Morgunblaðið - 15.08.2008, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HANNA Birna Kristjánsdóttir mun taka við embætti
borgarstjóra Reykjavíkur á fimmtudaginn kemur. Að
loknum fundi þeirra Óskars Bergssonar í borgarráðs-
herbergi Ráðhúss Reykjavíkur í gærkvöldi kvaðst hún
vera viss um að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sem nú hefur verið myndaður í borg-
arstjórn muni halda út kjörtímabilið. Hún sagði fullan
einhug meðal sjálfstæðismanna um að ganga til sam-
starfs við Framsóknarflokkinn.
„Ég held að við Óskar, Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn, höfum lært okkar lexíu. Við
mynduðum hér meirihlutasamstarf sem var mjög traust
á sínum tíma,“ sagði Hanna Birna og vísaði þar í sam-
starf flokkanna í upphafi kjörtímabilsins. Hún sagði mál-
efnasamning flokkanna tveggja frá samstarfinu í upphafi
kjörtímabilsins verða lagðan til grundvallar samstarfinu
nú. Til viðbótar honum hafa einstök atriði verið rædd og
verður nýr málefnasamningur kynntur á fimmtudag í
næstu viku. Hanna Birna sagði að engin stór ágreinings-
efni hefðu komið upp í samningaviðræðunum nú.
„Það verður líka að minna á að í upphafi þessarar at-
burðarásar síðastliðið haust vildi Sjálfstæðisflokkurinn
ekki slíta meirihlutanum. Við vildum sannarlega ekki
slíta meirihlutanum við Framsóknarflokkinn. Við áttum
þar mjög gott samstarf þannig að sú vegferð var ekki
okkar óskastaða,“ sagði Hanna Birna.
Niðurstaða í REI-málinu liggur fyrir og verður kynnt
samhliða nýjum málefnasamningi. Hanna Birna sagði
málið hafa verið í undirbúningi á vettvangi borgar-
stjórnar og að allir flokkar hefðu komið að lausn í mál-
inu. „Ég vonast til að um hana náist góð sátt. Það eru
engar efasemdir um að það verður góð sátt um þessi
málefni á milli okkar Óskars og flokkanna beggja.
Kannski má segja að með þessu sem er að gerast hér í
kvöld, þessum málefnasamningi sem við köllum Höldum
áfram, þá held ég að hringnum sé lokað í þessu.“
Morgunblaðið/Frikki
Endurnýjað samstarf Óskar Bergsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir lýstu ánægju með endurnýjað samstarf.
Við höfum lært
okkar lexíu
Hanna Birna Kristjánsdóttir
tekur við sem borgarstjóri
„ÉG varð fyrir
ákveðnum von-
brigðum með
að sú samstaða
minnihlutans
um að skrifa
ekki undir
klækja-
stjórnmál sem
aðferð til að
komast til valda
rofnaði í dag,“
segir Dagur B. Eggertsson, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar.
Hann segir klækjastjórnmál fel-
ast m.a. í því að láta tilganginn
helga meðalið, mynda ekki meiri-
hluta um þau mál sem borin eru
fram í kosningum.
„Þetta leikrit sem Sjálfstæð-
isflokkurinn setur iðulega á svið
í tengslum við meirihlutaskipti
byggist á því að þeir fái einhvern
meðleikara. Það er miður að það
skuli hafa verið,“ útskýrir Dag-
ur, sem telur að réttast hefði
verið að kjósa í borginni að svo
stöddu.
„Sjálfstæðisflokkurinn er aðal-
höfundur að þeirri ótrúlegu at-
burðarás sem fólk hefur horft
upp á allt þetta kjörtímabil,“ seg-
ir borgarfulltrúinn, sem telur
Sjálfstæðisflokkinn sökkva dýpra
og dýpra í vandamál sem hann
hefur skapað sjálfum sér.
andresth@mbl.is
Samstöðurofin
vonbrigði
Dagur B.
Eggertsson
ÞEGAR Morg-
unblaðið náði
tali af Margréti
Sverrisdóttur í
gærkvöldi var
hún á aðalfundi
Íslandshreyfing-
arinnar. Hún
segist ekki hafa
verið í neinu
sambandi við
Ólaf F. Magn-
ússon síðan hann hóf samstarf við
sjálfstæðismenn og ekki hafi kom-
ið til tals að hún tæki sæti hans í
borgarstjórn í framhaldi af meiri-
hlutaskiptum í borgarstjórn.
„Mér finnst Sjálfstæðisflokk-
urinn vera að þrotum kominn,“
segir Margrét. „Þarna binda þau
trúss sitt við flokk með tveggja
prósenta fylgi. Þó að Hanna
Birna sé verðugur leiðtogi þá
hafa þau sem hópur ekki staðið
sig.“
Margrét bendir á að ekki sé
ljóst hvort Marsibil Sæmundar-
dóttir, varamaður Óskars Bergs-
sonar, fylgi honum að málum. „Þá
gæti þetta orðið mjög líkt því
þegar Ólafur fór og ég neitaði að
fara með honum því að ég þóttist
vita að þetta endaði með ósköp-
um. Það hefur nú komið á dag-
inn.“ gunnhildur@mbl.is
Hefur ekkert
rætt við Ólaf
Margrét
Sverrisdóttir
ÓSKAR Bergsson, verðandi formaður borgarráðs
Reykjavíkur og borgarfulltrúi Framsóknarflokks,
kvaðst að loknum fundi þeirra Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur í gærkvöldi vera bjartsýnn á að samstarfið í nýj-
um meirihluta myndi ganga vel.
„Við erum vön að vinna saman við Hanna Birna. Við
unnum saman í fyrsta meirihlutanum [á þessu kjör-
tímabili] þegar hún var formaður skipulagsráðs og ég
varaformaður. Við þekkjum vel hvort til annars og erum
bæði bjartsýn um að þetta samstarf muni ganga vel.
Þessi fundur okkar í kvöld er fyrsta skrefið í þá átt. Ég
veit að ég tala fyrir okkur bæði þegar ég segi að við séum
bjartsýn um áframhaldið,“ sagði Óskar.
Sem kunnugt er slitnaði upp úr samstarfi Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks fyrr á þessu kjörtímabili
vegna ágreinings um REI og Orkuveituna. Óskar sagði
að búið væri að jafna þann ágreining og að niðurstaðan
yrði kynnt í nýjum málefnasamningi flokkanna.
„Við eigum eftir að bera það undir okkar fólk en við
erum búin að komast að niðurstöðu og munum kynna
hana síðar,“ sagði Óskar. Hann sagði að REI-málið hefði
farið úr böndunum og að atburðarásin þá hefði verið allt
of hröð.
„Við horfum nú fram á lausn í því máli,“ sagði Óskar.
„Það má segja að allt grugg sé sest eftir allt það umrót
þannig að ég hef í raun engar áhyggjur af því. Úr því
REI-málið er komið á hreint að þá muni þessir tveir
flokkar halda áfram því góða samstarfi sem þeir hófu í
upphafi kjörtímabilsins.“
Í nýjum málefnasamningi verði m.a. tekið á efnahags-
málum, breytingum á efnahagsumhverfinu og að mörgu
leyti erfiðri fjárhagsáætlunarvinnu sem fram undan
væri. „Það þarf að sýna festu í fjárhagsáætlunargerðinni
og við treystum okkur alveg í þá vinnu. Hún verður
kannski erfið og kannski ekki mjög vinsæl, en við treyst-
um okkar alveg í þá vegferð.“
Óskar Bergsson tekur við
sem formaður borgarráðs
SVANDÍS Svav-
arsdóttir, borg-
arfulltrúi Vinstri
grænna, er
ómyrk í máli
þegar hún er
innt álits á nýjum
meirihluta Sjálf-
stæðis- og Fram-
sóknarflokks í
borgarstjórninni.
„Þetta er næsti
kafli í farsanum í boði Sjálfstæð-
isflokksins,“ segir hún. Svandís er
líkt og Dagur vonsvikin með að
Óskar Bergsson skuli hafa gengið
til viðræðna við Sjálfstæðisflokk-
inn. „Ég hefði ekki haldið að það
væri það hlutverk sem hann vildi að
yrði skrifað um í sögubækur um
hann,“ útskýrir borgarfulltrúinn.
Skynsemi skortir
Hún segir ástandið í borginni mjög
snúið og að jafnt borgarstarfsmenn
sem og Reykvíkingar séu orðnir
hundleiðir á ástandinu.
„Sjálfstæðismenn eru búnir að
vera með þvílíkan sirkus í gangi allt
þetta kjörtímabil, þetta verður
næsti kafli í því,“ segir Svandís, og
bætir við að skynsemi skorti í borg-
armálum í Reykjavík.
andresth@mbl.is
Sirkus allt
kjörtímabilið
Svandís
Svavarsdóttir
„ÉG er mjög
ánægður með
þessa niður-
stöðu,“ segir Vil-
hjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins
og fyrrverandi
borgarstjóri. „Ég
tel að hún verði
farsæl fyrir
framgang ýmissa brýnna hags-
munamála okkar borgarbúa.“
Ekkert eitt hafi valdið meiri-
hlutaslitunum en menn hafi ekki
verið fullkomlega sammála um ým-
is mál. Þá telur Vilhjálmur að ekki
hafi verið mistök að efna til sam-
starfs við F-listann í janúar. Meiri-
hlutinn hafi látið margt gott af sér
kveða sem því miður hafi ekki hlot-
ið mikla umfjöllun.
„Þeir munu finna fyrir festu í
stjórn borgarinnar og áhuga okkar
og einurð að því að vinna að góðum
málum. Það er það sem ég vona að
menn munu finna fyrir,“ segir loks
Vilhjálmur um við hverju borgar-
búar megi búast af nýjum meiri-
hluta. andresth@mbl.is
Borgarbúar
finni fyrir
festu í stjórn
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
BORGARFULLTRÚAR Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sendu frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu í gærkvöldi.
„Hanna Birna Kristjánsdóttir,
verðandi borgarstjóri Reykjavíkur,
og Óskar Bergsson, verðandi for-
maður borgarráðs, kynntu eftirfar-
andi yfirlýsingu borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks sem þau undirrituðu eftir
fund sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gærkvöldi. Yfirskrift hennar er:
Höldum áfram.
„Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks hafa
ákveðið að hefja á ný meirihluta-
samstarf í Reykjavík. Málefna-
grundvöllur samstarfsins mun að
stórum hluta hvíla á þeim mál-
efnasamningi sem lá til grundvall-
ar samstarfinu að loknum síðustu
kosningum. Breyttar aðstæður í
efnahagsumhverfi kalla hins vegar
á ákveðnar viðbætur við þann
samning, en þar munu vega þyngst
viðfangsefni á sviði efnahagsmála,
fjárhagsáætlunargerðar og at-
vinnumála.
Nákvæmlega útfærður mál-
efnasamningur verður kynntur á
aukafundi borgarstjórnar sem boð-
að verður til næstkomandi fimmtu-
dag. Þá verður einnig kynnt verka-
skipting flokkanna, en Hanna
Birna Kristjánsdóttir mun taka við
embætti borgarstjóra og Óskar
Bergsson verður formaður borg-
arráðs.
Borgarfulltrúar beggja flokka
vænta mikils af áframhaldandi
samstarfi. Flokkarnir eru sammála
um að fyrri ágreiningsmál þeirra
séu að fullu leyst og telja að meiri-
hlutasamstarf þessara tveggja
flokka muni skila borgarbúum
bestum árangri.““
Byggt á fyrri málefnasamningi
Málefnasamningur meirihluta
sjálfstæðismanna og Framsókn-
arflokks eftir kosningarnar vorið
2006 kvað m.a. á um að ákvörðun
um framtíðarstaðsetningu flug-
vallar yrði tekin á kjörtímabilinu.
Þá kom fram í samningnum að
ákvörðun um legu Sundabrautar
ætti að liggja fyrir á árinu (2006)
og hönnun og framkvæmdir að
hefjast í kjölfarið. Önnur sam-
göngumannvirki voru einnig of-
arlega í huga nýja meirihlutans því
í samningnum kom auk þess fram
að framkvæmdum vegna mislægra
gatnamóta Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar yrði lokið á kjör-
tímabilinu.
Önnur áhersluatriði voru m.a.
undirbúningur byggingar 300
nýrra leigu- og þjónustuíbúða og
hreinsunarátak í borginni.
Framtíð flugvallar verði ákveðin
Ekki náðist í Ólaf F. Magnússon
borgarstjóra í gærkvöldi vegna
meirihlutaskiptanna.