Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Bjartsýn á framhaldið  Viðræðum hjúkrunarfræðinga og samninganefndar ríkisins var frest- að í gær og áttu þær að hefjast aftur nú klukkan 9.30. Haft var eftir Elsu B. Friðfinnsdóttur, formanni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, að í fyrsta sinn hefðu deiluaðilar fundið einhvern snertiflöt. Kvaðst hún vera bjartsýn á framhaldið en náist ekki samkomulag fyrir fimmtudag mun koma til yfirvinnubanns hjá hjúkr- unarfræðingum. Taldi Elsa að það hvetti hvora tveggju til að komast að niðurstöðu. » 2 Betra hjá sandsílinu  „Við erum bjartsýnni á horfurnar í ár en í fyrra,“ sagði Valur Bogason, sérfræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun í Vestmannaeyjum, um ástandið á sandsílinu en mikill brest- ur var í viðkomu þess 2005 og 2006. Hrygningin lánaðist hins vegar bet- ur í fyrra. Nú er að hefjast leiðangur til að kanna nánar ástandið á sílinu en það er mjög mikilvæg fæða fyrir fugl og fisk. » 6 Horfurnar ekki bjartar  Allt bendir til að atvinnuleysi hér á landi muni aukast verulega á næst- unni og á skemmri tíma en gerst hef- ur í langan tíma. Talið er að það geti hugsanlega orðið 2% undir árslok og svartsýnustu spár gera ráð fyrir 3,8% á næsta ári. Það svarar til 6.700 manna » 18 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Veldu mig! Veldu mig Staksteinar: Falskt öryggi? Forystugreinar: Næst á dagskrá: Náttúruminjasafn | Jákvæð þróun UMRÆÐAN» Hverjir eiga að taka pokann sinn? Mál Ramses – hvað er til ráða? „Vor saga geymir ýmsan auman blett“  3   3 3  3 3  4 %5& . $+ $% 6$# $$#!     3 3 3 3 3 3 3 - 7 1 &   3  3 3  3   3 89::;<= &>?<:=@6&AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@&77<D@; @9<&77<D@; &E@&77<D@; &2=&&@!F<;@7= G;A;@&7>G?@ &8< ?2<; 6?@6=&2+&=>;:; Heitast 22° C | Kaldast 15° C Fremur hæg norð- læg átt. Léttskýjað í innsveitum , hlýjast suðvestan og vest- anlands. » 10 Andri Karl gerir upp Hróarskeldu- hátíðina og skellir sér að því búnu á djasshátíð í næstu borg. » 29 TÓNLIST» Eftir tjald- hælana KVIKMYNDIR» Hollywood kann ekki að hrella. » 35 Þögult myndlistar uppboð á Akureyri til styrktar Mynd- listarskólanum sem skemmdist í bruna um daginn. » 30 MYNDLIST» Þögult uppboð AF LISTUM» Það borgar sig ekki að hitta goðin sín. » 32 MYNDLIST» Er þetta Erling Klingen- berg á myndinni? »28 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Lögregla lýsir eftir karlmanni 2. Aldrei saman á ný 3. Tekið til í draugahúsi 4. Gerði sér upp hjartaáföll  Íslenska krónan styrktist um 0,64% „ÞAÐ HEFUR verið þekkt undanfarin ár að ein- hver hluti starranna á Snæfellsnesi er alhvítur, alveg frá Rifi og inn í Stykkishólm, jafnvel víðar. Þetta er sá staður á landinu þar sem oftast frétt- ist af hvítum störrum. Það eru hvítir starrar í stofninum þar,“ segir Gunnar Þór Hallgrímsson fuglafræðingur, um starrann hvíta sem sást hér í sjómannagarðinum í Ólafsvík á dögunum. Gunnar Þór segir að fyrir allnokkrum árum hafi hvítur starri komið inn í stofninn á svæðinu, sem leiði af sér að hluti fuglanna sé albínískur. „Hvítir starrar eru sárasjaldgæfir annars staðar á landinu, þó hefur borið á því t.d. á Reykjavíkursvæðinu að það komi starrar með hvítar fjaðrir hér og þar.“ baldura@mbl.is Sjaldséður hvítur starri Morgunblaðið/Alfons Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÉG ætla að rannsaka far laxanna, finna hrygning- arstöðvar þeirra og athuga muninn á hrygningar- stöðvum stórlaxa annars vegar og smálaxa hins vegar,“ segir Kristinn Ólafur Kristinsson, meist- aranemi í líffræði við Háskóla Íslands, þegar blaða- maður nær honum í síma við bakka Laxár í Aðaldal. Kristinn vinnur nú að meistaraverkefni sínu í samstarfi við Veiðimálastofnun og Náttúrustofu Norðausturlands. Hann hefur þegar merkt hátt í tuttugu hrygnur neðan Æðarfossa og ætlar að fylgja þeim eftir fram á haust, þar til hrygningu er lokið. Rannsókninni lýkur þó ekki fyrr en næsta vor. „Næsta vor mun ég rafveiða á hrygningarstöð- unum og athuga hversu vel hrygning hefur heppn- ast á hverjum stað,“ segir hann. Þá mun hann einn- ig taka sýnishorn af botnlagi staðanna til að athuga hversu gróft það er. Við þessa iðju er Kristinn innan um sportveiði- menn í Laxá. En hvernig taka þeir honum? „Vonum framar! Það er með ólíkindum hvað þeir taka mér vel, eru áhugasamir og hjálpsamir,“ segir hann, en blaðamaður hefur það fyrir satt að veiðimaður einn sem ekki var að „fá hann“ fyrir skemmstu hafi feng- ið þær upplýsingar hjá Kristni að nokkrar af hrygn- unum hans væru í veiðistaðnum, en fúlsuðu greini- lega við agninu. Kristinn ferðast nú upp og niður með ánni og nemur bylgjur frá fiskunum með þar til gerðum tækjum, og skráir niður hvert leiðir þeirra liggja. Í Laxá er veitt og sleppt, svo Kristinn hefur ekki miklar áhyggjur af örlögum merktu fiskanna en vonast þó til þess að veiðimenn skili örmerkinu ef svo fer að merktur fiskur drepist í átökum við flug- una. Eltist við hrygnurnar  Meistaranemi rannsakar hrygningarstöðvar smá- og stórlaxa í Laxá í Aðaldal  Fylgist með ferðum laxa frá árbakkanum innan um áhugasama stangveiðimenn Ljósmynd/Kristinn Ólafur Kristinsson Sendir Ein af merktu hrygnunum í Laxá í Að- aldal. Kristinn er búinn að merkja hátt í tuttugu. Í HNOTSKURN »Kristinn ætlar að merkja 60 hrygnurmeð örmerkjum, til að geta fylgst með ferðum þeirra. Örmerkið er fest við bak- uggarótina og gefur frá sér útvarpsbylgjur. »Örmerkin eru á sérstakri tíðni svo hægter að vita hvaða hrygna er hvar. »Örmerkin draga um 500 m við bestu að-stæður en ýmislegt getur skyggt á þau ofan í ánni og minnkað drægið. »Á meðal rannsóknarefna er hvort ein-hverjar aðstæður í ánni hamli betri við- gangi laxastofnsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.