Morgunblaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 10
10 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þetta verður allt í lagi, Ólafur minn, Gosa-nefin eru ótrúlega seig, þau klikka ekki. Sumir sjálfstæðismenn essemm-essuðu ekkert á Staksteina í gær eftir að niðurstöður skoð- anakönnunar útgáfufyrirtækisins Heims voru birtar um fylgi stjórn- málaflokkanna.     Samkvæmt þeirri skoðanakönnuner Samfylkingin með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn og munar um fimm prósentustigum.     Í Staksteinum hinn 1. febrúar sl.sagði í tilefni af skoð- anakönn- un Frétta- blaðsins daginn áð- ur, sem sýndi að Samfylkingin var að ná Sjálfstæðisflokknum í fylgi:     Ætla þeir (forystumenn Sjálf-stæðisflokksins) að láta sem ekkert sé og bíða eftir því, að í næstu könnun komist Samfylkingin yfir Sjálfstæðisflokkinn í fylgi.“     Af því tilefni sagði ÞorgerðurKatrín Gunnarsdóttir, varafor- maður Sjálfstæðisflokksins á fundi í Valhöll daginn eftir, að sjálfstæð- ismenn einblíndu ekki á skoð- anakannanir heldur niðurstöður kosninga.     Hvað segir varaformaður Sjálf-stæðisflokksins nú?     Er hugsanlegt að það sé nú kom-inn tími til að einblína svolítið á skoðanakannanir?     Og essemmessa svolítið minna áStaksteina fyrir að vekja at- hygli á varasamri stöðu fyrir Sjálf- stæðisflokkinn?     Eða er Sjálfstæðisflokkurinn fast-ur í banvænu faðmlagi? STAKSTEINAR Banvænt faðmlag?                      ! " #$    %&'  (  )                          *(!  + ,- .  & / 0    + -                 !               12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (      "   # #                    :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $   "$ $ $  $ $" $  $  $ $""  $  $  $"   $                           *$BC %%                    !  " #     *! $$ B *! & ' (%  %' %    !) <2 <! <2 <! <2 &( #%* + ,%-#.   D8- E                  6 2      $ %    & '   (         )     *    B     )!* +   , '-)    (  ,'  /      #    (  '    ( ,'         . / "   /0##% %11 #%! %2  !%* + VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ómar R. Valdimarsson | 14. febrúar Íslenskir fjármála- snillingar og erlend fyrirtæki Í fjármálaheiminum er gjarnan vísað til sam- keppnisumhverfis, þeg- ar ofurlaun einstakra forstjóra eru rétt- lætt. … Bónusar á bón- usa ofan og heimildir til þess að kaupa hlutabréf á undirverði og selja jafnvel daginn eftir með svim- andi hagnaði hefur verið regla frekar en undantekning … Meira: omarr.blog.is Paul Nikolov | 14. febrúar 2008 Réttlæti strax Árásin sem gerð var á Redouane Naoui var ekki venjuleg slagsmál, heldur morðtilraun fyrir það eitt að hann er út- lendingur. … Mennirnir sem tóku þátt í þessu eiga ekkert minna skilið en langa dvöl í fangelsi. Það er bráðnauðsynlegt að dóms- kerfið sýni öllum landsmönnum að það taki þessi mál alvaralega, og að þeim, sem sýna öðrum ofbeldi vegna þjóð- ernis þeirra, verði alvarlega refsað. Meira: paul.blog.is Jón Magnússon | 14. febrúar 2008 Ríkisstjórnin að ranka við sér? Guðni Ágústsson for- maður Framsókn- arflokksins hefur ítrek- að kallað eftir því að ríkisstjórnin vakni og taki alvarlega váboða í fjármálalífi þjóðarinnar og á alþjóðlega fjármálamarkaðnum. Nú hefur ríkisstjórnin svarað kalli eftir að meira en árs þjóðarframleiðsla hefur gufað upp af hlutabréfamark- aðnum og gengi krónunnar fallið mik- ið … Meira: jonmagnusson.blog.is Jón Agnar Ólason | 14. febrúar 2008 Anton Chigurh – goðsögn er fædd Nýverið birtist á mbl.is erlendur listi yfir tíu verstu óþokkana sem sést hafa í sögu kvik- myndanna. Mig minnir að breskir bíóá- hugamenn hafi valið á listann, gott ef það voru ekki les- endur þess ágæta kvikmyndatímarits Empire. Allt um það, ég hafði eitt og annað við listann að athuga eins og gengur, en sérstaklega stakk mig að sjá karakter úr glænýrri mynd þeirra Joel og Ethan Coen, No Country For Old Men. Hvernig getur svo ný per- sóna ratað á topp tíu allra tíma? Ojæja, um síðustu helgi sá ég mynd- ina og nú skil ég valið talsvert betur. Ég hef fengið að kynnast Anton Chig- urh. Það er spænski leikarinn Javier Bardem sem leikur óþokkann þann arna og skemmst er frá því að segja að hér er klassískur bíófantur fædd- ur. Þvílíkt ómenni! Anton Chigurh [shi-görr] er einn sá slyngasti sláttumaður sem ég man eftir úr bíómynd hin seinni ár, leigu- morðingi sem eirir engu, svart- klæddur, hyldjúpraddaður og þungur á brún eins og dauðinn sjálfur. Til að bæta á skuggalega ásjónuna er hann með hrikalega ljóta klippingu. Segja má að hér hafi þeir Joel og Ethan hrist saman alla þá verstu skít- hæla sem sést hafa í myndum þeirra hingað til og samsplæsingin orðið téður Anton. Hann hefur til að bera fégræðgi og lymsku einkaspæjarans Loren Visser úr Blood Simple, hann er jafn óstöðv- andi í leit sinni að bráðinni og Leon- ard Smalls í Raising Arizona og eins gersamlega siðblindur og drápsfús og Gaer Grimsrud í Fargo. Bardem hlaut Bafta-verðlaunin um daginn sem besti leikarinn í auka- hlutverki og er afar líklegur til að end- urtaka þann leik þegar Ósk- arsverðlaunin verða afhent nú í mánaðarlok. Ég sá ekki Bafta í sjón- varpinu en ætla að spá því að þegar kemur að því að kynna leikarana sem eru tilnefndir í flokki leikara í auka- hlutverkum og myndskeið látið rúlla af Bardem í hlutverki Chigurh, að þá verði notast við atriðið á bensínstöð- inni, „What’s the biggest you ever lost in a coin-toss? Call it!“ Klassík. Meira: jamesblond.blog.is BLOG.IS ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 4 09 96 0 2 /0 8 TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR + Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is eða í síma 50 50 100 * Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. Ferðatímabil: 21. apríl–31. des. HA LI FA X Ve rð frá 19 .12 0 kr .*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.