Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 31
þjóðlífsþankar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 31 Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Sími 551 3010 alleikarar: Christian Bale, Heath Ledger, Aaron Eckhart Nýjustu Batman-myndarinnar er beðið með mikilli eftirvæntingu, en að þessu sinni snúa þeir bökum saman Leðurblökumaðurinn (Bale), borg- arstjórinn í Gotham (Gary Oldman) og saksóknarinn (Eckhart) í barátt- unni við illfyglið, Jókerinn – sem er næstsíðasta hlutverk gæðaleikarans Ledgers. Ótímabært dauðsfall hans verður þess valdandi að enn fleiri munu sjá myndina, en sagt er að Ástralinn steli myndinni með húð og hári. Step Brothers Leikstjóri: Adam McKay. Aðal- leikarar: Will Ferrell, John C. Reilly Þeir Ferrell og Reilly voru góðir saman í Talladega Nights, en að þessu sinni leika þeir ofdekraða full- orðna mömmudrengi sem engu nenna og letin er að leggja í gröfina þegar þeir verða óvænt bræður er foreldrar þeirra draga sig saman. Nokkuð langsótt, en hugsanlega góð skemmtun. The X-Files: I Want to Believe Leikstjóri: Chris Carter. Aðalleik- arar: David Duchovny, Gillian Anderson, Billy Connolly Það hlaut að koma að því, milljónir áhangenda hinna leyndardómsfullu og vísindaskáldsögulegu sjónvarps- þátta um þau Fox Mulder og Dönu Scully þurfa ekki að bíða lengur eftir kvikmynd númer 2. Hún verður frumsýnd miðsumars, Duchovny og Anderson fara vitaskuld með hlut- verk leyniþjónustumannanna og Connolly bætir allan félagsskap sem hann kemur nærri. Mikil leynd hvílir einnig yfir efni myndarinnar sem hef- ur ekki kvisast út. The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor Leikstjóri: Rob Cohen. Aðalleik- arar: Brendan Fraser, Jet Li, Maria Bello Múmían er enn komin á flakk í Mið-Austurlöndum, skæðari en nokkru sinni fyrr. Að þessu sinni inni- heldur hún líkamsleifar kvendjöfuls- ins Ziujan (Michelle Yeoh), sem á var lögð bölvun fyrir mörgum öldum. Dugar ekki minni bógur en Alex O’Connell (Fraser) til að kveða hann niður. Bello er hins vegar mætt á mörkina í stað Rachel Weisz. The International Leikstjóri: Tom Tykwer. Aðalleik- arar: Clive Owen, Naomi Watts Margir hafa velt þeirri háleitu spurningu fyrir sér: Hvernig hefði Owen plumað sig sem 007? Hér fæst svarið því breski leikarinn fer með hlutverk Interpol-lögreglumanns sem fær það erfiða hlutskipti að fletta ofan af alþjóðlegum vopnasölum. Þeir njóta stuðnings vafasams fjárfesting- arbanka sem mun þó ekki norrænnar ættar. Myndin er fyrsta Hollywood- verkefni þýska leikstjórans (Run, Lola Run). Babylon A.D. Leikstjóri: Mathieu Kassovitz. Að- alleikarar: Vin Diesel, Michelle Yeoh, Mélanie Thierry Franski spennumyndaleikstjórinn er einnig að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaborginni við Kyrrahafið. Hann snýr sér í þetta skipti að vafa- sömum kvenmanni í Rússíá, sem býr yfir ógnarlegum leyndardómum. Hún er með veirusjúkdóm sem lagt getur mannkynið í gröfina í einni svipan ef illa fer. Það er því enginn aukvisi kall- aður til að koma kvensunni á öruggan stað í vestri, eða enginn annar en Thoorop, sem leikinn er af hinum snaggaralega skallagrími, Vin Diesel. Righteous Kill Leikstjóri: Jon Avnet. Aðalleik- arar: Robert De Niro, Al Pacino, Carla Gugino Nú er komið að leiðarlokum og far- ið að hausta. Í september verður frumsýnd „síðasta sumarmyndin“, sem státar af De Niro og Pacino í hlutverkum lögreglumanna í New York. Það er framið morð sem minnir ískyggilega á annað sem var dæmt í fyrir fjölda ára og situr meintur morðinginn á bak við lás og slá. Hefur hann verið saklaus í prísundinni? Úr- valslöggurnar svara því vonandi á fullnægjandi hátt og er tilhlökkunar- efni að sjá þessar kempur saman. saebjorn@heimsnet.is Wall E Ný tölvuteiknimynd frá Pixar um vélmenni framtíðarinnar. Hetja Pandan Po fær kennslu í austurlenskri bardagalist . Ástargúrúinn Mike Meyers fer með hlutverk Pitja í The Love Guru. Beðmál í borginni Kvikmyndin enn eitt dæmið um sjónvarpsþátt sem fær framhaldslíf á hvíta tjaldinu. Milljónir áhangenda hinna leyndardóms- fullu og vísindaskáld- sögulegu sjónvarps- þátta um þau Fox Mulder og Dönu Scully þurfa ekki að bíða lengur eftir kvik- mynd númer 2. Óskaplega hefur verið erfitt aðlesa blöðin undanfarið og fylgj- ast með öðrum fjölmiðlum. Hver fréttin rekur aðra um ótrúlegt fram- ferði sumra karlmanna gegn börn- um, svo sem Fritzl í Austurríki og glæpi hans og bandaríska myndbirt- ingarmanninn. En líka hér fréttist af töluvert mörgum mönnum sem ekki virðast geta séð börn í friði. Það sýnist vera ótrúlega algengt að fullorðnir karlmenn sitji fyrir börn- um og vinni þeim mein. Þótt vonandi sé ekki allt rétt sem fréttist og borið er á menn er fjöldi svona mála samt ógnvekjandi. Það er stundum talað um að kon- ur séu í of miklum meirihluta í umönnun og kennslu barna í leik- skólum og grunnskólum landsins, en kannski er það ekki eins óheppilegt og af er látið þegar öllu er á botninn hvolft, kannski eru börn öruggari hjá konum, fáar fréttir berast a.m.k. af kynferðisafbrotum þeirra gegn börnum. Auðvitað má ekki láta hug- fallast né heldur ætla þeim mönnum illt sem ekki eiga það skilið, en eigi að síður flögraði þessi hugsun að mér þegar ég heyrði og sá fréttir síðustu viku. Þótt vitað sé að börn segi ekki alltaf satt þá hafa málin sem dæmt hefur verið í sýnt svo ekki verður um villst að ótrúlega margir menn „sitja um sakleys- ingjana“. Á árum áður heyrðust svona mál sjaldan nefnd en eftir að opnað var fyrir umræðu um sifja- spell og misnotkun á börnum er eins og flóðgáttir hafi opnast og þetta vekur manni vonleysi og sorg. Það er undarlegt og ekki í samræmi við það sem manni finnst eðlilegt að ráðast á þennan hátt á ungviðið. Flestir bera í brjósti verndartilfinn- ingu fyrir þeim sem eru minni mátt- ar og saklausir. Vilja varðveita þá fyrir öllu illu. Maður spyr sig hvað hefur farið úrskeiðis í sálarlífi þeirra sem fremja kynferðisbrot á börnum, er eitthvað í uppeldi þessara manna sem leiðir þessa ógæfu af sér – er þetta geðsjúkdómur sem lýsir sér svona? Eða er mannskepnan kannski svona slæm í sumum til- vikum? Svörin eru fá enda er þetta sjálfsagt margflókið fyrirbæri. Eina sem er ljóst er að það þarf að fylgj- ast vel með þeim sem eru með börn á heimili eða starfa á vettvangi með börnum. Það er alltaf sárt þegar tor- tryggni kemur upp, en sennilega er hún nauðsynleg í þessum efnum, – börnin þarf umfram allt að varð- veita. Sé þeim gert mein er það ekki aftur tekið og illt fyrir slíkt að bæta. Setið fyrir sakleysingjum Guðrún GuðlaugsdóttIr Eire, eyjan græna Írland, býður upp á margt sem gleður: fallegt landslag, áhugaverða sögu, söngva og sagnir. Í þessari ferð er flogið til Manchester, ekið til Holyhead og farið með ferju yfir til höfuðborgar Írlands, Dublin. Þaðan er ekið til Galway og meðal annars komið við í Clonmacnois klaustrinu. Margt fleira áhugavert skoðað, s.s. Connemara skaginn, en þaðan koma Connemara steinarnir sem prýða marga írska skartgripi og nytjahluti og Kylemore þar sem hinn frægi klausturskóli stendur. Ekið verður um Burren svæðið, Moher klettarnir skoðaðir, ferja tekin yfir Shannon fljótið frá Killmer til Tarbert og farið til Tralee. Kerry hringurinn verður ekinn og litast um við hin margfrægu Killarney vötn og í Killarney bænum. Frá Killarney verður farið til Midleton rétt hjá Cork en sá bær er frægur fyrir það að flestar írsku viskítegundirnar eru þaðan, þar á meðal Jameson. Í Cork og nágrenni er einnig margt fallegt að sjá og skemmtilegt að upplifa. Ferðinni lýkur svo í Dublin þar sem við eigum frjálsan dag áður en haldið er heim á leið. Fararstjóri: Jón Baldvin Halldórsson Verð: 169.300 kr. Mikið innifalið! 13. - 23. júní Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir Írland s: 570 2790 www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R SUMAR 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.