Morgunblaðið - 06.12.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 332. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
* Ef keypt er fyrir 3.000 kr. eða meira.
Gefðu inneign á Framtíðarreikning Glitnis
og fáðu fallega Latabæjarhúfu í
Latabæjaröskju í kaupbæti.*
Þú færð Framtíðarreikning í næsta
útibúi Glitnis eða á www.glitnir.is.
RÓLEGHEITAJÓL
Í SUMARBÚSTAÐ Á AÐVENTUNNI OG
BLÁA LÓNIÐ Á AÐFANGADAG >> 22
18
dagar
til jóla
SÞ, Washington, London. AFP. | Grannríki
Kyrrahafsríkisins Fídjí-eyja og vesturveld-
in fordæmdu í gær valdarán hersins aðfara-
nótt þriðjudags og stöðvuðu þegar alla þró-
unaraðstoð við ríkið.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, Kofi Annan, hvatti til þess að „lögleg
ríkisstjórn Fídjí“ yrði þegar í stað látin taka
við á ný og ágreiningur leystur með frið-
samlegum viðræðum. Bandaríkin og fleiri
stórveldi hafa um hríð varað her Fídjí ein-
dregið við að grípa til valdbeitingar í deilum
við Laisenia Qarase forsætisráðherra. | 15
Reuters
Byssan ræður Fídjí-hermenn við húsa-
kynni forsætisráðherra landsins í gær.
Fordæma
valdarán Eftir Steinþór Guðbjartssonsteinthor@mbl.is
JÓHANN Freyr Jóhannsson út-
skrifaðist sem húsasmíðameistari
fyrir tæpu ári en hann gerir ekki
ráð fyrir að geta starfað við iðnina
eftir að ekið var á bifreið fjölskyld-
unnar þar sem Jóhann var á ferð á
Suðurlandsveginum ásamt ófrískri
eiginkonunni og 18 mánaða dóttur
þeirra.
Mæðgurnar, Hrönn Veronika
Runólfsdóttir og Veronika Jó-
hannsdóttir, sluppu ótrúlega vel úr
slysinu og Hrönn fæddi heilbrigðan
soninn Grétar Jóhann Jóhannsson
7. október, en slysið hefur haft mikil
áhrif á fjölskylduna. Hjónin segja
að slysið hefði ekki orðið á tvöföld-
um Suðurlandsveginum og leggja
áherslu á að tvöfalda verði alla vegi
út frá höfuðborgarsvæðinu. „Tvö-
faldur vegur er eina leiðin til að
koma í veg fyrir svona slys.“ | 6
Sjá fram á breytt líf í kjöl-
far alvarlegs slyss í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eina leiðin „Tvöfaldur vegur er eina leiðin til að koma í veg fyrir svona slys,“ segja þau Jóhann og Hrönn.
Hjónin segja að
tvöfalda verði
Suðurlandsveg
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRN Íraks ætlar að senda
fulltrúa til grannríkjanna og fá þau
til að taka þátt í ráðstefnu um of-
beldið í landinu og finna ráð til að
stöðva það, að sögn Nouri al-Mal-
ikis forsætisráðherra í gær. Virðist
hann hafa horfið frá andstöðu sinni
við að önnur ríki hafi afskipti af
vandanum en tekur þó fram að ráð-
stefnan verði að vera haldin í Írak.
„Þegar búið er að hreinsa póli-
tíska andrúmsloftið munum við
kalla saman svæðisbundna ráð-
stefnu og þangað munu ríki sem
vilja stuðla að stöðugleika og ör-
yggi í Írak senda fulltrúa,“ sagði
Maliki.
Væntanlegur varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, Robert
Gates, sagði í þingyfirheyrslum að
Bandaríkin væru ekki að vinna
Íraksstríðið en heldur ekki að tapa
því „eins og sakir standa“ og stað-
an væri ekki viðunandi. Hann sagði
að hernaðarárás á Íran vegna
kjarnorkudeilnanna kæmi aðeins
til greina sem örþrifaráð. Þing-
nefndin samþykkti í gær einum
rómi tilnefningu Gates.
Óháð nefnd um Íraksmálin mun
afhenda George W. Bush forseta
tillögur sínar í dag.
Maliki vill ráðstefnu
með grannríkjum
Gates segir Bandaríkin ekki vera að vinna stríðið
Í HNOTSKURN
»Robert Gates sagði aðkoma myndi í ljós á allra
næstu árum hvort ástandið í
Írak myndi lagast hægt og bít-
andi. Veruleg hætta væri á að í
staðinn yrði stórstyrjöld á öllu
svæðinu.
GERT er ráð fyrir rúmlega 13,7 milljarða
króna rekstrarafgangi á A-hluta starfsemi
Reykjavíkurborgar á næsta ári sam-
anborið við rúmlega eins milljarðs króna
halla á þessu ári. Þetta kemur fram í frum-
varpi til fjárhagsáætlunar sem Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri kynnti á
blaðamannafundi í gær. Hann sagði áætl-
unina endurspegla nýjar áherslur í rekstri
borgarinnar og boðaði markvissari og
ábyrgari rekstur. | 14
Rekstrarafgangur
verði á næsta ári
♦♦♦
Brussel. AFP. |
Framkvæmda-
stjórn Evrópu-
sambandsins
(ESB) hvatti í
gær til þess að
aðildarríkin
drægju mjög úr
veiðum á þorski
og ansjósu í Atl-
antshafi og í
Norðursjónum
á næsta ári til að vernda fiskstofn-
ana. Vill framkvæmdastjórnin að
þorskveiðarnar verði minnkaðar
um 25%. „Við erum fullviss um að
við verðum að grípa til harkalegra
ráðstafana vegna þorsksins og
byggjum þá skoðun á vísindalegri
ráðgjöf,“ sagði Möltubúinn Joe
Borg, yfirmaður sjávarútvegsmála
í stjórninni.
Þorskveiði
minnki
Joe Borg
SÖNGFUGLAR sem búa í
borg þurfa að syngja af
mun meiri krafti og í
hærri tóntegund en ætt-
ingjarnir í sveitinni þegar
þeir reyna að laða að sér
maka, segir í Aftenposten.
Ástæðan er hávaðameng-
unin í borgunum. Hol-
lenskir vísindamenn hafa komist að þess-
ari niðurstöðu eftir miklar rannsóknir.
Segja þeir borgarfuglana gefast upp á að
nota lægstu tónana sem drukkni í mesta
hávaðanum sem sé umferðarniður.
Umferðarniður
heftir ástarlífið