Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 24
|föstudagur|16. 2. 2007| mbl.is Bolludagurinn er á mánudag og því ekki seinna vænna að skella í deig og töfra fram nokkrar ljúf- fengar bollur. » 28 matur Kvíðaröskun getur leitt til alvar- legs þunglyndis. Sigþrúður Þor- finnsdóttir hefur háð harða bar- áttu við þennan vágest. » 30 heilsa Í Suður-Afríku eru það ekki risavaxin vörumerki sem draga vagninn heldur litlir og með- alstórir vínframleiðendur. » 26 vín Helgarnar hjá mér eruóneitanlega svolítið lit-aðar af þeirri staðreyndað ég er með fimm hunda á heimilinu sem þurfa fé- lagsskap og útiveru. Þetta eru allt hundar af st. bernharðstegund sem eru stórar skepnur og verða að fá góða hreyfingu,“ segir Guðný Vala Tryggvadóttir sem ætlar um helgina að kynna tvo af st. bernharðs- hundunum sínum í Garðheimum þar sem kynning verður á hundateg- undum. „Lífið hjá mér snýst meira og minna um hundana mína og ég nýt hverrar stundar til fulls í félagsskap þeirra. Sumir fara í golf í frítíma sín- um, aðrir á hestbak en aðaláhuga- mál okkar Hjalta mannsins míns er hundar. Við búum í Mosfellsbæ og förum gjarnan með hundana í gönguferðir hér í nágrenninu. Þeir hoppa upp á pall á bílnum okkar og við keyrum þá til dæmis upp að Hafravatni þar sem við leyfum þeim að hlaupa um og synda í vatninu. Þeim finnst það rosalega gaman. Við tökum yfirleitt klukkutíma í þetta og við njótum þess ekki síður en þeir. Stundum fer ég líka í göngutúra með vinkonum mínum en þær eru með dobermann- og boxer-hunda sem mínir hundar þekkja vel og eru vanir að vera með.“ Guðný segist leggja áherslu á af- slöppun um helgar, þó að hún hitti auðvitað líka vini sína og annað fólk. „Við bjóðum stundum til okkar um helgar fólki sem hefur þetta sameig- inlega áhugamál, hunda. Við getum endalaust spjallað um hundana okk- ar, borið saman bækur okkar og ráð- fært okkur hvert við annað.“ Sumum finnst st. bernharðs- hundar fullfyrirferðarmiklir til að hafa á heimili, hvað þá fimm stykki, en Guðný segist ekkert ráða við þetta, hún sé kolfallin fyrir þessum hundum. „Ég heillaðist fyrst og fremst af útliti þessarar hundategundar, þessu góðlega bangsalega yfirbragði sem þeir hafa. Og eftir að ég fór að kynna mér þessa tegund betur og hafði lesið mér óheyrilega mikið til varð ég enn frekar heilluð og þá varð ekki aftur snúið. Ég held svei mér þá að það sé meðfætt hjá mér að hafa áhuga á st. bernharðshundum því ég er búin að vera með þá í maganum frá því ég man eftir mér. Þessi teg- und hefur fylgt mér alla tíð, þó svo að ég hafi ekki eignast fyrsta hund- inn minn fyrr en árið 1997. Tveimur árum seinna flutti ég inn tík frá Nor- egi og fyrsta gotið var árið 2002 og þá héldum við eftir tveimur hvolpum úr því goti. Núna búa hér á heimilinu tíkin Melíta sem er ættmóðirin og tvö afkvæmi hennar þau Karenína og Cujo. Alls óskyldir þeim eru svo tveir ungir hundar sem ég á og flutti inn frá Noregi, en þau heita Kevin og Hófí og ég ætla að sýna þau tvö í Garðheimum. Auk þess eigum við rakkann Atlas, en hann dvelur hjá frábærri fjölskyldu í góðu yfirlæti og planið er að nota hann í ræktun.“ Þessir fimm hundar taka vissulega þónokkurt pláss á heimilinu því full- vaxinn st. bernharðsrakki getur orð- ið 80 til 90 kíló en tíkurnar eru að- eins léttari. „Þó að fólk haldi að mikið fari fyrir þeim er það alls ekki svo. Þessir hundar eru mjög rólegir, þó að þeir taki auðvitað sínar rispur og leiki sér öðru hvoru,“ segir Guðný. Hún hefur í nógu að snúast þessa dagana við að undirbúa hundana sína fyrir stóru hundasýn- inguna sem verður í byrjun mars á vegum HRFÍ. Lífið snýst um hundana mína fimm Morgunblaðið/Ingó Gaman úti að leika Guðný og Kevin sem er 7 mánaða, njóta þess að fara út og sprella saman. Í morgunverð á sunnudög- um: Nýbökuðum rún- stykkjum með góðu áleggi sem rennt er niður með góðu kaffi. Gönguleiðum: Sérstaklega skemmtilegt að ganga niður í Voginn í Mosfellsbænum þaðan sem er falleg sýn til Esjunnar og hafsins. Ná- grenni Rauðavatns og Hafra- vatns er líka frábært göngu- svæði. Til að gefa hundum: Hunda- fóðrinu Royal Canin, sem hún hefur góða reynslu af og hennar hundum hugnast vel. Guðný mælir með Sumir eiga hesta, aðrir eru í golfi en Guðný Vala heldur hunda. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í hundasjúkri konu sem býr með fimm st. bernharðshundum. HANN er óneitanlega óvenjulegur feldurinn á þessum hundi sem er af komondorok-kyni og ekki laust við að hann minni nokkuð á skúringar- moppu. En hvutti tók þátt í 131. Westminister Kennel Club-hundasýning- unni sem haldin var í Madison Square Garden í New York í vikunni. Reuters Alvöru flókafeldur    Glæsilegur 48 síðna blaðauki um Food & Fun hátíðina fylgir Morgunblaðinu á morgun daglegtlíf Salmonellusýking um 300 Bandaríkjamanna var rakin til vinsæls hnetusmjörs sem selt var hér á landi. » 26 neytendur Börn með hegðunarvanda gætu hafa erft skapbrestina frá for- eldrum sínum því rifrildi getur nefnilega legið í genunum.» 26 börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.