Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 17 AUSTURLAND                   ! "#   $ %  &!' ( )   ( '*+#  ,-# ! -* #   .+ /     "/ (% ' 0 1 # 2' "/ 3'%  # " !4 5       -' 6 Eftir Gunnar Gunnarsson SIGURÐUR Ingólfsson og Ólöf Björk Bragadóttir opnuðu nýverið sýninguna „Dúett“ í Gallerí Bláskjá á Egilsstöðum. Þau vinna að útgáfu bókar undir sama nafni þar sem Ólöf myndskreytir sonnettusveig sem Sigurður orti. Sonnettan er bragform sem fá ís- lensk skáld hafa unnið með og enn færri hafa ráðist í gerð sonnettu- sveigs. „Ég nota klassíska, ítalska sonn- ettu, sem er fjórtán línur, hver með ellefu atkvæðum. Hver lokalína er upphafslína næstu sonnettu og sein- asta sonnettan endar á upphafslínu þeirrar fyrstu. Í lokin tek ég upp- hafslínur allra sonnettnanna og mynda seinustu sonnettuna úr þeim. Hún heldur utan um allt efn- ið, sem er unaðsstund tveggja manneskja – og löng – eins og un- aðsstundin á að vera.“ Sigurður segist hafa fengið hug- myndina að sveignum þar sem hann var í næturvinnu á hóteli á Ak- ureyri fyrir fimmtán árum. „Vinnan gekk vel eftir að ég fékk hugmynd- ina og var fljótur að gera fyrsta uppkast. Ég tímdi samt ekki að lesa upp úr sveignum eða sýna hann nokkrum fyrr en ég væri búinn að vinna hann almennilega. Hvert orð þarf að vera ofboðslega pottþétt ef þetta á að vera vel gert. Ég er bú- inn að liggja á verkinu eins og orm- ur á gulli því ég hef verið svo hræddur um að einhver stæli hug- myndinni. Ég er samt ofboðslega sáttur við að því skuli vera lokið núna.“ Frjálst flæði myndanna En það er nokkuð síðan Sigurður leyfði Ólöfu að sjá sonnettusveig- inn. „Ég hef lengi velt fyrir mér hvernig best væri að myndskreyta hann. Ég hef gert fullt af myndum með skírskotanir í sonnetturnar en ekki klárað verkið fyrr en nú,“ út- skýrir hún. „Ég dvaldist í lista- mannsíbúð í Andenes í Vesterålen í Noregi í sumar og ákvað að nota tímann þar til að klára myndirnar þar sem Siggi var búinn að fullmóta ljóðin. Ég fékk mikið næði þar til að hugsa og vinna enda ein í þriggja hæða húsi sem byggt var í kringum árið 1800. Það átti að vera reimt þar en ég fann ekkert fyrir því þó ég fengi andann yfir mig við vinnuna. Líkt og ljóðin renna myndirnar saman í eitt. Það er enginn punktur á eftir hverri mynd frekar en ljóð- unum. Þær eru á mörkum þess að vera abstrakt og hlutbundnar, í þeim er hægt að greina nátt- úruform og annað sem tengja þær ýmsum orðum sem koma fram í ljóðinu,“ segir Ólöf. Sýningin í Bláskjá stendur fram yfir bæjarhátíðina Ormsteiti en bókin er væntanleg seint í haust. Aftur verður lesið úr bókinni í gall- eríinu í tengslum við hátíðina 24. ágúst en þau hyggja á upplestra og kynningar á bókinni og verkunum víðar um Austurland. Hvert orð pottþétt Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Listir Hjónin Ólöf Björk Bragadóttir og Sigurður Ingólfsson standa fyrir sýningunni Dúett í Gallerí Bláskjá. Dúett Sigurðar Ing- ólfssonar og Ólafar Bjarkar Bragadóttur AFL Starfsgreinafélag kallar eftir raunverulegum mótvægisaðgerð- um stjórnvalda við aflaniðurskurði á næsta fiskveiðiári og að hugsað sé fyrir að þær skili sér sem fyrst og fremst á landsvæði sem verst verða fyrir barðinu á samdrætti. Í tilkynningu frá AFLi kemur fram að brýnt sé að flýta þarfa- greiningu vegna sí- og endur- menntunar á Austurlandi, efna til endurmenntunar og starfsþjálfunar sem geri fólki auðveldara um vik í atvinnuleit. Félagið leggur einnig áherslu á að gripið verði til aðgerða sem auðveldi starfsfólki við veiðar og vinnslu að skipta um starfsvett- vang, ef til uppsagna komi. Áhyggjur af fréttaflutningi BÆJARRÁÐ Fljótsdalshéraðs hef- ur áhyggjur af hve á svæðið hallar í fréttaflutningi af veðri. Í júnímán- uði voru langfæstar gistinætur á Austurlandi og var það eini lands- hlutinn þar sem gistinóttum fækk- aði milli ára. Ráðið telur að frétta- flutningurinn komi alvarlega niður á ferðaþjónustu, verslun og annarri þjónustu í sveitarfélaginu. Það leggur áherslu á að þessi þáttur verði skoðaður sérstaklega með til- liti til mikilvægis atvinnugreinanna í þeirri vinnu sem atvinnu- málanefnd stundar nú við stefnu- mörkun í atvinnumálum. 700IS fer víða VERK frá kvikmyndahátíðinni 700IS Hreindýraland verða sýnd í Rússlandi, Bandaríkjunum og Bret- lands á næstunni. Kristínu Schev- ing, framkvæmdastjóra hátíð- arinnar, hefur einnig verið boðið að halda fyrirlestra á sömu stöðum. Vilja raunhæf- ar aðgerðir LANDIÐ UM helgina verður bæjarhátíðin Hafnardagar haldin í Þorlákshöfn. Fjölbreytt dagskrá verður á boðstól- um, má þar t.d. nefna þrjár sýningar sem sérstaklega eru settar upp af til- efni hátíðarinnar. Í hinum gamla mötuneytissal Meitilsins verður sett upp sýning á ljósmyndum frá tíma fyrirtækisins. Einnig sýnir Byggðasafn Ölfuss muni sem varðveittir hafa verið frá þeim tíma. Í Ráðhúsinu verða tvær sýningar. Í sýningarrými bókasafnsins, Gallerí undir stiganum, verður til sýnis sjúkrakista sem notuð var til sjúkra- flutninga og rifjuð upp saga kistunn- ar. Á efri hæðinni, fyrir framan Ráð- húskaffi, verða sýndar ljósmyndir sem Ljósmyndasafni Íslands áskotn- uðust fyrir stuttu. Myndirnar eru frá árinu 1911 og tengjast umsvifum franska sendifulltrúans Brillouins, sem þekktastur er hér á landi fyrir að hafa byggt Höfða. Fleiri tónleikar Boðið verður upp á fleiri tónleika en áður hefur verið. Á fimmtudags- kvöldi kl. 21 hefur Jazzband Suður- lands dagskrá helgarinnar með tón- leikum í Versölum. Á föstudagskvöldið verða, auk útitón- leika með Þorlákshafnarböndum og Hara-systrum, tónleikar með Jónasi Sigurðssyni, fyrrum Sólstrandar- gæja, en hann flytur lög af fyrstu sólóplötu sinni ásamt 9 manna hljómsveit. Með honum í för er danska hljómsveitin Jazirkus. Tón- leikarnir hefjast klukkan 22 í Versöl- um, Ráðhúsi Ölfuss. Á sunnudaginn verða síðan tónleikar með Jóni Ólafssyni í Þorlákskirkju klukkan 17. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar eru að finna á vefnum www.hafnardagar.is. Hafnardagar í Þorlákshöfn Húnaþing | Búið á Sauðá á Vatns- nesi í Húnaþingi vestra er af- urðahæsta fjárbú landsins árið 2006 samkvæmt yfirliti Bænda- samtaka Íslands yfir þau bú sem hafa 100 ær eða fleiri á fóðrum. Á Sauðá voru 356 ær sem skil- uðu 38,2 kílóum af kjöti hver. Lömb til nytja voru 195 eftir hverjar 100 ær. Þetta er að sjálf- sögðu frábær árangur hjá bænd- unum á Sauðá, Aðalheiði Jóns- dóttur og Ellerti Gunnlaugssyni. Þess má geta að veturgömlu ærn- ar skiluðu einnig mjög góðum af- urðum eða 25,6 kílóum hver. Næsta bú hvað afurðir snertir var Sauðadalsá sem einnig er á Vatns- nesinu. Þar skiluðu 389 ær að jafn- aði 38 kílóum af kjöti. Á Sauða- dalsá búa Heimir Ágústsson og Þóra Þormóðsdóttir. Þegar Ellert var spurður um þessar góðu afurðir sagði hann að þar spiluðu nokkur atriði saman. Í fyrsta lagi hefði verið mikil frjó- semi, vanhöld á lömbum hefðu verið tiltölulega lítil og svo hefði vænleiki dilka verið með besta móti. Þar kæmi til að mikill snjór var í fjöllum vorið 2006 og því var að gróa í fjallinu fram undir haust þannig að fé hafði nýgræðing nán- ast allt sumarið. Svo var haustið mjög gott þannig að öll þessi atriði hefðu komið saman og fært þeim mestu afurðina af búinu til þessa. Það skal þó tekið fram að Sauð- árbúið hefur um árabil staðið mjög framarlega hvað afurðir fjár- ins varðar og var í sjötta sæti árið áður með 35,5 kíló eftir hverja á. Ellert sagði að þau hjón væru ekki ein með búskapinn því börnin þeirra þrjú væru öll mjög dugleg að hjálpa til, t.d. um sauðburðinn og einnig aðstoðaði bróðir Ellerts þau á mestu álagstímunum. Sauðá var afurðahæsta fjárbú landsins 2006 Lömb til nytja voru 195 eftir hverjar 100 ær Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Landbúnaður Aðalheiður Jónsdóttir og Ellert Gunnlaugsson hafa náð mjög góðum árangri í sauðfjárbúskapnum. INGIBERGUR Guðmundsson hef- ur verið ráðinn í starf Menningar- fulltrúa Norðurlands vestra. Alls sóttu 11 manns um stöðuna. Ingi- bergur lauk BA-prófi í íslensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1979 og B.ed prófi frá sama skóla ár- ið 1983. Þá stundaði hann framhalds- nám í stjórnun við DPU í Kaup- mannahöfn árið 2003. Ingibergur hefur starfað við Höfðaskóla á Skagaströnd frá 1983, fyrst sem kennari og aðstoðarskólastjóri og sem skólastjóri á árunum 1991 til 2005. Nú síðast starfaði hann sem framkvæmdastjóri fiskmarkaðarins Örva á Skagaströnd. Ingibergur ráðinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.