Morgunblaðið - 13.08.2008, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ ER sérkennilegt að
hugsa til þess að stór hópur
ungmenna, kannski velflest,
hefur aldrei
heyrt getið
um fyr-
irbærið
Júgóslavía,
hvað þá þau
kannist við
eitthvað sem
hét Ceylon,
nú eða Bi-
afra, Rang-
oon, Königsberg eða Danzig.
Málið er nefnilega að á síðustu
árum og áratugum hafa orðið
gríðarlegar breytingar í landa-
fræðinni, og stundum svo örar
að maður má hafa sig allan við
að fylgjast með.
Þetta litla kver Harrys
Campbells er skemmtileg sam-
antekt á ýmsum landafræði-
heitum sem áður voru á allra
vörum, en hann reynir að út-
skýra hvað varð um þau, hvers
vegna þeim var breytt eða þau
hurfu og rifjar í leiðinni upp
sögu viðkomandi staðar, lands
eða borgar.
Bókin er skrifuð í gam-
ansömum tón þó oft sé vissu-
lega verið að fjalla um hörm-
ungaratburði eins og þjóð-
ernisátök á Balkanskaga, illa
meðferð Belga á íbúum í Mið-
Afríku, harkalega framkomu
breskra stjórnvalda við íbúa
Diego Garcia (allir reknir úr
landi) og svo má lengi telja.
Málið er nefnilega það að iðu-
lega vilja menn beita ofbeldi til
að breyta landfræðilegum stað-
reyndum og komast býsna oft
upp með það. Það eru líka
dæmi um það hvernig kjörin
stjórnvöld beita þjóðern-
isrökum til að gera breytingar,
oft illa ígrundaðar, á borgar- og
landaheitum, til að mynda það
sem gengið hefur á í Indlandi á
undanförnum árum þegar
menn eru að reyna að „hind-
úavæða“ borgar- og héraðs-
heiti, oft í tómu rugli (nöfnin
sem eru valin eru sum ekki
hindúanöfn og önnur tómur
misskilningur).
Þetta er ekki veigamikil bók
og líklega ekki bók til að lesa í
einni lotu, en hún er prýðilegt
uppflettirit og gagnlegt sem
slíkt.
Hvað varð um …
Whatever Happened to Tang-
anyika? eftir Harry Campbell. Por-
tico gefur út. 258 bls. innb.
Árni Matthíasson
BÆKUR»
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HJÓNIN Susan Schade og
Jon Buller hafa gefið út fjöl-
margar barnabækur, en
Schade semur texta og Bull-
er teiknar. Alla jafnan eru
það bækur fyrir yngstu
börnin þar sem myndirnar
eru í aðalhlutverki, en í sög-
unum af Þokuhæð er aftur á
móti meira um texta en
myndir; í bókunum skiptast
á síður með teiknimyndum
og síður með myndskreytt-
um texta.
Sagan segir frá jarðíkorn-
anum Thelonious sem býr í
heimi án manna. Hann getur
talað og eins systir hans og
móðir en fljótlega kemur í
ljós að engir eru mennirnir
vegna þess að þeir hafa dáið
út einhverntímann í fyrnd-
inni og skilið eftir sig miklar
rústir. Thelonious er býsna
djarfur af jarðíkorna að
vera, gríðarlega forvitinn og
dýrin að varast sitthvað sem
mennirnir hafa skilið eftir
sig, en smám saman kemur í
ljós hvaða voðaatburðir urðu
til þess að mannkynið hvarf
af jörðinni og um leið hvern-
ig á því stendur að sum dýr
geta talað, en önnur ekki.
Þó sagan sjálf sé ævintýri
þá er frásögnin raunsæisleg
um margt og á köflum dálít-
ið harkaleg þó góðlátlegt
gaman sé aldrei langt undan.
Það er til að mynda kald-
hæðnislegt að sjá hvernig
dýrin taka upp á því að
hegða sér eins og menn og
þá á ég ekki bara við um það
góða sem menn gera heldur
einnig hið illa, stríðsátök og
hryðjuverk eru ekki bara á
færi manna í þessari nútíma-
útgáfu af Kardimommubæn-
um.
Travels of Thelonious,
Simon’s Dream og Fara-
dawn eftir Susan Schade og
Jon Buller. Simon & Schus-
ter gefur út.
árbakka. Þegar áin síðan
brýst yfir bakka sína fellir
hún tréð og skolar Thelon-
ious með sér, nær dauða en
lífi, til goðsagnakennds stað-
ar, Borgar rústanna, þar
sem ævintýrið hefst fyrir al-
vöru.
Fyrsta bókin um Thelon-
ious, Ferðir Theloniousar,
kom út á vegum Simon &
Schuster 2006, en sú þriðja,
Faradawn, kom út fyrir
stuttu. Allar hafa þær yf-
irskriftina Þokuhæðin, The
Fog Mound, sem skýrist
nánar er miðar áfram í sög-
unni.
Framvindan er býsna æv-
intýraleg, eins og gefur að
skilja, en ekki geta öll dýr
talað og því fer fjarri að dýr-
in séu öll vinir. Það verður
Theloniousi til happs að
hann kemst í kynni við lærð-
an broddgölt og vingast svo
við eðlu og birni, en óvinirnir
eru af ýmsum gerðum og
tegundum. Einnig þurfa
staffírugur og hefur meðal
annars búið sér heimili ofan
jarðar, nánar tiltekið í há-
vöxnu tré sem stendur við
Forvitnilegar bækur: Hvað verður um dýrin þegar mennirnir hverfa?
Kardimommubær framtíðar
Jon Buller
Hetja Jarðkorninn knái
Thelonious lítur Þokuhæð í
fyrsta sinn.
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
WALL• E m/ísl. tali kl. 1:30D - 3:40D LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ensku tali kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 LEYFÐ
LOVE GURU kl. 10:30 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA kl. 1:30 - 3:40 m/ísl. tali LEYFÐ
GET SMART kl. 1:30 - 3:50 - 5:50D - 8D - 10:30D LEYFÐ DIGITAL
THE MUMMY 3 kl. 5: 40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 12 ára
THE DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 12 ára LÚXUS VIP
MAMMA MIA kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ
GET SMART kl. 3:30D - 5:40D - 8D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
X-FILES 2 kl. 8D - 10:10D B.i. 16 ára DIGITAL
THE MUMMY 3 kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tal kl. 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL
DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 3:40 LEYFÐ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
„FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
“...WALL E fær óskarinn sem besta teiknimyndin, enda
mynd sem fer fram úr því að vera fjölskylduteiknimynd
og yfir í að vera fullorðinsteiknimynd.”
“...full af nægum sjarma til að bræða hvert steinhjarta”.
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
...umhugsunar- og athyglisverðasta
teiknimynd í áratugi...”
“WallE er aftur á móti frábær afþreying ætluð hinum
almenna bíógesti, þá einkum stórfjölskyldunni...”
S.V. Morgunblaðið
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem
fór beint á toppinn í USA.
Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart.