Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þegar frændi minn kom hérna í den, þá var hann fluttur til baka með varðskipi og í ráð-
herrafylgd, núna hefur enginn áhuga, ekki einu sinni á að koma mér í hausasafnið þitt.
VEÐUR
Talsverðar umræður fara núfram um umhverfisvottun sjáv-
arafurða. Eins og fram hefur kom-
ið hér í blaðinu vilja stórmarkaðir
erlendis í auknum mæli að slík
merking sé á fiski, sem þeir selja.
Þessar áherzl-ur verzlana-
keðja eru ekki
einvörðungu til-
komnar vegna
þrýstings frá
umhverf-
issamtökum.
Neytendur eru í
vaxandi mæli
meðvitaðir um
hvað þeir láta of-
an í sig. Hér á Íslandi er orðinn til
stór hópur neytenda, sem gáir að
umhverfismerkingum áður en
hann ákveður að kaupa vöru úti í
búð.
Samt halda menn áfram að talaeins og eftirspurn eftir um-
hverfismerkingum sé aðallega til-
komin vegna „áróðurs“ umhverf-
isverndarsamtaka. Þess gætir í
samtali við Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóra LÍÚ, í Morg-
unblaðinu í gær.
Það er rétt hjá Friðriki að það áekki að láta umhverfisverndar-
samtök stýra fiskveiðum á Íslands-
miðum. En framganga Íslendinga í
þessum efnum verður að taka mið
af þeirri staðreynd að það eru
venjulegir neytendur í nágranna-
löndum okkar sem setja það fyrir
sig ef fiskur er ekki umhverfis-
merktur.
Ein ástæða þess að jafnlangantíma hefur tekið og raun ber
vitni að koma upp íslenzku um-
hverfismerki, er að þetta fólk hef-
ur ekki verið tekið alvarlega.
Við skulum ekki gera sömu mis-tök og í hvalveiðimálunum, þar
sem andstæðingar hvalveiða hafa
of lengi verið afgreiddir sem ein-
hverjir vitleysingar.
STAKSTEINAR
Friðrik J.
Arngrímsson
Eintómir öfgamenn?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
## !
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
"
"
"
"
"
"
"
*$BC
!
"
#$
%
*!
$$B *!
$! % & '(
<2
<! <2
<! <2
$&% # ) #*+ ,-#.
DB
E
*
B
&
'
%
<7
'
(
%
(
)
<
&
"*#+,
&
- %
#.
#$ /0 ! 11
# '! 2 -' ) #*
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
EGGERT
Claessen var
veitt dokt-
orsnafnbót í
viðskiptafræði
frá Brunel Uni-
versity 24. maí
sl. fyrir rann-
sóknir sínar við
Henley Man-
agement Col-
lege í Bretlandi. Doktorsritgerðin
nefnist „A Resource Based View
on the Relationship Between Org-
anizational Learning and Excel-
lence in Business in SMEs in IT“
eða „Auðlindarýni á tengsl lær-
dóms og rekstrarárangurs í litlum
og meðalstórum fyrirtækjum í
upplýsingatækni“. Leiðbeinandi
verkefnisins var Patrick Joynt,
prófessor við Henley Manage-
ment College.
Eggert Claessen útskrifaðist
sem viðskiptafræðingur (cand. oe-
con.) frá Háskóla Íslands 1984 og
lauk meistaraprófi í alþjóða-
viðskiptum (MSc) frá sama skóla
2001. Eggert er giftur Sigrúnu
Kjartansdóttur, framkvæmda-
stjóra hjá Glitni.
Doktor í
viðskipta-
fræði
Árangur af upplýs-
ingatækni fyrirtækja
Eggert Claessen
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STJÓRN Þeistareykja ehf. íhugar að fara í mál
eða óska eftir endurskoðun ákvörðunar Þórunnar
Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að
meta sameiginlega áhrif álversins á Bakka og
væntanlega virkjun á Þeistareykjum.
Að sögn Franz Árnasonar, stjórnarformanns
Þeistareykja, liggur ákvörðun ekki fyrir um
hvernig stjórnin hyggst bregðast við. Fyrst þurfi
að fara fram fundur með Skipulagsstofnun og
fleiri aðilum, sem boðaður hefur verið síðar í vik-
unni, til að skýra nánar hvað ákvörðun umhverf-
isráðherra þýðir í raun.
Stjórn Þeistareykja telur ráðherra ekki geta
tengt framkvæmdirnar saman með þeim hætti
sem gert er. Alltaf hafi legið fyrir að Þeistareykja-
virkjun færi í umhverfismat að rannsóknarferli
loknu en Franz segir það vera allt annað mál. Tafir
á rannsóknum nú séu óviðunandi.
„Rannsóknir á Þeistareykjum hófust árið 1999
og markmið félagsins hefur æ síðan verið að selja
raforku hverjum þeim sem kaupa vildi, algjörlega
óháð áformum um álver á Bakka. Álverið gæti
fengið orkuna hvaðan sem er, enda tengjast allar
stærri virkjanir flutningskerfi Landsnets,“ segir
Franz og bendir á að í ákvörðun umhverfisráð-
herra sé ekkert minnst á höfnina á Bakka og veg
þaðan að álverinu. Hvor framkvæmd um sig teng-
ist þó álverinu og engu öðru.
Franz segir stjórn Þeistareykja hafa um þrjár
leiðir að velja. Í fyrsta lagi að aðhafast ekki neitt, í
öðru lagi að höfða mál fyrir dómstólum eða í þriðja
lagi að óska eftir því með rökum að umhverfisráð-
herra takið málið til endurskoðunar.
Íhuga málsókn vegna heildarmats
Stjórnarformaður Þeistareykja segir tafir á rannsóknum vera óviðunandi
FJÖLDI þekktra Íslendinga
flykktist í gær með flíkur, skart,
skó og aðra muni til Jóhönnu
Kristjónsdóttur en þeir verða
seldir á svokölluðum Súk glæsi-
markaði í Perlunni 30. ágúst nk.
Mun allur ágóði af markaðnum
renna til uppbyggingar á skóla
fyrir börn og konur í Jemen en
málefnið hefur lengi verið Jó-
hönnu hugleikið.
Að sögn Jóhönnu gekk söfnunin
vel og mætti fjöldi manns sem
vildi styðja verkefnið. „Það var
allt frá Armani-herrafötum og
tískudressum til þess, sem mér
fannst einna skemmtilegast, að
ungur drengur gaf uppáhalds-
bókina sína.“
Meðal þeirra sem mættu var
Gerður Kristný Guðjónsdóttir rit-
höfundur ásamt syni sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
fghfgh
Glæsimarkaður til
styrktar skóla í Jemen