Morgunblaðið - 28.02.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÁRNI Helgason, fyrr-
verandi stöðvarstjóri
Pósts og síma í Stykk-
ishólmi, lést í gær-
morgun á St. Francis-
kusspítalanum í
Stykkishólmi, á 94. ald-
ursári. Árni var heið-
ursborgari Stykkis-
hólmsbæjar. Hann var
fréttaritari Morgun-
blaðsins í Stykkishólmi
í meira en hálfa öld.
Árni var fæddur í
Reykjavík 14. mars
1914, sonur hjónanna
Vilborgar Árnadóttur og Helga G.
Þorlákssonar. Hann ólst upp á Eski-
firði. Vann þar ýmis störf til sjós og
lands þar til hann varð sýsluskrifari
1938. Árni flutti til Stykkishólms á
árinu 1942, var þar sýsluskrifari og
síðar stöðvarstjóri Pósts og síma frá
1954 þar til hann lét af störfum í lok
árs 1984. Hann var einnig umboðs-
maður Brunabótafélags Íslands,
Loftleiða og Flugleiða og var stofn-
andi og stjórnandi útgerðarfélaga.
Árni var virkur í félagsmálum.
Hann tók þátt í bæjarmálum í Stykk-
ishólmi og stjórnmálum á vegum
Sjálfstæðisflokksins og vann fyrir
mörg félög og samtök.
Hann var meðal stofn-
enda Lúðrasveitar
Stykkishólms, Tónlist-
arfélags Stykkishólms
og Lionsklúbbs Stykkis-
hólms, stofnaði stúkuna
Helgafell og var gæslu-
maður barnastúkunnar
Bjarkar. Árni gerðist
fréttaritari Morgun-
blaðsins á árinu 1943 og
sendi blaðinu reglulega
fréttir þar til fyrir fáein-
um árum að Gunnlaug-
ur sonur hans tók við.
Hann var einnig fréttaritari Ríkisút-
varpsins og Sjónvarpsins í mörg ár.
Árni kvæntist Ingibjörgu Gunn-
laugsdóttur kennara 1948. Hún lést
1994. Börn þeirra eru Gunnlaugur
framkvæmdastjóri, Halldór skrif-
stofustjóri, Helgi skólastjóri og Vil-
borg Anna grunnskólakennari.
Árni Helgason átti samleið með
Morgunblaðinu í sjö áratugi, þar af
fréttaritari í meira en hálfa öld. Við
leiðarlok færir blaðið Árna þakkir
fyrir frábær störf og vináttu við
starfsmenn þess og sendir aðstand-
endum hans innilegar samúðarkveðj-
ur.
Andlát
Árni Helgason
TVEIR voru fluttir á slysadeild
Landspítalans eftir harðan árekst-
ur við Vogaafleggjara á Reykja-
nesbraut á sjöunda tímanum í
gærkvöldi. Mennirnir sem voru
ökumenn í bílunum slösuðust mis-
mikið, annar hlaut m.a. opið bein-
brot á hné en hinn aðeins minni-
háttar áverka. Bílarnir eru
gjörónýtir.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurnesjum var færð
á Reykjanesbraut slæm þegar
slysið varð og hálka mikil. Slysið
varð með þeim hætti að ökumaður
annars bílsins missti stjórn á öku-
tæki sínu, sem aftur fór yfir á
gagnstæðan vegarhelming og
framan á aðvífandi bifreið. Loka
þurfti Reykjanesbraut í um eina
og hálfa klukkustund vegna slyss-
ins.
Umferðarslys hafa verið tíð við
Vogaafleggjara að undanförnu, en
þar hefur Reykjanesbraut ekki
verið tvöfölduð. Framkvæmdir við
tvöföldun hafa legið niðri síðan
verktakafyrirtækið Jarðvélar sagði
sig frá verkinu skömmu fyrir ára-
mót.
Í samtali við Morgunblaðið fyrir
skemmstu sagði Jónas Snæbjörns-
son, svæðisstjóri Vegagerðarinnar,
að áhersla yrði lögð á það þegar
framkvæmdir hæfust að nýju að
lokið yrði við gatnamótin við Voga-
afleggjara, og býst hann við að á
vormánuðum verði hægt að hleypa
umferð á tvöfalda kaflann, alveg
að Grindavíkurvegi.
Reiknað er með að útboð á þeim
hluta framkvæmda sem eftir er
verði auglýst í byrjun næsta mán-
aðar.
Missti stjórn á bílnum í hálku
HilmarBragi/Víkurfréttir
Gjörónýtir Líkt og sést á myndinni var áreksturinn afar harður.
Tveir fluttir á slysadeild Landspítala eftir harðan árekstur á Reykjanesbraut
AÐALFUNDUR
SPRON sam-
þykkti í gær
breytingartillögu
um lægri þóknan-
ir stjórnarmanna
í félaginu en upp-
hafleg tillaga
gerði ráð fyrir.
Samkvæmt henni
áttu stjórnar-
menn að fá
200.000 krónur og formaður stjórnar
400.000 krónur fyrir störf sín.
Stjórnin dró þessa tillögu hins vegar
til baka að framlagðri tillögu Vil-
hjálms Bjarnasonar, framkvæmda-
stjóra Samtaka fjárfesta, sem fól í
sér að þóknun til stjórnarmanna yrði
120.000 krónur og formanns stjórnar
210.000 krónur og var sú tillaga sam-
þykkt. | Viðskipti
Stjórn dró
tillögu sína
til baka
Vilhjálmur
Bjarnason
EINHVERJA hefur kannski rekið í rogastans þegar
þeir urðu vitni að stórvirkum framkvæmdum við ósa
Elliðaánna. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni
skýrast framkvæmdirnar af því að verið er að leggja
132.000 volta háspennustreng frá tengivirki við Korpu
að aðveitustöð í Borgartúni. Að sögn Eiríks Hjálm-
arssonar, upplýsingafulltrúa OR, er áætlað að lagningu
strengsins ljúki síðar á þessu ári. Aðspurður segir hann
tímasetningu framkvæmdanna valda með það að mark-
miði að valda lífríkinu sem minnstum skaða.
Morgunblaðið/Ómar
Unnið að lagningu háspennustrengs
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 37 ára gamlan karlmann
í 2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn 14 ára stúlku, sem var að gæta
barna hans. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða henni 750 þús-
und krónur í bætur auk 1 milljónar
kr. í sakarkostnað.
Maðurinn fékk stúlkuna til að
gæta sona sinna á kosningakvöldið í
maí á síðasta ári en þau bjuggu í
sama fjölbýlishúsi. Stúlkan fékk
tvær vinkonur til að passa með sér
og síðar um kvöldið komu fleiri ung-
lingar í íbúðina. Var áfengi haft um
hönd en þegar húsráðandinn kom
heim kl. 6 um morguninn voru tvær
stúlkur í íbúðinni. Önnur þeirra fór
út í verslun og kom aftur um hálf-
tíma síðar en í millitíðinni höfðu
gerst atburðir, sem leiddu til ákæru.
Stúlkan bar að maðurinn hefði
káfað á brjóstum hennar og klætt
hana úr buxum og nærbuxum og
þuklað á henni. Hún hefði verið
stjörf af hræðslu og ekki brugðist við
fyrr en maðurinn leysti niður um sig
og gerði sig líklegan til að hafa við
hana samræði. Þá hefði stúlkan ýtt
við honum og spurt hvort hann vissi
ekki að hún væri aðeins 14 ára, síðan
klætt sig í skyndingu og drifið sig á
brott.
Maðurinn neitaði sök
Maðurinn neitaði alfarið sök. Fjöl-
skipaður dómur héraðsdóms lagði
hins vegar frásögn stúlkunnar til
grundvallar og taldi sannað að mað-
urinn hefði gerst sekur um þá beinu
háttsemi, sem honum var gefin að
sök í ákæru. Hann hefði verið úti að
skemmta sér, drukkið ótæpilega og
komið ölvaður heim að morgni til
tveggja sona sinna. Í stað þess að
greiða stúlkunni fyrir pössunina
þegar í stað, svo að hún kæmist
heim, hefði maðurinn neytt yfir-
burðaaðstöðu gagnvart stúlkunni,
þegar hann fékk hana til að setjast í
sófa í stofunni, sýndi henni grófa
kynferðislega áreitni og hafði við
hana þau kynmök, sem lýst væri í
ákæru. Segir dómurinn, að því beri
að sakfella manninn fyrir nauðgun.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Jónas Jóhannsson sem dómsformað-
ur, Ingveldur Einarsdóttir og Páll
Þorsteinsson.
Verjandi ákærða var Sigmundur
Hannesson hrl. og sækjandi Hulda
Elsa Björgvinsdóttir, fulltrúi ríkis-
saksóknara.
Dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir nauðgun
37 ára karlmaður braut gegn 14 ára stúlku eftir barnapössun