Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 10

Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Engar áhyggjur, Villi minn, Erlendur ætlar að hlaupa í skarðið ef ég klikka eitthvað á þessu. VEÐUR Er óeðlilegt að ætlast til að for-svarsmenn einkafyrirtækis eins og FL Group hafi skilning á því, að aðkoma þeirra að gerð þjónustu- samnings á milli OR og REI var óviðeigandi?     Forsvarsmenn FLGroup voru vissulega að gæta eigin hagsmuna og reyna að hámarka arðsemi eigin fyr- irtækis af þeim sam- runa sem fyrirhugaður var á milli REI og GGE.     En ber forsvarsmönnumFL Groupekki samt sem áður að hugsa um það hvað er rétt og eðlileg op- inber stjórnsýsla? Þeir eru hluti af hinu íslenzka samfélagi og þeim ber að virða lög þess og reglur.     Í þessu ljósi er er erfitt að skilja yf-irlýsingu FL Group um þetta mál vegna þess, að nú liggur fyrir að þeir voru með puttana í samnings- gerð á milli opinbers fyrirtækis og dótturfyrirtækis þess.     Það er hægt að gera þá kröfu tilforsvarsmanna FL Group að þeir skilji og virði grundvallar- reglur samfélags okkar en sökin er þó ekki fyrst og fremst þeirra.     Ábyrgðin liggur hjá kjörnumfulltrúum sem virðast hafa gleymt því til hvers þeir voru kosn- ir: Þeir voru m.a. kosnir til þess að gæta hagsmuna borgarbúa. Ábyrgðin liggur líka hjá ákveðnum embættismönnum, sem hljóta að hafa vitað að afskipti forsvars- manna FL Group af þjónustusamn- ingi Orkuveitunnar og Reykjavík Energy Invest var óviðeigandi svo ekki sé meira sagt.     Eitt af því, sem við getum lært afREI-málinu er að blanda ekki saman opinberum rekstri og einka- rekstri á þann veg, sem gert var. STAKSTEINAR Samningurinn og FL Group SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                        12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                          ! " :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? # #   # # #    # #  # # # # # #                            *$BC $$$                     !  "    #     $  #  ! %  &  *! $$ B *! %&' ( $  $' $     ) *+ ) <2 <! <2 <! <2 % (  $, !-$. )/  D8- E                 6 2  '$  () !     (*               +    ,   B          # #         - !    &  .$  $ !  "  /    0    *     )   - .   ! '#*  " .$  (*    ! &   "          !$  #    01 $&$)22  ) $* &$3 )  *)$, ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ólína Þorvarðardóttir | 8. febrúar 2008 Samstöðustjórnmál? Það lítur út fyrir að skýrsla stýrihópsins svokallaða eigi að verða endahnúturinn á þessu skelfilega OR- og REI-máli. Svandís talaði um að það hefði ekki verið í verkahring nefndarinnar að sakfella menn. Nú yrðu menn bara að læra af reynslunni og ná sam- stöðu um betri vinnubrögð í framtíð- inni. Hún talaði um samstöðustjórn- mál. Þeim sem brjótast inn á bensínstöðvar er ekki gefinn kostur á slíku. Meira: olinathorv.blog.is Heiða B. Heiðarsdóttir | 8. febrúar Flögrandi fiðrildi í nærbuxunum Ef það er eitthvað að marka þessar klósett- skálahreinsiefna- og dömubindaauglýs- ingar þá mæta manni svífandi blómaknúpp- ar þegar maður lyftir klósettsetunni við notkun undraefn- anna. Og ef maður … eða kona í þessu tilviki, kaupir Always-eitthvað dömu- bindi … og notar þau, er hún svo fersk og fín allan daginn að það spretta bleik fiðrildi upp … Meira: skessa.blog.is Hjalti Már Björnsson | 8. febrúar 2008 Kynþættir Mér finnst þetta alltaf frekar langsótt með nöfn á kynþáttum hér vestra. Líklega er það vegna sögu landsins, þar sem samskipti kynþátta hafa ekki beinlínis verið sér- staklega farsæl alla tíð, að hálfgert tabú er orðið að kalla menn svarta, hvíta, gula … Ætlast er til þess að menn noti lýsingar eins og african am- erican, caucasian eða asian. Sjálfur veit ég ekki til þess að ég sé ættaður frá Kákasusfjöllum en þrátt fyrir það er ég skilgreindur sem caucasian. Meira: kjarninn.blog.is Pjetur Hafstein Lárusson | 8. febrúar Steinn Steinarr VII Mér er það stórlega til efs, að umkomulausara fólk hafi verið til á Ís- landi, en niðursetningar gamla bændasam- félagsins. Ómálga börn voru rifin úr faðmi for- eldra sinna og þeim ráðstafað af hreppnum, eins og verið væri að reka fé í dilka. Guð og lukkan réðu því svo, hvar ómagarnir lentu og hvernig með- ferð þeir fengu. Piltstauti sá, Að- alsteinn Kristmundsson, er hóf að rölta um götur Reykjavíkur undir því meitlaða nafni Steinn Steinarr, var úr hópi þessa auðnulausa fólks. Var síst að undra, að hann smíðaði sér skáld- anafn úr grjóti. Með fáum undantekn- ingum, svo sem Bólu-Hjálmari og Stephani G. Stephanssyni, höfðu Ís- lendingar vanist því, að höfuðskáld þeirra væru ættgöfugir menntamenn eða í það minnsta hempuklæddir kirkjunnar þjónar fram til dala, eins og t.d. séra Jón Þorláksson á Bægisá. Lágmarkið var, ef menn ætluðu sér inngöngu í höllu Braga, að þeir ættu til gildra bænda að telja. Þeir sem neðar voru settir í mannvirðingarstig- ann, en ortu þó, kölluðust „alþýðu- skáld“ og þótti miður fínt á betri bæj- um. En sem sagt, skömmu eftir glanshátíðina miklu á Þingvöllum árið 1930 fer hann að mæla göturnar í höfuðstaðnum, þessi niðursetningur að vestan. … Ekki er að orðlengja það, að piltur þessi lagðist í skáld- skap, með þeim árangri, sem alþjóð þekkir. Vissulega var Steinn Steinarr ekki hið eina skáld sinnar tíðar, sem alþýða þessa lands ól af sér. Það var meira að segja annar niðursetningur í skáldahópnum, þótt lítið færi fyrir honum, hógværðarinnar vegna, og á ég hér við „hreppsómagahnokkann“ Örn Arnarson. Og ekki má gleyma Reykjavíkurskáldinu Vilhjálmi frá Ská- holti. Steinn var síður en svo einn um það, sinnar kynslóðar, að yrkja vel. Auk Arnar Arnarsonar og Vilhjálms frá Skáholti má nefna skáld eins og Dav- íð Stefánsson og Tómas Guðmunds- son og raunar fleiri. En með fullri virð- ingu fyrir þeim og öðrum, sem nefna mætti í sömu andrá, er Steinn Steinar það skáld síðustu aldar, sem varpar ljósi, jafnt á gengna slóð, sem og veg- inn fram. Hann er sá steinn, sem stærstur er í vörðu íslensks skáld- skapar allar götur aftur til Jónasar Hallgrímssonar. Meira: hafstein.blog.is BLOG.IS MJÖG mjótt var á munum í kosn- ingum til stúdentaráðs Háskóla Ís- lands, sem fram fóru á fimmtudag. Röskva fór með sigur af hólmi í kosningunum, hlaut 1.692 atkvæði og fimm sæti í ráðinu. Vaka hlaut 1.686 atkvæði og fjögur sæti. Hvor fylking fékk að auki einn mann kjörinn í háskólaráð, Vaka fékk 1.677 atkvæði en Röskva 1.683 atkvæði. Alls kusu 3.446 eða 34,64%. Bergþóra Snæbjörnsdóttir var efst á lista Röskvu. Hún segir þetta hafa verið sætan sigur, en muninn þó fulllítinn. „Sex atkvæði, það er ofsalega mjótt á munum, enda ætl- um við að gera betur á næsta ári og breikka bilið.“ Röskva náði meirihluta í fyrra í fyrsta sinn í nokkur ár og Bergþóra segir að á tímabilinu hafi náðst að sinna mjög mörgum verkefnum. „Eitt ár er stuttur tími til að koma í gegn þeim verkefnum sem maður vill. Ég hef þó fulla trú á því að næsta ár verði jákvætt fyrir okkur.“ Röskva hefur lagt áherslu á að hækka grunnframfærslu nemenda og því starfi verður haldið áfram. „Svo er stúdentagarðamálið, sem vonandi fer að ganga í gegn. Mark- miðið er að tvöfalda fjölda stúdenta- íbúða og vonandi gengur það eftir,“ sagði Bergþóra. Ingólfur Birgir Sigurgeirsson er efsti maður á lista Vöku sem nú hef- ur fjögur sæti í stúdentaráði. Hann sagði að Vökumenn hefðu staðið sig frábærlega og náð að minnka mun- inn frá síðasta ári. „Erum á réttri leið“ „Við bættum við okkur fylgi og munurinn er ekki nema sex at- kvæði. Það er erfitt að vinna upp at- kvæðamun en þetta sýnir að við er- um á réttri leið og erum að gera góða hluti,“ sagði Ingólfur. Framundan hjá Vöku er að veita meirihlutanum aðhald og vera með virka stjórnarandstöðu. „Ég er þakklátur þeim stúdentum sem treystu á okkur og eru greinilega mjög margir. Þetta gat fallið hvor- um megin sem var, sex atkvæði eru ekki neitt.“ Röskva sigraði naumlega í HÍ Bergþóra Snæbjörnsdóttir Ingólfur Birgir Sigurgeirsson FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.