Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þriðjudaginn 26. júní verður farin fræðslu- og gönguferð um Hengilsvæðið. Hugað verður að orkunni og beisl- un hennar, orku- jarðfræði, gróðri og sögu. Mæting við Hellisheiðarvirkjun við Kolviðarhól kl.19:30. Leiðsögumenn eru Einar Gunnlaugsson, jarðfræðingur, og Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur. • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is Ganga um Hengilssvæðið ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 80 05 0 6. 2 0 0 7 GLASTONBURY-tónlistarhátíðinni á Englandi lauk í gær. Talið er að nærri 178 þúsund manns hafi verið á hátíðinni þegar mest var og lét fólkið lítið á sig fá þótt veður væri frekar vott og hátíðarsvæðið eitt drullusvað. Breskir fjölmiðlar segja raunar að veðrið hafi ekki verið nærri eins vont og árið 2005 þegar ár á svæðinu flæddu yfir bakka sína. Björk Guðmundsdóttir kom fram á föstudag og fékk afar góðar viðtökur. Breska vefsvæðið gigw- ise.com hélt úti bloggi alla hátíðina og þar kom með- al annars fram að tónleikar Bjarkar hefðu verið mjög vel heppnaðir og einkennst af búningaskiptum söng- konunnar, sem og blöndu af nýrri og gamalli tónlist frá henni. „Íslenski smáálfurinn steig á svið hálftíma of seint en olli tónleikagestum hreint ekki vonbrigðum með frammistöðu sinni á hátíðinni, en hér hefur hún ekki komið fram í 13 ár,“ sagði ritari jafnframt. Reuters Votviðri í Glastonbury Manchester. AP, AFP. | Gordon Brown tók við leiðtogaembætti breska Verkamannaflokksins af Tony Blair í gær, hann hét m.a. að draga rétta lærdóma af Íraksstríðinu og lofaði miklum umbótum í innanlandsmál- um. Harriet Harman sigraði óvænt Alan Johnson í baráttu um embætti varaleiðtoga. „Utanríkisstefna okkar á næstu árum mun endurspegla þann sann- leika að til þess að einangra og yf- irbuga hryðjuverkamenn þarf nú meira en hernaðarmátt,“ sagði Brown. Flokkur hans mælist nú með 39% fylgi en íhaldsmenn 36%. Er þetta í fyrsta sinn í átta mánuði sem Verkamannaflokkurinn er hærri. Harman tekur við af John Pres- cott, hún hefur gagnrýnt Íraksstríð- ið og vill að stjórnin biðjist afsökunar á mistökum í tengslum við stríðið. Brown heitir miklum umbótum Verkamannaflokkurinn mælist með meira fylgi en Íhaldsflokkurinn í fyrsta sinn í átta mánuði Reuters Ánægð Gordon Brown brosmildur með nýjum varaleiðtoga Verkamanna- flokksins, Harriet Harman, á fundi flokksins í Manchester í gær. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is NEYTENDUR og stjórnvöld í Bandaríkjunum og Evrópusam- bandinu hafa vaxandi áhyggjur af innfluttum, kínverskum vörum sem ekki standast kröfur um öryggi. Svenska Dagbladet segir að fyrstu fimm mánuði ársins hafi kvört- unum til yfirvalda í Svíþjóð vegna slíkra mála fjölgað hratt, í maí hafi framkvæmdastjórn ESB 30 sinnum sent frá sér viðvörun vegna hættu- legs matar frá Kína. Sem dæmi er nefnt að fundist hafi við eftirlit í Hollandi í febrúar hættulegt, kínverskt A-vítamín er til stóð að blanda í þurrmjólk sem notuð er í stað brjóstamjólkur. Reyndust vera bakteríur, entero- bacter sakazakii, í vítamíninu. Er um að ræða einhverja hættulegustu bakteríu sem hafnað getur í barna- mat, að sögn sérfræðinga ESB. Veldur hún að jafnaði dauða um 20% barna sem fá hana í sig. Kínverjar verða æ umsvifameiri í framleiðslu matvæla, þannig koma nú um 80% af öllu C-vítamíni í heiminum frá Kína. Á lista ESB yf- ir bönnuð efni í mat eru ýmis lit- unarefni, sýklalyf og rotvarnaefni. Vitað er að einnig er flutt inn ólög- lega mikið af kjöti og fiski sem get- ur verið með hlutfall af þung- málmum og eiturefnum eins og díoxíni. Að sögn AFP-fréttastofunnar er einnig mikið um að hvers kyns varningur sem fluttur er til Banda- ríkjanna frá Kína reynist gallaður eða hættulegur. Á þetta við um mat, flugelda, leikföng, lyf og fleira. Fyrirtæki vestra innkallaði nýlega 1,5 milljónir járnbraut- arlesta úr tré, kenndar við Thomas and Friends, vinsælan sjónvarps- þátt er hér á landi nefnist Tommi togvagn. Leikföngin eru framleidd í Kína og er talið að málningin á þeim geti innihaldið hættulegt magn af blýi. „Ég tel að því miður sé nú svo komið að áletrunin Made in China sé orðin viðvörunarmerki í Banda- ríkjunum,“ sagði öldungadeild- arþingmaðurinn Richard Durbin. Hann hefur lengi barist fyrir auknu neytendaeftirliti í Bandaríkjunum. Kínversk vara hættuleg Bandarísk verslun innkallar leikföng vegna ótta við blý Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÞRÍR fyrrverandi samverkamenn Saddams Husseins, fyrrverandi for- seta Íraks, voru í gær dæmdir til dauða vegna fjöldamorða á Kúrdum 1988. Meðal sakborninga er Ali Hassan al-Majid, sem nefndur hefur verið Efnavopna-Ali en einnig hlutu Sultan Hashim Ahmad al-Tai, fyrr- verandi varnarmálaráðherra og Hussein Rashid Mohammed, helsti aðstoðarmaður hans, dauðadóm. Verjendur áfrýjuðu þegar í stað dómunum. Kúrdar flykktust út á götur borga sinna þegar fréttir bárust af niður- stöðunni í gær. „Ég endurfæddist í dag eftir að hafa séð Efnavopna-Ali í búrinu [í réttarsalnum], dauðhrædd- an þegar hann heyrði úrskurðinn,“ sagði Fatima Rasul, 45 ára gömul kona. Hún missti föður sinn og 20 aðra ættingja í herferðinni gegn Kúrdum. Efnavopn gegn óbreyttum borgurum Hryðjuverkin í Kúrdahéruðunum þykja hafa verið með óhugnanleg- ustu verkum stjórnar Saddams, beitt var meðal annars efnavopnum til að drepa tugþúsundir vopnlausra borgara, karla, konur og börn. Myndir sem smyglað var frá héruð- unum og sýndu lík fórnarlambanna vöktu óhug víða um heim. Ekki síst þóttu aðfarirnar í borginni Halabja sýna dæmalausa grimmd, þar var flugherinn látinn varpa efnavopna- sprengjum á borgina þegar þar voru aðallega konur og börn, karlarnir voru við vinnu á ökrunum. Hefur verið fullyrt að Efnavopna- Ali hafi viljað nota tækifærið í Ha- labja og kanna hvernig vopnin virk- uðu. Talið er að rúmlega 180 þúsund Kúrdar hafi fallið í aðgerðum íraskra stjórnvalda sem þau sögðu vera lið í að bæla niður uppreisn. Um sama leyti var að ljúka mannskæðri, átta ára styrjöld milli Íraks og Írans. Dómstóllinn komst að þeirri nið- urstöðu að al-Majid væri sekur um þjóðarmorð, mannúðarglæpi og stríðsglæpi fyrir að skipa her- og ör- yggissveitum sínum að beita efna- vopnum gegn óbreyttum borgurum. Einn sakborninga var sýknaður vegna skorts á sönnunum en tveir, Farhan Mutlaq Saleh, áður yfirmað- ur leyniþjónustunnar í austurhluta Íraks, og Sabir al-Douri, sem var yf- irmaður leyniþjónustu hersins, voru dæmdir í ævilangt fangelsi. Þrír dauða- dómar kveðnir upp í Bagdad Kúrdar fagna og telja að Efnavopna- Ali fái loks makleg málagjöld Ali Hassan al-Majid Sultan Hashim Ahmad al-Tai Í HNOTSKURN »Herferð Saddams gegn kúr-díska þjóðarbrotinu árið 1988 var kölluð Anfal sem merk- ir Herfang. Beitt var m.a. sinn- epsgasi og taugagasi. »Verjendur sögðu að réttmætthefði verið að ráðast á Kúrda, þeir hefðu verið banda- menn Írana í styrjöld ríkjanna. »Verði áfrýjun árangurslausmunu hinir dauðadæmdu verða hengdir innan 30 daga frá lokaúrskurðinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.