Morgunblaðið - 28.02.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 27
Fyrir nokkrum árum brydduðutveir íslenskir iðjuþjálfar, AuðurAxelsdóttir og Elín Ebba Ás-mundsdóttir, upp á nýjum aðferð-
um í meðferð fólks með geðraskanir. Að-
ferðafræði þeirra byggist á reynslu, sem
þær hafa öðlast í störfum sínum um langt
árabil og einnig á reynslu annarra þjóða,
notendarannsóknum og samstarfi við sjúk-
linga.
Rauði þráðurinn í hugmyndafræði Auðar
og Elínar er að virkja vilja og getu sjúk-
linga með starfsendurhæfingu og greiða
þeim leið á almennan vinnumarkað. Slík
endurhæfing nýtist ein-
staklingum í bataferli, sem
vilja breyta lífsmynstri sínu,
en þurfa stuðning og hvatn-
ingu til að auka lífsgæði og/
eða auka þátttöku á vinnu-
markaði.
Árið 2005 greiddi Trygg-
ingastofnun ríkisins 13 millj-
arða króna í örorkubætur. Líf-
eyrissjóðirnir greiddu 5
milljarða; samtals 18 milljarða
króna. Talið er að af þessari
fjárhæð hafi tæpur þriðjungur
farið til einstaklinga með geð-
raskanir. Þessar tölur hafa
vafalaust hækkað síðan. Með
öflugri starfsendurhæfingu
væri unnt að draga úr nýgengi
örorku og stuðla að þjóðhags-
legum sparnaði, bæði hjá hinu
opinbera og í atvinnurekstri.
Vart þarf að nefna létti á þraut
og þjáningu og uppreisn
mannlegra gilda.
Örorkubótaþegum hefur
fjölgað mjög á síðustu árum.
Árið 2006 voru þeir 13.230;
karlar voru 5.132 og konur
8.098. Tíu árum fyrr, 1996,
voru bótaþegar 7.577. Fólk á
aldrinum 20-24 í hópi bótaþega
reyndist 2,3% af íbúafjölda
2006. Á aldrinum 35-39 ára
voru karlar 3,4% og konur
6,3%. Ef tekinn er aldurinn 16
til 66 ára þá voru 4,8% karla í
hópi bótaþega og 8,1 kvenna,
þegar tekið er mið af íbúa-
fjölda.
Í hagfræðiútreikningum,
sem birtir voru í Svíþjóð fyrir
nokkrum árum, var sýnt fram
á, að fyrir hverja 1 krónu, sem
varið var til endurhæfingar,
skiluðu sér 9 krónur í lækkun
útgjalda. Fyrir 2 árum var tal-
ið, að ríkissjóður greiddi um 32 milljónir
króna vegna hvers einstaklings, sem hæfi
töku örorkubóta 25 ára. Miðað var við með-
alaldur. Af þessu má ljóst vera, að hvert
skref í átt til endurhæfingar og bata er
gríðarlega mikilvægt.
Fyrir fimm árum stofnuðu Auður og El-
ín Ebba starfshópinn Hugarafl ásamt fjór-
um notendum, sem nýttu sér reynslu
þeirra á bataferli. Fljótlega bættust fleiri í
hópinn og hefur Hugarafl haft veruleg
áhrif á umræðu og afstöðu almennings til
málefna fólks, sem glímir við geðraskanir.
Fróðleik er komið á framfæri á fundum,
ráðstefnum og með útgáfu upplýsinga-
efnis.
Hugarafl viðaði að sér bakhjörlum. Í
þeim hópi eru ASÍ, SA, TR, Samtök lífeyr-
issjóða og velferðarsvið Reykjavíkur.
Einnig nokkrir einstaklingar og áhuga-
menn um störf þeirra Auðar og Elínar
Ebbu.
Í framhaldi af góðri reynslu hjá Hugafli
ákváðu þær stöllur að stofna félagið AE
starfsendurhæfingu ehf. um rekstur hlut-
verkaseturs. Til að koma fyrirtækinu á
laggirnar þurfti talsverða fjármuni. Víða
var leitað, allir voru jákvæðir og lýstu
skilningi á þörfinni en stjórnarmenn gengu
oft bónleiðir til búðar.
Þó studdi fjárlaganefnd framtakið og
heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytin hafa
komið við sögu. Reykjavíkurborg gerði
góðan samning við félagið
En þessar framúrskarandi konur, Auður
og Elín Ebba, létu ekki deigan síga, gáfust
ekki upp og störfuðu linnulaust að fram-
gangi hugsjóna sinna. Vera má að ein-
hverjir hafi hnotið um einkahlutafélags-
form AE starfsendurhæfingar. Það er hins
vegar alveg skýrt að allur hugsanlegur
arður af starfinu rennur til frekari upp-
byggingar. Það væri þó krafta-
verki líkast ef einhverjar krónur
stæðu út af í lok rekstrarárs.
Árangur erfiðisins blasir nú
við. Hlutverkasetur hefur verið
opnað við Laugaveg. Það er rek-
ið í nánu samstarfi við Hugarafl,
en markmið Hugarafls hefur
ávallt verið að hafa áhrif á geð-
heilbrigðisþjónustu, breytta
nálgun að verkefnum og varpa
ljósi á batahvetjandi leiðir. Í
Hlutverkasetrinu er unnið eftir
hugmyndafræði valdeflingar og
líkaninu um iðju mannsins
(MOHO) og flokkast félagið inn-
an ströngustu skilgreininga um
samfélagsleg fyrirtæki.
Valdefling (enpowerment) fel-
ur í sér, að taka stjórn á eigin
lífi, hafa áhrif á umhverfi sitt og
að vera virkur í samfélagi
manna. Líkanið um iðju manns-
ins er byggt á þeim veruleika, að
dagleg verkefni skapi merkingu
og tilgang í lífinu. Þegar árangri
er náð í iðju, sem skiptir máli,
eflist trú á eigin getu, áhrifa-
máttur verður meiri og sjálfs-
traust eykst.
Í nýja Hlutverkasetrinu eru
aðstæður fremur góðar, mættu
þó vera betri. Þegar er ljóst, að
mikil þörf er á stækkun seturs-
ins enda bíður stór hópur þess
að komast í þessa endurhæf-
ingu. Í setrinu starfa iðjuþjálfar,
rekstrarstjóri og hönnuðir og
starfsmenn, sem hafa reynslu af
geðröskunum, eru fyrirmynd og
styðja við þá, sem þar stíga sín
fyrstu skref á endurhæfing-
arferlinu. Um 60 af hundraði
þeirra, sem þarna vinna, hafa
skerta starfsorku.
Nokkur fyrirtæki hafa lýst
áhuga á samstarfi við Hlutverkasetur,
bæði til að geta veitt starfsmönnum og við-
skiptavinum aðstoð og endurhæfingu. Allt
horfir þetta til betri vegar og er það trú
undirritaðs, að Hlutverkasetrið eigi eftir
að gegna veigamiklu hlutverki við end-
urhæfingu fólks, sem hefur vegna geðrask-
ana horfið af vinnumarkaði, þurft að leita
eftir örorkubótum og ekki séð aðra framtíð
en óbreytt ástand. Í þessum hópi er mikill
mannauður, þekking og reynsla. Starfsem-
in er þjóðhagslega mjög hagkvæm og mik-
ilvæg hverjum þeim sem er þátttakandi.
Fátt er ljúfara en að sjá þær breytingar
sem verða á einstaklingum sem á nýjan
leik hverfa til þátttöku í samfélaginu, eign-
ast nýja sjálfsímynd og reisn. Starf þeirra
Auðar og Elínar Ebbu hefur fært mörgum
nýja von og verulegan árangur í baráttunni
við þann kvilla sem Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin segir verða stærsta heil-
brigðisvandamál 21. aldarinnar. Þær stöll-
ur stefna að því að opna kaffihús sem
verður hluti af umhverfi endurhæfing-
arinnar. Þar eiga að vinna einstaklingar
með skerta starfsorku sökum geðrænna
vandamála. Fjölbreytt störf verða í boði og
atvinnuleg endurhæfing. Kaffihúsið verður
öllum opið og er ætlað að verða skjól og
vettvangur umræðna og samskipta. Starf-
semi þess mun hafa mikið forvarnargildi
og draga úr fordómum.
Við, sem höfum reynt að styðja þær
stöllur í baráttunni, vitum að stefnumið
þeirra byggjast á traustum grunni. Starfið
hefur þegar borið verulegan árangur og sá
árangur mun aðeins vaxa og aukast fái þær
fjárhagslegt svigrúm til að sinna stækk-
andi hópi, sem bíður.
Framúr-
skarandi konur
Eftir Árna Gunnarsson » Árangur erfiðisins blasir
nú við. Hlutverkasetur
hefur verið opnað við Lauga-
veg. Það er rekið í nánu sam-
starfi við Hugarafl, en
markmið Hugarafls hefur
ávallt verið að hafa áhrif á
geðheilbrigðisþjónustu,
breytta nálgun að
verkefnum og varpa ljósi á
batahvetjandi leiðir.
Árni Gunnarsson
Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og
stjórnarmaður í AE starfsendurhæfingu.
Auður Axelsdóttir
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
ru frá Bandaríkjunum,
. Vonin núna er raun-
Johnston. Hann segir
eytt vitundinni um það
og það sé ástæðan fyrir
ð að taka þátt í verkefn-
gu sé hægt að hjálpa
verkefnið hér á Íslandi
rlega mörgum til góðs
segir Johnston, „fyrir
nig sem maður dæmir
urður hvað það sé sem
raunverulega lagt fram
s svarar hann hiklaust:
yðja Auði. Hún getur
komast til hins fyrir-
ingarinnar.“
dir á að á rannsóknar-
séð jákvæðan árangur
kinn ákafa hjá mönnum
n svo þarf að fara út af
rannsóknarstofunni og yfirfæra starfið
þar á raunverulega sjúklinga. Til að geta
unnið með sjúklinga þarf tölur, tungumál
vísindanna er tölur. Vonandi mun tölu-
verður fjöldi sjúklinga sýna einhvern
bata eftir nýja meðferð. Við vonumst til
að Íslendingar styrki þróun nýrra hug-
mynda, sem gætu orðið til góðs.“
Johnston segist vera mikill bjartsýnis-
maður og því til staðfestingar deilir hann
lítilli sögu með lesendum. „Fyrir um tíu
árum tók ég þátt í yfirheyrslu í banda-
ríska þinginu um mænuskaða. Þar vitn-
aði einn mænuskaðaður maður í ræðu
Martin Luther King. „Við höfum náð
fjallstoppnum og við getum séð framtíð-
ina. Sum okkar munu hafa það af, sum
ekki.““ Á þessum áratug segir Johnston
hlutina hafa breyst í fyrsta sinn. „Sumir
eru að stíga inn í fyrirheitna landið, bók-
staflega. Við eigum um langan veg að
fara en nú er von, sem var ekki áður.“
Árvakur/Frikki
aurance Johnston og Harry S. Goldsmith.
LAURANCE Johnston hefur starfað á
vegum íslenska heilbrigðisráðuneyt-
isins í þrjú ár. Hann er að safna upplýs-
ingum í alþjóðlegan gagnabanka um
mænuskaða og er yfirmaður bankans.
Auður Guðjónsdóttir var upphafsmað-
urinn að starfinu en dóttir hennar slas-
aðist fyrir mörgum árum. Upp úr því
hófst Auður handa við að viða að sér
upplýsingum alls staðar að úr heimi og
komst að því að gríðarlegt magn upp-
lýsinga var til en enginn samhæfður
gagnabanki. Henni kom í hug að íslensk
stjórnvöld stigju fram fyrir skjöldu og
byðu sig fram í það verkefni að koma á
fót hinum nauðsynlega, alþjóðlega
gagnabanka. Hann hefur verið þýddur
á spænsku og arabísku að mestu. Nú er
unnið að þýðingu á kínversku og rúss-
nesku en gagnabankinn er upprunalega
á ensku.
Íslendingar eru frumkvöðlar í þessu
starfi. Mænuskaðastofnun Íslands hefur
nú verið stofnuð og markmið hennar er
að Ísland taki forystu í málaflokknum.
Harry Goldsmith er skurðlæknir og
brautryðjandi í mænuskaðalækningum.
Hann hefur farið um víða veröld og er
mikils metinn á sínu sviði. Goldsmith
hefur lagt Auði lið í baráttu hennar og
talað máli mænuskaðaðra um heim all-
an. Vill hann líta á mænuskaða sem
bráðatilfelli og kallaðir verði út skurð-
læknar strax þegar fólk slasast.
Ástæðan fyrir komu Johnstons og
Goldsmiths nú er að verið er að gera
vísinda- og starfsáætlun fyrir bankann.
Ísland taki
forystuna
ns og við horfum á mál-
em er í forystu fyrir rík-
ð ég held meirihluti al-
koma kosta og galla
ir vega ekki upp á móti
g reiknum við það? Það
tt en á grundvelli þessa
r mín afstaða óbreytt,“
ekki ætti að rugla sam-
ðu á fjármagnsmarkaði
gri tíma því að hvorki
ptaka evru, sem tæki
ein lausn á núverandi
að umræðurnar um
sjávarútvegsstefnu hefðu ekki farið fram
í samhengi við hugsanlega aðild Íslands
að ESB. Hann tók hins vegar fram að
ESB vildi vera í sambandi við íslenzka
sérfræðinga við endurskoðun sjávarút-
vegsstefnu ESB, sem nú væri á byrjun-
arstigi. „Ég bað forsætisráðherrann um
að koma sérfræðingum sínum og emb-
ættismönnum í samband við okkar,
þannig að við fáum hugmyndir frá Ís-
landi nú þegar við mótum framtíð okkar
eigin sameiginlegu sjávarútvegsstefnu.“
Vilja efla efnahagsumræður
Hann sagðist hins vegar vilja nota
tækifærið og lýsa afstöðu Evrópusam-
bandsins til umræðna um upptöku evru á
Íslandi. „Okkar skilningur, ekki aðeins
varðandi Ísland, heldur sérhvert svipað
tilfelli, er að myntsamruni við evrusvæðið
til lengri tíma litið komi aðeins til greina
innan hins stærri ramma aðildar að Evr-
ópusambandinu,“ sagði Barroso og bætti
við að aðildarríki yrði að ganga í gegnum
hið formlega ferli og uppfylla skilyrði
sambandsins fyrir upptöku evru.
Hann tók sömuleiðis skýrt fram að
hann vildi ekki hafa nein áhrif á afstöðu
Íslands til þess hvort sækja ætti um aðild
að Evrópusambandinu. „Hins vegar er
framkvæmdastjórnin reiðubúin að efla
viðræður sínar um efnahagsmál við Ís-
land,“ sagði Barroso og vísaði einnig til
fundar Geirs með Joaquín Almunia, sem
fer með gjaldmiðilsmál í framkvæmda-
stjórninni.
– Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
segir m.a. um Evrópumál: „Skýrsla Evr-
ópunefndar verði grundvöllur nánari at-
hugunar á því hvernig hagsmunum Ís-
lendinga verði í framtíðinni best borgið
gagnvart Evrópusambandinu. Komið
verði á fót föstum samráðsvettvangi
stjórnmálaflokka á Alþingi sem fylgist
með þróun mála í Evrópu og leggi mat á
breytingar út frá hagsmunum Íslend-
inga.“
ugmyndir Íslendinga
varútvegsstefnunnar
Í HNOTSKURN
»Í stjórnarsáttmála ríkisstjórn-arinnar segir m.a. um Evr-
ópumál: „Skýrsla Evrópunefndar
verði grundvöllur nánari athugunar
á því hvernig hagsmunum Íslend-
inga verði í framtíðinni best borgið
gagnvart Evrópusambandinu. Kom-
ið verði á fót föstum samráðsvett-
vangi stjórnmálaflokka á Alþingi
sem fylgist með þróun mála í Evr-
ópu og leggi mat á breytingar út frá
hagsmunum Íslendinga.“
» Í fylgdarliði Geirs Haarde íBrussel er m.a. Illugi Gunn-
arsson, þingmaður og annar for-
maður Evrópunefndar forsætisráð-
herra.
»Meðal hlutverka nefndarinnarer að „framkvæma nánari at-
hugun á því hvernig hagsmunum Ís-
lendinga verði best borgið í framtíð-
inni gagnvart Evrópusambandinu.“
ræðu á fundi Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Javiers Sol-
meðal annars aukin hernaðarumsvif Rússlands á norðurslóðum,
um samstarf á sviði friðargæzlu. Geir sagði að það væri eins og
erið Íslandi hliðhollur og þeir hefðu oft hitzt undanfarin tólf ár.
Árvakur/Ólafur Stephensen
eimsmálin