Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 3 Augustas Strazdas, leikmaðurHK, tekur út leikbann í kvöld þegar HK heimsækir Stjörnuna í Mýrina í Garðabæ í 8. umferð efstu deildar karla í handknattleik. Straz- das var útilokaður í viðureign sömu liða í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn.    Einar Hólm-geirsson skoraði 6 mörk fyr- ir Flensburg og Al- exander Petersson 1 þegar liðið rót- burstaði Wetzlar, 37:20, í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í gær.    Kjartan Henry Finnbogason erþessa dagana til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Álasund. Kjartan Henry mætti á sína fyrstu æfingu með liðinu í gær og verður til reynslu hjá liðinu næstu dagana. Hann var á lánssamningi hjá sænska 1. deildarliðinu Åvidaberg í sumar en var þar áður á mála hjá Celtic í Skot- landi.    Hvorki Snorri Steinn Guðjónssonné Ásgeir Örn Hallgrímsson komust á blað í liði GOG þegar liðið sigraði Viborg, 31:26, í dönsku úr- valsdeildinni í handknattleik í gær.    Njarðvíkingar hafa komist aðsamkomulagi við bandaríska leikmanninn Damon Bailey og er honum ætlað að fylla það skarð sem að landi hans Charlstone Long skilur eftir sig. Long þótti ekki standa undir væntingum í fyrstu fjórum um- ferðum Iceland Express-deildar- innar. Bailey er þekkt stærð hér á landi en hann lék með Hamars- mönnum veturinn 2004-2005. Bailey lék þrjá leiki með Grindavík haustið 2005 og í fyrra lék hann með Þór úr Þorlákshöfn. Hann hefur skorað 24,5 stig að meðaltali 47 leikjum í efstu deild á Íslandi.    Sigurður Ari Stefánsson skoraði 6mörk fyrir Elverum, Samúel Ív- ar Árnason 3 og Ingimundur Ingi- mundarson 2 þegar liðið sigraði Stord, 26:21, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Elverum er í 10. sæti af 12 liðum með 6 stig eftir átta umferðir.    Magnús Ísak Ásbergsson skoraði3 af mörkum Kragerö þegar liðið tapaði fyrir Sandefjörd, 30:23. Kragerö er án stiga eftir átta umferð- ir. Fólk sport@mbl.is ALÞJÓÐA sundsambandið, FINA, hefur hætt við rannsókn sína á meintri notkun ástralska sundkappans Ians Thorpe á ólöglegum lyfj- um. Ástæðan er skortur á sönnunargögnum, að sögn talsmanns FINA. Fyrr á þessu ári var Thorpe sýknaður af lyfjadómstól ástralska íþróttasambandsins um grun í neyslu ólöglegra lyfja. Thorpe, sem varð heimsþekktur er hann vann til fimm gullverð- launa á Ólympíuleikunum í Sydney fyrir sjö árum, hætti keppni undir lok síðasta árs vegna meiðsla þá 24 ára. Í upphafi var lyfjamálið talið tengjast ákvörðun Thorpe en hann sagði ekki stoð vera til í þeim vangaveltum. Á síðasta ári greindist óeðlilega hátt hlutfall tveggja hormónalyfja í sýni sem tekið var af Thorpe, estosterone og leutenising. Frá upphafi hefur hann neitað að hafa neytt ólöglegra lyfja og að orsökin fyrir því að fyrrgreind efni mældust í svo miklu magni í líkama sínum væri af náttúrulegum ástæðum; hann væri ein af undantekningunum enda finnast þessi efni í líkama hvers manns. Forsvarsmenn lyfjaeftirlits FINA voru á örðu máli og freistuðu þess að sanna mál sitt en hafa nú eftir marga mánaða vinnu játað sig sigraða og gefið sóknina gegn Thorpe upp á bátinn. FINA hættir við rannsókn á Thorpe HOLLENDINGURINN Ruud Gullit var í gær nefndur til sögunnar sem næsti þjálfari bandaríska knattspyrnuliðsins Los Angeles Galaxy, sem er langþekktasta knattspyrnu- liðið í Bandaríkjunum og víðar. Ástæðan er einföld. Enski landsliðsmaðurinn David Beckham leikur með félaginu. Það var Sky fréttastöðin sem greindi frá þessum vanga- veltum en Gullit starfar hjá sjónvarpsstöð- inni sem knattspyrnusérfræðingur. Ef Gullit tekur liðið að sér mun hann stýra sinni fyrstu æfingu í mars á næsta ári en hann er 45 ára og var hann tvívegis kjörinn besti knattspyrnu- maður heims – 1987 og 1989. Gullit var þá leikmaður ítalska liðs- ins AC Milan en hann hefur einnig komið við sögu hjá Feyenoord, PSV Eindhoven, Sampdoria og Chelsea. Hann var knattspyrnustjóri hjá Chelsea og einnig hjá New- castle í Englandi og hann var þjálfari hjá Feyenoord í Hollandi. Tekur Ruud Gullit við LA Galaxy? Ruud Gullit Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 20 mínúturnar fyrir Barcelona sem vann sanngjarnan sigur á Rangers á Nou Camp og fátt sem getur komið í veg fyrir að Barcelona fari áfram. Thierry Henry skoraði eftir aðeins sex mínútna leik og Lionel Messi bætti við öðru á markamínútunni – 43. mínútu. Í síðari hálfleik tóku Katalóníumennirn- ir lífinu með ró en sigur þeirra var aldrei í hættu. Eiður Smári skipti við Iniesta og lék á miðjunni síðustu 20 mín. en hafði frekar hægt um sig. ,,Rangers mætti til leiks með því hugarfari að verjast eingöngu og fyrir vikið var leikurinn ekki sú skemmtun tókst að jafna metin í 2:2 á lokamín- útunni. Liedson skoraði bæði mörk heimamanna. Ítalíumeistarar Inter og tyrkneska liðið Fenerbache eru í góðri stöðu í H- riðlinum að komast áfram. Inter átti frábæra endurkomu gegn CSKA á San Síró. Gestirnir frá Rússlandi komust í 2:0 en Inter-menn lögðu ekki árar í bát og svöruðu með fjórum mörkum. Zlatan Ibrahimovic og Cambiasso gerðu tvö mörk hver fyrir Inter. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gaf minni spámönnum tækifæri gegn Slavia Prag en liðin skildu jöfn, 0:0, í tilþrifalitlum leik. Stigið dugði Arsenal til að komast áfram og líklegt er Se- villa fari einnig áfram en liðið gerði góða ferð til Rúmeníu og lagði Steaua, 2:0. Renato skoraði bæði mörkin. ,,Við gerðum það sem við ætluðum okkur, það er að tryggja okkur áfram. Við vörðumst vel og ég var ánægður með að halda marki mínu hreinu og mína frammistöðu,“ sagði Manuel Almunia, markvörður Arsenal. leystu verkefni sín vel af hendi,“ sagði Sir Alex Ferguson, sem í vikunni fagn- aði 21 árs starfsafmæli sínu hjá félag- inu. David Pizarro kom Roma til bjargar gegn Sporting í Lissabon en honum sem ég hefði viljað bjóða 82.000 manns upp á. Við gerðum samt okkar og ég get ekki annað en hrósað leikmönnum mínum,“ sagði Frank Rijkaard, þjálf- ari Börsunga, eftir leikinn. Baráttan um annað sætið í riðlinum er hörð á milli Lyon og Rangers. Frönsku meistararnir lögðu Stuttgart á heimavelli, 4:2, og eru með 6 stig í þriðja sæti, Rangers hefur 7 en Barce- lona 10. Hatem Ben Arfa skoraði tvö af mörkum Lyon en Mario Gomez gerði bæði mörkin fyrir Stuttgart. Englandsmeistarar Manchester United höfðu mikla yfirburði gegn Dy- namo Kiev, 4:0. Gerard Pique, sem lék í stað Rio Ferdinand, skoraði fyrsta markið og um leið sitt fyrsta í Meist- aradeildinni og þeir Carlos Tevéz, Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo bættu þremur mörkum við sem hefðu hæglega geta orðið fleiri. ,,Þetta voru frábær úrslit sem tryggði okkur áfram í keppninni og við erum glaðir með það. Þetta var aldrei spurning. Mínir menn léku vel og ungu strákarnir sem fengu tækifæri AP Snilld Þriðja mark Manchester United gegn Dynamo Kiev er hér í fæðingu. Wayne Rooney lætur skotið ríða af og andartaki síðar lá knötturinn í markneti úkra- ínska liðsins. Ensku meistarararnir fóru með sigur af hólmi, 4:0, og eru komnir áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Man. Utd. og Arsenal fyrst allra liða í 16 liða úrslitin MANCHESTER United og Arsenal voru fyrstu liðin til að tryggja sér far- seðilinn í 16 liða úrslit Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær. United vann stórsigur á Dynamo Kiev, 4:0, og hefur fullt hús stiga, og Arsenal gerði markalaust jafntefli gegn Slavia Prag sem dugði til að fleyta Lundúnaliðinu áfram í keppn- inni. Í HNOTSKURN »Manchester United ogArsenal eru einu liðin sem eru komin áfram í 16 liða úr- slitin en tvær umferðir eru eft- ir af riðlakeppninni. »Zlatan Ibrahimovic, Inter,og Cristiano Ronaldo, Manchester United, eru markahæstir í Meistaradeild- inni en báðir hafa skorað fjög- ur mörk. »Andrea Pirlo úr Evrópu-meistaraliði AC Milan hef- ur átt flestar stoðsendingarn- ar í riðlakeppninni eða fjórar talsins. JUANDE Ramos, nýráðinn knattspyrnu- stjóri Tottenham, lét hafa eftir sér í gær að hann væri tilbúinn að leyfa búlgarska sókn- armanninum Dimitar Berbatov að yfirgefa félagið ef hann væri óánægður í herbúðum liðsins. Fregnir herma að Manchester Unit- ed hafi mikinn áhuga á að fá Berbatov í jan- úar þegar leikmannamarkaðurinn verður opnaður að nýju en eftir því hefur verið tekið að Berbatov er ekki allt of glaður með vistina hjá Lundúnaliðinu sem hefur vegnað afar illa á tímabilinu. ,,Ég er þeirrar skoðunar að ekki sé hægt að þvinga leikmenn til að vera í liðinu ef þeir vilja það ekki. Það er ekki gott fyrir lið- ið né leikmanninn svo ég mun ekki standa í vegi fyrir neinum að fara frá okkur kjósi þeir það. Ég held að Berbatov sé ánægður en þessari spurningu verður að beina til hans,“ sagði Ramos við fréttamenn í gær en Tottenham mætir Hapoel Tel-Aviv í UEFA-bikarnum í Ísrael í kvöld. Berbatov getur farið ef hann er óánægður Dimitar Berbatov

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.