verslunarmanna- félags Reykjavíkur 1956-1998, átti sæti í stjórn félagsins 1959-1964 og var ritari stjórnar 1962-1964. Hann var sæmdur gullmerki fé- lagsins árið 1981. Hann sat í stjórn Landssambands ísl. versl- unarmanna 1957-1963 og var end- urskoðandi sambandsins 1965- 1973. Hann sat fjölmörg þing ASÍ fyrir hönd VR, síðast á áttatíu ára afmæli sambandsins 1996 þegar hann sjálfur stóð á áttræðu og var við það tilefni heiðraður af sam- bandinu. Hann var lengi virkur í starfi Langholtskirkjusafnaðar og átti um tíma sæti í bygging- arnefnd kirkjunnar. Í 18 ár var hann formaður hússtjórnar í þjón- ustuíbúðum aldraðra í Hvassaleiti 56-58 og gegndi þar jafnframt húsvörslu til ársins 2003. Útför Gísla verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. in fimmtán og barna- barnabörnin sautján. Börn þeirra eru: 1) Kristinn Hilmar, f. 25.11. 1945, kvæntur Auði Björgu Sig- urjónsdóttur og eiga þau fjögur börn: a) Sigurður Gunnar, kvæntur Svanhvíti Huldu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn, b) Sigrún Inga, gift Auðuni Kristinssyni og eiga þau þrjú börn, c) Þórhildur María, í sambúð með Kristófer Ólafssyni og eiga þau eina dóttur, d) Kristinn Kári. 2) Halldóra Jenný, f. 14.11. 1947, gift Reyni Ragnarssyni og eiga þau þrjú börn: a) Guðrún gift Robert Kilian og eiga þau tvær dætur, b) Gísli kvæntur Sigríði Bryndísi Stef- ánsdóttur og eiga þau tvö börn, c) Arnar Gauti, unnusta hans er Sig- ríður Vala Halldórsdóttir. 3) Kjartan, f. 9.7. 1950, kvæntur Ólöfu S. Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn: a) Erna Guðríður, gift Þorbirni Ólafssyni og eiga þau einn son, b) Ingibjörg Rós, unnusti hennar er Ísleifur Birgisson, c) Jón Ólafur. 4) Óskar Sveinn, f. 25.9. 1951, kvæntur Vilborgu Heiðu Waage og eiga þau þrjú börn: a) Guðmundur Arnar í sam- búð með Sigurborgu Matthías- dóttur og á hún þrjú börn, b) „Ég er búinn að panta far,“ sagði Gísli nokkrum dögum fyrir andlát sitt, hann vissi hvert stefndi. Var bú- inn að ganga frá öllu eins og hans var von og vísa. Fannst þetta veikinda- stríð vera búið að standa of lengi yfir, það var ekki hans stíll, hann var van- ur því að láta hlutina ganga hratt fyr- ir sig. Ég var varla nema unglingur þegar ég kynntist Gísla fyrst fyrir rúmum fjörutíu árum. Hann var nú ekkert sérstaklega upprifinn yfir þessum strák sem var að snúast í kringum eldri heimasætuna á heim- ilinu. Þegar hann sá að hann gat ekki haft neina stjórn á því hvernig sam- bandið þróaðist tók hann mig út und- ir húsvegg og lagði mér lífsreglurn- ar. Á þessum tíma bjó Gísli með konu sinni Ingibjörgu og fimm börnum í Ferjuvogi 15. Það vakti strax athygli mína hversu gestkvæmt var hjá Gísla og Ingibjörgu, alltaf fullt hús af ætt- ingjum og vinum. Fólk laðaðist að Gísla enda var hann alltaf hrókur alls fagnaðar, hafði skoðanir á öllu hvort sem um var ræða pólitík eða önnur þjóðfélagsmál. Fjölskyldan var Gísla allt, hann fylgdist alla tíð vel með því sem var að gerast í fjölskyldunni, en var ekki afskiptasamur. Hann hvatti sitt fólk til dáða og gerði því grein fyrir gildi góðrar menntunar og að standa sig vel í því sem það var að gera hvort sem það var nám eða vinna. Hann settist gjarnan við sím- ann á kvöldin til að kanna hvað væri að gerast, tók einn símarúnt eins og ég kallaði það, og þá skipti engu hvort viðkomandi bjó á Íslandi eða úti í heimi. En Gísli var ekki allra, hann hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim. Hann talaði eins við alla, enginn átti neitt hjá honum. Hjá Gísla gengu hlutirnir hratt fyrir sig, hann vildi enga lognmollu, ef búið var að ákveða hvað gera skyldi þá varð að framkvæma það strax. Gísli var mikil félagsvera og var virkur í þeim félagsskap sem hann tók þátt í. Hann starfaði innan verka- lýðshreyfingarinnar og þegar VR byggði fjölbýlishús sem selt var eldri félögum í VR voru Gísli og hans góða kona Ingibjörg meðal þeirra fyrstu sem keyptu þar íbúð. Þar valdist Gísli strax til forystu í hússtjórninni þar sem hann gætti hagsmuna allra íbúðareigenda eins og sinna eigin þannig að fólk hélt stundum að hann ræki húsfélagið á sinn prívat reikn- ing, svo mikið var aðhaldið á öllum sviðum. Ég dáðist alla tíð að Gísla fyrir hvað hann var úrræðagóður, það var sama hvaða vandamál komu upp, alltaf leysti hann þau að lokum. Gísli hefði örugglega orðið góður bóndi, hann hafði mikinn áhuga fyrir öllu sem sneri að búskap og hefði ef til vill orðið bóndi ef aðstæður hefðu verið með öðrum hætti þegar hann var ungur maður. En hann bætti sér þetta upp með því að halda hesta al- veg fram á efri ár. Þar sem efnin voru ekki mikil varð hann að halda kostn- aði niðri, heyjaði Gísli því fyrir hross- in á ýmsum grasskikum í Reykjavík. Og alltaf voru þetta slíkir eðalgæð- ingar að hans sögn að enginn gat far- ið á bak þeim nema hann sjálfur. Að hans sögn voru menn annaðhvort hestamenn eða ekki. Nú þegar Gísli er genginn mynd- ast tómarúm í fjölskyldunni, við eig- um eftir að sakna símhringinganna hans, spaugilegra sagna af mönnum og málefnum og hressilegs hláturs- ins þegar sögunni er lokið. Stærsta tómarúmið er þó hjá tengdamóður minni Ingibjörgu, en þau Gísli voru búin að vera gift í yfir 60 ár. Ég bið algóðan guð að styrkja hana og börn þeirra Gísla í sorginni. Ég mun geyma um ókomin ár minningu um stórbrotinn mann sem var mér og minni fjölskyldu mikils virði. Farðu í friði, kæri tengdapabbi. Reynir Ragnarsson. Tengdafaðir minn Gísli Gíslason lést í byrjun síðustu viku og vantaði þá fáeinar vikur í nírætt. Út af fyrir sig gerði hann sér ekki rellu út af því frekar en öðru að ná ekki þeim aldri, en í upphafi þessa árs hafði hann sett sér að lifa tvennar næstu kosningar. Nú er ljóst að það markmið rætist til hálfs. Kosningarnar til Alþingis í vor ber undan og þar með atkvæðið til handa dóttur hans og hennar flokki. Systkinin frá Haugi í Flóa voru tólf og kveður Gísli nú síðastur. Þau ólust upp í fátæktarbasli hjá foreldr- um sínum og fóru snemma að vinna fyrir sér. Gísli fór fjórtán ára til sjós sem hjálparkokkur á togaranum Júpíter og var fyrir bragðið ekki við- látinn þegar fermingardagurinn hans rann upp. Mjög er ólíku saman að jafna að vaxa upp í stórum systkinahópi í fá- tækt í sveit snemma á síðustu öld og núna á tímum ofverndunar og ára- tuga skólagöngu með félagsmótun sem steypir alla í svipað, slétt og fellt mót. Mér er nær að halda að systk- inin á Haugi hafi verið sjálfuppalin eða alið hvert annað upp eins langt og það náði, og ekki voru tök á menntun umfram það nauðsynleg- asta. Það voru óslípaðri demantar sem baslið þá gat af sér en velmeg- unin nú. Slíkur óslípaður demantur var Gísli. Hann var öflugur maður sem dró að sér athygli, stór í sniðum og fyrirferðarmikill í góðum skilningi þess orðs. Hann var hreinn og beinn. Ég hitti hann fljótlega eftir að ég fór að draga mig eftir dóttur hans. Í okk- ar fyrsta spjalli var ég að útskýra einhvern þremilinn sem ég man ekki lengur hvað var og fórst það víst heldur óhönduglega. Gísli hlustaði um stund á verðandi tengdason sinn en stoppaði flækjufótinn svo af með orðunum: „Djöfull ertu vitlaus, Hjölli,“ og tók bakföll af hlátri. Þar og þá urðum við mátar. Hann var verklaginn, úrræðagóð- ur og greiðvikinn. Við hin í fjölskyld- unni sem gerum alla hluti með öfug- um klónum nutum oft góðs af því. Strákunum okkar var hann góður og áhugasamur afi. Ég man eftir honum og þeim á náttfötunum að grafa eftir moldvörpum í sumarfríi í Hollandi þegar þeir voru litlir. Seinna höfðum við samflot í tjaldútilegur hér heima í ýmsum veðrum og þegar þeir stækk- uðu fylgdist hann með skólagöng- unni og vildi vita hvað þeir væru að spá. Þau eru mörg barnabörnin og langafabörnin sem kveðja afa sinn í dag með hlýjum minningum. Gísli var glaður maður og einhver sá best lynti sem ég hef fyrirhitt á lífsleiðinni. Hann var ákveðinn og skapstór en lunta og þyngsli átti hann hreinlega ekki til. Hann hafði skýrar skoðanir en umfram allt óbil- andi áhuga á mönnum og málefnum, stálminnugur og sagði listavel frá. Áhugi hans á lífinu hjálpaði honum vafalaust að halda þeim illvíga sjúk- dómi í skefjum, sem hrjáði hann síð- ustu árin, jafn lengi og raun bar vitni þótt sárþjáður væri. Sjúkdóminn hræddist hann ekki – frekar að það hafi verið öfugt – og leiddist allt veik- indatal. Eitt sinn undir lokin er af honum bráði spurði eitt barnið hans hvernig honum liði. „Mér líður vel,“ svaraði Gísli og hafði endurheimt sinn styrka róm. Degi síðar var hann allur. Að leiðarlokum þakka ég Gísla samfylgdina. Guð blessi minningu góðs manns. Hjörleifur Sveinbjörnsson. Afi var alveg einstaklega lífsglaður maður og naut þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Hann hafði ákveðnar skoðanir á öllum hlutum og fylgdist vel með öllu því sem fram fór í þjóð- félaginu og í lífi okkar systkina. Hvar sem drepið var niður í þjóðfélagsum- ræðunni þá var afi með hlutina á hreinu. Hvort sem um var að ræða pólitík, íþróttir eða popptónlist þá hafði afi sterkar skoðanir á efninu hverju sinni og lá ekki á þeim. Glettn- in og kímnin voru aldrei langt undan þegar afi var annars vegar og leiddist manni aldrei í návist hans. Barngóður var afi með afbrigðum og hændumst við að honum mjög líkt og önnur barnabörn hans. Jón Ólafur man sérstaklega eftir því hve skemmtilegt var þegar afi sótti hann á leikskólann sem hann gerði oft. Fóru þeir þá saman í Hvassaleitið þar sem afi og amma áttu heima. Röltu þeir sér iðulega út í Kringlu saman til þess að fá sér eitthvert góð- gæti. Þótt leiðin væri ekki löng þá stoppuðu þeir alltaf við hvíldarstein- inn sinn, köstuðu mæðinni og ræddu málin. Þetta var hvíldarsteinninn þeirra. Reyndar var steinninn svo fjarlægður seinna meir og var afi alls ekki sáttur við það því sterkar minn- ingar tengdar steininum gerðu það að verkum að þeim félögum fannst eins og brotið væri á eignarrétti þeirra. Fleiri ljúfar minningar koma upp í huga okkar systkina þegar við hugs- um um hann afa. Afi var mjög hreyk- inn af rósunum sem hann ræktaði í garðinum af mikilli alúð. Hann lýsti þeim sem hinu eilífa lífi sem dafnar og fölnar til skiptis. Á vorin vex jurt- in og verður að fallegri rós en svo haustar og fallega hrausta blómið fölnar og deyr. Þegar svo vorar á ný þá dafnar ný og falleg rós af sömu rót og úr sömu mold. Hann kallaði þetta hina einu sönnu lífskeðju. Hið eilífa líf að hans mati voru afkomendurnir, börnin, barna- börnin o.s.frv. Eins og hann orðaði þetta: „Eilíft líf eru ekki einhverjir svífandi andar sem miðlar eru í beinu sambandi við.“ Síðan hló hann dátt sínum smitandi hlátri. Við þökkum þér, elsku afi, fyrir all- ar góðu minningarnar og að hafa átt þig fyrir afa. Allar góðu minningarn- ar lifa í hjarta okkar og þær munum við varðveita að eilífu og bera áfram til fæddra sem ófæddra barna okkar. Þín barnabörn, Erna Guðríður, Ingibjörg Rós og Jón Ólafur. Afi og einn minn besti vinur hefur kvatt. Þó að ég hafi lengi vitað að hverju stefndi er söknuðurinn mikill. Ég sit og reyni að koma á blað öll- um þeim mörgu kostum sem hann afi minn bjó yfir. Reyni að lýsa því hve mikils virði hann var mér, hve mjög ég leit upp til hans, hvað álit hans skipti mig miklu máli. Hve ákveðnar skoðanir hann hafði á mönnum og málefnum en var samt réttsýnn. Hve hlýr hann var og góður maður. Hversu mikils virði hann var mér og fyrirmynd í lífinu. En orð eru fátæk- leg og mér finnst ekkert nógu lýsandi fyrir hann og á erfitt með að koma hugsunum mínum á blað. Ég á margar góðar minningar um hann afa minn. Allar góðu stundirnar sem ég átti með honum lifa með mér. Við brölluðum margt saman, t.d. fór ég með honum og ömmu í sveitina í Kolsholt, þar kenndi hann mér allt um hesta og hestamennsku. Það voru ófá sumrin þar sem við riðum um sveitirnar í Flóanum þar sem hann þekkti hverja þúfu. Það var margt sem við borgarbörnin þurftum að læra og hafði afi ómælda þolinmæði og áhuga á að kenna okkur. Ferðirnar sem ég fór með afa á ruslahaugana í Gufunesi voru ævin- týri líkastar fyrir lítinn snáða. Hann gat alltaf fundið not fyrir dót sem aðrir voru búnir að henda og afskrifa og hann skildi ekkert í fólki sem var að henda alveg „heilu dóti, það þurfti bara að laga það smávegis“. Mér voru þessar ferðir fjársjóðsleit. Það var ótrúlegt að fylgjast með honum vinna, hann var duglegasti og iðnasti maður sem ég hef kynnst, hann gat aldrei setið kyrr og féll aldrei verk úr hendi. Afi var mikið fyrir garðrækt og síðustu tuttugu ár hefur hann nostr- að við garðinn í Hvassaleiti og þegar hann lét af störfum þar skírði hús- félagið sérstakan lund eftir honum, Gíslalund. Þar er fallegust hansarós- in sem hefur blómstrað svo fallega síðustu sumur. Afi var virkur í þjóðfélagsumræð- unni, hann fylgdist mjög vel með, hvort sem um var að ræða pólitík eða íþróttir. Honum fannst ekkert skemmtilegra en að takast á um póli- tísk málefni og hafði hann styrk til þess allt fram á síðasta dag. Það er skrýtið að hugsa til þess, að einn af föstu punktunum í lífi mínu, hann afi, skuli ekki lengur vera á sín- um stað í Hvassaleitinu. Amma og hann fluttu fyrir tveimur vikum á Droplaugarstaði og þá var eins og afi slakaði á, orðinn þess fullviss að ömmu væri óhætt án hans og lét eftir í baráttunni við Elli kerlingu og krabbameinið. Ekkert skipti afa minn meira máli en fjölskyldan, amma, börnin og barnabörnin. Amma og hann áttu saman 62 ár og fallegra samband en þeirra þekki ég ekki. Hann lét sér ávallt mjög annt um okkur öll og ein síðasta minningin sem ég á um hann er þegar hann sat með son minn á öðru ári í fanginu. Með þessum orðum kveð ég afa minn. Megi hann hvíla í friði. Hans verður sárt saknað. Gísli. Lífið er tómlegra eftir að hann afi minn dó á mánudaginn fyrir viku. Að honum er óskapleg eftirsjá, bæði af minni hálfu og að ég veit allra ann- arra sem þekktu hann. En hann afi minn var ekkert fyrir grát og gnístr- an tanna svo það mun ég ekki láta eftir mér. Mig langar miklu heldur að fagna ævi hans í nokkrum orðum. Ég hef enn ekki kynnst manneskju sem er haldin jafn mikilli lífsorku og hann var. Hann bókstaflega glóði af henni. Ég get ekki ímyndað mér ann- að en alls staðar hafi verið eftir því tekið. Hann var einn af þeim fágætu einstaklingum sem maður gæti sagt að hafi verið stærri en lífið sjálft. Hugðarefni hans og áhugamál voru óþrjótandi. Ef það var ekki að gefa smáfuglunum þá var það að sjá um blómin í garðinum. Ef það var ekki að sinna húsvörslu til fjölda ára í Hvassaleiti þá fann hann sér eitthvað annað til að dytta að. Honum féll aldrei verk úr hendi. Jafnvel þegar hann var orðinn mjög veikur og lík- aminn búinn að gefa sig var andinn óbugaður allt til enda. Afi lá aldrei á skoðunum sínum um menn og málefni. Það var unun að því að hlusta á hann oft á tíðum lýsa skoðunum sínum á málefnum dags- ins og þá ekki síst á pólitík. Ég held að áhugi minn á henni hafi vaknað jafn mikið frá honum og frá móður minni. Hann var vanur, á meðan hann hafði heilsu í það, að fara á hverjum morgni í sundlaugarnar að- allega til þess að rífast við karlana í heitu pottunum eins og hann var van- ur að segja. Hann gat verið þrjóskur í skoðunum sínum en alltaf skein í gegn manngæska hans. Þá ertu farinn, afi minn. Þú sem varst risi meðal manna. Og í þínum anda ætla ég að enda þessa kveðju á upphafinni nótu með textanum sem þú hafðir svo mikla unun af að syngja. Við sjáumst vonandi aftur. Ég vitja þín æska, um veglausan mar, eins og vinar á horfinni strönd, og ég man þá var vor, er við mættustum þar, þá var morgunn um himin og lönd. Þar var söngfugla mergð öll á flugi og ferð, en þó flaug enginn glaðar sinn veg og um heiðloftin blá vatt sér væng þínum á og sér vaggaði léttar en eg. (Þorsteinn Erlingsson) Sveinbjörn Hjörleifsson. Elsku afi, nú er stundin runnin upp og þú fengið hvíldina eftir langa ævi. Það er eflaust margt sem kemur upp í huga okkar allra sem fengum að njóta samveru þinnar í þessu lífi. Þó þú sért horfinn okkur þá eru sterkar minningar sem eftir sitja og þeim munum við aldrei gleyma. Minningarnar sem ég á um þig eru margar eftir þau 25 ár sem ég hef lif- að og átt með þér. Það sem stendur mér ofarlega í minni er þegar ég út- skrifaðist frá Hvanneyri vorið 2003. Ég var svo glöð þegar ég hringdi og sagði þér að nú væri komið að út- skrift minni. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég, þú, pabbi Gísli Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.