Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is LAUSN á húsnæðisvanda Kaffi- stofu Samhjálpar er í sjónmáli, að sögn Þóris Haraldssonar, dagskrár- stjóra Samhjálpar. Sagðist hann vonast til þess að málið skýrðist eftir helgi, en þangað til eru skjólstæð- ingar Samhjálpar vegalausir. „Við áttum góðan fund með fram- kvæmdasviði borgarinnar í dag þar sem rætt var um tvo framtíðar- möguleika,“ segir Þórir, en tók fram að ekki væri ljóst hvenær starfsemi Kaffistofunnar gæti hafist í nýju húsnæði. Sagði hann brýnt að finna einhverja bráðabirgðalausn. Mega vera áfram á Hverfisgötu „Núverandi staða er mjög alvar- leg. Það er jafnvont fyrir okkar skjólstæðinga hvort lokað er í tvær vikur eða tuttugu. Ég þakka bara fyrir að veðrið er ekki verra en það er.“ Aðspurður segir Þórir eina af þeim bráðabirgðalausnum sem til greina komi vera að afgreiða mat frá Gistiskýlinu. „Hins vegar snýst Kaffistofan ekki bara um mat- argjafir, því þetta er ekki síður fé- lagsmiðstöð. Ef þetta snerist bara um mat þá væri hægt að útvega rútu og súpupott.“ Kaffistofa Samhjálpar má vera í núverandi húsnæði í bakhúsi að Hverfisgötu 44 í Reykjavík þar til húsið verður rifið. „Það eru örugg- lega einhverjir mánuðir í það,“ segir Þorsteinn Pálsson hjá Leiguíbúðum ehf. sem eiga húsið. Þorsteinn segir að loka hafi þurft húsnæði kaffistof- unnar tímabundið á meðan unnið er að flutningi framhússins á nýja lóð og stærstu vinnuvélar eru að at- hafna sig. Það eigi að taka tiltölulega stuttan tíma. Þorsteinn segir að Samhjálp hafi selt umrætt húsnæði árið 2004 og leigt það af kaupandanum til ársloka 2005. Leiguíbúðir ehf. hafi eignast húsnæðið á árinu 2005 og leyft kaffi- stofunni að vera í húsinu endur- gjaldslaust í 20 mánuði á meðan Samhjálp hefur reynt að finna nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Þorsteinn segir alla bera góðan hug til Samhjálpar og skjólstæðinga hennar og að Leiguíbúðir ehf. séu ánægðar með að hafa getað greitt götu starfseminnar. Þakkar fyrir að veðrið er ekki verra Morgunblaðið/Kristinn Framkvæmdir Verið er að færa húsið við hlið kaffistofu Samhjálpar.  Lausn á húsnæðisvanda Kaffistofu Samhjálpar er í sjónmáli, að sögn dagskrárstjóra Samhjálpar  Segir stöðuna mjög alvarlega, enda skjólstæðingar vegalausir  Fá engan heitan mat fram yfir helgi BÆJARINS beztu fagna 70 ára af- mæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni verður viðskiptavinum boðið upp á pylsur og kók fyrir 20 kr. nú um helgina. „Með þessu móti viljum við þakka góðar móttökur á um- liðnum áratugum og verðlauna góða viðskiptavini í gegnum árin, bæði gamla og nýja. Ég vona því bara að sem flestir mæti,“ segir Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins beztu, og tekur fram að allar tekjur helgarinnar renni óskiptar til góðgerðarmála. „Við ætlum að styrkja Konukot. Málið er mér tengt því sem kona í viðskiptum vil ég styrkja aðrar konur til betra lífs,“ segir Guðrún. Hún hefur staðið vaktina í Bæj- arins beztu sl. 30 ár. Aðspurð hvort hún geti útskýrt vinsældir Bæjarins beztu í gegnum árin hlær Guðrún og svarar: „Ef ég gæti gert það þá væri ég viðskipta- mógúll í útlöndum. En okkar mottó hefur alltaf verið það að gera eins vel og við getum og gera alltaf kröfu um fyrsta flokks hráefni.“ Morgunblaðið/Golli Tekjur helgarinnar fara til styrktar Konukoti Bæjarins beztu eiga 70 ára afmæli GISSUR Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, segir gagnrýni Afls, starfsgreinafélags vera afskaplega ósanngjarna og ómálefnalega og hann kallar eftir því að stéttar- félögin axli ábyrgð á eftirliti með að samning- um sé framfylgt. Málflutningur fé- lagsins stefni nauðsynlegu samstarfi Vinnu- málastofnunar og stéttarfélaganna á þessu sviði í hættu. „Stéttarfélögin geta ekki staðið og hrópað svona al- veg út í loftið án þess að axla þá ábyrgð sem þau hafa,“ sagði hann. Eins og kunnugt er ákvað Vinnu- málastofnun í fyrradag að stöðva ekki vinnu við Hraunaveitu, eins og útlit var fyrir, heldur semja um að Arnarfell tæki á sig ábyrgð á því sem hefur misfarist í samningum við starfsmenn GT verktaka og Hunne- beck Polska sem eru undirverktakar Arnarfells. Í kjölfarið ályktaði stjórn Afls og fordæmdi frestinn sem forstjóri Vinnumálastofnunar hefði gefið. „Stjórnin sættir sig ekki við slíkar undanþágur eins og gefnar hafa ver- ið síðustu daga til GT verktaka og Hunnebeck Polska og niðurstaðan í málinu í dag þann 6. september er slík að stjórn félagsins treystir ekki Vinnumálastofnun til að verja rétt launafólks í landinu,“ segir í álykt- uninni. Gissur sagði að Vinnumálastofnun hefði á fimmtudag fengið afhenta launaseðla og tímaskýrslur vegna starfsmanna þessara fyrirtækja og það væri stéttarfélagsins að fara yfir þau og kanna hvort þau væru í sam- ræmi við samninga. Arnarfell hefði ábyrgst að mennirnir fengju greidd rétt laun og ólöglegu ástandi verið breytt í löglegt. Eftir væri að kanna hvort málum GT verktaka og Hunnebeck yrði vísað til lögreglu. „Ég skal axla þá ábyrgð sem að okkur snýr, en við erum ekkert algilt útlendinga-, skatta-, og kennitölueft- irlit ríkisins,“ sagði Gissur. Ættu ekki að hrópa út í loftið Vinnumálastofnun svarar fyrir sig Gissur Pétursson BRÝNT er að gott eftirlit sé með virkjanaframkvæmdum. Því er mikilvægt að Alþingi ljúki endur- skoðun á skipulagslögum og mann- virkjalögum á vetri komanda, að mati Helga Hjörvar, formanns um- hverfisnefndar Alþingis. Málefni Múlavirkjunar og Fjarð- arárvirkjunar voru m.a. á dagskrá fundar umhverfisnefndar Alþingis í gær, auk umræðu um Gjástykki og starfsáætlun nefndarinnar á 135. löggjafarþinginu. Helgi sagði að á fundinum hefði verið farið yfir ágreiningsmál sem risið hefðu í tengslum við virkjanir og umhverfismál til að skoða hvort þau kölluðu á breytingar á lagaum- hverfi þessara mála. Hann taldi að umfjöllun um fyrrgreindar virkj- anir hefði leitt í ljós mikilvægi þess að á komandi haustþingi yrði tekin fyrir og lokið í vetur endurskoðun á skipulagslögum og mannvirkja- lögum. Það yrði gert til þess að skýra ýmsa þætti og styrkja eftirlitsþáttinn. Þessar virkjanir væru dæmi um þörfina á slíkri endurskoðun laganna. „Þingið hefur gjörbreytt orkuiðnaðinum með samkeppnisvæðingu,“ sagði Helgi. „Nú eru einkafyrirtæki farin að ráðast í virkjanir og þar getur meðal annars skipt verulegu fjár- hagslegu máli hversu langt er gengið í stíflugerð, gerð uppistöðu- lóna og öðru slíku. Því er enn brýnna en áður að eftirlitið með þessum framkvæmdum sé sterkt og gott. Ég held að enginn vafi leiki á að á það hefur skort í þess- um tveimur málum.“ Efla þarf eftirlit með virkjunum Mikilvægt að ljúka endurskoðun laga Helgi Hjörvar ÞÓTT dómara hafi þótt framburður tveggja manna sem voru ákærðir fyrir að hafa ætlað að kveikja í at- vinnuhúsnæði á Stokkseyri í janúar 2004 með „nokkrum ólíkindablæ“ og ýmislegt hafi verið tínt til, þ.á m. upptökur af samtölum, sem gátu bent til sektar þeirra, voru þeir sýknaðir í Héraðsdómi Suðurlands í gær þar sem ekki var loku fyrir það skotið að aðrir en þeir hefðu átt hlut að máli. Lögreglan á Selfossi fékk í byrjun janúar 2004 ábendingu um að tveir menn legðu á ráðin um að kveikja í húsi, sem var í eigu annars þeirra, til að svíkja út tryggingafé. Í kjölfarið hleraði lögregla símtöl þeirra og vaktaði húsið. Að kvöldi 29. janúar sáu lögreglumenn bifreið ekið upp að húsinu og sáu annan ákærða fara þar inn og koma út skömmu síðar. Hann og maður sem var með honum í bif- reiðinni voru handteknir í kjölfarið og var hann þá með hvíta hanska og lyktuðu föt hans af olíu. Þegar lög- reglumenn fóru inn í húsið sáu þeir að kveikt hafði verið á kertum ofan á kæliborði en yfir því voru pappa- kassastæður, sterk olíulykt var í húsinu og kassarnir blautir auk þess sem stór olíubrúsi lá ofan á þeim. Maðurinn kvaðst fyrir dómi ekki hafa kveikt á kertunum heldur kom- ið að þeim logandi en ákveðið að fara út í bifreið til þess að ræða við félaga sinn hvort hann ætti að slökkva á þeim. Þetta þótti dómnum raunar „sérstaklega ótrúverðug“ frásögn. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að lögregla kannaði ekki húsið áður en vöktun hófst umrætt kvöld og að unglingar höfðu áður gert sig þar heimakomna. Því þótti ekki útilokað að aðrir en mennirnir tveir hefðu lagt á ráðin um íkveikju. Hjörtur O. Aðalsteinsson kvað upp dóminn. Með „nokkrum ólíkindablæ“ Jakob Ágúst Hjálmarsson | 7. sept. Samhjálp í verki Í starfi mínu sem prestur í miðborg- inni hef ég margsinnis séð í hendi mér mikilvægi kaffistofu Sam- hjálpar og séð ástæðu til að þakka það sem og rekstur þeirra á Gisti- skýlinu. Það verður að tryggja áframhaldandi rekstur kaffistof- unnar. Meira: jagust.blog.is Nanna Katrín Kristjánsdóttir | 7. sept. Nei, þetta má ekki! Við getum ekki bara leyft þeim að loka þessari kaffistofu. Þetta er al- gjör nauðsyn og ein slík stofa verður að minnsta kosti að vera opin. Þró- unin ætti að vera í hina áttina. Það ætti frekar að opna gistiheimili og fleiri slíka staði sem hjálpa fólki sem býr á götunni. Meira: nanna.blog.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.