Morgunblaðið - 13.08.2008, Page 19
ndúna
dreypt er á vínglasi fjarri mann-
flauminum fyrir utan.
Lestarstöð: Charing Cross
eða Embankment á 1. svæði.
Sjá: http://www.gordonswinebar.com/
The Horse Hospital
Eins og nafnið bendir til var þetta
myrka hús eitt sinn spítali hinna
konunglegu hrossa. Síðan 1993 hefur
þar verið stafrækt framúrstefnuleg
listamiðstöð sem geymir grasrótar-
myndlist, ljósmyndasýningar og
sýningar á lítt þekktum neðanjarð-
arkvikmyndum.
Lestarstöð: Russel Square á 1. svæði.
Sjá: http://www.thehorsehospital.com/
The Somerset House
Fallegt sögufrægt hús sem gaman
er að skoða. Sýningar er snerta hina
ýmsu kima listalífsins eru þar ávallt í
gangi og Courtauld Gallery sem er í
hluta hússins geymir mörg af þekkt-
ari verkum listasögunnar. Við So-
merset House er einnig að finna úti-
bíó og boðið er upp á ýmis konar
listasmiðjur fyrir alla aldurshópa. Á
góðum sumardegi er notalegt að fara
þangað með með nesti og góða bók
og eyða tíma í miðgarði hússins sem
breytt er í skautasvell yfir vetrar-
tímann.
Lestarstöð: Temble eða Embankment
á 1. svæði.
http://www.somersethouse.org.uk/
gudrunhulda@mbl.is
undir ákveðnum kringumstæðum.
Fyrir þá sem ætla að dvelja lengi í
einu landi og hringja mörg innan-
landssímtöl borgar sig að kaupa er-
lent SIM-kort og vera með erlent
símanúmer og erlenda verðskrá.
Sumir taka jafnvel gamlan farsíma
með til að geta verið með tvö virk
símanúmer samtímis.
Að síðustu viljum við nefna að það
er hollt fyrir pyngjuna að nota aðrar
samskiptaleiðir en farsímann og þær
eru orðnar margar. Þetta á sérstak-
lega við lönd utan Evrópu (t.d.
Bandaríkin og Rússland) þar sem
verð íslenskra fyrirtækja á farsíma-
samtölum eru há. Tölvuaðgangur er
nú svo auðveldur að sífellt fleiri kjósa
að notfæra sér ókeypis eða ódýra
tölvusímaþjónustu eins og Skype í
staðinn fyrir að nota farsímann.
Notkun á Skype er ókeypis á milli
tveggja tölva, en ef annar aðilinn er
með tölvu og hinn ekki er hægt að
kaupa inneign á vefnum og hringja
ódýrt í erlent farsíma- eða fastlínu-
númer.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 19
HANDKLÆÐI eru meðal þess sem hótel-
gestir girnast hvað mest af lausamunum á
hótelherbergjum. Sumir láta þó ekki þar
við sitja heldur grípa með sér klósettset-
una þegar hóteldvölinni lýkur.
Hóteleigendur um víða veröld glíma við
það vandamál að hlutir af herbergjum
vilja hverfa með gestunum sem þar hafa
dvalið. Berlingske Tidende birtir á heima-
síðu sinni lista yfir tíu hluti sem oftast er
stolið og skiptir þá engu hvort gistingin sé
dýr eða ódýr. Gestirnir stela einfaldlega
ódýrum hlutum af ódýrum hótelum og
dýrum hlutum af þeim sem kosta meira.
Hvort heldur er kosta þjófnaðir gesta hót-
elin tugmilljónir króna ár hvert.
Svo virðist sem konur steli eilítið meiru
en karlar en hins vegar grípa kvenkyns
þjófar aðeins með sér það sem þeir telja
vera ódýra smáhluti. Steli karlarnir á
annað borð víla þeir verðið ekkert fyrir
sér.
Hér er svo listinn yfir vinsælasta hótel-
þýfið:
1 Þvottaklútar
2 Handklæði
3 Sloppar
4 Klósettpappír
5 Rafmagnsperur
6 Klósettburstar
7 Straujárn
8 Kaffivélar og rafmagnskatlar
9 Rúmföt
10 Klósettsetur
Reuters
Lúxus Burj Al Arab-hótelið í Dubai er með dýrustu hótelum
heims. Góssið sem ferðamenn hnupla þaðan er því líklega dýrt.
Algengasta hótelþýfið kortlagt