Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 92. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Versta áfall í sögu Alcan Úrslit kosninganna í Hafnarfirði, þar sem stækkun álversins í Straumsvík var hafnað með 88 at- kvæða mun, eru eitt versta áfall í sögu Alcan á Íslandi að mati Rann- veigar Rist, forstjóra fyrirtækisins. Talsmaður Sólar í Straumi segist hins vegar ekki hafa áhyggjur af því að álverinu verði lokað. » Forsíða Í forstjóraleik Pálmi Haraldsson, einn eigenda flugfélagsins Iceland Express, hafn- ar lýsingu stofnenda félagsins á að- ild Pálma og Jóhannesar Kristjáns- sonar að málefnum fyrirtækisins á sínum tíma. Segir hann stofnend- urna hafa verið í forstjóraleik og án allrar reynslu í flugrekstri. » 2 Kauphöllin með nýtt nafn Nafni Kauphallar Íslands verður í dag breytt í OMX Nordic Exchange á Íslandi við sérstaka athöfn og verða 25 íslensk félög skráð á að- almarkað Nordic Exchange. Mun Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra hringja viðskipti dagsins af stað klukkan tíu. » 12 Ólga í Íran Mikil ólga er í Teheran vegna máls bresku sjóliðanna 15, sem hand- teknir voru fyrr í mánuðinum. Hefur talsmaður íranska utanríkisráðu- neytisins hvatt Bandaríkin til að blanda sér ekki í deilu íranskra og breskra stjórnvalda. » 14 SKOÐANIR» Staksteinar: Uppgjör í Glitni? Ljósvakinn: Fjör á fimmtudögum Forystugreinar: Tvær fylkingar UMRÆÐAN» Umferðarhnútur Styrkjum stöðu neytenda Vitundarvakningar er þörf Af lýðræði í Breiðdal Trúboð fyrir hönnun Sannur meistari í pípulögn Sæluvist á Sauðárkróki FASTEIGNIR» Heitast 13 °C | Kaldast 5 °C  S 5–13 m/s og rign- ing, einkum vestan til, víða léttskýjað á NA- og A-landi. Suðvestlægari með kvöldinu. » 8 Arnar Eggert Thor- oddsen fjallar um tónleika færeyskra tónlistarmanna sem haldnir voru á NASA um helgina. »36 AF LISTUM» „Fínur tónleikur“ FÓLK» Justin Timberlake ropar í beinni. »37 Árni Matthíasson fjallar um þær ellefu sveitir sem kepptu í Músíktilraunum síð- astliðið laugardags- kvöld. »34 TÓNLIST» Músík- tilraunir FÓLK» Flugan var á ferð og flugi um helgina. »32 KVIKMYND» Skjaldbökurnar snúa aft- ur í kvikmyndahús. »39 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Aprílgöbb stór og smá 2. Sekt vegna vindgangs 3. Sjö ára drengur bjargar … 4. Stóð á gámi sem verið var að hífa Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is „ÞETTA var mjög eftirminnilegur dagur enda hef ég aldrei áður unn- ið Íslandsmeistaratitla í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik á sama tíma,“ segir badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur en hún varð þrefaldur Íslandsmeistari í gær. Ragna, sem er 24 ára gömul, ætlar sér stóra hluti á næstu miss- erum og er markmið hennar að komast á Ólympíuleikana í Peking árið 2008. „Þetta er fimmta árið í röð sem ég vinn einliðaleikinn og í sjötta sinn sem ég fæ gull í tvíliða- leiknum en ég hef aldrei áður unnið tvenndarleikinn. Það var sá úrslita- leikur sem mér fannst erfiðastur þar sem hann var síðastur á dag- skrá og ég ætlaði mér ekki að klúðra tækifærinu að vinna þrefalt enda hef ég stefnt að þessu í mörg ár.“ Ragna lék með Helga Jóhann- essyni í tvenndarleiknum og Katr- ínu Atladóttur í tvíliðaleiknum. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik með Helga í tvenndarleik og ætli það hafi ekki skipt öllu máli í ár að ég mætti með nýjan karl,“ bætti Ragna við í léttum tón. Hún stundar nám við Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka BA-námi í heimspeki og sálfræði í sumar. „Ég mun lítið gera annað en að æfa og keppa er- lendis fram í maí á næsta ári. Mark- miðið er að leika á einu til tveimur alþjóðlegum mótum í hverjum mán- uði, safna stigum og komast ofar á heimslistanum í einliðaleik,“ segir Ragna en hún er sem stendur í 49. sæti heimslistans. „Ég var á kafi í fimleikum hjá Ármanni frá því ég var sex ára og ég æfði badminton og fimleika þar til ég var orðin 13 ára. Þá hafði ég ekki lengur tíma til að stunda báðar greinarnar. Ég tel að fimleikaæfingarnar hafi gert mig enn betri í badminton,“ sagði Ragna. | Íþróttir Þrefaldur meistari í fyrsta sinn  Ragna Ingólfs- dóttir stefnir hátt í badminton Morgunblaðið/Brynjar Gauti Meistari Ragna Ingólfsdóttir landaði öllum titlum sem voru í boði á Íslandsmótinu en hún stefnir á ólympíuleikana í Peking á næsta ári.  Mætti með nýjan karl í tvenndarleikinn „UPPLIFUNIN var líkust því að vera fastur í hríðarbyl, eða þá inni í þotuhreyfli.“ Þannig lýsir Arnar Eggert Thoroddsen frammistöðu hljómsveitarinnar Shogun sem bar sigur úr býtum á úrslitakvöldi Músíktilrauna í Listasafni Reykja- víkur sl. laugardagskvöld. Sveitin er skipuð fimm strákum úr Reykja- vík og leika þeir tilraunakennt og framþróað harðkjarnarokk. Viðtal við Shogun má lesa í blaðinu auk umfjöllunar um úrslitin. »34 Fastir í hríðarbyl STANGVEIÐITÍMABILIÐ hófst í gær með góðri veiði í sjóbirtingsám um sunnanvert landið þar sem vatnavextir hömluðu ekki veiðum, en vel viðraði til veiðanna. Þannig voru komnir 89 fiskar á land í Tungulæk vestan við Skaftá í gær- kvöldi. Þá veiddust fimmtán sjóbirt- ingar í gærmorgun í Tungufljóti í Skaftártungu nokkru vestar og tólf urriðar komu á land í Minnivallalæk í Landsveit í gærmorgun. Víða annars staðar, einkum um vestanvert landið, hömluðu hins vegar vatnavextir veiðum og voru árnar skolaðar. Þannig var því til að mynda háttað um Geiralandsá, Varmá/Þorleifslæk og Sogið og sama gilti um Hítará og Grímsá á Vesturlandi og Hraunsfjörður var skolaður. Vífilsstaðavatn opnað Meðal annarra áa sem opnaðar voru í gær má nefna Steinsmýr- arvötn, Ytri-Rangá neðan Ægissíðu- foss, Brúará og Andakílsá. Þá var einnig opnað á veiðar í nokkrum stöðuvötnum, þar á meðal í Vífils- staðavatni á höfuðborgarsvæðinu. Ein á norðan heiða var opnuð í gær. Það er Litlá í Kelduhverfi og komu sjö sjóbirtingar þar á land í blíðunni í gærmorgun. | 6 Góð veiði víða á fyrsta veiðideginum 89 fiskar voru komnir á land úr Tungulæk í gærkvöldi Morgunblaðið/Einar Falur Góð veiði Ingólfur Guðmundsson landar einum af mörgum sjóbirt- ingum sem veiddust í Tungulæk. Shogun sigraði í Músíktilraunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.