Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 65
Glæsilegt úrval af dömuskóm úr
leðri. Margar gerðir og litir. Stærðir:
36 - 41. Verð: frá 8.300.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18, lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
Toyota Tacoma 2006
Til sölu 38" breyttur, ekinn um 20 þús.
mílur, læstur aftan og framan, auka-
tankur, hlutföll og fl. og fl. Verð 5,2
stgr., engin skipti. Uppl í síma 894 4708.
Silverado 2004, Duramax Diesel
35" breyting, lok á palli, upphituð
leðursæti og allur aukabúnaður. Inn-
fluttur frá Texas fyrir ári síðan, nánast
eins og nýr. Verðhugmynd 3 millj. kr.
Uppl í síma 894 5056 og 897 3015.
M.BENZ M ML 500
Til sölu ML500 4x4, árg. 11/06, ekinn
15.000, umboðsbíll, verð 7.5 m, áhv.
6,3 m, sk.ath. ód., uppl. í síma 820
8096 eða á Bílasölu Selfoss.
Lexus IS200 árg.'03, ek. 77.000 km
Glæsilegur og vel með farinn Lexus
IS200, álfelgur, aftakanleg dráttar-
kúla, cd-magasín, spoilerkitt. Ásett
verð 2390 þús. Upplýsingar í síma
899 1144.
HONDA HRV SPORT 4WD
Árg. ‘05, ek. 31 þús.Fæst gegn yfirt. á
láni kr. 1600 þús. og 70 þús. fylgja
f. bensíni eða jólagjöfum. Mjög góð
nagladekk fylgja. ABS- Álfelgur-
Fjarst. samlæs.- CD- Glertopplúga-
Hiti í sætum- Innspýt.- Lofkæl.- Rafdr.
rúður- Rafdr. speglar ofl. Upplýsingar
á Bílahöllin Bílasala, sími 567 4949.
Frábært verð! Hyundai Santa Fe,
árgerð 2005, ekinn 74 þús. km
NÝ TÍMAREIM OG NÝYFIRFARINN.
Verð aðeins 1.990.000 kr., 100 þús. út
og 32 þús. á mánuði. 70 mánuðir
eftir (viðmiðunarverð er 2.250 þús.).
Upplýsingar í síma 662 0435. Til
sýnis fyrir utan Prestastíg 8, 113 R.
Einn snotrasti skutbíll landsins
er til sölu. Dodge Magnum RT, nýskr.
júní 2006, ekinn 14þkm. Vél 5.7l
Hemi, 365 hestöfl. Vetrar og sumar-
dekk á 18" felgum ásamt 22" sumar-
blingurum. Mikið breyttur bíll,
myndir og nánari upplýsingar má
finna á vefnum: http://maria.blog.is
/album/magnum og http://maria.
blog.is/ blog/maria/entry/302467.
Verð: 4.5 milljónir. Nánari upplýsingar
veitir Ólafur í síma 864-4943.
AUDI Q7 4,2, BENSÍN, 350 HÖ
Til sölu Audi Q 7 4,2, árg. ‘07, 4x4,
ek. 20.000, lyklal. aðg., rafdr. aftur-
hleri, bose-hljómkerfi, hiti í stýri,
aksturst. 7 manna, 20” felgur, bakk-
myndavél, Panorama toppl. ofl. ofl.
Verð 7.5m, áhv. ca. 6,5 m Sk.ath. ód.
Uppl í síma 820 8096 eða á Bílasölu
Selfoss.
Barnavörur
Jólagjafir
Mikið úrval af Hello Kitty húfum
kr. 1290, húfa, trefill og vettlingar
saman á kr. 2290, eyrnaskjól og vett-
lingar kr. 1890. Mikið úrval af Hello
Kitty töskum og bakpokum
Skarthúsið, Laugavegi 12
sími 562 2466
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Kristófer Kristófersson
BMW.
861 3790.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Mótorhjól
Til sölu:
X Motos Super Pit
Mótorcrosshjól, 250 cc, 5 gíra dirt
bike, hæð sætis 90 cm, hæð undir
pönnu 32 cm, upside down, demparar
stillanlegir. Verð 267.000, nú 198.000
Ítölsk hönnun af vespum, 50 cc. Fjórir
litir, Abs-bremsur, fjarstart, þjófavörn,
álplata í gólfi, 12 tommu breið dekk.
Kr. 188.000 með götuskráningu og
hjálmi. Mjög vandaður kassi fylgir.
Hippar
250 cc. Þjófavörn og fjarstart, hliðar-
töskur, veltigrind, aukaluktir,allir
mælar, tveir standarar.
Kr. 398.000. Nú 298.000.
Mótor og sport ehf.,
Síðumúla 34,
108 Reykjavík.
Sölusímar 567 1040,
www.motorog sport.is
Jólagjafir
Mikið úrval af Dóru Explorer vörum
m.a. húfusett, eyrnaskjól og hár-
spangir. Margar gerðir af töskum og
bakpokum
Skarthúsið, Laugavegi 12.
Sími 562 2466.
Gefðu hlýjar gjafir um jólin
Undurhlýr ullarfatnaður fyrir börn og
fullorðna. Einnig lífrænn fatnaður,
útigallar, heilsuvörur og m.fl. ÞUM-
ALÍNA – efst á Skólavörðustígnum.
Næg bílastæði um jólin. S. 551 2136.
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið,
Peysur í plús stærð.
Litir; Drap, svart, lila,bleik,ljósblá.
Verð kr. 4.990,-
Opið Laugardag og sunnudag
Sími 588 8050.
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Jakki, 100% ull, litur: rautt, svart,
grátt. St. S – XXXL. Verð kr. 7.650.
Pils, litur: svart/rautt, svart/grátt,
svart/lila. St. S – XXXL.
Verð kr. 3.990.
Blúndutoppur, (ermalaus)
litur: rautt, svart.
St. S – XXXL, Verð kr. 3.900.
Sími 588 8050.
Félagslíf
Raðauglýsingar
Tilvalin jólagjöf - Gjafakort
Útivistar
Jólagjöfin í ár er ferð til
fjalla. Gjafabréf frá Útivist er því
tilvalið í jólapakkann. Það er
undir þér komið hvort það er
fyrir ákveðna ferð eða upphæð.
Bókun stendur yfir í okkar
vinsælu Áramótaferð,
tryggðu þér pláss!
29.12. - 1.1.2008. Áramót í
Básum
Brottför frá BSÍ kl. 08:30.
0712HF01 V. 16500/17500 kr.
5.1.2008. Þrettándaferð -
jeppaferð
Jeppadeildin byrjar árið í Básum
með ferð sem hentar vel fyrir
alla fjölskylduna. Ef snjóalög eru
hagstæð er upplagt fyrir göngu-
skíðafólk að skella sér með.
Kröfur um búnað jeppafara eftir
færð og veðri. Þátttaka háð
samþykki fararstjóra.
25.-27.1.2008 Þorrablót
verður haldið í Nesbúð -
Fosshótel.
Fararstjórar Fríða Hjálmarsdóttir
og Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir.
Skráningar í ferðir á skrif-
stofu Útivistar í síma 562 1000
eða utivist@utivist.is Sjá nánar
á www.utivist.is
Tónlist
Jólalög í jólaboðið og
fyrir helgarveizlur
Komdu öllum á óvart með lifandi
tónlist.
Ólöf fiðluleikari í Sinfóníunni,
gsm 692 0502.
Verslun
Rafhlöðukerti!
Rafhlöðukerti úr vaxi eða silikoni.
Enginn hiti, engin eldur! - Enginn
reykur, ekkert sót! - Langur líftími
á rafhlöðu! Tilvalin fyrir kerta-
skreytinguna eða þar sem hefðbundin
kerti eru ekki leyfileg.
Gosbrunnar ehf - Langholtsvegi
109, á bakvið. S:695-4220.
Smáauglýsingar 569 1100
HRAFN Loftsson varði doktorsritgerð
sína í tölvunarfræði/máltækni við University
of Sheffield hinn 3. júlí sl. Leiðbeinandi
Hrafns var prófessor Yorick Wilks og and-
mælendur við doktorsvörnina voru dr. Mark
Hepple frá University of Sheffield og dr.
Jean-Pierre Chanod frá Xerox Research
Centre Europe.
Doktorsritgerðin er afrakstur þriggja ára
rannsókna sem Hrafn hefur stundað við Uni-
versity of Sheffield og Háskólann í Reykja-
vík. Ritgerðin heitir „Tagging and Parsing Icelandic text“ og
fjallar um hversu árangursríkt og hagkvæmt er að beita aðferð-
um sem byggjast á málfræðilegri þekkingu við mörkun og þátt-
un íslensks texta. Í þeim tilgangi var þróað safn forrita – mál-
tæknieininga – sem samanstendur m.a. af markara,
orðhlutagreini og þáttara. Markarinn er málfræðilegur reglu-
markari og hlutverk hans er að greina sérhvert orð í texta í orð-
flokk og beygingarleg einkenni. Hlutverk orðhlutagreinisins,
sem einnig byggist á reglum, er að giska á mögulega greininga-
strengi orða sem finnast ekki í orðasafni markarans. Hlutverk
þáttarans, sem byggist á endanlegum stöðuaðferðum, er að
greina setningar í setningarliði og setningafræðileg hlutverk. Í
ritgerðinni er borin saman nákvæmni málfræðilega reglumark-
arans við þekkta gagnamarkara, þ.e. markara sem læra af fyr-
irfram markaðri málheild, og gerðar tilraunir með samsetningu
mismunandi markara. Jafnframt er borin saman nákvæmni þátt-
arans við sambærilega þáttara fyrir önnur tungumál.
Niðurstöður verkefnisins benda til að það sé bæði hagkvæmt,
m.t.t. til þróunartíma, og árangursríkt, m.t.t. nákvæmni, að beita
aðferðum sem byggjast á málfræðireglum við mörkun og þáttun
íslensks texta. Markarinn var þróaður á styttri tíma en almennt
hefur verið talinn nauðsynlegur fyrir þessa tegund markara og
mörkunarnákvæmni hans, 91,5%, er hærri en nákvæmni gagna-
markara. Í ritgerðinni er að auki sýnt fram á að með því að setja
saman mismunandi markara er hægt að ná 93,5% nákvæmni.
Hlutaþáttarinn var einnig þróaður á skömmum tíma og ná-
kvæmni hans, 96,7%, er sambærileg við nákvæmni hlutaþáttara
fyrir skyld tungumál.
Afrakstur verkefnisins hefur mjög hagnýtt gildi því að mál-
tæknieiningarnar, sem þróaðar voru, munu geta nýst sem
grunneiningar í ýmiss konar máltæknikerfum og máltækniverk-
efnum. Hér má nefna málfræðileiðréttingarkerfi, vélrænar þýð-
ingar, upplýsingaútdrátt og gerð markaðra og setningagreindra
málheilda.
Hrafn fæddist í Reykjavík 1965 og er sonur Hönnu Kristínar
Stefánsdóttur og Lofts Guttormssonar. Hann er stúdent frá eðl-
isfræðideild Menntaskólans við Hamrahlíð 1985, lauk BS-námi í
tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 1989 og MS-námi í tölv-
unarfræði og aðgerðargreiningu frá Pennsylvania State Uni-
versity 1992. Hrafn er kvæntur Guðnýju Eysteinsdóttur mynd-
listarkonu og eiga þau tvö börn, Guðrúnu og Hilmi. Hrafn
starfar sem lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Doktor í máltækni
Hrafn Loftsson
SIGURRÓS Davíðsdóttir varði dokt-
orsritgerð sína í klínískri sálfræði við Bost-
on University í Boston, Bandaríkjunum,
hinn 27. júlí 2006. Ritgerðin ber heitið Vi-
sual, spatial and spatiotemporal perceptual
deficits in Parkinsons’s disease and their
association with veering and freezing of
movement. Aðalleiðbeinandi hennar var
Alice Cronin-Golomb, prófessor í sálfræði
við Bostonháskóla.
Markmið rannsóknar Sigurrósar var að
kanna nánar eðli þeirra breytinga sem
verða í sjón- og rýmdarskynjun einstaklinga með Parkinsons-
veiki og athuga samspil þessara breytinga við valin hreyfi-
kenni, til dæmis það einkenni að festast skyndilega í ákveð-
inni stellingu meðan á göngu stendur og þá tilhneigingu að
sveigja af leið þegar ætlunin er að ganga beint áfram. Einn
leiðbeinenda Sigurrósar, Robert Wagenaar, er prófessor við
Clinical Movement Sciences Laboratory við Bostonháskóla,
sem hefur yfir að ráða sýndarveruleikabúnaði sem var nýttur
til að skrá hreyfimynstur sjúklinga í mismunandi sjón-
andstæðum. Rannsóknin staðfesti að sumir grunnþættir sjón-
skynjunar versna í Parkinsonsveiki. Einnig fundust sam-
virknitengsl á milli kynferðis og í hvaða heilahveli
taugahrörnun í Parkinsonsveiki hefst og eðli breytinga í
rýmdarskynjun. Þeir sjúklingar sem sögðu að þeir festust á
göngu, sem viðbrögð við ákveðnum sjónáreitum, sýndu mun
meiri breytingar í sjón- og rýmdarskynjun heldur en þeir
sjúklingar sem sögðu að þeir festust en án greinilegra tengsla
við sjónáreiti í umhverfinu. Einnig fundust tengsl milli trufl-
unar í rýmdarskynjun og hve mikið sjúklingar sveigðu af leið
þegar þeir voru beðnir að ganga beint áfram. Við útskrift síð-
asta vor hlaut Sigurrós hin árlegu Kavita Jain-verðlaun frá
sálfræðideild háskólans fyrir verkefni sitt. Ásamt því að fá
fullan námsstyrk frá Bostonháskóla hlaut hún rannsókn-
arstyrki frá ameríska vísindafélaginu Sigma Xi og sál-
fræðideild háskólans (Clara Mayo Award). Sigurrós lauk
starfsnámi í klínískri taugasálfræði á spítölum í Boston og
New York, þar á meðal Long Island Jewish Medical Center,
North Shore University Hospital, Schneider Children’s Ho-
spital og spítölum innan Boston Veterans Administration
Health Care System.
Sigurrós er dóttir hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Dav-
íðs Aðalsteinssonar á Arnbjargarlæk í Borgarfirði. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1994, BA-prófi
í sálfræði frá Háskóla Íslands 1999 og MA-prófi í sálfræði frá
Bostonháskóla 2001. Sigurrós býr með eiginmanni sínum,
John Pappas tölvunarfræðingi í Boston. Hún gegnir klínískri
nýdoktorsstöðu við Harvard Medical School og sinnir tauga-
sálfræðilegu mati við Brigham and Women’s Hospital og
Massachusetts General Hospital í Boston.
Doktor í
klínískri sálfræði
Sigurrós
Davíðsdóttir