Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 25
kjúklingabringum í ofnfast mót, hell- ið ólífuolíu yfir og steikið í ofninum við 180°C í 15 mínútur. Takið þá út og penslið bláberjasósunni yfir og steik- ið þar til kjöthitamælir sýnir 65°C kjarnhita. Ef mótið er þurrt má setja smávatn í botninn meðan á steikingu stendur. Berið fram með góðu græn- metissalati, kúskús eða hrísgrjónum. Berjasnafs Þetta er sænsk uppskrift sem má breyta fram og til baka eins og manni dettur í hug. Það má nota hvaða teg- und sem er af berjum, margir nota rifsber en það er ekki síðra að nota bláber, hindber, jarðarber eða sólber. 5 dl fersk bláber 2 dl hrásykur 3 dl vodki Setjið sykur og bláber í stóra krukku með loki eða skál með loki, hrærið saman og hellið vodkanum yf- ir og hrærið í þar til sykurinn hefur leyst upp. Setjið lokið á og látið standa í 1-2 vikur og hrærið í annað slagið (gjarna á hverjum degi). Eftir þennan tíma er ágætt að setja krukkuna á kaldan stað í 1-3 mánuði eða þar til tími er kominn til að smakka. Þá þarf að sigta líkjör- inn, fyrst í gegnum sigti og að síðustu í gegnum kaffipoka og hellið á flösku. Geggjað salat með hjúpuðum túnfiski 2 msk. hvít sesamfræ 1 msk. svört sesamfræ 2 msk. maldonsalt 1 tsk. paprikuduft 3 msk. ólífuolía 400 g túnfiskur 10 dl ferskt blandað salat 1 dl ferskt kóríander, saxað 2 dl fersk bláber 5 vorlaukar, saxað 1 kúrbítur (ferskur) 10 kokteiltómatar 1 límóna ½ msk. ólífuolía ½ msk. tamari-sojasósa Blandið saman sesamfræjum, salti og papriku. Rúllið túnfiskinum upp úr kryddblöndunni. Hitið olíuna á pönnu og steikið túnfiskinn snöggt þannig að hann brúnist að utan en sé enn hrár að innan. Leggið fiskinn til hliðar. Setjið blandað salat í skál ásamt kryddi, bláberjum og söxuðum vorlauk. Afhýðið kúrbítinn og skerið í ræmur með kartöfluskrælara. Setjið út í salatið ásamt kokteiltómötum skornum þvert. Hrærið saman safa úr einni límónu, ólífuolíu og tamari- sósu. Hellið sósunni yfir salatið. Rað- ið túnfiskinum yfir og njótið. Berjasalsa Þetta salsa er alveg frábært með grilluðu kjöti eða fiski. Gómsæt vítamínsósa. Fyrir 4 3 tómatar ½ laukur, smátt saxaður 1 dl ferskt kóríander, saxað 1 tsk. hrásykur ½ tsk. maldonsalt örlítill nýmalaður svartur pipar 2 msk. ólífuolía 2 dl fersk bláber Skerið tómata, lauk og kóríander smátt og blandið saman með salti, sykri og pipar. Hellið ólífuolíu saman við og látið standa í um það bil klukkutíma áður en borið er fram. Rétt áður en salsað er borið fram er berjunum blandað varlega saman við. Bláberjarjómaostur Hollt og gott. sál og líkama Bláberjaglansandi kjúklingabringa Passar vel við cous cous og salat. Orkudrykkur Hressandi berjabomba. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 25 - kemur þér við Sæstrengur hjá Surtsey vafðist fyrir ráðherra Skrifa undir óskiljanleg skjöl hjá sýslumanni Ísland á toppnum en Evrópa á niðurleið Svava Johansen leggur tískulínur haustsins Arnar Grétar í Sign strippaði á Gay pride Djúpsteiktar hunda- súrur er lostæti Hvað ætlar þú að lesa í dag? Karl af Laugaveginum yrkir: Við sólarupprás á mig leit og ekki duldist mér; drjúgt er það sem Dagur veit og Dagur veit af sér. Bragi Sveinsson ættfræðingur orti hringhendu á sínum tíma: Dagur bjartur gekk um garð, glataði skarti sínu. Nóttin svarta nöpur varð næddi að hjarta mínu. Og Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði: Bjartur dagur hægt og hljótt heim að dyrum gengur. Þó er eins og þessi nótt þyrfti að endast lengur. Hallmundur Kristinsson fylgdist með lyklaskiptum í Ráðhúsinu að norðan: Haldin munu hanastél. Hrókeringar tíðar. Allt er gott sem endar vel – einhverntíma síðar. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Dagur og sólarupprás

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.