Morgunblaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.04.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 29 VEGAGERÐIN kveinkar sér ekki undan gagnrýni en fer hins veg- ar fram á að hún sé sanngjörn. Það er ekki alltaf tilfellið í grein sem framkvæmdastjóri Hlaðbæjar-Colas hf. ritar í Morg- unblaðið á fimmtudag. Þar segir hann Vega- gerðina víkja sér und- an ábyrgð og heldur því í raun fram í grein- inni að verktakar beri enga ábyrgð. Endanlega ber Vegagerðin ábyrgð á því hvernig ástandið er á vegum úti, það er rétt. Það er ekki þar með sagt að verktakar beri enga ábyrgð og gerir Vegagerðin ríkar kröfur til þeirra. Sigþór Sigurðsson gagnrýnir Vegagerðina fyrir að hafa samið við Jarðvélar um tvöföldun Reykjanes- brautarinnar eða að „verk upp á rúman milljarð var sett í hendurnar á nánast gjaldþrota verktaka“ líkt og hann orðar það í greininni. Þetta er alrangt. Jarðvélar höfðu unnið mörg verk fyrir Vegagerðina, stór og smá, með góðum árangri. Um það bil ári eftir að samið var við Jarð- vélar, sem þá uppfylltu öll skilyrði, skipti fyrirtækið hins vegar um eig- endur. Vegagerðin gerir ekki þá kröfu að sömu eigendur séu að fyr- irtæki allan samningstímann. Það er hins vegar gerð krafa um ársreikn- inga tvö ár aftur í tímann, jákvæða eiginfjárstöðu og að verktaki skuldi engin opinber gjöld. Velta verktak- ans er einnig borin saman við út- boðsverkið. Þá er einnig krafist ákveðinnar reynslu og var hún í góðu lagi hvað Jarðvélar varðar. Á engan hátt var verktökum mis- munað við útboðið á tvöföldun Reykjanesbrautar eins og Sigþór ýj- ar að. Enda er það hagur Vegagerð- arinnar og ríkissjóðs að samið sé við ábyrga verktaka. Og það er allra hagur að verktakar sitji allir við sama borð. Unnið er að nýjum reglum um vinnustaða- merkingar þar sem all- ar kröfur verða hertar. Verktakar geta ekki hlaupið í það skjól að Vegagerðin beri ábyrgð á því að þeir merki framkvæmda- svæði almennilega og samkvæmt útboðsskil- málum. Það má örugg- lega herða eftirlit með því að vel sé merkt en það leysir ekki verktakann undan ábyrgð. Það er og hefur verið áhyggjuefni hversu illa er merkt og viðurkennir Sigþór að verktakar spari sér fé á þessum lið. Það er ól- íðandi. Vegagerðin stórbætti merkingar þegar tekið var við Reykjanesbraut- inni og það urðu þeir vel varir við sem aka þar um daglega. Menn verða að hafa í huga að ekki hefði verið unnt að aðskilja aksturs- stefnur fyrr en gert var vegna þarf- arinnar á því að hreinsa snjó af brautinni. Aðskilnaður með stein- blokkum í stað gátskjalda hefði einn- ig leitt til snjósöfnunar og þess vegna aukinnar hættu á því að veg- urinn lokaðist. Það er svo laukrétt hjá Sigþóri að þótt nýr verktaki hefði tekið við verkinu strax í ársbyrjun væri stað- an enn sú sama enda hefði ekki verið mikið malbikað þessa fyrstu mánuði ársins. Til þess að forðast það ástand sem nú er á Reykjanesbrautinni hefði Vegagerðin þurft að taka verk- ið af Jarðvélum í ágúst síðastliðnum. Tæplega er Sigþór að biðja um það að Vegagerðin grípi inn í í hvert sinn sem líklegt er að verk tefjist lítillega. Samt hlýtur það að skoðast eftir þessa reynslu hvort grípa verði inn í ef verktaki hættir til dæmis að standa í skilum við opinbera aðila eða er farinn að greiða laun hægt og illa. En það getur aldrei verið einfalt mál. Vegagerðin lagði mikla áherslu á að stytta þann tíma sem endurútboð tæki, en þar líkt og alltaf verður að vanda til verka. Það er mikilvægt að vel takist til með áframhald tvöföld- unar Reykjanesbrautarinnar, menn hljóta að vera sammála um það. Vegagerðin samdi einnig eins fljótt og kostur var við verktaka um brú- arsmíðina til að flýta fyrir. Vegagerðin víkur sér ekki undan ábyrgð en gerir líka kröfur á hendur verktökum. Þeir geta ekki vísað til þess að Vegagerðin hafi með þeim eftirlit og því séu þeir ábyrgð- arlausir. Ólíklegt verður að teljast að svip- uð staða komi upp aftur, en menn munu eigi að síður læra af þessu máli öllu. En, líkt og þegar umferð- arslys verða, þá verða menn að hafa allar staðreyndir á hreinu og skilja hvað í raun gerðist, til að geta lært af því. Ábyrgðarlausir verktakar eða hvað? G. Pétur Matthíasson segir frá vinnu- og verklagsreglum Vegagerðarinnar » Á engan hátt var verktökum mis- munað við útboðið á Reykjanesbrautinni eins og Sigþór ýjar að. Enda er það hagur allra að samið sé við ábyrga verktaka. G. Pétur Matthíasson Höfundur er upplýsingafulltrúi Vega- gerðarinnar. VINNUBRÖGÐ hafa verið eitt helsta viðfangsefni borgarstjórnar Reykjavíkur í vetur. Eftir stóra REI-málið hafa fulltrúar allra flokka sammælst um mik- ilvægi gegnsærrar og opinnar stjórnsýslu. Boðleiðir eiga að vera skýrar og reglur um valdmörk og máls- meðferð virtar. Á undanförnum vikum hefur meiri- hluti Sjálfstæð- isflokks og Ólafs F. Magnússonar sýnt að orð og gjörðir fara ekki alltaf saman. Vinnubrögð borg- arstjórans í Reykja- vík og meðferð mála í fagráðum borg- arinnar sýna að fögur fyrirheit um opin og heiðarleg vinnubrögð stendur ekki til að efna. Fyrir nokkrum vik- um undirritaði borg- arstjórinn í Reykja- vík, Ólafur F. Magnússon, þjónustu- samning við Alþjóða- hús. Í samningnum er kveðið á um hvernig samstarfi þessara tveggja aðila skuli háttað og hvaða þjónustu Alþjóðahúsi beri að veita. Við samninginn sjálf- an geri ég ekki athugasemdir hér – en vinnubrögð borgarstjóra eru til háborinnar skammar. Þjónustusamningurinn var lagð- ur fram til kynningar í mannrétt- indaráði, fullkláraður og undirrit- aður ásamt tilkynningu um að 10 milljónum af fjármagni mannrétt- indaráðs hefði verið varið til verks- ins – að ráðinu sjáfu forspurðu. Samkvæmt sam- þykktum borgarinnar er mannréttindaráð í fyrirsvari af borg- arinnar hálfu á sviði mannréttindamála. Það er algjört nýmæli, sem ekki getur talist til bóta, að borg- arstjóri taki fram fyrir hendur fagráða. Að hann, einn og óstudd- ur, taki að sér að vinna og undirrita stefnumótandi samn- inga og verja fjár- munum fagráða er fullkomið virðing- arleysi við málaflokk- inn, samstarfsfólk og borgarbúa. Borgarstjóra, Ólafi F. Magnússyni, hefur verið tíðrætt um opin og heiðarleg vinnu- brögð. Hann segist bera mikla virðingu fyrir borgarbúum og vera heilindamaður mikill. En verkin tala. Verk sem eru í hróp- andi mótsögn við orð borgarstjórans í Reykjavík. Maður sem þumbast áfram og virðir hvorki valdmörk sín né annarra ástundar hvorki opin né heiðarleg vinnubrögð. Valdhroki borgarstjóra Sóley Tómasdóttir skrifar um borgarstjórnarmál Sóley Tómasdóttir » Fyrirheit um opin og heið- arleg vinnu- brögð stendur ekki til að efna. Verkin tala. Verk sem eru í hrópandi mót- sögn við orð borgarstjórans í Reykjavík. Höfundur er varaborgarfulltrúi VG. Fáðu úrslitin send í símann þinn Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardag 10-17 sunnudag 13-17Opið OPIÐ Laugardag og sun nudag Vortilboð á inni- og úti blómapottum úr postulíni Sprengihelgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.