Morgunblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ knattspyrna Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Willum Þór hefur þjálfað mfl. karla samfellt í áratug eða frá árinu 1997 og á þessum tíma hefur hann landað þremur Íslandsmeistaratitlum og einum bikarmeistaratitli. Hann gerði KR að meisturum 2002 og 2003 en hann tók við Val fyrir leiktíðina 2005. Liðið varð bikarmeistari 2005 og endaði í 3. sæti deildarinnar. Í fyrra endaði Valur í öðru sæti á eftir FH og í ár tókst Hlíðarendaliðinu að velta Fimleikafélaginu úr efsta sæt- inu. Árangur Vals í ár athygliverður þegar litið er á þær aðstæður sem liðið hefur búið við á undirbúnings- tímabilinu. Lið án heimilis Valur er lið sem hefur hvergi átt heima undanfarin tvö ár en gríðarleg uppbygging hefur staðið yfir á heimavelli félagsins, Hlíðarenda. Leikmenn Vals í öllum flokkum hafa verið á faraldsfæti um alla Reykja- víkurborg til þess að æfa við ýmsar aðstæður og segir þjálfarinn að það hafi verið mikil áskorun fyrir leik- menn og forsvarsmenn liðsins að æfa með þessum hætti. „Við vorum út um allt að æfa. Þar má nefna Sporthúsið, Egilshöll, Hreyfingu, Leiknisvöll og Hlíðar- enda þegar færi gafst. Við tókum þá ákvörðun að æfa mikið í Sporthúsinu á pínulitlum velli með 25 manna hóp. Það gerðum við til þess að yngri flokkarnir gætu æft eitthvað á skikk- anlegum tímum á gervigrasvöllum annarra félaga. Ég tel að leikmenn liðsins hafi mætt þessu vandamáli með opnum hug og við reyndum að vera jákvæðir og hafa gaman af þessari áskorun.“ Willum segir að það verði lítil breyting á undirbún- ingstímabili Vals fyrir næstu leiktíð. „Því miður er ekki búið að ljúka við að byggja upp góða vetraraðstöðu fyrir knattspyrnumenn og konur í Val. Að öðru leyti er aðstaða félags- ins í hæsta gæðaflokki en ég tel að það þurfi að flýta framkvæmdum við uppbyggingu á gervigrasvelli við Hlíðarenda á næstu misserum. Ekki síst fyrir yngri flokka félagsins sem eru að glíma við sömu vandamál og við.“ Leikurinn gegn Cork var slys Þjálfarinn telur að kveikjan að vel- gengni liðsins á þessari leiktíð hafi komið eftir lægð sem liðið var í í lok júní. „Við töpuðum gegn ÍA og gegn Cork frá Írlandi í Evrópukeppninni. Það voru vissulega mikil vonbrigði að ná ekki betri árangri í Evrópu- keppninni en ég lít svo á að heima- leikurinn gegn Cork hafi verið slys, 2:0-tap, en 1:0-sigur okkar á útivelli sýndi okkur hvað við gátum gert. Í kjölfarið náðum við að sigra FH á Laugardalsvelli, 4:1, og eftir það fannst mér við alltaf að vera taka eitt skref í átt að meistaratitlinum.“ Samstaða leikmannahópsins er efst í huga þjálfarans þegar hann er spurður um styrkleika Valsliðsins. „Það sem mér finnst standa upp úr er að menn eru ekkert að draga úr eða væla þegar á móti blæs. Ég nefni leikmenn á borð við Daníel Hjalta- son, Hafþór Ægi Vilhjálmsson, Gunnar Einarsson, Kristinn Hafliða- son, Dennis Bo Mortensen og fyr- irliðann Sigurbjörn Hreiðarsson. Baldur Bett hefur líklega aldrei leik- ið eins vel á ferlinum sem varnar- sinnaður miðjumaður. Sigurbjörn fékk að finna fyrir þeirri samkeppni og hann var kominn í þá stöðu að vera varamaður. Sigurbjörn tók þessu eins og menn eiga að gera. Hann hvatti menn áfram á æfingum og lagði enn harðar að sér. Þegar við þurftum á honum að halda eftir að Baldur fór úr axlarlið þá sýndi fyr- irliðinn hvað í honum býr. Ég get fullyrt að Sigurbjörn hefur aldrei leikið betur en gegn FH í næst síð- ustu umferð. Þessi andi var til staðar í hópnum í allt sumar.“ Willum nefnir einnig að koma Helga Sigurðssonar til Vals hafi reynst happafengur. „Helgi er mjög sérstakur framherji. Hann er alltaf ógnandi og sér alltaf möguleika í öll- um stöðum fyrir framan markið. Hann fer alltaf stystu leiðina að marki og þeir eru vandfundnir fram- herjar sem leggja eins mikið á sig fyrir liðið.“ Valsliturinn er rauður en sá litur hefur aldrei farið á loft hjá dómurum Landsbankadeildarinnar sem dæmt hafa leiki Valsliðsins en leikmenn liðsins fengu aldrei rautt spjald í 18 leikjum.„Við höfum lagt mikla áherslu á það að halda okkur við knattspyrnureglurnar þegar kemur að brotum og slíku. Þannig er það á æfingum og þannig á það að vera í leikjum. Menn eiga heldur ekki að vera tuða eitthvað í dómaranum. Það hefur ekkert upp á sig.“ Aðstoðarþjálfarinn tók út meiðslin fyrir liðið Valsliðið hefur einnig verið tiltölu- lega heppið með meiðsli en Willum segir að aðstoðarþjálfari Vals, Þór Hinriksson, hafi verið sá sem hefur séð um að taka út meiðslin fyrir leik- mannahópinn. „Þór hefur lent í ýmsu á undanförnum árum, slitið hásin, fengið högg og skrámur, og hann var sá eini sem gat ekki lyft bikarnum á loft á laugardaginn þar sem hann fór í aðgerð s.l. fimmtudag. Þór sleit vöðvafestingu í upphandleggsvöðva á æfingu hjá okkur, þar sem hann var í marki, og menn leggja ýmislegt á sig fyrir Val,“ sagði Willum Þór Þórsson. „Vorum út um allt að æfa“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sá stóri Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, átti ekki í vandræðum að lyfta Íslandsbikarnum á loft á Laugardalsvelli enda vanur maður þar á ferð. „ÉG er aðeins að ná áttum eftir við- burðaríkan sólarhring. Sigurhátíð Valsmanna á Hlíðarenda á laug- ardagskvöld sýndi að stuðnings- menn liðsins voru búnir að bíða lengi eftir Íslandsmeistaratitlinum. Það voru miklar tilfinningar í gangi á þeirri hátíð og gaman að sjá gamla og gegnheila Valsmenn fagna með þessum hætti,“ sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Vals en liðið tryggði sér Íslandsmeist- aratitilinn í lokaumferð Lands- bankadeildarinnar eftir 1:0-sigur gegn HK. Í HNOTSKURN »Valur varð síðast meistariárið 1987 undir stjórn Ian Ross. Frá þeim tíma hafa 10 þjálfarar komið að hjá félag- inu. Hörður Helgason, Guð- mundur Þorbjörnsson, Ingi Björn Albertsson, Kristinn Björnsson, Hörður Hilm- arsson, Sigurður Grétarsson, Ejub Purisevic, Þorlákur Árnason, Njáll Eiðsson og Willum Þór Þórsson. »Ólafur Jóhannesson þjálf-ari FH lék 5 leiki með Val árið 1987 þegar liðið varð síð- ast Íslandsmeistari. »Valur hefur 20 sinnumfagnað Íslandsmeist- aratitlinum.  „Samstaðan í hópnum er einstök,“ segir Willum Þór Þórsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Vals Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is GRÍMUR Sæmundsen, formað- ur Knattspyrnufélagsins Vals, brosti allan hringinn þegar Morgunblaðið dró hann út úr búningsklefa Valsmanna þar sem langþráðum Íslandsmeist- aratitli var fagnað á viðeig- andi hátt. Grímur var fyrirliði Vals í mörg ár og lyfti bikarnum á loft árið 1985 en það ár lagði hann skóna á hilluna. „Það er stórkostlegt að vera formaður Vals og ég held að þetta ár sé að verða eitt stærsta árið í sögu félagsins. Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki í fótboltanum, Íslandsmeistari karla í hand- bolta og ný mannvirki á Hlíð- arenda. Það er stórkostleg stemning í klúbbnum,“ sagði Grímur við Morgunblaðið. „Ég kom að liðinu þegar það féll í fyrsta sinn úr efstu deild árið 1999 sem formaður knattspyrnudeildarinnar. Ég tók þátt í að koma liðinu upp ári seinna. Við féllum aftur 2001, fórum upp 2002 og þá tók ég við sem formaður fé- lagsins. Við fórum aftur niður 2003 en unnum sæti okkar í efstu deild ári síðar svo þetta er búið að vera mikil brekka sem við höfum gengið í gegn- um. En með þrotlausri vinnu hefur okkur nú tekist að upp- skera og framtíð félagsins er ákaflega björt. Krafturinn í félaginu er gríðarlegur og mér er til efs að önnur lið hefðu getað gengið í gegnum svona mótlæti. Okkur tókst það fyrst og fremst vegna þess hve kjarninn er sterkur hjá Val.“ Hvað heldur þú að hafi gert útslagið með að Valur stóð uppi sem sigurvegari? „Það er margt sem spilaði þar inn í. Strákarnir héldu alltaf sínu striki og létu ekki slá sig út af laginu þótt FH væri í forystusætinu nær allan tímann. Willum náði að halda einbeitingunni í liðinu allan tímann og á sama tíma og FH missti dampinn og spilaði ekki eins vel og það gerði gripu mínir menn tækifærið.“ Krafturinn gríð- arlegur í félaginu Grímur Sæmundsen, fyrrverandi fyrirliði Vals og núverandi formaður félagsins, seg- ir þrotlausa vinnu vera að skila árangri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.