Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 27 Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Ömmubörn. HINSTA KVEÐJA ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL ÞÓRIR GESTSSON, Þórir frá Reykjahlíð, Karlagötu 4, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur vinsemd og samúð. Sérstaklega viljum við þakka Þorsteini Gíslasyni lækni og starfsfólki 13D Landsspítala við Hringbraut fyrir einstaka aðhlynningu. Svanhildur J. Ingimundardóttir, Guðrún Axelsdóttir, Guðlaugur Jónasson, Ragnheiður Axelsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ingimundur Gestur Axelsson, Jónas, Þórir, Fannar, Sindri, Gunnar, Guðlaugur og Leó. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐLAUG SIGURJÓNSDÓTTIR, Borgarbraut 16, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju fimmtu- daginn 7. júní kl. 14:00. Úlfar Gunnar Jónsson, Charlotta Þórðardóttir, Lára Jónsdóttir, Magnús Guðbrandsson, Rannveig Jónsdóttir, Steinar Guðbrandsson, Sigurjón Jónsson, Elísabet Guðnadóttir, Ásta Jónsdóttir, Páll Hjaltalín, Anna Jónsdóttir, Guðmundur Pétursdóttir, Jóna Jónsdóttir, Guðbrandur Guðbrandsson, Baldur Jónsson, Jóhanna Skúladóttir, Ragnar Jónsson, Hulda Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ ELIS STEFÁN ANDRÉSSON vélstjóri, Bogahlíð 14, Eskifirði, lést á heimili sínu föstudaginn 1. júní. Útförin fer fram laugardaginn 9. júní kl. 14:00 í Eskifjarðarkirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. Aðalheiður Ingimundardóttir, Ingimundur Elisson, Halla Jóhannesdóttir, Guðni Þór Elisson, Lára Metúsalemsdóttir, Andrés Elisson, Svana Guðlaugsdóttir, Njóla Elisdóttir, Jón G. Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFLIÐI OTTÓSSON, Aðalstræti 4, Patreksfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík sunnudaginn 3. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnar Hafliðason, Áslaug Sveinbjörnsdóttir, Rafn Hafliðason, Anna Gestsdóttir, Torfey Hafliðadóttir, Ottó Hafliðason, Guðrún Hafliðadóttir, Ari Hafliðason, Guðrún Leifsdóttir, Róbert Hafliðason, Sigurósk Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞÓRÐUR G. FINNBJÖRNSSON flugstjóri, lést 3. júní. Elísabet Elíasdóttir, Sigríður Þórðardóttir, Pétur K. Hlöðversson, Viðar Bragi Þórðarson, Þorbjörg Auður Þórðardóttir, Ragnheiður Bára Þórðardóttir, Timo Jenssen. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, KLEMENTÍNA MARGRÉT KLEMENZDÓTTIR, lést á heimili sínu Hagamel 21, miðvikudaginn 30. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Björgvinsdóttir, Þráinn Viggósson, Magdalena Björgvinsdóttir, Kolbrún Björgvinsdóttir, Dröfn Björgvinsdóttir, Þorgeir Jónsson, Mjöll Björgvinsdóttir, Ólafur Stefánsson, Drífa Björgvinsdóttir, Benedikt Þ. Gröndal, Hrönn Björgvinsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, STEINAR RAGNARSSON prentsmiður, Eskihlíð 10a, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 31. maí. Útför hans verður tilkynnt síðar. Katrín K. Söebech, Kristján, Katrín, Alexander, Haukur Þór, Ari Már, Theodór, Árni og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Bakka, Siglufirði, Lóulandi 9, Garði, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, föstudaginn 1. júní. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu Sandgerði föstudaginn 8. júní kl. 14:00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast Guðmundu er bent á Hjúkrunarheimilið í Víðihlíð, Grindavík. Björn Þórðarson, Þórður Björnsson, Signý Jóhannesdóttir, María Björnsdóttir, Ólafur Örn Haraldsson, Sigríður Björnsdóttir, Birgir Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þórunn Krist-jánsdóttir fædd- ist í Reykjavík 29.desember 1938. Hún lést á Landspít- ala – háskólasjúkra- húsi við Hringbraut 27. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján S. Ís- aksson frá Fífu- hvammi og Guðrún Kristjánsdóttir frá Álfsnesi. Systkini Þórunnar eru Krist- ján, f. 1942, d. 2003, Helga, f. 1943, Sigurður, f. 1945, d. 1976, og Gunnar, f. 1947. Þórunn giftist 22. nóvember 1958 Hilmari Gylfa Guðjónssyni, f. 9. mars 1935, d. 16. maí 2003. For- eldrar hans voru Guðjón B. Bald- vinsson og Steinunn Jónsdóttir. Þórunn og Hilmar eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Kristján, f. 1956, maki Sesselja M. Matthíasdóttir. Börn þeirra eru Hilmar og Þórunn, f. 1989. 2) Guðjón, f. 1960, maki Hafdís Svavarsdóttir. Börn þeirra eru Clara, f. 1979, Stella, f. 1981, Ester, f. 1984, Erla, f. 1989, Hilmar Gylfi, f. 1990, Jó- hannes, f. 1999, og Hulda, f. 2004. 3) Guðrún, f. 1962, d. 1965. 4) Birgir, f. 1967, maki Erla Ólafsdóttir. Börn hans eru Ólafur Daði, f. 1996 og Viktoría Mist, f. 2004. 5) Guðrún, f. 1969, maki Hans G. Alfreðsson. Synir þeirra eru Birgir Freyr, f. 1991, og Heimir Þór, f. 2002. Útför Þórunnar verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Mig setur hljóða og doðinn nær yfirhendinni. Á tiltölulega stuttum tíma ertu farin og við varla búin að átta okkur á að það er til frambúðar. Atburðarásin var hröð, – alltof hröð og eftir sitjum við með sorg í hjarta. Okkur finnst þetta ósanngjarnt og þú tekin of snemma frá okkur, en ill- vígur sjúkdómur spyr ekki um stað eða stund. Aldrei hefði okkur grunað að þetta tæki svona stuttan tíma. Huggun okkar er sú að núna ertu laus við þjáningarnar. Þú varst ótrúlegur karakter, kraftmikil og sterk kona sem lét ekk- ert stöðva sig. Þú hafðir yndi af því að ferðast og skoða nýja staði. Þið pabbi ferðuðust um allan heim og þú hélst því áfram eftir að hann féll frá. Þú sýndir ótrúlegan styrk þegar pabbi dó, þó svo að við vissum hversu sárt það var þegar hann féll frá. Þú hafðir jafnaðargeð, skiptir aldrei um skap. Þú sást ávallt það já- kvæða við hvaða aðstæður sem var. Þú varst kölluð frú Ráðhildur í fjöl- skyldunni og ekki að ástæðulausu. Að stjórna var í eðli þínu án þess að vera með yfirgang. Þú leyfðir okkur börnunum að rekast á mistökin okk- ar sjálf og læra af þeim. Þú varst hörkudugleg og vannst þar til þú veiktist þrátt fyrir að vera orðin lög- legt gamalmenni eins og við kölluð- um það. Þú tengdist fólki sterkum böndum og varst umvafin góðum vinum. Þú áttir fallegt heimili og hver hlutur á sér sína sögu. Þú varst frábær gestgjafi og hafðir yndi af að halda veislur. Þú varst mjög virk í fé- lagslífi og það þurfti aldrei að spyrja þig tvisvar um hvort þú vildir fara hingað eða þangað. Ef þú fórst í bíl- túr vissum við börnin aldrei hvar þú myndir enda, í heimsókn á Akureyri eða í súpu í Stykkishólmi. Fyrir nokkrum árum skelltum við okkur saman til London, ég hafði orð á því að Duran Duran væri að koma saman á ný og gaman væri að sjá þá á Wembley, það þurfti ekki meira til. Áður en ég vissi af vorum við búnar að pakka niður og komnar af stað. Ég þori að fullyrða að þú varst ald- ursforsetinn á Wembley þetta kvöld. Að ferðast með þér voru forréttindi, þú varst hafsjór af fróðleik hvort sem var innanlands eða erlendis. Við bjuggum saman nær alla okkar tíð og aldrei kom sá dagur sem ósætti kom upp. Þú kenndir mér svo margt en samt er svo mikið sem ég á eftir að læra. Ég kveð þig með miklum söknuði, við áttum frábært líf saman og í raun get ég ekki séð lífið án þín því þú skipaðir svo stóran sess í mínu lífi. Hafðu þökk fyrir allt elsku mamma mín. Þín dóttir, Guðrún. Jæja, amma mín, þá er komið að kveðjustund. Þegar mér var sagt að þú værir mjög veik og það mætti bú- ast við öllu veit ég að það er miklu betra að fara og ég ætla að muna all- ar góðu minningarnar sem við áttum saman, til dæmis fara í ferðalög til Akureyrar eða fara í Hrísey eins og við gerðum. Það eru minningar sem ég mun alltaf muna, eins og að tína rifsber og búa til rifsberjasultu eða baka fyrir veislur. Nú verður tóm- legt að koma á efri hæðina í Hlíð- arhjallanum og engin amma að taka á móti okkur öllum, en takk fyrir all- ar heimsóknirnar og gott spjall. Ólafur Daði. Elsku Þórunn, það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur. Við eigum svo margar og skemmti- legar minningar á liðnum árum. Þú hafðir sérstaklega þægilega nær- veru og vannst ávallt af trú og dyggð meira en venjulegt er og í dagfari öllu varst þú ljúf vinkona. Sá tími sem við höfum fengið að starfa með þér hefur verið ánægjulegur og einkar gefandi og þú varst boðin og búin að gera allt fyrir alla og þér var annt um að sýna kærleika og stuðn- ing bæði í gleði og sorg. Viljum við sérstaklega minnast á jólahlaðborðin sem voru haldin á heimili þínu í Hlíð- arhjallanum síðustu árin þar sem rifsberjavínið þitt og heimabakaða lifrarkæfan var ómissandi. Þar átt- um við yndislegar stundir saman enda varst þú höfðingi heim að sækja. Ekki má gleyma kaffinu á föstudögum þar sem þú bakaðir vöfflur í tugavís fyrir okkur eins og ekkert væri. En nú er þitt sæti autt og þetta tómarúm sem situr eftir í hjörtum okkar fyllum við með yndislegum minningum um góða vinkonu. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guð geymi þig elsku Þórunn, vilj- um við votta fjölskyldu þinni og vin- um okkar dýpstu samúð. Þínir samstarfsfélagar í Lyfju, Lágmúla. Þórunn Kristjánsdóttir  Fleiri minningargreinar um Þór- unni Kristjánsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.