Morgunblaðið - 13.08.2008, Page 32
Það er kosturinn við
Ísland að það eru
frekar fáir músíkantar … 35
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
MIKILL fjöldi
söngvara og ann-
arra tónlistar-
manna mun koma
fram á tónleikum
sem haldnir verða
til minningar um
Vilhjálm Vil-
hjálmsson í Laug-
ardalshöllinni
föstudagskvöldið
10. október næstkomandi. Upp-
haflega stóð til að halda tónleikana í
lok þessa mánaðar, en að sögn Ísleifs
Þórhallsonar tónleikahaldara var
ákveðið að fresta þeim svo hægt
væri að leggja meira í þá.
Ísleifur segir að allt verði gert til
að gera tónleikana sem glæsilegasta,
en meðal annars er stefnt að því að
nýta tæknina þannig að Vilhjálmur
sjálfur geti allt að því „tekið þátt“ í
tónleikunum. Ekki er loku fyrir það
skotið að Vilhjálmur muni þannig
„flytja“ einhver lög á tónleikunum,
til dæmis nýtt lag sem kom í leit-
irnar fyrir skömmu. Lagið fann upp-
tökustjórinn Tony Cook sem vann í
mörg ár á Íslandi, en það var prufu-
upptaka sem gerð var á sama tíma
og verið var að vinna síðasta lagið
með Vilhjálmi. Lagið er eftir Magn-
ús Kjartansson en Vilhjálmur söng
og samdi texta við það.
Á meðal þeirra listamanna sem
líklega munu koma fram á tónleik-
unum má nefna Bubba Morthens,
Egil Ólafsson, Diddú, Stefán Hilm-
arsson, Jón Jósep Snæbjörnsson,
Pál Rósinkrans, Björgvin Hall-
dórsson, Ellen Kristjánsdóttur, Guð-
rúnu Gunnarsdóttur, Helga Björns-
son, KK, Ladda, Lay Low, Pálma
Gunnarsson og Ragnheiði Gröndal.
Vilhjálmur Vilhjálmsson var einn
ástsælasti söngvari þjóðarinnar, en
hann lést í bílslysi í Lúxemborg hinn
28. mars árið 1978, fyrir rétt rúmum
30 árum.
Miðasala á tónleikana mun líklega
hefjast í byrjun september.
Risatónleikar í Höllinni
Ástsæll Á þessu ári eru 30 ár frá því Vilhjálmur lést af slysförum.
Fjölmargar söngstjörnur minnast Villa Vill hinn 10. október
Ísleifur
Þórhallsson
Eins og fram
kom á þessum
stað í blaði gær-
dagsins taka ís-
lenskar stutt-
myndir vart þátt
í kvikmyndhátíð-
um án þess að hljóta verðlaun. Um
síðustu helgi hlaut stuttmynd Rún-
ars Rúnarssonar, Smáfuglar,
verðlaun á Dokufest-hátíðinni í
Kosovo í flokki stuttmynda. Smá-
fuglar var tilnefnd til Gullpálmans
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
vor en verðlaunin nú eru tíundu
verðlaunin sem myndin hlýtur á
örfáum mánuðum. Þar áður hlaut
hún verðlaun á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Melbourne
(MIFF), Ástralíu.
Stuttmyndin heldur áfram ferð
sinni um heiminn og mun hún á
næstunni ferðast meðal annars til
Svíþjóðar, Bosníu-Hersegóvinu,
Frakklands, Sarajevo og Banda-
ríkjanna. Smáfuglar verður sýnd á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík (RIFF) sem haldin verð-
ur um mánaðamótin september-
október. Verður þar um Íslands-
frumsýningu myndarinnar að
ræða.
10. verðlaun Smáfugla
Rúnars Rúnarssonar
Hitamolla og
svitakóf er það
sem maður helst
heyrir á fólki að
hafi einkennt tón-
leika Erics Clap-
tons í Egilshöll á
föstudaginn. Jú, og að hann hafi
ekki tekið „Layla“.
Tónleikahaldarar landsins ættu
að hugsa sig tvisvar um áður en
þeir bjóða upp á aðra tónleika í Eg-
ilshöll. Það gengur einfaldlega ekki
upp að eðlilega loftræstingu vanti í
íþróttahöllina, í þau skipti sem
henni er breytt í tónleikahöll.
Og þeir „stóru“ listamenn sem
hingað koma eiga heldur ekki að
komast upp með að hafa áhrif á
mikilvæga öryggisþætti á borð við
nægilegt magn andrúmslofts í
skemmunni. Eða þarf kannski al-
varlegt slys svo menn átti sig?
Ekki á þeirra valdi
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
EKKI verður annað sagt en að Ásdís Rán Gunn-
arsdóttir hafi í nógu að snúast. Raunveruleika-
þáttur er handan við hornið, kvikmyndahlutverk
sömuleiðis og samfara þessu þarf hún að stýra
fyrirtæki og ala upp þrjú börn. „Hann styður mig í
öllu sem ég geri,“ segir Ásdís Rán um stuðning
eiginmannsins Garðars Gunnlaugssonar knatt-
spyrnumanns sem hún segir að hjálpi henni að
takast á við öll verkefnin.
Nýjasta fréttin af Ásdísi, sem varð þrítug í gær,
er að hún hafi verið valin andlit ilmvatnsins Rai
Saxx, en um er að ræða skandinavíska ilmlínu.
„Framleiðendur ilmsins höfðu samband við mig
gegnum vefsíðuna mína og hyggja á auglýsinga-
herferð um alla Skandinavíu,“ segir hún. „Um
þrenns konar ilmi er að ræða, einn fyrir dags-
dagleg not, annar fínni og sá þriðji er fyrir róm-
antísk tækifæri, en ilmlínan er í sætari kantinum
og einkum framleidd með yngri konur og stelpur í
huga.“
Milljón dollara Ásdís
Ásdís undirbýr sig einnig fyrir þátttöku í raun-
veruleikaþættinum Million Dollar Woman sem
tekin verður upp í Ástralíu. Ásdís hreppti sæti í
keppninni gegnum net-fegurðarkeppnina Is She
Hot? og mun hún etja kappi við tólf aðrar þokka-
dísir um stóra vinninginn: eina milljón Banda-
ríkjadala. „Eftir því sem ég kemst næst verða
þættirnir blanda af fyrirsætukeppni og raunveru-
leikaþætti og verðum við væntanlega látnar
keppa okkar á milli með svipuðum hætti og sést í
America’s Next Top Model,“ útskýrir Ásdís Rán.
Einnig hafa fjölmiðlar greint frá því að Ásdís
muni leika hlutverk í kvikmynd leikstjórans Jord-
an Alan en Ásdís segir enn langt í tökur og margt
óljóst að svo stöddu. „Hann hefur talað um að hafa
mig í áberandi hlutverki en ekkert hefur verið
fest niður og enn á eftir að halda áheyrnarprufur
fyrir fjölda hlutverka,“ segir hún. Áætlað er að
hefja tökur á Íslandi næsta sumar: „Kvikmyndin
lýsir einskonar kvennaveröld og munu því margir
kvenleikarar koma að verkinu.“
Vilja Ásdísi sem leikfélaga
Heimsókn Ásdísar Ránar í Playboy-setur
Hughs Heffner vakti mikla athygli fyrr á árinu og
gerði hana að bloggstjörnu að segja má yfir nótt.
Eftir ferðina fékk Ásdís boð um að koma í prufu-
töku sem „leikfélagi“ eins og það er kallað. „En
það er eitthvað í undirmeðvitundinni sem segir
mér að ég ætti kannski að bíða, a.m.k. þangað til
úrslitin í raunveruleikaþættinum eru komin,“ seg-
ir hún og bætir við að það að sitja fyrir á nekt-
armyndum sé ekki bransi sem heilli hana sér-
staklega.
„En í þessu felst mikil kynning og ég myndi
náttúrulega reyna að hafa eins mikil áhrif og ég
gæti á að myndirnar yrðu settlegar en ekki
druslulegar. Svo myndi ég auðvitað ekki gera
þetta nema Garðar væri sáttur,“ bætir hún við.
Ekki í Playboy strax
Ásdís Rán verður andlit nýs ilmvatns Hafnaði boði frá Playboy
Morgunblaðið/Valdís Thor
Mörg járn í eldinum Ásdís Rán hefur í nógu að snúast sem fyrirsæta, móðir og eigandi fyrirtækis.
www.asdisran.com
asdisran.blog.is
ÁSDÍSI hefur ekki enn tekist að selja fyrirtæki
sitt, umboðsskrifstofuna Ice Models, sem hún
auglýsti til sölu í júní. „Nei, það hefur ekki geng-
ið. Margir eru áhugasamir en þetta virðist ekki
vera rétti tíminn,“ segir Ásdís og kveðst ætla að
sinna stofunni og skjólstæðingum eftir bestu
getu.
Salan kom m.a. til vegna þess að Ásdís þarf að
dvelja mikið í Svíþjóð þar sem maðurinn hennar
spilar fótbolta. „En nú er samningurinn hans að
renna út í nóvember og við vitum ekki enn fyrir
víst hvað tekur við. Mörg lið í mörgum löndum
hafa áhuga á honum en þangað til ákvörðun verð-
ur tekin erum við svolítið í lausu lofti.“
Enn til sölu