Morgunblaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 9
Chuck Mack er að hálfu Íslend- ingur og að hálfu Bandaríkjamað- ur, trélistamaður og hönnuður frá Bandaríkjunum. Hann hefur búið á Íslandi síðastliðin fjögur ár. Tengsl hans við Ísland ná aftur til fyrstu ára herstöðvarinnar í Keflavík en hann bjó sem lítill drengur í nokkur ár á Íslandi með íslenskri móður sinni, bandarískum föður og systk- inum. Faðir hans, sem er verkfræð- ingur og flugmaður, var flugmaður í bandaríska flughernum. Fjöl- skyldan bjó fyrst í Hafnarfirði en fluttist síðan á Keflavíkurflugvöll og er Chuck þar með einn af fyrstu íbúum þess samfélags, sem nú heyr- ir sögunni til. Sérpantanir á hönnun og smíði Chuck hannar húsgögn og önnur verk eftir pöntun. Hann smíðar all- ar frumgerðir af öðrum verkum sínum sem fara í framleiðslu. Eik- arskrifborð á stálfótum vakti mikla athygli á sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu nýlega sem og bekkirnir „Galleríbekkur“ og „Vængir“. Skrifborðið virðist passa alls staðar, jafnvel sem stofustáss, og því hentugt þar sem fólk þarf að vinna í stofunni heima. Gall- eríbekkurinn er bekkur og borð og fallegur upp við vegg eða á miðju gólfi. Gíraffarnir Eitt af handunnum verkum Chucks, „Gíraffinn“, hefur náð miklum vinsældum og er nú fram- leitt úr stáli og ýmsum viðarteg- undum og komið á markað í Banda- ríkjunum, Bretlandi og Íslandi. Handunnu gíraffarnir eru úr sér- völdum viðartegundum. Engir tveir handunnir gíraffar eru eins, hver og einn hefur sinn eigin persónu- leika, og eru sérsmíðair eftir pönt- un úr sérvöldum viðartegundum. Á sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu vöktu þeir mikla athygli fyrir smíði og fallegan við, hvort heldur um var að ræða eik eða aðra sjaldgæfari viðartegund. Á Íslandi eru gíraffarnir úr stáli og viði framleiddir hjá Sóló- húsgögnum í Ármúla. Þeir fást í versluninni þar og er einnig hægt að sérpanta þá. Þá fást þeir í versl- uninni Kokku á Laugavegi og í Leifsstöð og verða vonandi fáan- legir í fleiri verslunum á næstunni. Í Bandaríkjunum eru gíraffarnir nýlega komnir á markað en chuck- mackdesign lætur framleiða þá hjá bestu fáanlegu framleiðendum, sem staðsettir eru í Michiganríki. Hægt er að panta þá í gegnum vefsíðu chuckmackdesign og eru þeir þá sendir viðtakanda. Nokkrar versl- anir í Michigan eru að byrja selja þá sem og verslun í Soho í New York og ein í Washington. Verk eftir Chuck Mack Langur Galleríbekkur út eik gerður eftiri pöntun. Handunnið Eik- arskrifborð á stálfót- um, gert eftir pöntun. Köngulóin Borð fyrir kaffihús eða hótelherbergi. Vængir Bekkur sem Chuck gerði fyrir sam- keppni um minnisreit World Trade Center í New York. Handunnir Gíraffastóll úr ýmsum við- artegundum. Gíraffamunstur Seta af stól í gír- affamunstri Chuck Mack. Nýjustu eignirnar á www.hofdi.is Lækjarvað - parh./tvíbýli Glæsilegar sérhæðir við Lækjarvað 15 - 25 í Norðingaholtinu. Húsið er á tveimur hæðum með séríbúð á hvorri hæð. Bílskúr og stórar svalir fylgja efri sérhæð. Sérgarður fylgir neðri sérhæð. Að innan skilast íbúðirnar tilbúnar til innréttinga. Að utan skilast húsin steinuð og máluð. Þak verður frágengið með yfirborðsáferð úr PVC ásamt rennum og niðurföllum frágengnum. Gluggar verða úr timbri og áli með tvöföldu K-gleri. Að framanverðu er upphitað bílastæði við bílskúrinn og sérstæði er fyrir neðri hæð. Verð 27-35,5 millj. Perlukór 1 - 3ja herb. - Kóp. Perlukór 1 er 17 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum. Húsið stendur á góðum stað ofan götu og þaðan er útsýni yfir Elliðavatn. Á jarðhæð er bílskýli. 3ja herbergja íbúðirnar eru skráðar 95 - 115 fm að stærð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með flísalögðu baðherbergi og flísum á þvotta- húsi og tilbúnar til afhendingar fljótlega. Íbúðirnar eru allar vel hannaðar með áherslu á gott birtuflæði, góða rýmisnýtingu og útsýni. Vandaður frágangur hjá traustum byggingaraðila. Dverghamrar ehf. Verð 24,9-25,9 millj. Flatahraun 1 - Hfj. Húsið er byggt með forsteyptum einingum. Að utan múrhúðun með sérstöku viðhaldsfríu og endingargóðu efni. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna. Þó verður baðherbergið flísa- lagt í hólf og gólf og þvottahúsgólfið með flísum ásamt vinnuborði með skolvaski. Bað- og blöndunartæki koma frá sturta.is. Eldhúsinnrétting/HTH kemur frá Bræðrunum Ormsson. Húsið er fimm hæðir og er fimmta hæðin talsvert inndregin. Um það bil helmingur íbúðanna verður með sérinngang af svalagangi. Íbúðirnar eru af mismunandi stærð, frá 58 fm til 148 fm. Geymsla og þvottahús er inn í flestum íbúðum. Lóð verður frágengin og bílastæði malbikuð. Verð frá 17,5 millj. Rauðamýri 11 - 17 Raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Mosfellsbæ. Húsin verða afhent fullbúin að utan en fokheld að innan í nóv 2006. Lóð skilast þökulögð og bílaplön hellulögð með snjóbræðslu. Gert ráð fyrir að hitakerfi sé í gólfi. Verð 27,9-29,9 millj. Krókavað - n. sérhæð Sérlega falleg og vel skipulögð 127 fm neðri hæð í tveggja íbúða húsi. Þessi íbúð er tilbúin með uppsettum milliveggjum sem eru tilbúnir undir spörtlun og málningu, ídregin raflögn, frágengin pípulögn, án hreinlætistækja. Fullbúin án gólfefna. Verð 31,9 millj. Funalind - 4ra herb. - Kóp. Glæsileg og vel innréttuð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í: Forstofu, þvottahús, þrjú svefnherbergi, gang, stofu, eldhús og baðherbergi. Parket og flísar á gólfum, nema svefnherbergin, sem eru dúklögð. Eldhús er með sérlega glæsilegri innréttingu úr kirsu- berjaviði. Verð 27,9 millj. Rauðamýri 2-14 - Mos. Raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Mosfellsbæ. Húsin verða afhent fullbúin að utan en fokheld að innan. Hægt er að fá húsin tilbúin undir tréverk. Lóð skilast þökulögð með 30 fm sólpalli og bílaplön hellulögð með snjóbræðslu. Verð frá 31,9-32,9 millj. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2006 F 9 Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030. Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.  564 1500 30 ára EIGNABORG Fasteignasala SLÉTTAHRAUN björt 101,7 fm endaíbúð á 3. hæð, þrjú svefnherbergi, stórar suðursvalir, laus fljótlega. ESKIHLÍÐ góð 113,5 fm endaíbúð á 2. hæð, þrjú svefnherb. tvær stórar samliggj- andi stofur, laus fljótlega. RAUÐARÁRSTÍGUR 82 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð, nýlegar innréttingar, parket á herbergjum, flísar á gólfi. LAUGATEIGUR 86 fm 3ja herb. íbúð með sérinngangi, tvö svefnherb. rúmgóð stofa. ARNARSMÁRI 96 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð með svalainngangi. Í eldhúsi er snyrtileg sprautulökkuð innrétting og borðkrókur, flísalagt baðherbergi, tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum og eikarparketi, stór stofa með eikarparketi, stórar svalir, mikið útsýni. ÁSTÚN 57 fm 2ja herb. íbúð á 4. hæð með svalainng., laus fljótlega, mikið út- sýni. NÚPALIND falleg 98 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi, flísalagt bað, ljósar innréttingar í eldhúsi, þvottahús innan íbúðar, bíla- stæði í lokuðu bílahúsi. ÁLHÓLSVEGUR 143 fm neðri sér- hæð ásamt 22,5 fm bílskúr. Fjögur svefn.herb., stofa með arni, úr stofu er gengið út á sólpall, fallegur garður, laus við undirr. kaupsamn. HRAUNTUNGA 214 fm raðhús á tveimur hæðum. Á jarðhæð er einstak- lingsíbúð. Á efri hæð er stofa, eldhús og 4 svefnherb. 27 fm bílskúr. Mikið útsýni. LITLIHJALLI 237, fm endaraðhús með um 60 fm 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Á efri hæð er stofa, eldhús, bað og þrjú svefn- herbergi, parket á gólfum, viðarklædd loft. 25 fm bílskúr. HÓLMSHEIÐI-HESTHÚS til sölu hesthús innréttað fyrir 32 hesta. Gólfflötur hússins er um 153 fm og auk þess kaffi- stofa sem er um 36 fm. Trésmíðaverkstæði Innréttinga og innihurða framleiðsla Verkstæðið er mjög vel búið tækjum og er fyrirtækið í örum vexti með mikla fram- tíðarmöguleika. Nú starfa 7 manns í fyrirtækinu sem er starfrækt í um 440 fm hús- næði. Möguleiki er einnig að fá keypt allt húsnæðið, sem er um 830 fm, í því eru m.a. tvær íbúðir og 130 fm iðnaðrhúsnæði sem er í útleigu, ásamt byggingarrétti. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Eignaborgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.