Morgunblaðið - 15.08.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008 23
MINNINGAR
✝ Gunnar Magn-ússon Sal-
ómeson fæddist í
Reykjavík 5. nóv-
ember 1965. Hann
lést á endurhæfing-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi,
17. júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Magnús Þor-
steinsson barna-
læknir, f. í Reykja-
vík 10. mars 1926, d.
22. júní 2001 og
Guðrún Salóme
Guðmundsdóttir húsmóðir, f. í
Hafnarfirði 18. júlí 1929, d. 27. júlí
2007. Systkini Gunnars eru Þor-
Michigan. Maki I: Robert Schott, f.
13. júlí 1947. Þau skildu. Börn:
Abraham Teitur, f. 28. desember
1977; dóttir hans og Ericu Hodg-
son, f. 30. júní 1977, er Alea Mic-
helle, f. 19. júlí 1996; David Þór, f.
24. maí 1979, kvæntur Ericu
Schott, f. 31. mars 1982, dóttir
þeirra er Kiran Avery, f. 29. júní
2008 og Seth Eiríkur, f. 26. mars
1981. Maki II: Melvin Gordon
McInnis, f. 12. maí 1956, sérfræð-
ingur í geðlækningum og prófess-
or við University of Michigan De-
pression Center í Ann Arbor í
Michigan. 3) Guðmundur, f. 17.
apríl 1956, sagnfræðingur. Maki:
Vaka Hrund Hjaltalín, f. 7. sept.
1956, móttökuritari. Börn: Sal-
óme, viðskiptafræðingur, f. 21.
okt. 1983, Sigrún, nemi f. 2. okt.
1987, Unnur, nemi, f. 25. júní 1990
og Katrín, f. 11. júní 1993.
Útför Gunnars verður gerð frá
Háteigskirkju í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
steinn, f. 8. des. 1952,
Ph.D., stjórnmála-
fræðingur, aðstoð-
arskrifstofustjóri á
skrifstofu Alþingis.
Maki I: Helga Kristín
Gunnarsdóttir bóka-
vörður, f. 14. júní
1957. Þau skildu.
Maki II: Halla Bach-
mann Ólafsdóttir, f.
16. júní 1957, lög-
fræðingur, for-
stöðumaður í Trygg-
ingastofnun. Börn:
Katrín Sigríður, f.
15. júlí 1994 og Jórunn María, f.
25. okt. 1996. 2) Salóme Guðrún, f.
30. sept. 1954, búsett í Ann Arbor í
Gunnar bróðir minn var margvís-
legum hæfileikum gæddur, en honum
auðnaðist ekki að virkja þá sjálfum
sér til heilla. Frá unglingsaldri glímdi
hann við þungbæran sjúkdóm, syk-
ursýki á háu stigi, sem hann var í
stöðugri afneitun gagnvart, og til við-
bótar átti hann í sálarstríði sem enga
úrlausn fékk. Þetta tvennt gerði hon-
um lífið erfitt. Er sárgrætilegt til þess
að hugsa hvernig örlögin leika stund-
um efnilegt fólk.
Sem krakki var Gunnar skýr strák-
ur, glaðsinna og uppátækjasamur.
Hann var ágætur námsmaður, eign-
aðist góða vini í Hlíðunum, þar sem
við bjuggum þegar hann óx úr grasi; í
endurminningunni er hann stöðugt
úti að spila við þá fótbolta. En eftir að
í menntaskóla var komið var eins og
hann vissi ekki hvað hann vildi og
hvert skyldi stefna. Eitthvert eirðar-
leysi hrjáði hann stöðugt. Hann
dreymdi stóra drauma, en lánaðist
ekki að rækta garðinn sinn svo áform-
in gætu orðið að veruleika. Í stað þess
að sinna nærtækum og auðleysanleg-
um verkefnum fann hann alltaf eitt-
hvað nógu flókið og fjarlægt til að fást
við. Það var eins og hann þráði að
sanna sig á einhvern hátt. Kannski
vegna þess að hann var langyngstur
okkar systkinanna, það voru næstum
tíu ár á milli mín, sem er næstyngst-
ur, og hans. Og vissulega kom hann
okkur í fjölskyldunni oft á óvart með
þekkingu sinni á ólíklegustu sviðum.
Hann varði löngum stundum til að
læra strembin tungumál eins og hebr-
esku og ferðaðist einn um hættusvæði
í Austurlöndum nær. Hann fékk mik-
inn áhuga á flóknum fjármálagern-
ingum og var í stöðugu netsambandi
við sálufélaga á því sviði víða um
heim. En ekki varð af þessu uppskera
í samræmi við tíma og fyrirhöfn.
Þannig liðu árin.
Við Vaka minnumst margra góðra
stunda sem við áttum með Gunnari.
Og stelpurnar okkar sakna frænda
sem sýndi þeim ávallt mikla væntum-
þykju.
Fyrir sjö árum, haustið 2001, varð
Gunnar fyrir áfalli, þar sem hann
dvaldi í erlendri borg, og leiddi það til
alvarlegs heilaskaða. Upp frá því
þurfti hann á sólarhringsumönnun að
halda. Hennar fékk hann að njóta við
bestu skilyrði sem íslenskt velferðar-
þjóðfélag getur boðið, fyrst á Grens-
ásdeild og síðan endurhæfingardeild
Landspítalans í Kópavogi. Kann fjöl-
skylda hans hjúkrunarfólki og öðrum
starfsmönnum, sem honum sinntu
þessi ár, kærar þakkir fyrir hjálpina
sem var ómetanleg.
Guðmundur Magnússon.
Á sólbjörtum sumardegi á göngu
eftir ströndum Tenerife hringdi sím-
inn. Gunnar mágur minn var í lífs-
hættu. Örfáum mínútum síðar var
hann allur. Við Þorsteinn og stelpurn-
ar höfðum kvatt hann nokkrum dög-
um áður. Hann var aldrei þessu vant
lasinn. Á meðan við stöldruðum við
átti hann símtal við Sidda þar sem
hann óskaði honum til hamingju með
afmælið og átti síðan gott spjall við
Eddu sem rifjaði upp þá gömlu góðu
daga sem þeir áttu hann og Maggi
heitinn sonur þeirra m.a. í fótbolta.
Þau sómahjón Edda og Siddi náðu
svo greinilega að vekja upp skemmti-
legar endurminningar. Mágur minn
var góðum gáfum gæddur, en því mið-
ur hömluðu langvinn veikindi hans frá
unglingsárum því að hæfileikar hans
nýttust honum sem skildi. Hann
stundaði nám í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og vantaði aðeins herslu-
muninn til þess að hann lyki stúdents-
prófi. Gunnar var hins vegar mjög öfl-
ugur í alls kyns sjálfsnámi. Hann náði
heilmikilli tölvufærni upp á eigin
spýtur og nýtti sér vefinn til sam-
skipta við fólk víða um heim. Tungu-
mál voru Gunnari hugleikin og réðist
hann ekki á garðinn þar sem hann var
lægstur og lagði m.a. stund á arabísku
og hebresku. Náminu fylgdi hann eft-
ir með ferð til Ísraels og Egyptalands.
Þá hafði hann mikinn áhuga á verð-
bréfaviðskiptum. Gunnar fylgdist
mjög vel með stjórnmálum og var vel
heima í heimsmálunum. Gunnar ferð-
aðist víða bæði með foreldrum sínum
og síðar einn. Þótt heilaskaði sem
hann varð fyrir á árinu 2001 hafi
hamlað mjög hans andlega atgervi þá
var ótrúlegt hvað hann gat með smá
aðstoð rifjað upp hin ýmsu ferðalög.
Bandaríkin voru honum hugleiknust
enda átti hann afar góðar minningar
um tíðar ferðir sínar þangað. Flórída
var uppáhaldsstaðurinn, en þar hafði
hann dvalið með foreldrum sínum í
æsku og á unglingsárum. Eftir að
Sulla systir hans fluttist til Bandaríkj-
anna dvaldi hann hjá henni og fjöl-
skyldu hennar um lengri eða
skemmri tíma. Heilsa hans leyfði því
miður ekki að hann kæmist út fyrir
landsteinana hin síðari ár, en ekki
blandaðist honum hugur um hvert
hann vildi fara, „til Bandaríkjanna“
sagði hann og lagði þunga áherslu á
orð sín.
Nú hafa leiðir okkar Gunnars skilið
um sinn, eftir 15 ára viðburðaríka
samfylgd. Ég man vel okkar fyrsta
fund, en þá heimsótti hann okkur Þor-
stein og færði mér rósir, glaður en ör-
lítið feimin. Missir Gunnars var mikill
eins og okkar allra við fráfall tengda-
móður minnar fyrir ári síðan. Hún var
kletturinn í lífi hans og þau Magnús
bæði meðan hann lifði. Heimsóknir
hennar og símtöl vöktu einlæga gleði
hans. Alla tíð voru tengdaforeldrar
mínir vakin og sofin yfir velferð
Gunnars. Nú eru þau þrjú sameinuð á
ný. Öllu því frábæra starfsfólki sem
annaðist Gunnar á deild 18 og 19 á
LSH í Kópavogi færum við fjölskyld-
an alúðarþakkir fyrir þá kærleiksríku
umönnun sem honum var veitt þau ár
sem hann dvaldi þar. Að leiðarlokum
þakka ég mági mínum samfylgdina og
kveð hann með þeim orðum sem urðu
þau síðustu er ég kvaddi hann í hinsta
sinn, Guð geymi þig, Gunnar minn.
Halla Bachmann Ólafsdóttir.
Ég var aðeins fimm ára þegar
Gunnar veiktist en ég man að þegar
við fórum í Hamrahlíðina til ömmu,
afa og Gunnars þá tók Gunnar okkur
alltaf í flugvél og gaf okkur gult smint.
Það var um haust 2001 þegar Gunnar
veiktist. Ég man þegar við fórum á
spítalann og hann gat ekki einu sinni
talað. En svo lærði hann að tala upp á
nýtt og mamma kenndi honum nýlega
að knúsa venjulega. Honum fannst
svo gaman að tala í síma og maður sá
mun eftir því hvern hann var að tala
við. Hann skildi ensku þegar fólk tal-
aði hana og gat líka sagt nokkur orð.
Gunnar bjó á deild 18 og 19 á LSH í
Kópavogi og var mjög ánægður þar.
Við fengum ekki nógu mörg ár með
Gunnari en ég er þakklát fyrir þau ár
sem við fengum. Ég vil þakka öllu
starfsfólkinu á deild 18 og 19 á LSH í
Kópavogi sem sinnti Gunnari. Ég
mun sakna þín, Gunnar, en ég veit að
þú ert nú sameinaður ömmu og afa
aftur, sem þú elskar svo mikið.
Jórunn.
Gunnar Magnússon
Salómeson
Fleiri minningargreinar um Gunn-
ar Magnússon Salómeson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝
Okkar ástkæra
RÓSANNA HJARTARDÓTTIR,
Selfossi,
sem lést 6. ágúst verður jarðsungin frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 16. ágúst kl. 15.30.
Jón A. Hjartarson, Guðríður Magnúsdóttir,
Ástríður Hjartardóttir, Guðleifur Sigurjónsson,
Steindór Hjartarson, Ágústa Halldórsdóttir,
Jónína Hjartardóttir, Gísli Erlendsson,
Steinþóra Níelsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓRUNN INGIMUNDARDÓTTIR,
andaðist fimmtudaginn 24. júlí á hjúkrunarheimilinu
Seljahlíð.
Útför hennar fór fram í kyrrþey.
Ingveldur Dagbjartsdóttir,
Guðrún Dagbjartsdóttir, Halldór Jónatansson,
Sigríður Dagbjartsdóttir, Eggert Ásgeirsson,
Steingrímur Dagbjartsson, Steinunn Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
TEITUR BENEDIKTSSON
menntaskólakennari
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 5. ágúst
síðastliðinn.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Sverrir Teitsson,
Áslaug Þóra Halldórsdóttir,
Vigdís Selma Sverrisdóttir,
Ragna María Sverrisdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RAGNAR VIGFÚSSON,
síðast til heimilis að Miklubraut 1,
Reykjavík,
lést föstudaginn 8 ágúst.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður í Vopnafjarðarkirkjugarði
fimmtudaginn 21. ágúst.
Vigfús Már Ragnarsson, Margith Eysturtún,
Sigþór Viðar Ragnarsson, Elsa Auður Sigfúsdóttir,
Jóhannes Óli Ragnarsson, Lena Rögnvaldsdóttir,
Ragnar Þór Ragnarsson,
Andrias E. Vigfússon,
Arndis E. Vigfúsdóttir,
Alexander Máni Sigþórsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
BJÖRG KARLSDÓTTIR
frá Reyðarfirði,
Heiðargerði 53,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðvikudaginn
13. ágúst.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RÓSA EIRÍKSDÓTTIR,
Hæðargarði 33,
áður Miðdal í Kjós,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
19. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar
látnu er bent á MS-félagið.
Davíð Guðmundsson,
Fanney Þ. Davíðsdóttir,
Hulda Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Grímsson,
Kristín Davíðsdóttir, Gunnar Rúnar Magnússon,
Guðbjörg Davíðsdóttir,
Katrín Davíðsdóttir, Sigurður Ingi Geirsson,
Sigríður Davíðsdóttir, Gunnar Guðnason,
Guðmundur H. Davíðsson, Svanborg A. Magnúsdóttir,
Eiríkur Þ. Davíðsson, Solveig U. Eysteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HÖRÐUR ÞÓRHALLSSON
húsasmiður,
Brúnavegi 5,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn
12. ágúst.
Hann verður jarðsunginn föstudaginn 22. ágúst frá
kirkju Óháðasafnaðarins kl. 15.00.
Halldóra K. Guðjónsdóttir,
Elín Birna Harðardóttir, Ársæll Gunnsteinsson,
Katrín Úrsúla Harðardóttir, Guðni B. Guðnason,
G. Svafa Harðardóttir,
Þórhallur. G Harðarson, Brynja Björk Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.