Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 23
S k ó g a r h l í › 1 8 • 1 0 5 R e y k j a v í k • S í m i 5 9 5 1 0 0 0 • F a x 5 9 5 1 0 0 1
A k u r e y r i s í m i : 4 6 1 1 0 9 9 • H a f n a r f j ö r ð u r s í m i : 5 1 0 9 5 0 0
Vetrarævintýri á
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
28
3
93
Nú er salan hafin á ferðum til Kanaríeyja næsta vetur. Heimsferðir bjóða
frábært úrval gistingar á hreint ótrúlegum kjörum. Tryggðu þér lægsta verðið
og bestu gistinguna næsta vetur á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga.
Beint morgunflug
- með íslensku fl
ugfélagi
Kanarí
Kr. 43.395
- íbúð m/2 svefnherb.
* Hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð 2. eða 9. janúar, í
íbúð með 2 svefnherbergjum á
Parquemar. Netverð á mann með
10.000 kr. afslætti.
Kr. 52.595
- hálft fæði
Hjón með 2 börn, 2-11 ára, í
fjölskylduherbergi á Hotel Rondo
með hálfu fæði í viku, 2. eða 9.
janúar. Netverð á mann með
10.000 kr. afslætti.
Salan er hafin!
Fyrstu 300 sætin með
10.000 kr. afslætti !
Þeir sem bóka strax, geta tryggt sér
10.000 kr. afslátt.
Ath. takmarkað magn sæta með afslætti á hverju flugi.
frá aðeins
43.395 kr.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
*
Kr. 58.390
- smáhýsi
M.v. 2 fullorðna í smáhýsi,
Parquesol í viku 2. eða 9. janúar.
Netverð á mann með 10.000 kr.
afslætti.
Kr. 79.990
- allt innifalið
Gisting í tvíbýli, vikuferð 2. eða
9. janúar, á Hotel Dunas Suite
Maspalomas **** með “öllu
inniföldu”. Netverð á mann með
10.000 kr. afslætti.
Ótrúlegt verð
www.bluelagoon.is
Bláa Lónið – Gönguferðir með leiðsögn
Bláa Lónið í samvinnu við Leiðsögumenn Reykjaness býður upp á daglegar gönguferðir
klukkan 10.00 tímabilið 1. júní–31. ágúst.
Orkuríkt umhverfi Bláa Lónsins, jarðfræði og saga er
meðal þess sem þátttakendur í daglegum göngufer-
ðum munu kynnast. Ferðirnar hefjast við Bláa Lónið
þaðan sem gengið er að lækningalindinni. Gengið er að
Þróunarsetri og að orkuveri Hitaveitu Suðurnesja í
Svartsengi. Gangan endar í Bláa Lóninu.
Gönguferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Mælt er
með gönguskóm og hlýjum fatnaði. Verð: 1.000 kr. Miðar
eru seldir í gestamóttöku Bláa Lónsins.
15 stúlkna hópur hlusti
þegjandi á eina konu
eða karl dæma hópinn
og útskúfa stúlkum
einni af annarri? Síðan
er farið að gráta og nið-
urlægingin fullkomnuð.
Þykir foreldrum gott
að láta dætur sína og
syni horfa upp á þetta í
sjónvarpi sem eðlilegan
hlut? Að horfa á hóp
efnilegra ungmenna
taka því þegjandi þegar
ein einasta kona, t.d.
Tyra Banks, tekur sér
vald yfir hópnum og
ráðskast með hann.
Ein saga úr lestarráni
skýrir þetta í hnotskurn. Tveir vopn-
aðir ræningjar ráðast inn í lest með
30 farþegum. Einhver úr farþega-
hópnum gerir sér grein fyrir að hóp-
urinn er auðvitað miklu sterkari en
tveir ræningjar og hvetur hópinn til
að ráðast á ræningjana. Reyndar
eru ræningjarnir vopnaðir og þeir
gætu skotið einhvern en þeir ættu
eigi að síður ekki möguleika gegn
hópnum – ef hann er samstilltur.
Einhver fengi í sig skot, en ræningj-
arnir myndu samt verða ofurliði
bornir. En hvað er gert í fegurð-
arþáttum? Hópurinn situr þegjandi
þegar honum er tvístrað. Engin
samstaða, bara hlýðni. Því miður.
Ingibjörg SólrúnGísladóttir á hvert
bein í Víkverja eftir 19.
júní ávarpið hennar,
þar sem hún talaði um
að hlýðni kvenna væri
helsta hindrunin fyrir
fullveldi þeirra. Vík-
verji telur að hlýðni
kvenna sé alveg ótrú-
lega lúmsk og bók-
staflega grefur um sig
hér og hvar, ekki síst í
því fyrirbæri sem heit-
ir fegurðarsamkeppni
Íslands. Það hefur ver-
ið talað um „norm-
alíseringu“ af-
brigðilegra hluta á
borð við klám, þ.e. að hlutir sem áð-
ur þóttu óviðunandi, þykja nú við-
unandi – þó þeir séu það alls ekki.
Víkverji er þeirrar skoðunar að
normalísering kvennahlýðni eigi sér
ýmsar birtingarmyndir sem ungt
fólk, bæði strákar og stelpur, hafa
fyrir augunum hvern einasta dag í
sjónvarpi. Þarna er átt við mód-
elþætti, piparsveinaþætti og fegurð-
arþætti af ýmsu tagi. Allir ganga
þessir þættir út á að stilla upp hópi
kvenna og láta þær þegja nema á
þær sé yrt, láta þær hlýða ein-
hverjum stílistum og ljósmyndurum
og loks dómara. Hafið þið tekið eftir
því hvað það þykir nú „eðlilegt“ að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Hálfdan Ármann Björnsson yrk-ir brag sem hann nefnir Fyr-
irmynd:
Karlinn ræktaði kartöflur,
og konan borgaði það.
Konan matbjó kartöflur,
og krakkarnir borguðu það.
Krakkarnir fóru í kennslustund,
og konan borgaði það.
Konan þvoði klæðin,
og karlinn borgaði það.
Krakkarnir tóku upp kartöflur,
og karlinn borgaði það.
Karlinn gerði við kofann,
og konan borgaði það.
Þar var ekkert álver,
og allt svo fagurgrænt.
Ekkert þar, sem mengaði,
og umhverfið svo vænt.
Enginn út á sjónum,
og engin fýla og slor.
Allir lásu og lærðu,
og luku menntaskor.
Menningin varð svo mikil,
að þeir mestu fóru burt.
Úr mannviti sprungu margir,
því menn gátu einskis spurt.
Davíð Hjálmar Haraldsson fann
að broddur var í kveðskapnum og
orti:
Mótar hann orðin í æði,
aflinn er svartari en bik.
Naumast þó nær sér á strik
nema í deiglunni bræði
ádeilukartöflukvæði.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir á
Sandi í Aðaldal segir kvæðið minna
sig á barlómsmyndina „Kartöfluæt-
urnar“ eftir Van Gogh, sem sé af
bláfátæku fólki í Hollandi sem ekk-
ert hafði til matar nema kartöflur.
Hún segir aðra mynd blasa við í Að-
aldal:
Karlinn ræktaði kartöflur
en kindin lagði til tað.
Konan svo matbjó kartöflur
og kindarlær þegar í stað.
Á eftir höfðu þau innlent skyr
og útá það rjómabland.
Hver borgaði þetta? barnið spyr.
Það borgar vort frjósama land.
Ádeila og
kartöflur
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
KAFFITÁR efndi ný-
lega til kaffismökk-
unar á vinningskaffi
frá Gvatemala, Ník-
aragva, Kólumbíu og
Brasilíu í Listasafni
Íslands. Smakkað var
kaffi frá tveimur til
þremur búgörðum
frá hverju landi.
Í fréttatilkynningu
frá Kaffitári kemur
fram að kaffi frá
þessum löndum hafa
sín sérkenni, en að
mati gesta var
skemmtilegt að bera
saman mismunandi bragð, fyll-
ingu, ávaxtatóna, súkkulaði og
krydd, sem finna má í kaffinu.
Vinningskaffið gengur undir
heitinu Cup of Excellence eða Úr-
valsbollinn og hefur notið æðstu
verðlauna, sem veitt eru fyrir
kaffi. Tuttugu alþjóðlegir dóm-
arar velja besta kaffið í hverju
framleiðslulandi fyrir sig. Mark-
miðið er að auka veg úrvals-
kaffis, auka tekjur bænda og auð-
velda kaupendum að hreppa
bestu afurðirnar. Kaffið er selt á
Net-uppboði, sem þykir áhrifarík
leið til að verðlauna bestu kaffi-
bændur fyrir vel unnin verk.
Vinningskaffið verður til sölu hjá
Kaffitári og er von á fyrsta
kaffinu von bráðar, en það er
kaffið Paraiso frá héraðinu Huila
í Kólumbíu.
Smakkað á vinningskaffi
Morgunblaðið/Ásdís
NÚ ERU íslenskir klasatómatar að
koma á markaðinn.
Þeir eru líkir þeim tómötum sem
við þekkjum en í stað þess að tómöt-
unum sé pakkað lausum eins og
venja er, er klasatómötunum pakkað
nokkrum saman á klasa eins og þeir
vaxa á tómataplöntunni. Þetta hefur
þau áhrif á tómatana að þeir eru
heldur bragðmeiri en venjulegir
tómatar og þeir geymast betur.
Í Suður- Evrpóu eru heilir klasar
gjarnan skornir af af tómataplönt-
unni, þeir hengdir upp í eldhúsinu og
skorið af klasanum eftir þörfum.
Klasatómatarnir eru ræktaðir á
Jörfa á Flúðum.
Íslenskir
klasa-
tómatar
geymast vel
ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN býður heimilum að prófa öryggiskerfi án end-
urgjalds í sumar í kjölfar vakningar, sem orðið hefur um öryggismál
heimilanna að undanförnu, að sögn Ómars Arnar Jónssonar, markaðs-
stjóra.
Innbrot eru jafnan tíðust þegar fólk er að heiman um þetta leyti árs.
Einungis 10–15% heimila á landinu eru með öryggiskerfi. Þau heimili,
sem ekki eru með öryggiskerfi, eru mun álitlegri fyrir innbrotsþjófa.
Hins vegar eru innbrot í hús með kerfi nánast óþekkt, segir Ómar.
Tilboðið, sem stendur yfir til 15. júlí, gildir í tvo mánuði og gerir
fyrirtækið ekki kröfur um framhaldsviðskipti að reynslutíma liðnum.
Öryggismiðstöðin mun annast alla uppsetningu á heimaöryggiskerfinu,
sem inniheldur nauðsynlegan öryggisbúnað í hverju tilviki fyrir sig, án
endurgjalds. Þetta tilboð gildir á helstu þéttbýlisstöðum landsins þar
sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu.
Nýtt
Endurgjaldslaus öryggiskerfi